Morgunblaðið - 23.05.1999, Page 19

Morgunblaðið - 23.05.1999, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999 19 Morgunblaðið/Ásdís SÖNGKVARTETTINN Rúdolf æfir dagskrá tónleikanna sem verða á þriðjudag. Söngkvartettinn Rúd- olf syngur í Salnum SÖNGKVARTETTINN Rúdolf heldur tónleika í Salnum, Tón- listarhúsi Kópavogs, þriðjudag- inn 25. maí kl. 20:30. A efnisskrá eru íslensk og er- lend lög, bæði klassísk og af léttara taginu. Á fyrri hluta tónleikanna verður frumflutt lagið Frændi þegar fiðlan þegir eftir Atla Heimi Sveinsson við ljóð Halldórs Kiljan Laxness í útsetaingu Skarphéðins Hjart- arsonar. Einnig verða flutt þijú lög eftir Benjamin Britten úr lagaflokknum „Five Flower Songs“ og ástarvalsar eftir Johannes Brahms. í völsunum munu feðginin Marteinn H. Friðriksson og Þóra Marteins- dóttir leika undir Ijórhent á píanó. Seinni hluti tónleikanna verður að mestu helgaður létt- ari tónlist. Sungin verða lög eft- ir Sigfús Halldórsson, Jón Múla Árnason, Stuðmenn, ABBA o.fl. Rúdolf, sem þekktastur er fyrir jólatónlist sína, var stofn- aður árið 1992 og hefur víða komið fram, bæði á sjálfstæðum tónleikum og í útvarpi og sjón- varpi. Kvartettinn syngur oftast án undirleiks og eru útsetning- ar margar gerðar sérstaklega fyrir hópinn. Rúdolf hefur gefið út tvo geisladiska: Rúdolf - jólasöngvar (1995) og Jólavaka (1997). Kvartettinn Rúdolf skipa: Sigrún Þorgeirsdóttir, sópran, Soffía Stefánsdóttir, alt, Skarp- héðinn Hjartarson, tenór, og Þór Ásgeirsson, bassi. Tákn einskis og alls AF SÝNINGU Kristjáns Davíðssonar í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti. MYJVPLIST (iallerf Sævars Karls MÁLVERK KRISTJÁN DAVÍÐSSON Til 27. maí. Opið alla virka daga á verslunartíma. KRISTJÁN Davlðsson gerir það ekki endasleppt. í Galleríi Sævars Karls sýnir hann sjö ný málverk sem öll verðskulda nánari athugun. Undanfarin ár hefur tvennt verið að gerast í list Kristjáns, sem segja má að hafi gjörbreytt henni. Litirnir hafa verið að þoka fýrir dökku línu- spili á sama tíma og miðja flatarins hefur verið að tæmast. Það er eins og öll atburðarásin hafi verið færð út til jaðranna. Þeir fáeinu litir sem eftir standa í málverkum Kristjáns eru bláir litir og folbrúnir. Reyndar hangir eldra og lit- fjörugra málverk eftir Kristján hin- um megin við þilið á Galleríi Sævars Karls. Það er stórmerkilegt að skoða þróunina í Ijósi þess. Án efa eru margir sem sakna litagleðinnar og finnst þeir sviknir af þessum nýja, fólleita stíl. En þegar betur er að gáð hefur ekkert tapast sem skiptir sköpum um ágæti listar Kri- stjáns. Hins vegar virðist margt koma í ljós sem var dulið í fyrri verkum málarans. Til að mynda hefur skapast ákveð- in hrynjandi í nýju myndunum sem ekki var eins áberandi í þeim eldri. Þar dró liturinn til sín alla athygli og kyrrsetti augun svo þau numu við ákveðið samspil lita án þess að flökta um flötinn. I nýju verkunum hvarfl- ar augað frá einni línu til annarrar án þess að nema staðar. Um leið verður til sérkennileg sjónræn vídd líkt og mörg lög af hvítum blæbrigð- um hvíldu á fletinum en rifur kæmu í þessi lög svo sjá mætti sem snöggvast ofan í hyldýpi hér og hvar. Raunar minna slíkar sjónhverfingar æði oft á yfirborð íslenskrar náttúru, en vfða er eins og landslagið sé sett saman úr mörgum kyrrlátum lögum sem öðru hvoru rifna eða rofna svo skín í ólguna undir þeim. Þannig vísa þessi verk Kristjáns fremur til eðlis íslenskrar náttúru en ákveðinna staðhátta. Fremur en horfa út eftir yfirborði hennar er eins og málarinn beini sjónum sín- um beint ofan á fyrirbærin. Þannig skoðum við til dæmis hverasvæði. Það ýtir undir breyttan skilning á fletinum í hinum nýju verkum að ekki er eftir snefill af þeim sjón- deildarhring sem stundum lét á sér kræla í fyrri myndum málarans. Þá eykur það á sérkennilegt dýptarspil- ið á fletinum hve línuteikningin er loðin og margræð. Það er óhætt að segja að sá vírtúós sem lengi hefur búið í Kristjáni blómstri nú klárar en nokkru sinni fyrr. Nýi stíllinn sem myndirnar hjá Sævari Karli til- heyra er hápunkturinn á ferli þessa gifturíka málara. Halldór Björn Runólfsson Bíll ársins 1999 ro * ...sjáðu framtíðina í focus brimborg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.