Morgunblaðið - 15.06.1999, Side 55

Morgunblaðið - 15.06.1999, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ SKOÐUN ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999 55 ÞAÐ hefur ekki verið venja að svara þeim er gert hafa at- hugasemdir vegna tónlistargagnrýni en að þessu sinni er það gert vegna ágreinings um söguleg atriði. Það er svolítið skondið að sekkjapípan skuli vera hér í aðalhlut- verki en í Morgun- blaðinu 12. júní sl. gerir sekkjapípuleik- arinn, Volker Dellwo, hríð að umfjöllun minni um tónleika hans, sem haldnir voru 25. maí, sl., í Há- sölum, ásamt kammerkór Hafnar- fjarðar. Sýnist mér að skipta megi þessari gagnrýni í tvo hluta. Dellwo þykir umfjöllun um tón- leika hans lýsa, í fyrsta lagi, van- þekkingu á sögu sekkjapípunnar og í öðru lagi þykir honum ég sýna sér lítilsvirðing, sem lista- manni, auk þess að kalla hann Skota, verandi Þjóðverji. Þar sem „hafa skal það sem sannara reyn- ist“ vil ég biðja Volker Dellwo af- sökunar á því að kalla hann Skota en uppruna hans var hvergi getið í prentaðri efnisskrá tónleikanna. Ekki hef ég nokkrar efasemdir um það að hann sé margverðlaun- aður og útgefinn á hljómplötur, að eigin sögn, þótt honum tækist ekki vel upp á nefndum tónleikum en samkvæmt því stóðst leikur hans ekki samanburð við það sem ég þekki til sekkjapípuleiks, frá því er ég var við tónlistarnám í Skotlandi. Um frammistöðu Vol- kers Dellwos á þessum sérstöku tónleikum, ætla ég ekki ræða frekar en hins vegar fjalla örlítið um aðdróttun hans, þar sem hann sakar mig um fólsun og vankunn- áttu um sögu sekkjapípunnar. Þykir rétt að ræða stuttlega um þessi atriði, til umhugsunar fyrir Volker Dellwo og lesendur Morg- unblaðsins. Það sem Dellwo segir um sögu sekkjapípunnar og þá til- gátu Headingtons að sameiginleg og sérkennileg tónstilling sekkja- pípunnar, meðal þjóða er höfðu engin samskipti, megi hugsanlega rekja til mjög gamals uppruna hljóðfærisins, þarf aðeins að íhuga frekar og einnig ýmislegt, er varðar smíðasögu þessa sér- stæða hljóðfæris. Flautan er með- al elstu hljóðfæra sögunnar og saga hennar er rakin til fikts frummannsins með holviðarleggi. Dýraýlan, samsett úr tveimur slípuðum viðarplötum og eða lauf- böðum, var eitt af mikilvægustu veiðihljóðfærum frumstæðra manna og með því að stinga dýraýlunni í enda reyrflautunnar, varð til hljóðfæri, sem þekkt er meðal elstu menningarþjóða heims, mikið notað af Egyptum, og þá stundum með tveimur leggjum, er bendir til þess að sá lengri hafi verið „drónpípa", svip- að og gerist með sekkjapípur enn í dag. Hjá Grikkjum er þetta hljóðfæri þekkt undir nafninu „aulos“. Sekkurinn, sem bætist hér í hópinn og gerir út um sér- kenni sekkjapípunnar, var upp- runalega dýramagi og eru slíkar gerðir til enn í dag og þykja benda til þess að sekkjapípan sé því hugsanlega mjög gamalt hljóðfæri, unnið úr náttúruefnum og þar með hægt að skipa henni í flokk með svo nefndum „náttúru- hljóðfærum", sem eru talin meðal elstu smíðisgripa mannssögunnar, svo að munað getur nokkru, varð- andi þá staðhæfingu Dellwos að elstu heimildir um sekkja- pípu séu frá því rétt fyrir Krists burð. í New Oxford Hi- story of Music, I. hefti, þar sem fjallað er um frumstæða tón- list, er snákaflautan talin vera byggð á sömu grundvallarat- riðum og sekkjapípan og að slíkar flautur hafi m.a. fundist í Ka- smír. í Babylon var til, að sögn Daniels spámanns, hljóðfæri, sem nefnt var „sum- fonyah“ (sinfónn), sem talið er að hafi verið sekkjapípa og sama má segja um gríska hljóðfærið Gagnrýni Um frammistöðu Volk- ers Dellwos á þessum sérstöku tónleikum ætla ég ekki að ræða frekar, segir Jón Asgeirsson, en hins vegar fjalla ör- lítið um aðdróttun hans þar sem hann sakar mig um fölsun og vankunn- áttu um sögu sekkja- pípunnar. „symphonia". Hjá Rómverjum var til austurlenskt hljóðfæri, sem hreinlega var nefnt „ascaulos“ (sekkjapípa) og löngu íyrir Krist burð, höfðu Grikkir og Rómverjar verið að fást við vandamálið, að safna lofti til tónmyndunar á flautuhljóðfærum og var smíði Ktesibiosar, 250 lyrir Krist burð, á hljóðfærinu „hydraulis", sem er forveri orgelsins, talin einn merki- legasti viðburður tónlistarsögunn- ar. Sagnfræðingar hafa haldið því fram að Nero hafi annaðhvort leik- ið á „hydraulis" eða sekkjapípu er hann forðum skemmti sér við að horfa á Rómaborg brenna og að ekki hafi verið um fiðlu að ræða því hún var ekki til sem evrópskt hljóðfæri á þeim tíma. Smíði loft- belgja úr sldnni fyrir orgel byggð- ist á kunnáttu manna í meðferð skinnefna og er talið að slík iðn hafi notið eldri kunnáttu sekkja- pípusmiða. Umfjöllun mín um tón- stöðu sekkjapípunnar veldur reiði hjá Dellwo og segir hann að ekki sé ástæða til að fárast yfir því, svona eigi hún að hljóma og telur upp þau atriði sem einkenna hljóman skosku sekkjapípunnar og þar erum við að nokkru sammála, Fæst í flestum apótekum Dreifing T.H. Arason sf., fax/simi 554 5748 og 553 0649 nema hvað varðar þáu tímamörk er hann notar til að sanna mál sitt, varðandi aldur sekkjapípunnar. Um það atriði er rétt að ræða að- eins nánar. Tónstilling sekkjapípu- hljóðfæra er með tvennum hætti sérstök, bæði er varðar innbyrðis tónstöðu tónanna og sjálfan tón- stigann. Innbyrðis tónstaða tón- anna er ekki hrein samkvæmt nú- tímastöðlun og er sú skipan ætluð til þess að gera tón flautunnar meira dillandi en annars yrði. Þessi tónstilliaðferð hefur verið sagnfræðingum nokkurt umhugs- unarefni og þaðan er komin tilgáta Headingtons (innan gæslappa), um að tónstOling sekkjapípunnar eigi sér ef til vill sögu allt fram að steinöld, kenning sem fer í taug- arnar á Dellwo. Sama má segja um tilvitnunina (innan gæsalappa) um skoska tónstigann hjá Bumey, sem er einmitt tilgreind sem grín, því auðvitað var Bumey „sannur Breti“. Um þetta tónstillingarat- riði er Dellwo þó sammála undir- rituðum og einnig nefnir hann, að tónstigi skosku sekkjapípunnar sé „mixolydiskur“ (dúr-tónstigi með lækkaða sjöund) og segir það vera „gregoríanska“ kirkjutóntegund og notar þá staðreynd, sem við- miðun til aldursákvörðunar á tón- stillingu skoskra sekkjapípuhljóð- færa. Þessi tónaröð er ævafom og finnanleg í flestum þjóðlögum frumstæðra þjóða. Mönnum hættir til að líta á kirkjutóntegundir sem það uppmnalegasta, varðandi tón- skipan tónaraða, sem er fráleitt, því tónfræði var meðal fomþjóð- anna vísindagrein, er átti sér sam- stöðu með stjömufræði og stærð- fræði, enda var hljómgun efnisins mjög snemma rannsóknarvið- fangsefni manna. Má m.a. rekja kenninguna um tónstiga til tón- fræðiathugana vísindamanna í Ba- bylon, kenninga er síðar vom teknar upp af Pyþagórasi, auk þess sem Kínverjar, arabar og Indverjar kunnu eitt og annað fyr- ir sér í þessum efnum. Kirkjutón- tegundirnar svo kölluðu vom fyrst staðlaðar af Ambrosíusi kirkjufóð- ur, við stofnun Kristinnar kirkju, á 4. öld, eftir Krists burð og gregor- íönsk tónlist, sem Dellwo vitnar til og kennd er við Gregor mikla páfa, var bókstaflega talað „búin til“ á 7. öld, eftir Krists burð af tónfræð- ingum kirkjunnar. Sú tónskipan, sem Kristin kirkja tekur upp, rek- ur sögu sína til fomþjóða Austur- landa og þar með standast ekki þessi tónstillingartímamörk hjá Volker Dellwo. Staðreyndin er að sekkjapípan er mjög gamalt hljóðfæri, upp- ranalega byggt úr náttúmefnum en frá sögulegu sjónarmiði er sekkjapípan tiltölulega nýlega komin til brúks í Evrópu og var vinsælust frá 13. til 16. aldar. Það sem gerir sögu þessa sérkennilega alþýðuhljóðfæris nokkuð óljósa er sú staðreynd að sem hljóðfæri er hún á margan hátt takmarkaðri en önnur flautuhljóðfæri, bæði er varðaði tónsvið, almennt um níund og að í nær öllum gerðum hennar er ekki hægt að yfirblása upp í efri áttundir. Þá ekki síst það atriði, að flytjendur höfðu ekki möguleika á að hafa áhrif á tóngæði með vömn- um, eins og t.d. mögulegt er á önn- ur blásturshljóðfæri, auk annarra tæknivandamála varðandi tón- myndun og því naut sekkjapípan ekki sams konar athygli og önnur flautuhljóðfæri og var jafnvel á miðöldum, að þessu leyti til, sett í flokk með hjólfiðlunni, Hurdy-gur- dy, sem hljóðfæri, er ekki var hægt að nota til flutnings á al- mennri tónlist og í samleik við hefðbundin hljóðfæri. Það sem okkur greinir á varðár aldur sekkjapípunnar og tónskip- an. Dellwo heldur því fram að eng- ar heimildir um sekkjapípur séu til eldri en frá því rétt fyrir fæðingu Krists og að tónskipan hljóðfæris- ins megi rekja til kirkjutónteg- unda og nefnir sérstaklega „gregoríanska kórtónlist“, frá 7. öld e.Kr en þá var ekki til neitt sem heitir kórtónlist, aðeins iðkað- ur einraddaður söngur. Þær heim- ildir sem ég sæki til telja hljóðfær- ið upphaflega svo nefnt náttúm- hljóðfæri og hafa verið til meðal framstæðra þjóða, allt frá þeim tíma er maðurinn lærði að nota ýmis náttúmefni til verkfæra og hljóðfærasmíða, en smíði ýmissa hljóðgjafa var með þeim hætti að frammaðurinn hafði hugsanlega mjög snemma uppgötvað grand- vallargerð allra tónmyndunarað- ferða, blástur, strok og slátt. Tón- skipanin er ævafomt vandamál og tengist mjög semma rannsóknum framstæðra manna á hljómgun efnisins, sem þeir töldu vera gerða af galdri og meðal fornu menning- arþjóðanna vora gerðar merkar uppgötvanir á þessu sviði, sem kristin kirlga byggði sína tónskip- an á, fyrst á 4. öld. Volker Dellwo endar grein sína á því að saka und- irritaðan um „vanþekkingu og virðingarleysi um menningu ann- ama þjóða“. Þessari ásökun mót- mælir undirritaður og getur ekki séð samhengi milli þess að þykja lítið til um tónflutninginn hjá hin- um margverðlaunaða Volker Dellwo og þess að þekkja til þjóða og virða menningu þeirra. Margt annað en menningarfjandskap mætti saka mig um en það annað í þessari grein, er varðar mína per- sónu, hirði ég ekki að fjalla um og bið Volker Dellwo blessunar til allra hluta. Höfundur er tónlistargagnrýnandi. Hlutabréfasjóður Búnaðarbankans hf. Aðalfundur Aðalfundur Hlutabréfasjóðs Búnaðarbankans hf. verður haldinn þriðjudaginn 22. júní 1999, kl. 16.00, Hafnarstræti 5, 4. hæð. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Reikningar félagsins fyrir liðið starfsár. 3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar. 4. Tillaga um breytingu á 5. gr. samþykkta félagsins varðandi heimild stjórnartil hækkunar á hlutafé um allt að 1.000.000.000 kr. til viðbótar við núverandi heimild, þannig að heildarhlutafé félagsins verði allt að 3.000.000.000 kr. Útboðsgengi og greiðslukjör skulu ráðast af virði eigna, skuldbindingum sjóðsins og markaðsaðstæðum á hlutabréfamarkaði. Markmið með hlutafjárhækkuninni er að afla félaginu fjártil fjárfestinga í hlutabréfum og öðrum framseljanlegum verðbréf- um samkvæmt fjárfestingarstefnu félagsins. Lagt er til að hluthafar víki frá áskriftarrétti sínum vegna hækkunarinnar og að heimildin gildi til ársloka 2004. 5. Breyting á samþykktum vegna tilkomu rafrænnar skráningar verðbréfa. 6. Heimild félagsins til kaupa á eigin hlutabréfum. 7. Kosning stjórnar. 8. Kosning endurskoðenda. 9. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og endurskoðanda. 10. Önnur mál. 11. Erindi um hlutabréf. )/ BÚNAÐARBANKlNN V VERÐBRÉF - byggir d trausti UM SEKK OG HLJÓÐPÍPU Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.