Morgunblaðið - 11.07.1999, Side 1
154. TBL. 87. ÁRG.
SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Síðasta „ástar-
gangan“?
HUNDRUÐ þúsunda ungmenna söfnuðust
saman nærri Brandcnborgarhliðinu í
Berlín í Þýskalandi í gær en allt frá falli
Berlínarmúrsins fyrir tíu árum hafa ung-
menni hvaðanæva úr Evrópu komið ár-
lega saman þar í borg og haldið svokali-
aða „ástargöngu", hlustað á lög unga
fólksins og gert sér glaðan dag. Borgar-
stjórn Berlínar hefur látið að því liggja að
þetta verði í síðasta skipti sem hún leyfi
„ástargönguna" og var reiknað með met-
aðsókn að þessu sinni af þeim sökum, bú-
ist var við að meira en miiljón manns tæki
þátt í hátíðinni.
franska lögreglan fordæmd fyrir hörku
Sterk undir-
alda í Teheran
Teheran. AFP, Reuters.
MOHAMMAD Khatami, forseti Irans, kallaði öryggisráð sitt til neyðarfundar í gær til að ræða
um þau átök sem blossað hafa upp undanfarna tvo daga á milli námsmanna í Teheran og ör-
yggissveita írönsku lögreglunnar. Mostafa Moin, menntamálaráðherra Irans, sagði af sér í gær
vegna atburðanna en dagblöð í Iran fullyrtu að þrír námsmenn hefðu fallið í átökunum á föstu-
dag. Sérlegur talsmaður Ali Khamenei erkiklerks fordæmdi einnig aðgerðir lögreglunnar.
PATRICLA Anderson (í miðið) höfðaði mál-
ið á hendur General Motors. Til hægri er
dóttir hennar, Alisha Parker, en hún hlaut
slæm brunasár í slysinu.
Umdeildur
úrskurður
ÚRSKURÐUR kviðdóms í Kalifomíu á fóstu-
dagskvöld þess efnis að bílaframleiðandinn
General Motors skyldi greiða 4,9 milljarða
bandaríkjadala, um 350 milljarða ísl. króna, í
skaðabætur til sexmenninga sem hlutu slæm
brunasár þegar eldsneytistankur í Chevrolet
Malibu-bifreið þeirra sprakk í loft upp eftir að
keyrt hafði verið aftan á hann, hefur vakið
mikla athygli í Bandaríkjunum. Velta menn því
nú fyrir sér hvort upphæðir skaðabótadóma
sem ákveðnar eru af kviðdómum séu ekki
komnar út í öfgar.
General Motors hefur þegar áfrýjað dómnum
og reyndar er talið afar ólíklegt að dómurinn
muni standa, sérfræðingar segja sennilegt að
upphæðin lækki þegar áfrýjunin verður tekin
fyrir eða málsaðilar semji um lægri skaðabæt-
ur. Þyrfti General Motors hins vegar að greiða
þessa upphæð væri Ijóst að fyrirtækið myndi
riða til falls.
Sækjendur héldu því fram að General
Motors hefði lengi vitað að eldsneytistankur
Malibu-bifreiðarinnar væri gallaður en ekkert
gert í því vegna kostnaðarins, sem það hefði
haft í för með sér. Bílaframleiðandinn neitar
hins vegar að nokkuð athugavert hafi verið við
tankinn og segir orsök slyssins þá að ökumað-
urinn, sem keyrði aftan á Anderson-fjölskyld-
una, var drukkinn undir stýri.
Námsmenn héldu áfram mótmælum sínum í
gær, þriðja daginn í röð, gegn banni á útgáfu
dagblaðsins Salam sem beitt hefur sér fyrir
umbótum í landinu. Þeir héldu á blóði drifnum
klæðnaði og hrópuðu „námsmenn sýnið sam-
stöðu, bróðir ykkar var myrtur“ og „niður
með lögregluna“ og neituðu að hverfa af vett-
vangi fyrr en búið væri að leysa þá úr haldi
sem handteknir voru á föstudag.
Vörðu aðgerðir sínar
Stjómendur háskólans í Teheran mótmæltu
aðgerðunum einnig harðlega og fóru fram á af-
sögn yfirlögreglustjóra Irans fyrir þær harka-
legu aðgerðir sem lögreglan greip til á föstu-
dag, til að stemma stigu við mótmælum náms-
mannanna. Sagði einn námsmaður í samtali við
AFP-fréttastofuna að liðsmenn lögreglunnar
hefði barið á þeim líkt og þeir væru bijálaðir.
Stjómendur háskólans sögðu að öll starf-
semi í skólanum yrði lögð niður uns réttur
stúdenta yrði virtur á ný, búið væri að leysa
úr haldi alla þá sem vom handteknir og lög-
reglustjóranum hefði verið vísað úr starfi
sínu. Moin menntamálaráðherra hafði til-
kynnt afsögn sína fyrr um daginn í mótmæla-
skyni og sagði í yfirlýsingu hans að undir eng-
um kringumstæðum væri hægt að una við að
lögreglan berði á námsmönnum.
Yfirmenn írönsku lögreglunnar vörðu hins
vegar aðgerðir sínar í gær og sögðu það hafa
verið „lagalega skyldu" sína að bregðast við
„ólöglegri mótmælasamkomu" námsmanna
sem ætlað hefði verið að „valda óróa“ meðal
landsmanna.
Kanadísk stjdrnvöld
lögsótt fyrir bruðl
Ottawa. AFP.
TVEIR starfsmenn kanadíska utanríkis-
ráðuneytisins höfðuðu á föstudag mál á
hendur utanríkisráðherranum og öðrum
háttsettum embættismönnum fyrir að
sólunda fé skattborgaranna.
Joannah Gualtiere og John Guenette
halda því fram að Lloyd Axworthy utan-
ríkisráðherra og undirmenn hans í ráðu-
neytinu hafi látið viðgangast gífurlegt
peningabruðl og saka tvímenningarnir þá
um að eyða fé skattborgaranna í óþarflega
umfangsmikla öryggisvörslu handa sjálf-
um sér, glæsilega og íburðarmikla íveru-
staði og dýran lífsstíl.
Guenette, sem starfað hefur um árabil
hjá kanadíska utanríkisráðuneytinu, segir
að kvartanir sem hann bar fram hafi verið
hunsaðar og að hann hafi mátt sæta áreitni
fyrir að fitja upp á málinu. Gualtiere, sem
eins og Guenette er í veikindaleyfi frá
störfum, tók í sama streng en kanadísk
stjómvöld neita öllum ásökunum.
FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKl í
UMSVIFAMIKLUM REKSTRI
» '
\ Sf f} • v ,
(D CM T