Morgunblaðið - 23.05.1999, Page 42
42 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999
y---------------------
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug
og vináttu við andlát og útför
GUÐMUNDAR KRISTMUNDSSONAR,
Skipholti.
Kristrún Jónsdóttir,
Elín Sigrún Guðmundsdóttir, Brynjólfur Grétarsson,
Jón Kristinn Guðmundsson, Sigrún Lilja Smáradóttir,
Bjarni Valur Guðmundsson, Gyða Björk Björnsdóttir,
Guðrún Guðmundsdóttir, Pétur Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
HÖRÐUR S. GUNNARSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 25. maí kl. 10.30.
Blóm og kransar vinsamlega afbeðnir en þeir,
sem vilja minnast hans, láti Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna, Suðurlandsbraut 6,
njóta þess.
Ása Sólveig,
Rúnar Á. Harðarson, Sylvía Bragadóttir,
Helena Björg Harðardóttir, Jón Gisli Ragnarsson
og barnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
RAGNHEIÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Króki í Ásahreppi,
Stífluseli 11,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstu-
daginn 14. maí, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 26. maí kl. 13.30.
Guðrún Marta Sigurðardóttir,
Óskar ísfeld Sigurðsson, Sólveig Ágústsdóttir,
Helga Sigurðardóttir, Ágúst Óskarsson,
Erlendur ísfeld Sigurðsson, Fanney Kristjánsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
INGVAR JÓN GUÐBJARTSSON
frá Kollsvík,
Berugötu 26,
Borgarnesi,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn
14. maí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 26. maí kl. 15.00.
Jóna Snæbjörnsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og
fósturmóðir,
ÁSLAUG KRISTINSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 25. maí kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristinn Bjarnason, Sigrún Guðmundsdóttir,
Guðmundur Rúnar Kristinsson,
Ása Magnúsdóttir.
t
LEGSTEINAR
Islensk framleiðsla
Vönduð vinna, gott verð
Sendum myndalista
MOSAIK
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík
sími 5871960, fax 5871986
KATRÍN
GÍSLADÓTTIR
+ Katrín Gísladótt-
ir var fædd í
Reykjavík 27. októ-
ber 1921. Hún lést á
Sjúkrahúsi Akraness
miðvikudaginn 12.
maí síðastiiðinn.
Katrín var jarðsett
frá Akraneskirkju
föstudaginn 21. maí.
Með söknuð í huga
festi ég á blað línur til
að þakka góðri sam-
starfskonu minni til
margra ára fyrir holla
vináttu og ómetanleg
störf.
Bíbí, eins og hún var ávallt nefnd,
fékk ung að kynnast hörðum stað-
reyndum lífsins því að sjö ára gömul
missti hún móður sína. Þá fluttist
hún til ömmu sinnar á Akranesi,
Sumarlínu Sumarliðadóttur. Þar
var hún aðeins til átta ára aldurs en
upp frá því ólst hún upp og bjó hjá
móðursystur sinni Rikku Sigríks-
dóttur og manni hennar Jóni Mýr-
dal sem gengu henni í foreldra stað.
Oft á lífsleiðinni mátti
hún standa frammi fyr-
ir þungum raunum
sem ekki verða raktar
hér en víst er að hún
kvartaði aldrei og gekk
hnarreist á móti lífinu
og tilverunni. í góðra
vina hópi naut hún sín
vel og gat verið hrókur
alls fagnaðar og ég
heyri hvellan hlátur
hennar óma í minning-
unni, bjartsýni hennar
létti henni og sam-
ferðafólki sporin. Fáir
kunnu að njóta stund-
arinnar betur en hún. En hún var
sannarlega ekki allra og ekki allra
viðhlæjandi en þeim sem hún tók,
tók hún af alvöru og ég var einn
þeirra sem voru í þeim hópi. Milli
okkar þróaðist traust vinátta í 30
ára samstarfi. Eg rak mig oft á
hvað þessi kona varði vinnuveitanda
sinn á hverju sem gekk. Oft sýndi
hún hollustu sína og rausnarskap
með móðurlegum veitingum í önn
dagsins, eitthvað sem hún undirbjó
af kostgæfni heima og færði okkur í
erli dagsins. „Komið og fáið ykkur
hlussur hjá mér,“ var þá viðkvæðið.
Þá vissum við að hlaðborð beið okk-
ar og þá stóð hún í stafni eins og
drottning í ríki sínu.
Katrínu Gísladóttur er eins farið
og með marga Skagamenn, hún átti
langan starfsferil hjá Haraldi
Böðvarssyni sem spannaði tæp sex-
tíu ár. Hún kom ung til að breiða
fisk, saltaði síld, vann við niðursuðu
og fiskverkun, en minnisstæðust
verður hún þar sem hún stýrði
rekstri kaffistofunnar. Hún var hús-
móðirin í fyrirtækinu. Við lutum
ströngum aga hennar og má segja
að þar hafi hún verið móðir bæði
mild og hörð. Hún vann langan
vinnudag og þau voru tilþrifamikil
handtökin hennar. Eins og fyrr er
getið þá bar hún ekki raunir sínar á
torg, því fann ég að eitthvað alvar-
legt var á ferðum er við hittumst fá-
um dögum áður en hún kvaddi og
sagðist trúlega þurfa að fara til
læknis, hún væri ekki alveg frísk.
Þá vissi ég að veruleg alvara var á
ferðum eins og reyndist. Hún fékk
að kveðja með mikilli reisn eins og
hún lifði.
Guð blessi minningu hennar. Eg
votta syni hennar og bamabörnum
mínar dýpstu samúðarkveðjur.
Haraldur Sturlaugsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
STEFÁNS KRISTINS
SVEINBJÖRNSSONAR
veggfóðrarameistara,
Njarðargötu 45,
Ólína Elínborg Kristleifsdóttir,
Helga Stefánsdóttir, Hrafnkell Þórðarson,
Ingibjörg Stefánsdóttir, Kristján Daníelsson,
Sveinbjörn Kr. Stefánsson, Klara Ragnarsdóttir,
Nína Stefánsdóttir, Örn Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærrar móður minnar, ömmu okkar og langömmu,
Guðbjargar Svandísar Jóhannesdóttur,
frá Patreksfirði, síðast til heimilis að Eyrargötu 40, Eyrarbakka.
Svanfríður Stefánsdóttir,
Guðbjörg S. Gísladóttir, Anton Antonsson,
Jón Ingi Gíslason
og langömmubörn.
+
Innilegar þakkir fyrir samúð og hiýhug við
andlát og útför föður okkar, tengdaföður og
afa,
SIGURÐAR G. ÓLAFSSONAR,
bifreiðastjóra,
Hraunbæ 102-D.
Ólafur Sigurðsson,
Bryndís H. Sigurðardóttir,
Margrét G. Sigurðardóttir,
Sigurður G. Sigurðsson,
Magdalena Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
VLADIMIR KNOPF MILERIS,
Skálagerði 5
Reykjavík.
Fjóla Steinsdóttir Mileris,
börn, barnabörn og barnabarnabörn.
ÞORSTEINN
ERLINGS
ÁSGRÍMSSON
+ Þorsteinn Erlings Ásgríms-
son fæddist að Ási í Vatnsdal
23. september 1936. Hann lést á
Landspítalanum 8. maí síðastlið-
inn og fór útför hans fram frá
Sauðárkrókskirkju 15. maí.
Við systkinin komum einn vordag í
Sæmundarhlíðina sem kaupafólk. Við
þekktum engan þama um slóðir og
þótti ókunnuglegt um að lítast. Þessi
sveit átti þó eftir að verða okkur svo
yndislega kær og heimili þeirra
Dodda og Ebbu. Þessi góðu hjón
gerðu heimili sitt að öðru heimih okk-
ar svo að þessi ágæta sveit varð sem
okkar heimasveit, afar kærkomin
reykvískum unglingum.
Hið dýrmætasta sem við hljótum í
lífinu er án efa kynnin af góðu fólki og
sú vinátta sem við stofnum til. Víst er
að maður eins og Doddi auðgar um-
hverfi sitt og líf allra þeirra sem hon-
um kynnast með hinum sterka per-
sónuleika sínum, gæsku og visku.
Missir okkar sem eftir erum er því
mikiU en minningar eru ríkar og ylja
okkur um alla framtíð. Við vottum
Ebbu, Lóu og Grímsa og fjölskyldum
okkar dýpstu samúð sem og öllum
sem þekktu þennan mæta mann.
Kæri Doddi kveðjur hlýtur.
Klökk við höldum fram á veginn.
Vitum að oss eftir lítur
og aftur mætumst hinum megin.
(Herdís Reynisdóttir.)
Herdís og Böðvar.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá,
sem fjallað er um, er fæddur,
hvar og hvenær dáinn, um for-
eldra hans, systkini, maka og
böm, skólagöngu og störf og
loks hvaðan útför hans fer fram.
Ætlast er til að þessar upplýs-
ingar komi aðeins fram í for-
málanum, sem er feitletraður,
en ekki í greinunum sjálfum.
Legsteinar
í Lundi
v/Nýbýlaveg
mSfEINÁK 564 3555