Morgunblaðið - 23.05.1999, Side 51

Morgunblaðið - 23.05.1999, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. MAÍ 1999 51 I DAG BRIDS llmsjón GuAimindiii' l’áll Arnarson TÍMARITIÐ The Bridge World hefur komið út sam- fleytt í 70 ár, eða frá því Ely Culbertson stofnaði það árið 1929. Fyrir 20 árum fóru ritstjórar blaðsins að líta aftur í tímann og endurbirta stuttai- greinar úr fyrstu tölublöðunum. Þeir nefna þessa pistla „Fyrir 50 ár- um“. Hér er spil sem nýlega varð 50 ára og var vakið til lífsins í síðasta tölublaði: Norður * - ¥ 642 ♦ D108642 * 8642 Suður A- ¥ ÁD7 ♦ ÁKG9753 *ÁD7 Suðui' spilar fímm tígla og fær út spaðakóng. Við- fangsefnið er að tryggja vinning í öllum legum og hvernig sem vörnin spilast. Gerðu svo vel! Þetta virðist vera einfalt: Henda hjarta úr borði og laufi heima, og bíða svo með gapandi skoltana eftir frek- ari hjálp. En það leynist gildra í spilinu: Austur gæti yfirdrepið spaðakónginn með ás! Með þann möguleika í huga er rétt að trompa í borði og henda hjarta heima. Spila svo laufi úr blindum og láta sjöuna duga ef austur fylgir með smærra spili. Annars er drottningin lögð á millispil austurs. Ef við gerum ráð fyrir að vest- ur drepi með kóngi verður hann að spila laufi til baka, en það gefur sagnhafa færi á að fría laufáttuna, svo hjartasvíningin verður óþörf. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúð- kaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrir- vara virka daga og þriggja daga fyrir- vara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistil- kynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og simanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, Sent í bréfsíma 569-1329, sent á netfangið rit- stj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Arnað heilla OflÁRA afmæli. Áttræð Ov/verður á 2. í hvita- sunnu, 24. maí, Ásdís Frið- bertsdóttir frá Suðureyri við Súgandafjörð. Hún dvelur í sumarbústað Súg- firðinga í Ölfusborgum á af- mælisdaginn og verður heitt á könnunni. fTOÁRA afmæli. í dag, t/v/sunnudaginn 23. maí, verður fimmtugur Kjartan Ásmundsson, Rekagranda 7. Eiginkona hans er Sig- rún Ásmundar. Þau hjónin dvelja í París á aímælisdag- Með morgunkaffinu káetunni. SKAK Umsjón Margcir Pétursson STAÐAN kom upp á stór- móti sem nú stendur yfir í Sarajevo í Bosníu. Alexander Morosjevit- sj (2.720), Rússlandi, hafði hvítt og átti leik gegn Ivan Sokolov (2.620), Bosníu. 36. Hh3! - Bxf2 (Það reynist ekki vel að þiggja mannsfómina. Líklega veitti 36. - gxí5 mesta mótspymu) 37. fxg6 - Hxd2 38. Rxd2 - RxdO 39. Re4 - Rxe4 40. Hh8+ - Kg7 41. Hxc8 og svartur gafst upp. * 'Ast er... ...aðannast hana þegar hún er veik. HVITUR leikur og vinnur. Stefán frá Hvítadal (1887/1933) Brot úr Ijóðinu Vorsól LJOÐABROT VORSOL Svanir fljúga hratt til heiða, huga minn til fjalla seiða. Vill mér nokkur götu greiða? Glóir sól um höf og lönd. Viltu ekki, löngun, leiða litla bamið þér við hönd? Nú finn ég vorsins heiði í hjarta. Horfin, dáin, nóttin svarta. Ótal drauma blíða, bjarta barstu, vorsól, inn til mín. Það er engin þörf að kvarta, þegar blessuð sólin skín. í vetur gat ég sagt með sanni: Svart er yfir þessu ranni. Sérhvert gleðibros í banni, blasir næturauðnin við. Drottinn, þá er döprum manni dýrsta gjöfin sólskinið. ORÐABÓKIN Að loka sig af í Mbl. 13. marz sl. stóð þessi fyiirsögn: „Lafont- aine lokar sig af‘. Þar segir írá úrsögn hans úr öllum embættum. Svo kom fram, að hann léði ekki máls á því að tala við fjölmiðlamenn og jafnvel ekki heldur við sjálfan forsætisráðheri'- ann. Hann lokaði sig þannig inni frá umhverf- inu. Hér er um tökuþýð- ingu úr dönsku, þar sem talað er um at lukke af = læsa. Við getum bjargazt við ögn ís- lenzkara orðalag, svo sem að læsa sig inni eða að loka að sér. Lafontaine lokar að sér. Það sakar þvi ekki að benda á öllu íslenzkara orðalag, sem hljómai' sízt lakar í eyrum en tala um að loka sig af. J.A.J. STJ ÖBJVU SPA eftir Frances Urake TVIBURAR Þú ert gæddur góðri eðlisá- vísun sem ef þú treystir henni mun leiða þig farsæl- lega í gegnum lífíð. Hrútur (21. mars -19. apríl) Einhverjar spurningar kunna að vakna um heilsufar þitt. Hlustaðu því vel á lík- ama þinn og hunsaðu ekki það sem hann segir þér. Naut (20. apríl - 20. maí) Allir uppskera svo sem þeir hafa sáð til og þú auðvitað líka. Sýndu því umhverfi þínu umhyggju og hún mun skila sér margföld. Tvíburar ^ (21. maí - 20. júni) nA Þínir nánustu kunna að velta því fyrir sér hvert þú stefnir en ef þú ert heiðarlegur og segir þeim nákvæmlega þinn hug þá munu þeir standa með þér. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Fyrr eða síðar munu öll kurl koma til grafar og því engin ástæða til þess að vera að herða á hlutunum. En þegar myndin er ljós þarftu að bregðast skjótt við. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Það verður ekki bæði sleppt og haldið svo þú þarft að gera það upp við þig hvað þú raunverulega vilt. Láttu svo annað lönd og leið en stefndu ótrauður að takmarkinu. Meyja (23. ágúst - 22. september) vBfL Það getur reynst fyrirhafn- arsamt að láta drauminn rætast en þó er engin ástæða til þess að leggja árar í bát. Vog rrx (23. sept. - 22. október) 4i tíi Þér kann að finnast þú fær- ast hratt úr stað en stað- reyndin er nú sú að hlutirnir gerast ósköp rólega. Það er hinsvegar hið besta mál því sígandi lukka er best. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Allir þurfa að finna hugsun- um sínum farveg hvort sem menn skrifa nú fyrir sjálfan sig eða leyfa öðrum að njóta. Bogmaður 9 ^ (22. nóv. - 21. desember) Jkí Það eru mörg handtökin sem þarf til þess að koma heilu verki í höfn. En láttu það ekki aftra þér heldur brettu upp ermarnar. Steingeit (22. des. -19. janúar) áílí Þótt miklu skipti að aðrir kunni að meta störf þín er það þó þýðingarmest að þú sért sáttur við sjálfan þig og leggir þig fram. Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) Það getur reynst nauðsyn- legt að leita viða til þess að finna sannleikann og þá kann margt miður fallegt að koma í ljós. En sannleikurinn mun gera þig frjálsan. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Varastu að gagnrýna aðra um of því þú ert nú svo sem hvorki betri né verri sjálfur. Mundu að allir hafa eitthvað til sfns ágætis. Stjörnuspánn á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru eicici byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. MO RGUNHANI GLERAUGNABÚDIN Hebnout KickOer Laugavegi36 !) fær 20% aíslátt af viðskiptum milli kl. 9 og 11 Vantar örtfl1* Ertu oft þreytt/un a kvöfdin? Er erfitt að koma sér í gang á morgnana? Hringdu núna og fáðu upplýsingar um það hvað rétt næring getur gert fyrir þig. -27 milljónir manna bera vitni um árangur!- Svava - 898 8881 / 552 9062 Ráðgjöf - Aðhald - Árangur Líföndun Að anda er að lifa i?V Guðrún Arnalds verður með helgarnámskeið í líföndun helgina 20. og 21. mars. Hvernig væri að taka á móti hækkandi sól með því að fylla þig af orku? Losa um það gamla og búa til pláss fyrir meiri gleði og kærleika? Líföndun hjálpar við að ná djúpri slökun, takti við okkur sjálf og er um leið góð leið til að kynnast okkur sjálfum. Guðrún Arnalds. símar 551 8439 og 896 2396 Ef við lærum að anda léttar verður Iff okkar ósjálfrátt léttara. TILBOÐSDAGAR Kíktu á verðin!!! Full búð af vörura Verslun Kays listans Hólshrauni2,Hfj.i SÖFNUNARSJÓÐUR LÍFEYRISRÉTTiNDA Ársfundur 1999 Ársjfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda veráur kaldinn á Grand Hótel, Sigftúni 38,Reykjavík, í sal sem keitir Dalurinn, iniðvikudaginn 26. maí 1999 og kefst kl. 16.00. Dagsle rá fundarins er: 1. Flutt skýrsla stjómar. 2. Kynntur ársreikningur. 3. Gerá grein fyrir tryggingafræðilegri úttekt. 4. Fjárfestingastefna sjóðsins skýrð. 5. Onnur mál. Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisjiegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjóðfélagar eru kvattir til að mæta á fundinn. Stjorn SÖFNUNARSJÓÐS LÍFEYRISRÉTTINDA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.