Morgunblaðið - 23.05.1999, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ
44 SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999
VALHDLL
1 fasteignasala|
Síöumúla 27»108 Reykjavík - Símí 588 4477 - Fax 588 4479 -
Netfang http://mbl.is/valholl/ og http://habil.is
Sérhæfð þjónusta
Atvinnu húsnæði
Fjárfestar hafið samband,
miklir möguleikar.
Mikil eftirspurn er eftir
atvinnuhúsnæði, vantar eignir,
metum samdægurs, ekkert
skoðunargjald,
heitt á könnunni.
Isak Jóhannsson
sölustjóri, atv. húsn.
Gsm. 897 4868
Nína Pálmadóttir
ritari, söium. fyrirtæki.
Gsm/862 9776
Atvinnu húsnæði
Skógarhlíð. Vorum að fá í sölu þetta
þekkta íbúðar- og atvinnuhúsn. sem er alls
500 fm. Býður upp á mikla möguleika. Leiga
kemur til greina.
Bíldshöfði - 739 fm. Vorum að fá
gott verslunar-, skrifstofu-, þjónustu- og lager-
húsnæði. Húsnæðið er að hluta í leigu og
hægt að hluta niður í nokkrar einingar. Húsn.
er í góðu ástandi og vel skipul. 4142
Bæjarhraun - Hafnarf. vorum að fá
í einkasölu 220 fm skrifstofuhúsnæði. Hús-
næðið er tilbúið til innréttinga og hentar ýmis-
konar starfsemi. Frábært verð, kr. 11,6 millj.
eða kr. 53 þús. á fm.
Dalvegur Kópavogur. vorum að fá
f einkasölu glæsilegt 207 fm iðnaðar- og skrif-
stofuhúsnæði á þessum vinsæla stað í Kópav.
Húsn. er laust fljótlega. 4143
Garðabær - 200 fm iðnaðar-
húsnæði. Vorum að fá í einkasölu 200 fm
iðnaðarhúsn. m. 6 m lofthæð. Húsið er byggt
1990. Til afhend. strax. V. 12 m. 504
Grafarv. Glæsil. 200 fm iðnað-
arhúsn. Vorum að fá sex 200 fm iðnaðar-
bil með mikilli lofthæð. Góðar innkeyrsludyr.
Stórt athafnasvæði. Teikningar á skrifstofu.
Nýtt hús á Melabraut í Hf. I söiu
skemmtil. atv./iðnaðarhúsn. á fráb. stað rétt
við höfnina. Um er að ræða 2-4 bil á hvorri
hæð, annað hvort 100 eða 200 fm. Afh. frág.
að utan með malbikuðu bílaplani. Innkeyrsla á
báðar hæðir hússins. Mjög gott verð. Upp-
lýsingar og teikningar á Valhöll.
Grensásvegur. Höfum í sölu tvær ca
380 fm hæðir með samþ. teikningu af þeirri
fjórðu. Verð tilboð.
Viö miðbæinn - góð fjárfesting.
Gott 166 fm verslunarhúsn. rétt við Laugaveg-
inn. Er í góðri útleigu í dag. Verð 12,9 millj.
1063. Góð lán fylgja.
250 fm skrifstofuhúsn. Höfum i
einkasölu 250 fm skrifstofuhæð á 2. hæð með
miklu útsýni. 3 m lofthæð. Vandað hús á fráb.
stað rétt við Skeifuna. Góð bílastæði. 6388.
Gylfaflöt - glæsil. atvinnuhúsn.
( einkasölu glæsil. 160,5 fm iðnaðarbil með
mikilli lofthæð m. 52 fm millilofti. Samtals 212
fm. Húsið er viðhaldslétt að utan. Gott at-
hafnasvæði. Gott verð. Teikn. á Valhöll.
26111
Malarhöfði. Ca 202 fm verslunar- og iðn-
aðarhúsnæði sem skiptist í tvö rými með milli-
lofti og góðum gluggum. Gott langtímaián.
Áhv. 12,6 m.
Hafnarbraut Kópavogi. 500 fm at-
vinnuhúsnæði á jarðhæð með 2 innkeyrslu-
dyrum, hentar undir iðnað, verslun, heildsölu
eða aðra starfsemi. Verð kr. 22 millj. 4736
Akralind - Kópavogur. Eigum til ca
120 fm nýtt iðnaðarrými með samþykktu milli-
lofti. Húsið skilast tilb. til innrétt., fullbúið að
utan og lóð malbikuð. Góð lán fylgja.
Vesturbær Kópavogs Höfum í sölu
húseign á góðum stað í Kópav. Húsið er á
þremur hæðum. Á jarðh. er gott atvinnuhúsn.
sem skiptist í tvær einingar. Á annarri hæð er
verslun og skrifstofuhúsn. og þeirri þriðju eru
skrifst. með lagnir fyrir síma, tölvur o.fl. Hægt
að selja í stökum einingum. Tilb. 4735
Langholtsvegur 314 fm húsn.
Verslunar-, þjónustu- og lagerhúsnæði. þ.e.
aðalhæð og kj. Hentar undir ýmsa starfsemi
ss. sölutum, veitingar, gallerí, líkamsrækt o.fl.
Til afh. strax. Verð kr. 14,9 millj. 1859
Miðhraun. 2700 fm atvinnuhúsnæði sem
á að rísa í sumar. Hægt að skipta í fl. einingar.
Teikningar á skrifstofu.
Lyngháls - nýtt glæsil. húsn. m
sölu er nýtt atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum
(keyrt inná báðar). Selst frág. að utan á varan-
legan hátt m. litaðri stálklæðningu. Stórt mal-
bikað bílaplan. Að innan afh. húsn. tilb. til inn-
réttinga/málunar. Allar nánari upplýsingar á
Valhöll. Gott verð.
Síðumúli. Gott ca 70 fm skrifstofuhús-
næði til sölu. Tvö góð skrifstofuherbergi, mót-
taka, snyrting og eldhúskrókur. Verð 5,7millj.
Kópavogur - Lindahv. vorum að fá
nokkur 120 fm iðnaðarrými á þessum vinsæla
stað. Skilast tilb. til innrétt. að innan og fullb.
að utan. Glæsil. eign.
Lækjargata í Hf. Vorum að fá í sölu ca
90 fm iðnaðar- og verslunarhúsnæði sem er í
góðri langtímaútleigu í nýlegu húsnaBði.
öruggir leigutakar. Verð 7 millj.
Flugumýri í Mosfellsbæ. 330 fm
eining, tvær innkeyrsludyr, skilast tilb. að utan
og fokhelt að innan. Teikningar á skrifstofu.
Nýbýlavegur- Kópav. Gotti89fm
atvinnuhúsn. m. góðum innkeyrsludyrum.
Húsnæðið er dúklagt og skiptist í sal, skrif-
stofu, eldhús o.fl. 3629
Reykjavíkurvegur - Hafnarf. 222
fm óinnr. salur á 2. hæð. Húsið hefur verið
mikið endurnýjaö. Góðir gluggar, gott útsýni.
Tilvalið fyrir skrifstofur o.fl. Áhv. 7,5 m. 3839
Skeiðarás - Garðabær. Mjög gott,
vel staðsett ca 150 fm iðnaðarhúsn. Lofthæð
allt að 5,5 m. Einar innkdyr ca 3 m háar, 3 m
br. Plássið er ca 6 br. x 25 lengd. Verð 9,4 m.
Lækjarmelur Kjalamesi 1200 fm
atvinnuhúsnæði sem selst í 200-400 fm ein-
ingum. Teikningar á skrifstofu.
Sérhæft fiskverkunarhús - full-
búiö utan sem innan eftir EES-
Staðli. Höfum í einkasólu ofangreint húsn.
með lofthæð 5,5 m á góðum stað miðsv. á
Rvíkursvæðinu. Er til afhend. fullb. í hólf og
gólf, utan sem innan með malbikuðu bílaplani.
Stutt í hafnaraðstöðu. Einstakt verð. 804
Dagsölutum í austurbæ.
BÍfreÍðaþjÓnUSta. Höfum í einkasölu
vel rekið fyrirtæki sem er eitt það fremsta á
sínu sviði. Verð 8 millj.
Bamafataverslun Kringlunni
'Gjafavöruv. Kringlunni
‘Matsölustaður í austurbæ
'Þekkt blómabúð í Rvík
Framleiðslufyrirtæki Til sölu áhuga-
vert fyrirtæki sem framleiðir og flytur inn vöru
sem selst vel. Gæti hentað einum til tveimur
aðilum. Örugg afkoma.
Höfum nokkur áhugaverð fyrirtæki á sölu-
skrá okkar, uppl. aðeins á skrifstofu á milli
kl. 10 og 14 virka daga.
FRÉTTIR
ERU ÞEIR AÐ FA’ANN?
■ wmv? -
mm
NEÐRA Rauðaberg í Kjarrá á júnídegi. Einn besti
veiðistaður árinnar.
Þrengir að stór-
veiðimönnunum
TALSVERÐ umræða hefur ver-
ið um stórveiði sem tekin er úr
flestum bestu laxveiðiánum hér á
landi á maðk fyrstu dagana eftir
að fluguveiðitímabilunum í ánum
lýkur. Talað er um „maðkahollin"
eða „maðkaopnanir", en veiði er
jafnan mikil enda hefur laxinn þá
ekki séð maðk svo vikum skiptir
og tekur grimmt. Hinir ýmsu
leigutakar hafa brugðist við, t.d. í
Vatnsdalsá og Norðurá og nú
hugsa leigutakar Þverár og Kjar-
rár til breytinga.
Umræðan um mokveiðina
stendur ugglaust í beinu sam-
hengi við þær staðreyndir síð-
ustu ára að laxastofnar víða um
lönd hafa hrunið. Þeir hafa helst
haldið velli í Rússlandi og hér á
Islandi. Engu að síður hafa verið
niðursveiflur hér á landi síðustu
árin, allt þar til í fyrra, og þá
vaknað spurningar hvort íslensk-
ir stofnar hafi verið á sömu leið
og margir stofnar á heljarslóðun-
um ytra. Erlendir stangaveiði-
menn hafa flutt hingað með sér
fýrirkomulag sem sums staðar
erlendis er hreinlega lögbundið í
vemdunarskyni, „veiða-sleppa“,
og það er ekki síður umdeilt fyr-
irbæri heldur en mokið á
maðkinn. En öll er þessi umræða
af sama meiði. Leigutakar og
veiðiréttareigendur vilja ekki of-
gera laxastofnum og ánum, en
eru kannski ekki alveg sammála
um hvað sé hóf og hvað óhóf. Svo
spilar markaðurinn alltaf sína
rullu.
Leigutakar Vatnsdalsár bönn-
uðu spón og maðk alfarið í fýrstu.
Fluttu sig svo alveg yílr í „veiða-
sleppa“-íyrirkomulagið og lýsa
ánægju með hvemig til hefur
tekist. Leigutakar Norðurár hafa
sett kvóta á maðkveiðimenn í
„maðkahollinu". Þeir mega veiða
5 laxa á dag, eða alls 15 stykki.
Heyrst hefur að leigutakar
Þverár og Kjarrár íhugi að bera
fram „tilmæli“ til viðskiptavina
sinna þess efnis að engin ein
stöng veiði meira en 25 laxa á
þremur dögum. Ef allar sjö
stangimar í Kjarrá veiddu 25
laxa kæmu 175 laxar úr ánni, en
það er hæsta talan sem menn
hafa séð í maðkaopnun í Kjarrá.
í fyrra veiddust 140 laxar.
I Kjarrá, eins og í öðram ám
þar sem þetta fyrirkomulag
tíðkast, er veiði í maðkahollum
afar misskipt og yfirleitt 2-3
stangir sem veiða miklu meira
heldur en hinar. Aðgerðum þess-
um virðist augljóslega vera beint
gegn þessum aðilum, skoða má
aðgerðimar sem tilraun til að
jafna út veiðina og annað hvort
stilla stórtækustu veiðimennina
eða flæma þá yfir í aðrar ár að
öðmm kosti.
Gospelsystur Kvennakórs Reykjavíkur
„Heitar rætur“ í
Borgarleikhúsinu
GOSPELSYSTUR Kvennakórs
Reykjavíkur verða með stórtónleika
í Borgarleikhúsinu þriðjudaginn 25.
maí og miðvikudaginn 26. maí.
Tvennir tónleikar verða hvom dag
kl. 20 og kl. 22. Yfirskrift tónleik-
anna „Heitar rætur“ lýsir efnis-
skránni vel þar sem dagskráin sam-
anstendur af lögum þar sem áhersla
er lögð á tjáningaríka gospel- og
rythmatónlist með afró-dansi og
trommuleik. Einsöngvari á tónleik-
unum verður Anna Sigga. Gestir
Gospelsystra eru þau Ivonne Kraal
og Roland írá Svíþjóð. Ivonne mun
stjóma dansinum og auk þess að
dansa „sóló“ mun hún dansa með
kórkonum í léttri afró-sveiflu við
trambuslátt Rolands og félaga.
Hljómsveit undir stjóm Stefáns S.
Stefánssonar sér um undirleik.
Stjómandi kórsins er Margrét J.
Pálmadóttir, sem auk þess að
stjórna kórnum, mun blúsa.
Gospelsystur Kvennakórs
Reykjavíkur er nýjasti kór Kvenna-
kórs Reykjavíkur og hefur á að
skipa u.þ.b. 120 konur. Hann var
stofnaður haustið 1997 af Margréti
J. Pálmadóttur stjómanda kórsins.
Gospelsystur hafa haldið ferna
sjálfstæða tónleika. Þær fóru í æf-
ingabúðir til Italíu í júní á síðasta
ári og munu fara aftur í júní á þessu
ári og halda þar þrenna tónleika.
Gospelsystur leggja mesta áherslu
á gospeltónlist, negrasálma, þjóðlög
og kirkjutónlist í lagavali sínu.
Fyrirlestur
um nýja tækni
til að mæla
ferskleika
ÁSLAUG Högnadóttir heldur
meistaraprófsfyrirlestur við mat-
vælafræðiskor Háskóla Islands
þriðjudaginn 25. maí í VR-II, stofu
158, kl. 13.
Heiti fyrirlestrarins er „Hagnýt
notkun rafnefs í fiskiðnaði“. Notk-
un rafnefs er ný tækni til mælingar
á rokgjömum efnum sem mæli-
kvarða á ástand eða ferskleika mat-
væla. Undanfarin ár hafa nokkur
slík tæki verið sett á markað er-
lendis. Þau byggja á notkun
margra gasskynjara sem nema
mismunandi efni og svömn
skynjaranna myndar mynstur, eða
fingi’afar, einkennandi fyrir hvert
sýni sem mælt er. Islenska rafnefið
FreshSense var þróað af Element
Skynjaratækni og Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins í samvinnu við
Háskóla Islands. FreshSense er
þróað til að meta skemmd í fiski.
Geymsluþolstilraunir á fiski hafa
sýnt að svöran nemanna hefur
fýlgni við geymslutíma og hefð-
bundar mælingar til að meta
skemmd. í þessu verkefni er ein-
kennandi svöran nemanna við ýms-
um efnum skoðuð og notkunar-
möguieikar tækisins við mat á
rækju em kannaðir. Lagður er
grannur að áframhaldandi þróun
rafnefsins og hugmyndir lagðar
fram um hvemig má gera tækið
markaðshæft.
----------------
Síðasti klúbb-
fundur fyrir
sumarlok
SÍÐASTI Phoenix-klúbbfundurinn
íyrir sumarhlé verður haldinn að
þessu sinni þriðjudaginn 25. maí í
þingsal Hótel Loftleiða kl. 20.
„Allir þátttakendur Phoenix-
námskeiðanna geta sótt þessa fundi
og em velkomnir og hvattir til að
mæta sem oftast. Þess má geta að
nú era einnig starfandi klúbbfundir
á Selfossi, Húsavík og Akureyri.
Phoenix-klúbburinn hefur starfað
sl. sjö ár í Reykjavík fyrir þátttak-
endur námskeiðsins. Fundir era
haldnir mánaðarlega, síðasta mánu-
dag hvers mánaðar, en hlé er gert
yfir sumarmánuðina júní og júlí.
Þannig verður næsti klúbbfundur
eftir sumarhlé haldinn mánudaginn
30. ágúst kl. 20.
Fanný Jónmundsdóttir, umboðs-
maður Brian Traey-námskeiðanna á
Islandi, bendir á að námskeiðin em
haldin allt árið um kring, einnig úti
á landi ef óskað er.
Nú em starfandi með Innsýn sf.,
sem er umboðsaðili Brian Tracy-
námskeiða á Islandi, sjö leiðbein-
endur. Nú í sumar verður annað
leiðbeinendanámskeið og munu nýir
leiðbeinendur útskrifast í haust og
taka þá til starfa með fyrirtækinu,
segir í fréttatilkynningu frá Innsýn.
-----------♦-♦-♦-----
Námskeið í
verðbréfavið-
skiptum
FÉLAG íslenskra háskólakvenna
býður upp á stutt námskeið í verð-
bréfaviðskiptum dagana 26. og 27.
mars nk. kl. 17-20 báða dagana.
Námskeiðið verður haldið í Þing-
holti, Hótel Holti.
Fyrirlesari er Sigurður B. Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri Verð-
bréfamarkaða íslandsbanka. Skrán-
ing er hjá formanni félagsins Geir-
laugu Þorvaldsdóttur.
------♦-♦-♦-----
■ SVÆÐAMEÐFERÐARFÉLAG
íslands minnir á aðalfund félagsins
laugardaginn 29. maí kl. 15-17 á
veitingahúsinu Asíu, Laugavegi 10
og tilkynnir forföll á opnu húsi í dag
vegna hvítasunnuhelgar.