Morgunblaðið - 23.05.1999, Qupperneq 12
12 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
KÓLA-SKAGI í Norðvest-
ur-Rússlandi, steinsnar
frá landamærum Noregs,
Finnlands og Svíþjóðar, er
sá staður í veröldinni þar sem
mesta magn kjamakleyfra efna er
saman komið. Talið er að á svæðinu,
sem liggur frá borginni Múrmansk í
vestri, til Severodvinsk í suðri, til
eyjarinnar Novaya Zemlya í austri,
sé að fínna u.þ.b. 300 kjamakljúfa,
ýmist í kjamorkuknúnum kafbátum
rússneska Norðurflotans, kjam-
orkuknúnum ísbrjótum eða kjarn-
orkuverum; alls um fimmtung-
kjamakljúfa veraldar. Þá er leit að
landsvæði sem geymir jafnmikið
magn af kjamorkuúrgangi hvort
sem um er að ræða úrgang í föstu
eða fljótandi formi. Fjölmiðlar, um-
hverfisvemdarsamtök og opinberir
aðilar hafa á stundum keppst við að
kalla svæðið „tifandi umhverfisvá“;
„hugsanleg upptök gríðarlegra um-
hverfishamfara" - vanda sem sé
óleysanlegur miðað við núverandi
aðstæður í Rússlandi. Víst er að gíf-
uryrði velqa athygli og þoka málum
ofar á dagskrá þeirra er ákvarðanir
taka. Eri um leið og raddirnar
þagna og kastljós líðandi stundar
beinist að öðm svæði, öðram mál-
efnum, er hætta á að vandinn
gleymist. Vandi sem í tilviki kjarn-
orkuvárinnar á Kóla-skaga er bráð-
ur - vandi sem þekkir engin landa-
mæri.
„Er ísinn þiðnar kemur
ýmislegt í Ijós“
Viðhorf manna til kjamorku sem
orkugjafa breyttust veralega eftir
að einn kjamaofna Tsjémóbýl-
kjarnorkuversins í Ukraínu, þá Sov-
étríkjunum, bilaði árið 1986 með
þeim afleiðingum að geislavirkur
úrgangur breiddist út. Geislavirk
ský hrönnuðust upp og bárust með
vindum í suðurátt og í vestur til
Skandínavíu. I Noregi urðu bændur
víða illa úti, búfénaður varð fyrir
mengun sem enn gætir á sumum
svæðum Mið-Noregs. Slæmur að-
búnaður borgaralegra kjamorku-
vera víðs vegar um Sovétríkin
stefndi öryggi þjóða fjarri upp-
sprettunni í voða.
í apríl árið 1989 gerðist annað at-
vik sem undirstrikaði hættuna af
kjamorku - í þetta sinn hemaðar-
legs eðlis. Sovéski kjamorkukafbát-
urinn Komsomolets K-278, sökk
undan ströndum Bjamareyjar í
Barentshafi eftir að eldur hafði
komið upp í eldflaugageymslu. Hvíl-
ir kafbáturinn nú á um 1.600 metra
dýpi. Sérfræðingar telja að ef bát-
urinn springur muni höggsúlan að-
eins ná í um 700 metra hæð. Yfir-
borði jarðar sé því óhætt. Fimm
aðrir kjarnorkukafbátar - tveir
þeirra bandarískir - hvíla í votum
gröfum Barents- og Karahafs
ásamt manni og mús, kjamaofnum
og meðaldrægum eldflaugum bún-
um kjamaoddum.
Norðmenn hafa öðram fremur
beint athyglinni að þeim fjölmörgu
hugsanlegu hættum - leyndum og
ljósum - sem stafa af kjarnorku-
mannvirkjum á Kóla-skaga. Astæð-
an er einföld. Norðurhluti Noregs
liggur, auk norðurhéraða Finn-
, □
/ Á'; Stækkaö
svæöi
—.'•• •• ’—.f'u
Svalbarði
‘&Z, Novaya
BARENTS*
HAF
I Kjarnorkuver
# Kjarnorkutilraunir
V Kjarnorkuúrgangur
Umtalsverð mengun
í andrúmslofti
Kola-
skagi
R Ú S
S L A N
^•Arkhangelsk
Hvitahaf f
BARENTS-
H AF
Vardö
Fortíðarvandi
til framtíðar
A kjarnorkuslóðum á Kólaskaga
þar sem váin þekkir engin landamæri
lands, að Kóla-skaga í vestri og hafa
norsk stjórnvöld skilgreint hættuna
af gömlum kjamorkuverum, bágri
stjómun á geymslu og endurvinnslu
geislavirks úrgangs og hugsanlegri
geislamengun í norðurhéraðum,
sem hreinræktuðu þjóðaröryggis-
máli.
Lok kalda stríðsins og þíða í sam-
skiptum risaveldanna sefaði óttann
við gereyðingarstríð þar sem lang-
drægum kjarnorkuilaugum væri
beitt á fjarlæga andstæðinga. „En
er ísinn þiðnar kemur ýmislegt í
ljós,“ líkt og einn viðmælenda blaða-
manns Morgunblaðsins komst að
orði. Lok kalda stríðsins sviptu hul-
unni af víðfeðmum og brýnum
vanda kjarnorkumannvirkja á Kóla-
skaga þar sem náttúran og fólkið er
hugsanleg bráð þögullar vár sem
enn er langt frá því að vera að baki.
Úrgangi fleygt í sjóinn
í upphafi tíunda áratugarins
komust sögusagnir á kreik þess efn-
is að á áranum 1961-1991 hefðu
Sovétmenn fleygt miklu magni af
geislavirkum úrgangi í sjó norðan
heimskautsbaugs. Um hafi verið að
ræða kjamorkueldsneyti úr
kjamakljúfum kafbáta Norðurflot-
ans og sovéskra ísbrjóta sem héldu
skipaleiðum opnum í Norður-íshaf-
inu. Ollu gransemdimar miklu upp-
námi í norðurhluta Noregs og víðar
þar sem augljóst var að sögusagnir
þessa efnis gætu haft mikil áhrif á
verð fiskafurða. Að sögn Torbjöms
Hvergi er að fínna
meira magn af geisla-
virkum úrgangi en á
Kólaskaga í norðvest-
urhluta Rússlands.
Andri Lúthersson ferð-
aðist um svæðið og
kynnti sér stöðu mála
og áhyggjur nágranna-
ríkja af ástandinu.
Norendals, háttsetts embættis-
manns innan norska utanríkisráðu-
neytisins, sem hefur kjamorkumál í
sínum verkahring, vora það slíkar
sögusagnir sem í raun mynduðu
granninn að umfangsmiklu sam-
starfi Norðmanna og Rússa sem
miðaði að kortlagningu hættunnar
af geislavirkni á norðurslóðum og
síðar úrbóta í þeim efnum. Á áran-
um 1992-1994 vora skipulagðir leið-
angrar á þau hafsvæði þar sem
granur lék á um að geislavirkum úr-
gangi hefði verið fleygt og vora
mælingar gerðar. Staðfest var að
Sovétríkin losuðu sig við úrgang í
sjó, hugsanlega jafnvel eftir að al-
þjóðlegur sáttmáli um bann við los-
un geislavirkra efna í höfin (Lund-
úna-sáttmálinn) tók gildi árið 1992.
Niðurstöður hópa vísindamanna
fjölmargra þjóða hafa sýnt að ekki
er bein hætta af úrganginum. Enn
virðist leki ekki hafa komið að
geymsluhylkjunum en varasamt er
að áætla að hætta sé því ekki til
staðar. Að sögn Andrejs Zolokovs,
ráðgjafa Bellona-Murmansk-um-
hverfisverndarsamtakanna, era ein-
hverjir af þeim tæplega tíu kjama-
ofnum sem á hafsbotni hvíla
skemmdir. Sex þeirra hafi að
geyma fullnýtt kjarnorkueldsneyti.
Auk kjamaofnanna hvfli víða í
Barents- og Karahafinu þúsundir
geymsluhylkja fyrir geislavirkan
úrgang. Upplýsingar um fjölda
þeirra séu tilviljanakenndar ef þær
þá séu til.
Oragg geymslusvæði fyrir geisla-
virkan úrgang frá borgaralegum og
hernaðarlegum kjamorkuflota
Rússa era af skomum skammti á
Kóla-skaga. Þau sem fyrir era era
komin til ára sinna og era oftar en
ekki í hrikalegu ástandi. Þau bera
merki þess að litlu hafi verið til
kostað við smíði þeirra. I skýrslu
norsku Bellona-umhverfisverndar-
samtakanna segir t.d. að staðsetn-
ing geymslusvæða á vegum Norður-
flotans hafi verið ákveðin með til-
viljunarkenndum hætti og að mark-
mið stjórnvalda í Moskvu um að
ljúka við smíði geymslusvæðanna á
tilsettum tíma hafi bitnað á gæðum
og öryggi þeirra. Ekkd hafi verið
tekið mið af hörðum veðurskilyrð-
um norðursins og að óbreyttir her-
menn undir stjórn herforingja sem
sett höfðu verið ströng tímamörk,
hafi reist byggingamar í flýti.
Forgangsröðun og gnægð
verkefna
Þessum fortíðarvanda Rússa hafa
Norðmenn reynt að bregðast við
með því að forgangsraða - í sam-
vinnu við heimamenn og alþjóðlegar
stofnanir - þeim brýnu verkefnum
sem enginn hörgull virðist vera á.
Fremst í forgangsröð Norð-
manna er aukið öryggi í og við
mannvirki sem hýsa kjarnaofna og
kjarnakleyf efni. Markmiðið er að
koma í veg fyrir óhöpp og tilvik þar
sem geislavirk efni leysast úr læð-
ingi og ná að berast út í andrúms-
loft, vatn eða jarðveg. Á Kóla-skaga
beina Norðmenn sjónum sínum
helst að Kolatom-kjarnorkuverinu
við Polyamye Zori, 30 ára gamla
iðnaðarborg þar sem um 30.000
manns búa, um 200 km suður af
Múrmansk. Kjamorkuverið er af
gamalli gerð og var fyrsti ofninn af
fjórum tekinn í notkun fyrir rúmum
25 áram. Er talið að kjamaofnar
Kolatom-versins uppfylli ekki þá ör-
yggisstaðla sem kjarnorkuverum
era ætlaðir.
Elstu kjamaofnarnir era af úr-
eltri gerð og hafa Norðmenn knúið
á um að þeim verði lokað er opin-
bert leyfi til rekstrar þeirra rennur
út árið 2003. Þá er geymslusvæði
Kolatom fyrir geislavirkan úrgang
ófullnægjandi og löngu gemýtt.
Hefur frumkvæði Norðmanna
beinst að því að auka öryggisvið-
búnað kjamorkuversins og að út-
vega nauðsynlegan tækjabúnað til
að halda áhættu í lágmarki. Þá hef-
ur verið leitast við að þjálfa starfs-
menn og bæta öryggis- og umhverf-
isvitund þeirra.
Kolatom framleiðir u.þ.b. 45%
raforku á Kóla-skaga og á meðan
aðrir raunhæfir orkugjafar era ekki
í augsýn er fyrirséð að þrýstingur
verði á að halda rekstri kjamorku-
versins áfram í sömu mynd.
Geislavirkur úrgangur á at-
hafnasvæðum Norðurflotans
Ef steypa á hugtökunum öryggi
og geislavirkur úrgangur í sama
Helgarnómskeiðið
UMBREYTING LÍFSINS
Með frið í hjarta
Förum saman á flug inn
{ kærleikann, sem býr í
hjörtum okkar allra.
Þú ert þinn gæfusmiður.
lllft skoflum:
Gleöina, frelsiö og hamingjuna.
Orkustöövarnar, upplifum orku peirra og próunarferli.
Orkukerfiö, tengingu orkustöðvanna og það setn
gerist við hugljómun. Vitundina, hvernig hún opnast
í tengslum við þróun einstaklingsins og mannkynsins.
Sköpunarorkuna og snertijóga.
Vi5 notum:
Jóga - Dans - Hugleiöslu - Öndun - Leik - Slökun
Kennari Kristbjörg Kristmundsdóttir, Vallanesi.
Námskeiðið verður haldið:
|úní nk.
í Breiðabliksskálanum í Bláfjöllum.
Upplýsingar og skráning bjá Kristbjörgu í sfma: 471 1545.
ÓNSKÓLI
SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR
REYKJAVÍK
innritun í forskólanóm veturinn 1999-2000
fer fram á skrifstofu skólans, Engjateigi 1,
daglega milli kl. 13 og 17.
Kennslustaðir eru; Engjateigur 1,
Arbæjarskóli og Hraunberg 2 í Breiðholti.
Umsóknir má einnig senda í faxi
eða með tölvupósti.
Taka þarf fram nafn, heimilisfang, síma og
kennitölur barns og forráðamanns.
Nánari upplýsingar:
sími 568 5828 • bréfsími 568 5830
netfang tsdk@ismennt.is • veffang http://rvik.ismennt.is~tsdk
Skólastjóri
aP
GÓLFEFNABÚÐIN
Borgartúni 33
Yjyæða flísar
^jyæða parket
^jyóð verð
^jjpóð þjónusta
KmversK
heilsumeðrerð
í boði eru ýmis afbrígði of kínverskum heilsumeðferðum
sem hjálpo þér gegn ýmsum streitukvillum, s.s.
vöðvobólgu, bakveiki, gigt, ofnæmi, rislilvondomólum,
olmennum stirðleiku og fleiru.
líinveish hcilsulind
Ármúlo 17a • Sími 553 8282