Morgunblaðið - 29.05.1999, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 39
NEYTENDUR
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Katrín Rós Baldursdóttir, Ungfrú Island, tók virkan þátt f innrétt-
ingu draumaíbúðar sinnar, sem sýnd er á Lífsstfl 99.
Lífsstfll í Laugardalshöll um helgina
Leiðréttar niðurstöður úttektar á gjaldskrám símafyrirtækjanna
Kynna ný um-
hverfisvæn
gólfefni
í TILEFNI af 100 ára afmæli
FORBO Krommenie, stærsta fram-
leiðanda línóleum-gólfefna í heimi,
heldur Kjaran-gólfbúnaður sýningu í
sölum fyrirtækisins, Síðumúla 14, í
dag frá kl. 10 til 16.
A sýningunni verður kynnt ný
framleiðslulína línóleum-gólfefna
undir kjörorðinu „Vistvænt skref til
framtíðar“ og upplýsingabæklingi
um umhverfísvæn gólfefni dreift. I
bæklingnum er m.a fjallað um hrá-
efni, framleiðslu o.fl. sem tengist
umhverfismálum.
Matvælakynning Samtaka iðnaðarins
Vörur
meira unnar
en áður
FJÖLMARGT kitlaði bragðlauk-
ana á matvælakynningu Samtaka
iðnaðarins, Matartíma 1999, sem
haldin var á fimmtudag. Þar
kynntu rúmlega 20 íslenskir mat-
vælaframleiðendur framreiðsluað-
ilum vörur súiar og viðskiptakjör.
Nokkur hundruð manns sóttu
kynninguna, sem gekk vel, að
sögn Ragnheiðar Héðinsdóttur
þjá Samtökum iðnaðarins. Hún
segir mikla Qölbreytni ríkjandi í
matvælaframleiðslu, áberandi sé
að vörur séu meira unnar nú en
fyrr til þess að koma til móts við
þarfir neytenda.
Morgunblaðið/Þorkell
MARGVISLEG matvæli voru kynnt á Matartíma 1999.
NÝJAR HÚSGAGNASENDINGAR
GSM-frelsi sjónarmun
ódýrara en Tal-frelsi
Hvað kosta GSM-frelsi og Tal-frelsi?
Verð í krónum miðað við tiltekna notkun á mánuði:
60 mínútur
á mánuði:
966 kr.
968 kr.
150 mínútur
á mánuði:
GSM-frelsi
2.415 kr.
2.420 kr.
250 mínútur
á mánuði:
GSM-frelsi
4.025 kr.
4.035 kr.
VILLANDI upplýsingar í gjaldskrá
Tals leiddu til þess að niðurstöður
úttektar sem Samstarfsverkefni
Neytendasamtakanna og verkalýðs-
félaga á höfuðborgarsvæðinu fram-
kvæmdi á GSM-verðskrám og birt-
ust í Morgunblaðinu 13. maí sl. urðu
rangar að hluta til.
Agústa Ýr Þorbergsdóttir, starfs-
maður verkefnisins, hefur kannað
verð á GSM-frelsi Landssímans og
Tal-frelsi Tals í samræmi við nýjar
forsendur.
Fyrri niðurstöður byggðust á
rangri skiptingu í dag-, kvöld- og
nætur- og helgartaxta, sem byggð-
ist á villandi upplýsingum í verð-
skrá Tals, að sögn Ágústu. Nú er
gengið út frá því að 33% notkunar
hjá Tal-frelsi sé á dagtaxta, 29% á
kvöldtaxta og 38% á nætur- og helg-
artaxta. Miðað er við að sambærileg
skipting hjá GSM-frelsi sé 30% á
dagtaxta, 15% á kvöldtaxta og 55%
á nætur- og helgartaxta.
Utreikningar Agústu nú byggjast
á því að talað sé samfleytt í síma í
eina viku, út frá því finnur hún
kostnaðinn við 60, 150 og 250 mín-
útna símnotkun á mánuði. Ágústa
telur að með þessari reikniaðferð
sitji símafyrirtækin við sama þorð.
Verð beggja lækkar
Nokkrar breytingar verða á nið-
urstöðum úttektarinnar hvað varð-
ar GSM-frelsi og Tal-frelsi þegar
þessum nýju aðferðum er beitt.
Verðmunur var nokkur skv. fyrri
könnun Tali í hag. Niðurstöðurnar
nú benda til þess að aðeins sé sjón-
armunur á verði símafyrirtækj-
anna tveggja. Verð á þjónustu
Landssímans lækkar um 17% en
verð hjá Tali um 12% með breytt-
um forsendum.
Margt
YFIR 60 fyrirtæki taka þátt í sýn-
ingunni Lífsstíll 99, sem hófst í
Laugardalshöll í gær. Sýningin er
opin í dag frá kl. 10 til 22 og á
Nýtt
Krem frá Nivea
NIVEA Visage Q10 Anti Wrinkle
næturkrem er komið á markað á Is-
landi. Kremið tilheyrir Nivea Visage
andlitslínunni. „Rannsóknir sýna að
innan 6 vikna við
daglega notkun
dregur sýnilega
úr hrukkum og
það hægir á
myndun nýrra
hrukkna. Húðin
endurnærist yfir
nóttina og að
morgni er hún
úthvfld og fersk,“ segir í fréttatil-
kynningu frá J.S Helgasyni ehf.
Einnig er komið á markað Nivea
Soft, rakakrem fyrir líkama og and-
lit. Að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu er kremið sérstaklega
rakagefandi og hverfur fljótt og vel
inn í húðina.
Sólbrúnkuvörur
frá Lancöme
FARIÐ er að selja tvær nýjar Flash
Bronzer-brúnkuvörutegundir frá
Lancóme; andhtshlaup, sem gefur
brúnan lit án sól-
ar, Self-Tanning
Face Gel Record,
og sams konar
hlaup fyrir fót-
leggi, Self-Tann-
ing Leg Gel
Immediate Shimmering Bronzing
effect.
I fréttatilkynningu segir að Flash
Bronzer fyrir andlit gefi andlitinu fal-
legan og eðlilegan gylltan lit á aðeins
einni klukkustund og þar sem hlaupið
smjúgi inn í húðina á augabragði sé
hægt að nota fórðunarvörur fljótlega
eftir notkun þess. Einnig segir að
Flash Bronzer fyrir fótleggi komi í
staðinn fyrir sokkabuxur, fíngerð og
örlítið glitrandi áferðin geri leggina
áferðarfallegri, þá sé mjög auðvelt að
dreifa gelinu svo húðin fái jafnan lit.
í boði
morgun, sunnudag, frá kl. 10 til 18.
Meðal þess sem finna má á sýn-
ingunni eru húsgögn, húsbúnaður,
innréttingar, skrautmunir, textíl-
vörur, útigi-ill og tjaldvagnar svo
fátt eitt sé nefnt. Þá verður flest
sem tengist brúðkaupi 21. aldar-
innar kynnt.
Sýndir verða vínflöskutappar
fyrrir konur og karla úr verðlauna-
samkeppni Félags íslenskra gull-
smiða og fjölmiðlafólk keppir í
borðskreytingum.
Nýkjörin Fegurðardrottning ís-
lands, Katrín Rós Baldursdóttir,
hefur lagt undir sig svið Laugar-
dalshallarinnar, þar hefur hún inn-
réttað draumaibúð sína í samvinnu
við Drífu Hilmarsdóttur útlits-
hönnuð.
Fylgst með söngva-
keppninni á risaskjá
Þeim sem hafa hug á að skoða
sýninguna en vilja ekki missa af
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva er bent á að keppnin verður
sýnd á risaskjá í Laugardalshöli í
kvöld. Að auki verður aUa helgina
boðið upp á fjölda skemmtiatriða á
sviði, sem reist hefur verið á gólfi
LaugardalshaUarinnar; hljómsveitir
troða upp og tískusýningar verða
haldnar. Þá verða sýnd atriði úr
söngleiknum Rent.
ANNETTE 3-M AÐEINS 179.500
ALKLÆTT ÚRVALS LEÐRI - 3 LITIR
ELDHUSBORÐ OG STÓLAR
MIKIÐ ÚRVAL - ÓTRÚLEGT VERÐ
rms
retra
Teg
BORÐ 120X80 + 4 STÓLAR, AÐEINS 35.900 STGR.
OPIÐ í DAG KL. 10-14.
WS4
□□□□□□
36 món. Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100 36