Morgunblaðið - 23.05.1999, Page 35

Morgunblaðið - 23.05.1999, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999 35 SKOÐUN " HVAÐA UPPLYSINGAR A AÐ SELJA ÚR GAGN AGRUNNINUM? Raunar vitum við ekki hversu oft í gegn- um árin nauðsynlegum upplýsingum sem geta snert geta líf og heilsu hefur verið haldið frá almenningi. Þann tíma sem greinarhöfundur ritaði reglulega greinar um þessi mál hér í Morgunblaðið var æði oft gripið til erlendra tímaritsgreina sem heimilda, til að koma á framfæri nauðsynleg- um upplýsingum sem fólkið átti kröfu á að fá. Raunverulegur til- Margrét Þorvaldsdóttir gangur gagnagrunnsins? gang að þjóðinni, heilsufarsupplýsingum, lífssýnabankanum og ættarsögu. Þar býður deCode væntanlegum viðskiptamönnum bæði einkarétt (exclusive right) og aðgang (non- exclusive right) að ýms- um þáttum gagna- grunnsins. Ennfremur segir að deCode ætli með gagnagrunninum að vinna með fyrirtækj- um eins og lyfjafyrir- tækjum, líftæknifyri- tækjum, tryggingafyr- irtækjum og heilbrigð- isstofnunum. SAGT hefur verið að margir upp- götvi ekki auð sinn fyrr en þeir hafi glatað honum. Lífssannindin geta átt við hvert af þeim stórmálum sem átök eru á um í þjóðfélaginu um þessar mundir, en það eru kvótamálin, hálendismálið og gagnagrunnur á heilbrigðissviði. Mál þessi eiga öll eftir að hafa ör- lagarík áhrif á líf okkar og afkom- enda í framtíðinni, þó mun ekkert þeirra höggva jafnnærri persónu einstaklingsins og gagnagrunnur á heilbrigðissviði. Mikilvægir þættir gagnagrunns- ins ekki kynntir Eftir því sem fleiri hliðar hafa komið fram í gagnagrunnsmálinu verður ákvörðun stjórnvalda um að afhenda heilsufarsupplýsingar þjóð- arinnar einkafyrirtæki sífellt meira undrunarefni. Umræðan hefur leitt í ljós, að talsvert skortir á að allir þættir gagnagrunnsins eins og áhættuþættir, hafi verið kynntir eða fengið nauðsynlega umræðu. Fyrir- tækið um gagnagrunninn er ólíkt öðrum fyrirtækjum að því leyti að hráefnið er ekki fast í hendi, heldur viðkvæmustu einkamál fólksins í landinu. Það sem greinir þennan gagnagrunn frá öðrum gagna- grunnum er að selja á óviðkomandi aðilum upplýsingar úr honum. Fólk á því kröfu á að vita hvaða upplýs- ingar fara í grunninn og hvernig farið verður með þær. Nauðsynlegum upplýsingum haldið frá fólki Lengi hefur verið áhyggjuefni hve nauðsynlegum upplýsingum, sem snerta líf og heilsu, hefur verið haldið frá fólki hér á landi. Greinar- höfundur kynntist því vel er hann um árabil skrifaði reglulega um heilbrigðisþátt neytendamála hér í Morgunblaðið. Gefið skal lítið dæmi: Fyrir nokkrum árum var kryddtegund ein innkölluð úr versl- unum vegna skaðlegs efnainnihalds. Þegar farið var fram á upplýsingar um kryddið, eiturefnið og hver væri framleiðandinn neituðu sérfræðing- ar á eftirlitsstofnun að gefa það upp. Þrátt fyrir að bent væri á að neytendur ættu kröfur á upplýsing- unum svo hægt væri að fjarlægja kryddið úr hillum og þeir gætu forðað sér og sínum frá neyslu á því, fékkst aldrei uppgefið hvaða krydd um var að ræða. Nei, það má ekki hræða fólkið, var sagt - en það mátti taka afleiðingunum! Þetta var ekki eina skiptið sem slík svör voru gefin. Gagnagrunnur á heilbrigðissviði er eitt af þessum málum sem eiga eftir að snerta líf fólks um langa framtíð, en hann hefur aðeins verið kynntur á mjög yfirborðslegan hátt. Getur ástæðan verið að ekki megi hræða fólk? Þar sem ekki virðist eiga að verða breyting þar á, verður hér sem fyrr leitað fanga í erlend- um heimildum. Þegar gagnagrunnurinn hefur verið kynntur af talsmanni væntan- legs sérleyfishafa hefur hann ítrek- að lýst því yfir að gagnagrunninn eigi að markaðssetja, þ.e. að selja upplýsingar, en útskýrir ekki hverj- um eigi að selja þær eða hvernig þær verði notaðar. Upplýsingar þar um er að finna í markaðssetningu gagnagrunnsins, 24. síðna bæklingi „deCode non- confídential corporate summary" sem deCode hefur sent erlendum fjárfestum og væntanlegum við- skiptaaðilum. Sölubæklingurinn er á ensku, en hefði fyrir löngu átt að þýða yfir á íslensku, svo að fólk hér á landi hefði ekki þurft að vaða í villu um tilganginn með gagna- grunninum. Voru þingmenn blekktir? Þegar sölubæklingurinn komst fyrir tilviljun í hendur fólks hér á landi í ágúst sl. kom hann flestum í opna skjöldu. Bæklingurinn var upp- færður í júni, en eftirgrennslan er- lendis leiddi í ljós að hann hafði fyrst verið settur fram í mars eða um það leyti sem gagnagrunnsfrumvarpið var kynnt á Alþingi. Það virðist sem búið hafi verið að markaðssetja þjóð- ina, þar með lækna og þingmenn, jafnvel áður en vitað var um tilurð gagnagrunnsfrumvarpsins. I sölubæklingnum er gengið út frá því að fyrirtækið hafi óheftan að- Eftir því sem fleiri hliðar hafa komið fram í gagnagrunnsmálinu, segir Margrét Þorvaldsdóttir, verður ákvörðun stjórnvalda sífellt meira undrunarefni. Sala á upplýsingum tíl trygg- ingafélaga varhugaverð Þeir þættir sem verulegum áhyggjum hafa valdið bæði hér á landi og ekki síst erlendis, er sala á upplýsingum til tryggingafélaga og lyfjafyrirtækja. Ágangur erlendra tryggingafélaga í genaupplýsingar viðskiptavina er víða verulegt áhyggjuefni. Tryggingafélög vilja þrýsta á um að einstaklingum verði gert að fara í genarannsókn svo hægt verði að meta tryggingahæfi þeirra. Þau hafa sýnt mikinn áhuga á að fá aðgang að upplýsingum um gen, heilsufars- og ættarsögu ein- staklinga til að geta sjálf metið sjúkdómslíkur og um leið trygg- ingahæfi þeirra. Þetta hefur hvergi fengist leyft. Fólk þarf ekki að vera í áhættuhópi þó að sjúkdómar hafi komið fyrir í ættinni. íslenski gagnagrunnurinn mun gera trygg- ingafélögum mögulegt að setja upp módel til að fara eftir. Þetta þykir siðlaust, þar sem tilgangurinn væri að mismuna fólki eða útiloka og fyr- ir þennan möguleika liggjum við undir ámæli frá öðrum þjóðum fyrir skammsýni. Hér hefur því verið haldið fram að þessi tryggingamál snerti okkur ekki þar sem heilbrigðiskerfið sé rekið af hinu opinbera. Staðreynd er að einkavæðing og markaðssetn- ing heilbrigðiskerfins er hér í full- um gangi og samningur íslenskra stjórnvalda við erlent lyfjafyrir- tæki og samþykkt Alþingis á af- hendingu heilsugagna landsmanna í hendur einkafyrirtæki er viss ábending um hvert stefnir í fram- tíðinni. Lyfyaprófanir vekja ugg Veigamikill hluti af markaðs- setningu gagnagrunnsins er ginn- andi tilboð deCode um ljrfjaprófan- ir á einstaklingum í gegnum gagnagrunninn. Þar býður deCode væntanlegum viðskiptavinum að- gang að íslensku þjóðinni fyrir klínískar lyfjarannsóknir byggðar á genarannsóknum á þjóðinni. Fyr- irtækið vekur athygli á mikilvægi þess að hafa aðgang að þjóðinni fyrir rannsóknir á fyrri stigum (early phases) klínískra rannsókna. Klínískar rannsóknir eru gerðar á fólki. Þá er spurt: Hvernig er hægt að bjóða erlendis upp á klínískar rannsóknir á einstaklingum með ákveðna genagerð eða fjölgena- sjúkdóma fyrir lyfjaprófanir, en fullyrða síðan hér heima að ekki sé hægt að ná upplýsingum um ein- staklinga úr gi’unninum? Hér þarf skýringa við. Hvemig verður staðið að lyfjaprófunum? Hvað felst í klínískum rannsókn- um? Þorkell Jóhannesson, prófess- or í lyfjafræði, var beðinn að lýsa þessum ferli í viðtali í Morgunblað- inu 2. október. Lyfjaprófanir fara í gegnum fjögur stig og hafa prófan- ir á fyrri stigum (fyrstu tveim) ekki svo vitað sé farið fram hér á landi. Fyrsta stig rannsóknanna fer fram á sjálfboðaliðum, heilbrigðu fólki 20-50 ára, hlífst er við að nota kon- ur vegna hugsanlegra fóstur- skemmda, og er þá verið að kanna öryggi efnisins. Á þessu fyrsta stigi er áhættan bundin við tvö líffæri nýru og lifur. Á öðru stigi eru vald- ir sjúklingar með tiltekinn sjúk- dóm, einnig sjálfboðaliðar, þar sem talið er að ákveðið lyf geti komið að gagni og þá í samanburði við annað eldra þekkt lyf. Á þriðja stigi er tekinn stór hópur af völdum sjúk- lingum og er þá verið að meta notagildi og öryggi lyfja á stórum hópum sjúklinga samtímis. Á fjórða stigi eiga heilbrigðisyfirvöld að fylgjast með hjáverkunum og notagildi lyfsins til lækninga. Þor- kell benti á að þrátt fyrir að lyf hefðu farið í gegnum þrjú stig klínískra rannsókna, kæmi fyrir að lyf væri tekið af markaði á fjórða stigi vegna þess að fram hefðu „ komið hjáverkanir sem enginn gat séð fyrir eins og ofnæmi, krabba- mein, blóðmergsskemmdir, lifrar- skemmdir eða milliverkanir við önnur lyf. Lyf sem hafa valdið fósturskaða Magnús Jóhannesson læknir vek- ur athygli á fósturskaða af völdum lyfja í grein sinni „Lyf og með- ganga“ í Morgunblaðinu 28. mars. Lyfjataka á fyrstu vikum meðgöngu getur reynst mjög örlagarík fyrir fóstrið. Magnús tekur fyrir lyfin talidómið sem selt var sem svefnlyf' og dietýlstilböstról eða DES sem mæðrum var gefið á meðgöngutíma til að koma í veg fyrir fósturlát. Magnús vekur athygh á að þótt framfarir hafi orðið í læknisfræði á síðustu 40 árum sem liðin eru frá seinna lyfjaslysinu séu enn ekki til öruggar aðferðir til að rannsaka fyi-irfram hugsanleg áhrif lyfja og annarra efna á fóstur. Það sem al- varlegast var og ekki hafði verið áð- ur vitað, var að skaðsemi lyfja geta komið niður á næstu kynslóð, af- kvæmum, en ekki nauðsynlega þeim sem taka lyfin. Hér virðist ahs óijóst hvaða lyf á að prófa í gegnum gagnagrunninn og hversu viðamiklar lyfjaprófan- imar verða eða hvernig eftirliti verður háttað. I Bandaríkjunum er það Fæðu- og lyfjaeftirlitið, FDA, sem verður að meta hvort tilrauna- lyf séu áhættunnar virði fyrir ein- staklinginn og í öðrum vestrænum löndum er áhættan metin af sam- bærilegum stofnunum. Þar sem engin slík stofnun er til hér á landi er eðlilegt að spurt sé hver verði ábyrgur fyrir öryggi einstaklingsins í lyfjatilraunum eða hvort tilrauna- aðilanum verði í sjálfsvald sett að . meta áhættuna? Upplýst samþykki er öryggis- þáttur Af þessum ástæðum er nauðsyn- legt að fyrir liggi upplýst samþykki fyrir þátttöku í gagnagrunninum. Upplýst og skriflegt samþykki þýð- ir ekki aðeins að fólk samþykki að upplýsingar um það fari í gagna- grunninn, heldur einnig að það verði upplýst um allar rannsóknir sem honum verða tengdar og mögu- lega áhættu. Aiþingi hefur samþykkt að veita leyfi fyrir rekstri gagnagrunnsins í 12 ár - í senn. Hver mun standa vörð um öryggi og rétt fólksins, þar sem lögin eru án fyrirvara um réttindi og ábyrgð? Hvers konar þjóðfélag verður hér í framtíðinni og hvað verður um siðferði, traust og trúnað hornsteina mannlegs samfélags, ef talið verður sjálfsagt að afhenda trúnaðarupplýsingar þriðja aðila, - ef hægt er að græða áþví! Höfundur er blaðnmaður. > Sumar tilboð Þrjár laganir, ein hvít og tvær rauöaraö eigin vali og þú greiðir fyrir tvær, þær dýrari. Gildir til 31. maí '99 Skeifunni 11D s.533 1020, opió og Kringlunni á laugardögum Tvö 301. gerjunarílát, vatnslás, sykurflotvog, hevert og vínþrúgur í eina lögun. Verð frá: 5.990,- Gildirtil 31. maí '99 7* 3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.