Morgunblaðið - 15.06.1999, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
PRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 33
LISTIR
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
FLYTJENDUR á Tónlistarhátíðinni: Martial Nardeau flautuleikari, Guðrún S. Birgisdóttir flautuleikari, Pét-
ur Jónasson gítarleikari, Lilja Hjaltadóttir fiðluleikari, Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari, söngvararnir
Signý Sæmundsdóttir, Margrét Bóasdóttir og Bergþór Pálsson og organistinn Jón Stefánsson. Á
myndina vantar söngvarann Óskar Pétursson.
Sumartónleikar við Mývatn
TÓNLISTARHÁTÍÐ á sumarsól-
stöðum verður haldin við Mývatn
dagana 17. til 20. júnf þar sem boð-
ið verður upp á dagskrá fyrir alla
aldurshópa. Að sögn Margrétar
Bóasdóttur, listræns stjórnanda
hátíðarinar, munu margir af
þekktustu listamönnum landsins
koma fram við fjölbreytt tækifæri.
Tónlistarhátíðin byggist á hefð
sem myndast hefur í kringum sum-
artónleika í Reykjahlíðarkirkju við
Mývatn og Akureyrakirkju, en nú í
sumar verður dagskráin lengd og
útfærð mun ítarlegar.
Hátíðin hefst með lifandi tónlist
á kafflhúsum við Mývatn 17. júní
en að sögn Margrétar er hátindur-
inn klassískir tónleikar í félags-
heimilinu Skjólbrekku 18. og 19.
júm' kl. 20.30. Á þeim fyrri munu
ljórir söngvarar flylja óperuaríur
og íslensk sönglög en á þeim seinni
verður efnisskráin fjölbreyttari og
inniheldur m.a flautu-, gítar- og pí-
anóleik og söng.
Yngsta kynslóðin mun ekki fara
varhluta af háti'ðardagskránni því
sérstakir barna- og fjölskyldutón-
leikar verða í Grunnskólanum í
Reykjahlíð 20. júní kl. 13.30. Mar-
grét segir mikilvægt að kynna
klassíska tónlist fyrir börnum og
að eftir tónleikana verði boðið upp
á sérstaka útivistardagskrá. Síð-
asti viðburður hátfðarinnar er
samsöngur í félagsheimilinu Skjól-
brekku. „Það er sérstakur þing-
eyskur og mývetnskur siður að
syngja saman í fjórum röddum úr-
val íslenskra ættjarðarlaga," segir
Margrét, „og þannig verður hátíð-
in sungin út.
Margrét bendir á að hátíðin sé
tilvalið tækifæri fyrir alla fjöl-
skylduna til að njóta menningar og
óviðjafnanlegrar fegurðar í Mý-
vatnssveit. Búist er við mörgum
gestum og aðstandur hátíðarinnar
vonast til að hún geti orðið árviss
viðburður.
Spegilmyndir
BÆKUR
Ljóð
VATNASPEGILL
eftir Erlend Jónsson.
Smáragil. 1999 - 64 bls.
SPEGLAR hafa þá eigind að segja
sannleikann hversu vel eða illa sem
okkur líkar hann. I titilljóði bókar
sinnar, Vatnaspegill, orðar Erlendur
Jónsson þessa hugsun svo að þú viijir
sjá þig eins og þú varst. „Vatnið sýnir
þig eins og þú ert.“ Bók hans er því
öðrum þræðinum sjálfsmynd í spegli
tímans og reynslunnar.
Það er dálítið haust-
hljóð í kveðskapnum eða
eins og segir á einum
stað „því sumarið er á
förum“. Við þau árstíða-
skipti ævinnar lítur
skáldið yfir farinn veg,
horfir til æskunnar,
minnist föður síns og
hinstu daga hans. Svo
yrkir hann ljóðabálk um
kennara en sjálfur hefur
hann sinnt kennslustörf-
um mest alla starfsæv-
ina.
Kennaraijóðin eru
gamansöm, ofurlítið
kaldhæðin og afhjúp-
andi um viðkvæmni
kennarastarfsins og Ijóst af ljóðunum
að kennarar eiga við margháttaðan
vanda að stríða. I kvæðinu Bannað
segir m.a. svo:
Kennarinn má ekki vera mælskur
því orðagjálfur ber vitni
um fljótfæmi og aulaskap.
Kennarinn má ekki þegja
því þögnin breiðir yfír
deyfð og sljóleika
Kennarinn má ekki vera mjóróma,
það er svo ókarlmannlegt!
Kennarinn má ekki vera dimmraddaóur,
það er svo drumbslegt!
Kennarinn má ekki vera strangur
því offíkið hefnir sín
Kennarinn má ekki verað auðsveipur
því agaleysið veldur upplausn.
Kennarinn má ekki lifa of lengi.
Og ekki má hann deyja
þegar sól er hæst á lofti.
I kvæðinu Lokadagur er einhvers
konar uppgjör gamla kennarans við
ævistarfið. Fyrst var eilíft sumar, síð-
an langur starfsvetur og loks er kom-
ið að starfslokum:
Eftir óendanlega langan vetur
- þrúgandi langan!
komloksinskaltvor.
Rykið þyrlaðist og fyllti vitin.
Ég lokaði á eftir mér.
Ég gekk út í næðinginn.
Úti er ævisaga!
Spegilmynd Erlends
er því fremur kald-
hömruð á yfirborðinu.
En því er nú þannig far-
ið með spegla að þeir
segja að vísu sannleik-
ann en kannski ekki all-
an sannleikann við
fyrstu sýn. Alltént finn-
um við aðra hlið á Er-
lendi í kvæðinu Detti-
foss. Þar óskar hann
þess að straumiðan hrífi
með sér „drauma þína
og yfirsjónir / til hafs“
og feli í djúpinu kalda / daga
þína / og nætur.“ En segir svo:
Nei, straumiðan blekkir!
Máríuerla á steini
veifar stélinu og vekur þig
til lífsins.
Vatnaspegill Erlends er vönduð
sjálfsmynd, öguð og dálítið hvöss við
fyrstu sýn en hefur á sér mýkri fleti
ef vel er að gáð.
Skafti Þ. Halldórsson
Erlendur
Jónsson
SPORTVEIÐIDEILDIN ER FULL AF NYJUM VÖRUM
Jóhann Örn
Gunnar
Guðmundur Örn
Maðkafötur, 3,5 lítrar.
VERÐ 1.978-
Grandagarði 2, Rvík, sími 552-8855 og 800-6288
- og bjóöa þér aöeins fyrsta flokks vörur á góöu veröi
Laxa- og silungsveiðisett; flugustöng
með hjóli, aðeins 10.776-
ALLT I' SJÓSTANGAVEIÐINA Á
EINUM STAÐ; stöng með hjóli frá
9.900- krónum
Neoprene-vöðlur kosta frá 9.900-.
Eigum einnig aðrar gerðir.
Œ&irzTi suimnncr
Veiðivesti, breytileg stærð.
Verð 3.968-
Vatnsheldir veiðihattar frá 1.523-
Veiðigleraugu (POLARIZED) frá 1.900-
Veiðijakkar (vind- og vatnsheldir) verð
11.876-. Neoprene-vöðlurfrá 9.900.
Veiðikassar og veiðibox í úrvali.Box frá 362-,
kassar frá 783-. Maðkabox í vasann 98-
Veiðitöskur, aðeins 1.419-
OPIÐ VIRKADAGA 8-18
LAUGARDAGA10-14
ÞEIRÞEKKJA
SPORTVEIÐINA...