Morgunblaðið - 23.05.1999, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.05.1999, Blaðsíða 48
r48 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999 MORGUNBLAÐIÐ Eg er Laddi, konugur frumskógarins! TARSAN ER LÁVARbUR FRUM- SKÓGARINS! KONUNGUR ER,MEIRI EN LAVARÐUR! 1 Grettir Smáfólk RAT5! I 6UES5 HE LEFT.. there'sa 5PIPER ON Y0URBACKÍ APRIL ^FOOLj^ WAKEUP.BI6 BROTHER! MARK McöWIRE 15 AT THE DOOK'ME WANT5TO PLAVON YOURTEAM' MARK?. MARK? /APRIL'1 Vaknaðu stóri bróðir, Mark Mc Gwire er kominn! Hann vill leika með liðinu þínu! Apríl- gabb! Mark? Mark? Aprílgabb! Herra Mc Gwire? Ert þú þarna úti? Aprílgabb! Árinn! Hann hefur víst farið.. Það er könguló á bakinu á þér! Aprflgabb! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Lrkaminn man liðna atburði Frá Gitte Lassen: LÍKAMINN lýgur ekki. Fas hans, hörundslitur, staða, hlutfóll, hreyf- ingar, spenna og lífsorka tjá mann- inn eða konuna inni fyrir. Líkam- inn endurspeglar allt sem í okkur býr. Hann mót- ast af andlegum, tilfínningalegum og sálrænum þáttum í tilveru okkar. Það er eins og líkaminn sjái hvað í hugan- um felst og hvernig hjartað finnur til og lagi sig að því. Líkaminn kemur upp um hver þú ert, um tilfinningar þínar, skapgerð og varnarviðbrögð. Sálgreinandinn Wilhelm Reich, lærisveinn Freuds, setti fyrstur manna á Vesturlöndum fram kenn- ingar um „minni líkamans". Hann hélt því fram að vöðvana sem við notum til að tjá ákveðnar tilfinningar notum við líka til að bæla þær niður. Ef þú færð ekki að finna til, færð ekki að tjá ákveðna tilfinningu og jafnvel ekki að viðurkenna tilvist hennar, myndast samsvarandi svæði með vöðvaspennu í líkamanum. Þeg- ar slaknar á þessari spennu losnar einnig um tilfinninguna og endur- minninguna, og sömuleiðis um sjálfseyðingarhvötina sem voru þar innibyrgðar. Það er algengt að fjölskyldur í vanda neiti að viðurkenna tilfinning- ar. Þau okkar sem alast upp 1 sam- virkum fjölskyldum, hvort sem þær eru óstarfhæfar vegna ofdrykkju eða af öðrum orsökum, byrgja inni leifar af afneituðum, niðurbældum, ótjáð- um tilfinningum. Oftast eru þetta „slæmar“ tilfinningar - sársauki, ótti, reiði, skömm. Þótt við höfum vitandi vits gleymt þessum tlfinning- um úr bernsku berum við þær samt með okkur og líkaminn man eftir þeim. Og svo mörg geymum við end- urminningar um sársauka og ótta, reiði og skömm í líkömum okkar. Ég er með konu í djúpnuddi og er að nudda kvið hennar. Ég verð vör við vaxandi tilfinningalega spennu og er viss um að tárin streyma úr augum hennar. Ég hvet hana til að gefa grátnum lausan tauminn, að hleypa öllu út. Ég segi ekkert fyrr en tilfinningaofsinn hefur fjarað út. Þá segist hún muna að sér hafi verið nauðgað sem bami. Henni er mikill léttir að tala nú loks um þessa sárs- aukafullu reynslu. Nú er hjá mér karlmaður. Hann rifjar upp löngu gleymda atburði úr bemsku og við það skilur hann betur tmflaða hegðun sína innan fjölskuld- unnar. Þessi nýuppgötvaða vitneskja getur nú auðveldað honum að velja betri leiðir í lífinu, þar sem undir- meðvitund hans er ekki lengur fjötr- uð af lögmálum afbrigðilegu fjöl- skyldunnar. Tilfinningaspenna kallar fram lík- amlega spennu, líkamleg spenna kallar fram tilfinningaspennu. Báðar takmarka frelsi okkar til sjálfstján- ingar. Ég trúi því að innst inni þrái allir að hverfa aftur til þess sakleysis og tjáningarfrelsis sem við fáum í vöggugjöf. Og með ofurlítilli hjálp fer líkaminn að slaka á, hvert sárið af öðru tekur að gróa, hlekkirnir sem fjötrað hafa líkama og sál falla af okkur einn af öðmm. Þegar slaknað hefur á allri spennu, og allar tilfinn- ingar hafa fengið útrás, fæst frelsi til nýrrar sjálfstjáningar. Fær nuddari kann að hlusta á lík- amann þegar hann biður um hjálp. Að hlusta á líkamann og láta hann segja sér til er áhrifarík leið til að greiða úr endurminningum og martröðum sársaukafullrar bemsku. Við þráum öll að losna við slíkan sársauka. Það er dásamleg og lækn- andi upplifun að finna snertingu þess sem virðir, skilur og finnur til með okkur. Slík snerting fær líkamann til að slaka á og losa um, leysa fjötrana sem við höfum borið svo lengi og frelsa sjálfsvitund okkar. GITTE LASSEN, nuddari og vinnur við sálræna líkams- meðferð og ráðgjöf. Gitte Lassen Utspil borgarstjóra Frá Eiríki Brynjólfssyni: BORGARSTJÓRI kom með tillögu um 150-170 milljóna króna fjárveit- ingu til grunnskóla Reykjavíkur á næsta ári. Að vísu líst mér alltaf illa á óskilgreindar greiðslur af þessu tagi. Hver á að ákveða hverjir vinna hvað fyrir hvað mikið fé? Þetta getur verið uppskrift að óánægju. Þá er þetta aðeins helmingur af því fé sem kennarar í Reykjavík hafa krafist í bætur fyrir aukin störf á því skólaári sem nú er að Ijúka. En aðalatriði málsins er að borgarstjóri hefur með þessu tilboði sínu viðurkennt að störf kennara hafa aukist án þess að greiðslur hafi komið fyrir. Það er vitaskuld vel og ætti að auðvelda borgarstjóranum að stíga skrefið til fulls og bæta kennurum í Reykjavík aukna vinnu á þessu skólaári. Ég vona að borgarstjórinn flýti sér að stíga þetta óhjákvæmilega skref. Með því að gera það er skóla- haldi næsta haust bjargað og liðkað fyrir næstu kjarasamningum. EIRÍKUR BRYNJÓLFSSON, kennari og ritstjóri Kennarablaðsins. Söfnun vegna veikrar móður Frá Vigfúsi Pór Ámasyni: SÉRSTAKAR þakkir viljum við færa öllum þeim fjölmörgu ein- staklingum og fyrirtækjum sem gáfu í söfnunina er bar yfirskrift- ina „Veik móðir“. Með hrærðum huga er ljúft að greina frá því að í söfnuninni söfnuðust yfir þrjár milljónir króna. Þeim peningum verður fyrst og fremst varið tO að hlúa að bömum Guðrúnar Ipsen, en hún lést þann 23. febrúar sl. Með þakkarkveðjum og bless- unaróskum, VIGFÚS ÞÓR ÁRNASON, prestur. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.