Morgunblaðið - 11.07.1999, Síða 1

Morgunblaðið - 11.07.1999, Síða 1
154. TBL. 87. ÁRG. SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuters Síðasta „ástar- gangan“? HUNDRUÐ þúsunda ungmenna söfnuðust saman nærri Brandcnborgarhliðinu í Berlín í Þýskalandi í gær en allt frá falli Berlínarmúrsins fyrir tíu árum hafa ung- menni hvaðanæva úr Evrópu komið ár- lega saman þar í borg og haldið svokali- aða „ástargöngu", hlustað á lög unga fólksins og gert sér glaðan dag. Borgar- stjórn Berlínar hefur látið að því liggja að þetta verði í síðasta skipti sem hún leyfi „ástargönguna" og var reiknað með met- aðsókn að þessu sinni af þeim sökum, bú- ist var við að meira en miiljón manns tæki þátt í hátíðinni. franska lögreglan fordæmd fyrir hörku Sterk undir- alda í Teheran Teheran. AFP, Reuters. MOHAMMAD Khatami, forseti Irans, kallaði öryggisráð sitt til neyðarfundar í gær til að ræða um þau átök sem blossað hafa upp undanfarna tvo daga á milli námsmanna í Teheran og ör- yggissveita írönsku lögreglunnar. Mostafa Moin, menntamálaráðherra Irans, sagði af sér í gær vegna atburðanna en dagblöð í Iran fullyrtu að þrír námsmenn hefðu fallið í átökunum á föstu- dag. Sérlegur talsmaður Ali Khamenei erkiklerks fordæmdi einnig aðgerðir lögreglunnar. PATRICLA Anderson (í miðið) höfðaði mál- ið á hendur General Motors. Til hægri er dóttir hennar, Alisha Parker, en hún hlaut slæm brunasár í slysinu. Umdeildur úrskurður ÚRSKURÐUR kviðdóms í Kalifomíu á fóstu- dagskvöld þess efnis að bílaframleiðandinn General Motors skyldi greiða 4,9 milljarða bandaríkjadala, um 350 milljarða ísl. króna, í skaðabætur til sexmenninga sem hlutu slæm brunasár þegar eldsneytistankur í Chevrolet Malibu-bifreið þeirra sprakk í loft upp eftir að keyrt hafði verið aftan á hann, hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum. Velta menn því nú fyrir sér hvort upphæðir skaðabótadóma sem ákveðnar eru af kviðdómum séu ekki komnar út í öfgar. General Motors hefur þegar áfrýjað dómnum og reyndar er talið afar ólíklegt að dómurinn muni standa, sérfræðingar segja sennilegt að upphæðin lækki þegar áfrýjunin verður tekin fyrir eða málsaðilar semji um lægri skaðabæt- ur. Þyrfti General Motors hins vegar að greiða þessa upphæð væri Ijóst að fyrirtækið myndi riða til falls. Sækjendur héldu því fram að General Motors hefði lengi vitað að eldsneytistankur Malibu-bifreiðarinnar væri gallaður en ekkert gert í því vegna kostnaðarins, sem það hefði haft í för með sér. Bílaframleiðandinn neitar hins vegar að nokkuð athugavert hafi verið við tankinn og segir orsök slyssins þá að ökumað- urinn, sem keyrði aftan á Anderson-fjölskyld- una, var drukkinn undir stýri. Námsmenn héldu áfram mótmælum sínum í gær, þriðja daginn í röð, gegn banni á útgáfu dagblaðsins Salam sem beitt hefur sér fyrir umbótum í landinu. Þeir héldu á blóði drifnum klæðnaði og hrópuðu „námsmenn sýnið sam- stöðu, bróðir ykkar var myrtur“ og „niður með lögregluna“ og neituðu að hverfa af vett- vangi fyrr en búið væri að leysa þá úr haldi sem handteknir voru á föstudag. Vörðu aðgerðir sínar Stjómendur háskólans í Teheran mótmæltu aðgerðunum einnig harðlega og fóru fram á af- sögn yfirlögreglustjóra Irans fyrir þær harka- legu aðgerðir sem lögreglan greip til á föstu- dag, til að stemma stigu við mótmælum náms- mannanna. Sagði einn námsmaður í samtali við AFP-fréttastofuna að liðsmenn lögreglunnar hefði barið á þeim líkt og þeir væru bijálaðir. Stjómendur háskólans sögðu að öll starf- semi í skólanum yrði lögð niður uns réttur stúdenta yrði virtur á ný, búið væri að leysa úr haldi alla þá sem vom handteknir og lög- reglustjóranum hefði verið vísað úr starfi sínu. Moin menntamálaráðherra hafði til- kynnt afsögn sína fyrr um daginn í mótmæla- skyni og sagði í yfirlýsingu hans að undir eng- um kringumstæðum væri hægt að una við að lögreglan berði á námsmönnum. Yfirmenn írönsku lögreglunnar vörðu hins vegar aðgerðir sínar í gær og sögðu það hafa verið „lagalega skyldu" sína að bregðast við „ólöglegri mótmælasamkomu" námsmanna sem ætlað hefði verið að „valda óróa“ meðal landsmanna. Kanadísk stjdrnvöld lögsótt fyrir bruðl Ottawa. AFP. TVEIR starfsmenn kanadíska utanríkis- ráðuneytisins höfðuðu á föstudag mál á hendur utanríkisráðherranum og öðrum háttsettum embættismönnum fyrir að sólunda fé skattborgaranna. Joannah Gualtiere og John Guenette halda því fram að Lloyd Axworthy utan- ríkisráðherra og undirmenn hans í ráðu- neytinu hafi látið viðgangast gífurlegt peningabruðl og saka tvímenningarnir þá um að eyða fé skattborgaranna í óþarflega umfangsmikla öryggisvörslu handa sjálf- um sér, glæsilega og íburðarmikla íveru- staði og dýran lífsstíl. Guenette, sem starfað hefur um árabil hjá kanadíska utanríkisráðuneytinu, segir að kvartanir sem hann bar fram hafi verið hunsaðar og að hann hafi mátt sæta áreitni fyrir að fitja upp á málinu. Gualtiere, sem eins og Guenette er í veikindaleyfi frá störfum, tók í sama streng en kanadísk stjómvöld neita öllum ásökunum. FJÖLSKYLDUFYRIRTÆKl í UMSVIFAMIKLUM REKSTRI » ' \ Sf f} • v , (D CM T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.