Morgunblaðið - 15.06.1999, Side 62
MORGUNBLAÐIÐ
62 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ 1999
Dýraglens
t>U ERTNYR HER
í HVERFINU
HERMAJMN VERMUNDSSON
HEITI ES! OG HEYRDU, ÞAR
SEM VID ERUM AD TALA
CAkkAKX
Hundalíf
Ljóska
Ferdinand
VE5,MAAM..U)E
HAVE A LITTLE
PROBLEM HERE..
5EE,ON QUE5TION5 TIaJO,
NÍNE,ELEVENANPTWENTV/
I HAD TO A5K MARCIE
FOK THE AN51a)ER5....
BUTON NINE ANDTWENTV,
5HE ADMIT5 5HE ONLT
ÖUE55ED 500NMVPAPER
I WA5 W0NPERIN6 IF..
O
8
DON'T 5I6H LIKE
THAT,MA'AM..IT
6REAK5MVHEART..
Já, kennari..
við höfum svolítið
vandamál hérna..
Sjáðu til, ég varð að spyrja En hún viðurkenndi að hún hefði
Möggu um svörin við bara giskað á númer mu og tuttugu,
spumingum númer tvö, níú, svo ég var að velta því fyrir mér
ellefu og tuttugu... hvort.. að á blaðinu mínu...
Ekki andvarpa svona,
kennari...ég þoli það
ekki
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Lærdómur
af stríði
Frá Lúðvík Júlíussyni:
NÚ er komið að því að útnefna sig-
urvegarann. En hver er hann? Allir
vilja lýsa sinn mann sigurvegara!
Pað er ekki erfítt að sjá hvers vegna
allar fylkingar vilja gera það, því
enginn, allra síst NATO, hefur unn-
ið sannfærandi sigur.
Stríðið, sem auðvelt er að sýna
fram á að hafíð var á hæpnum for-
sendum, þ.e. eintali NATO og úr-
slitakostum, í stað samræðna og
samninga, hefur gert lítið úr upp-
haflegum kröfum NATO. Kröfur
NATO urðu fyrir eins konar gengis-
falli þegar stríðið hófst. Öllum hefði
átt að vera Ijóst að sigurvegarinn
myndi þröngva skilyrðum sínum yf-
ir hinn sigraða. En eftir nýlegt frið-
arsamkomulag er Ijóst að hinn sigr-
aði hefur enn mikið að segja og er
enn ógnun við NATO, enda standa
loftárásir enn yfir.
Ef NATO hefði sigrað og ef það
kynni að setja fram skýr markmið
og skilyrði, sem hefðu komið í veg
fyrir stríðið til að byrja með, þá
væru þær viðræður, sem nú fara
fram við hershöfðingja serbneska
hersins, óþarfar. Það er nefnilega
augljóst að markmið, langtíma-
stefna NATO og Vesturlanda, eru
óskýr og enginn virðist vita hver
þau eru nákvæmlega og því gefst
einræðisherrum rúm til ógnar-
stjómar.
Ef NATO hefði skipt sér af mál-
efnum Júgóslavíu frá upphafi og
haft skýra langtímastefnu, þá væru
landamæri hennar önnur en þau eru
í dag og hörmungarnar sem gengið
hafa yfir hana mun minni. Óstjómin
og ósamkvæmnin í afskiptum
NATO af Júgóslavíu hefur verið
slík að það er einungis hægt að lýsa
því sem vanhæfni og mannúðar-
hryðjuverkum.
Hvaða samtök önnur en NATO
leyfa málum að þróast eins langt og
komið var í átökum KLA og Serbíu
1998 án þess að hafa skýra stefnu
og skipta sér síðan svo seint af þeim
að eina lausnin sem þau sjá er að
sprengja allt í tætlur, meira stríð og
meiri hörmungar til lausnar deil-
unni? Hvers vegna hafa þau ekki
verið virk í lausn þessarar deilu frá
upphafi 1987? Skynsamt fólk mun
eiga afar bágt með að skilja hvað er
svona ábyrgðarfullt við hegðun
NATO í þessari deilu.
Annað varðandi þetta stríð, sem
er átakanlegt áheymar, er að hlut-
verk NATO sé að koma í veg fyrir
hryðjuverk Serba. Það sem er enn
átakanlegra er að fólk trúir því að
þetta sé markmið NATO. En það
þarf að útskýra nánar, þetta er allt
spurning um orsök og afleiðingu.
Arið 1997 var síðasta árið sem
NATO hafði til að koma í veg fyrir
hryðjuverk Serba. NATO er fýrst
nú, 1999, að bregðast við hryðju-
verkum Serba. Ef NATO hefði
komið í veg fyrir að hryðjuverkin
hæfust með virkri þátttöku í frið-
samlegri lausn deilunnar frá upp-
hafí, þá hefði NATO ekki þurft að
bregðast við með stríði nú árið 1999
- 12 áram eftir að núverandi deilur
hófust!
Það er ekki hægt að segja að Ma-
delaine Albright hafi notað reynslu
sína og BNA af heimsstyrjöldunum.
Ef Bretland og Frakkland hefðu
sýnt herramennsku og umfram allt
skynsemi gagnvart hinu gersigraða
Þýskalandi eftir íyrri heimsstyrj-
öldina, þá hefði valdabrannur
Hitlers verið miklu grynnri, og ef
BNA hefði ekki afturkallað lán sín
við Þýskaland við upphaf kreppunn-
ar miklu, þá hefði valdabrannur
Hitlers ekki margfaldast að dýpt. í
báðum þessum tilfellum var mögu-
leiki á friðsamlegum lausnum sem
hefðu nægt til að koma í veg fyrir
síðari heimsstyrjöldina. Eftir mörg
vannýtt tækifæri var þó ekkert ann-
að eftir en að bregðast við áætlun-
um Hitlers með stríði.
Vesturlöndum hafði ekki tekist að
koma í veg fyrir þróunina. Hemað-
arleg viðbrögð voru eina lausnin
rétt eins og nú. Madelaine Albright
og BNA hafa augljóslega ekki dreg-
ið neinn lærdóm af heimsstyrjöld-
unum.
A meðan á stríðinu stóð hefur
KLA sótt í sig veðrið. KLA era ekki
nægilega öflug til þess að sigra Ser-
bíu upp á eigin spýtur, en nú þegar
Serbar yfirgefa Kosovo era KLA í
betri aðstöðu og gætu verið hættu-
leg NATO, sem nú tekur við hlut-
verki Serba um að viðhalda stöðu
Kosovo í Serbíu. Nú er bai-a að sjá
hvort KLA afvopnast eins og þau
hafa lofað eða hvort NATO þarf að
kljást við þau, eins og Saddam
Hussein og fleiri fyrrverandi gæð-
inga BNA.
Þessi sigur NATO hefur kennt
Vesturlöndum ranga lexíu. í stað
þess að átta sig á því að fyrirbyggj-
andi stjómmál og langtímaáætlanir
hafi skort, draga þau þá ályktun af
striðinu að rétt hafi verið að hefja
afskipti þegar allt var komið í bál og
brand og neyða samningsaðilana,
sérstaklega annan þeirra, til að
samþykkja afarkosti studda hótun-
um um beitingu hervalds.
Lærdómurinn er sem sagt að
láta ríkiserindrekstur víkja fyrir
hervaldi. í stað viðræðna á að hóta
beitingu hervalds ef afarkostir eru
ekki samþykktir. Það er öllum
ljóst að ef aðeins á að bera fram
kröfur studdar hótunum um beit-
ingu hervalds, er vegur skamm-
tímalausna og hentistefnu aukinn
en möguleikinn á langtímaáætlun-
um og skynsemi í lausn mála gerð-
ur að engu.
Stríðið var erfitt og skammarlegt
fyrir NATO. í stað þess að setja
Serbíu skilyrði, er verið að semja
við Serbiu um útfærslu skilmála. í
framtíðinni verður litið á þetta stríð
sem algjört klúður, stríð sem gerði
það eitt að verkum að hörmungar
og sundurleitni varð meiri í Evrópu,
einmitt á tímum sem kennast áttu
við sameiningu og samlyndi.
LÚÐVÍK JÚLÍUSSON,
Fagrahjalla 24, Kópavogi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt i upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.