Morgunblaðið - 15.06.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 35
BÆKUR
Fræöirit
SOURCES OF ECONOMIC
GROWTH
eftir Tryggva Þór Herbertsson.
Reykjavík, Háskólaútgáfan. 134 bls.
1999.
RANNSÓKNIR á hagvexti hafa
verið fyrirferðarmiklar innan hag-
fræði undanfarin ár og skilað tals-
verðu til skilnings á honum. Áhugi
hagfræðinga og annarra á hagvexti
er auðskilinn, hagvöxtur hefur bein
áhrif á lífskjör allra og er nauðsyn-
legur ferðafélagi á leiðinni frá ör-
birgð til allsnægta. Einn þeirra hag-
fræðinga sem rannsakað hafa hag-
vöxt er Tryggvi Þór Herbertsson,
dósent við viðskipta- og hagfræði-
deild Háskóla Islands og forstöðu-
maður Hagfræðistofnunar. Afrakst-
urinn er nú kominn út í bókinni So-
urces of Economic Growth eða Ræt-
ur hagvaxtar. I ritinu er að finna
greinargott yfírlit um helstu kenn-
ingar annarra fræðimanna um hag-
vöxt og enn fremur fjórar greinar
sem Tryggvi Þór hefur ritað, ýmist
einn eða í samstarfi við aðra, sem
varpa ljósi á einstaka hhðar hagvaxt-
ar.
Ritið er byggt á doktorsritgerð
Tryggva Þórs við Arósaháskóla. Það
er því skrifað fyrir sérfræðinga á
sviðinu og lítt árennilegt til lestrar
fyrir aðra en þá sem þjálfun hafa í
aðferðafræði hagfræði. Fyrir þá er
fengur af því að hafa aðgengilegt yf-
irlit sem þetta og safn greina á ein-
um stað. Ritið er ágætis inngangur
að hagvaxtarfræðum fyrn hagfræð-
Nemendadansflokkur Listdans-
skóla Islands.
Arrrg...
danssýning í
Tjarnarbíói
NEMENDADANSFLOKKUR List-
dansskóla íslands heldur danssýn-
ingu í Tjarnarbíói í dag, þriðjudag
og á morgun, miðvikudag, kl.
20.30. Flutt verða fjögur verk auk
tveggja sólódansa. Eitt verkanna
er samið af dönsurum flokksins en
hin þijú eru samin af kennurum
Listdansskóla Islands. Sólódans-
arnir koma úr smiðju August Bo-
urnonville. Ásamt nemendadans-
flokknum munu dansarar úr 5. og
6. flokki skólans dansa tvö dans-
verk.
Nemendadansflokkurinn er til-
raunaverkefni Lisdansskóla ís-
lands og þetta er fyrsta árið sem
hann er starfræktur. Flokkinn _
skipa elstu nemendur skólans. í ár
hafa meðlimir flokksins verið átta.
----------------
Guðmundur R.
Lúðvíksson sýn-
ir í Austurríki
NÚ stendur yfir sýning á verkum
Guðmundar R. Lúðvíkssonar, ásamt
Beate Rathmayr og Verena Gfader, í
Gallery Maerr, sem er í hjarta borg-
arinnar Linz í Austurríki.
Þar sýnir Guðmundur 22 veður-
teikningar ásamt gólfverki unnið úr
A-4 pappír sem myndar Island og
gert er úr 250 örkum.
Sýningin stendur til 7. júlí.
Rætur hagvaxtar
inga og í því er vísað á
fjölda annarra rita til
frekari fróðleiks. Niður-
stöðumar eru þó áhuga-
verðar fyrir mun fleiri
og vonandi mun
Tryggvi Þór eða aðrir
íslenskir hagfræðingar
setja þær fram síðar á
aðgengilegan hátt fyrir
leikmenn.
Þótt skrifað sé á
ensku og fjallað um efni
sem skiptir máli um
heim allan ber ritið þess
merki að höfundurinn
er alinn upp á íslandi.
Hagvöxtur á Islandi er
þó ekki sérstaklega til
Tryggvi Þór
Herbertsson
skoðunar en litið er á
hliðar hagvaxtar sem
eru sérstaklega áhuga-
verðar fyrir Islendinga
og jafnt notuð íslensk
sem erlend gögn.
Þannig er litið á tengsl
hagvaxtar annars veg-
ar og náttúruauðlinda,
mannauðs og verðbólgu
hins vegar.
Tryggvi Þór kemst
að þeirri niðurstöðu að
um fimmtung hagvaxt-
ar á íslandi á árunum
1970 til 1992 megi rekja
til betri menntunar
landsmanna, fjárfest-
ingar í mannauði. Þetta
er tæpur helmingur þess sem skýra
má með öðrum fjárfestingum lands-
manna en þær voru miklar á þessu
tímabili, bæði vegna stækkunar
fiskiskipaflotans og virkjanafram-
kvæmda. Um fimmtung hagvaxtar
virðist ekki unnt að skýra með töl-
fræðilegum aðferðum en sennilega
má rekja stóran hluta þess til bættr-
ar starfsþjálfunar landsmanna.
Þá skoðar Tryggvi Þór í samvinnu
við Þorvald Gylfason hvort hugsan-
legt sé að gjöfular náttúruauðlindir
dragi úr hagvexti vegna þess að of
mikil áhersla á nýtingu þeirra hamli
uppbyggingu annarra atvinnuvega.
Þessi tilgáta er ekki ný af nálinni en
greinin rennir frekari stoðum undir
hana. I annarri grein, ritaðri í sam-
vinnu við Anders Sorensen, er litið á
áhrif þess á hagvöxt ef eignarréttur
á náttúruauðlindum er óljós.
Myndin sem Tryggvi Þór dregur
upp af áhrifum verðbólgu er dökk.
Sá kafli er ritaður í samvinnu við
Þorvald Gylfason og Gylfa Zoéga.
Þeir komast að þeirri niðurstöðu að
ótvírætt sé að verðbólga dragi úr
hagvexti, að stöðugt verðlag sé for-
senda örs vaxtar. Ekki er lagt mat á
það hve miklu minni þjóðarfram-
leiðsla Islendinga er nú en hún hefði
orðið ef okkur hefði tekist betur upp
í baráttunni við verðbólguna. Það
virðist þó ljóst að talsverðu munar.
Það gefur auga leið að doktorsrit-
gerð er vandað rit sem lagt hefur
verið í dóm sérfræðinga á sviðinu og
staðist ýtrustu kröfur. Þetta á tví-
mælalaust við um bók Tryggva Þórs
og hún er höfundi sínum til sóma.
Gylfi Magnússon
Alvöru Suzuki jeppi
á verði smábílsl
Jimny er alvöru ieppi by
sjálfstæðri grind og mei
hátt og lágt drif.
feliSS.
Bj f jjjfiá \ A
Wk ST \ t
Flottur í bæ, seigur á fjöllum
Suzuki Jimny er sterkbyggður og öflugur sportjeppi,
byggður á sjálfstæðri grind og með hátt og lágt drif. Það
er sama hvort þú ætlar með vinina í fjallaferð eða á
rúntinn niður i bæ, Jimny er rétti bíllinn!
1.399.000,- beinskiptur
1.519.000,- sjálfskiptur
$ SUZUKI
—m*.... —
SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: ólafur G. ólafsson. Garðabraut 2, sfmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir:
Bíla- og búvélasalan hf., Miðási 19, sfmi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Elfasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Isafjörður Bílagarður ehf., Grænagarði,
simi 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, sfmi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri 5, simi 482 37 00.
Hvammstanga: Bila- og búvélasalan, Melavegi 17, simi 451 2617.
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is