Morgunblaðið - 23.07.1999, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999 2 7
HLUTI myndarinnar Án titils (nærveran).
Veflíkingar
MYMILIST
Listhús Sævars Karls
BLÝRISS
VALGERÐUR BERGSDÓTTIR
Opið á verslunartíma. Til 31. júlí.
Aðgangur ókeypis.
ÞAÐ hefur verið áhugavert að
fylgjast með pataldri Valgerðar
Bergsdóttur á sviði blýrissins á
undangengnum árum. Hún hefur
ásamt stöllu sinni Ragnheiði Jóns-
dóttur skapað sér sérstöðu á ís-
lenzkum myndlistarvettvangi með
blýrissmyndum í yfirstærð, sem má
telja framhald og framlengingu á
athafnasemi þeirra beggja á vett-
vangi grafíklistar, í öllu falli er
þetta svartlist í sinni hreinustu
gerð. Og þótt blýrissin fjölfaldist
síður, þá er unnið á afar afmörkuðu
sviði og hvert viðfangsefni þaul-
kannað, þannig að breytingamar
frá einni mynd til annarrar eru
óverulegar.
Að þessu sinni vinnur listakonan
að mestu út frá þema um vef og hef-
ur þetta að segja um vinnubrögðin:
Vefurinn hentar mér vel. Uppistaða
og ívaf vefsins mynda net feminga.
Eg bý til blýnet, - einfaldleiki vefs-
ins er léttur fyrir blýoddinn. Línur
eru dragnar sem hornalínur í fem-
inga og mynduð önnur stefna fyrir
nýtt net. Eftir nokkra snúninga
þéttist vefurinn, legg net yfir net,
þétti enn frekar vefinn, dreg inn
ferla úr hring, hver ferill spannar
geira eins og hæfír hverju sinni.
Stærðir geirans og bogalínur skipta
máli. Bogalínur eru mjúkar og
leggjast hlið við hlið. Stefnan á
einnig sinn hlut, andstæður rekast á
og línurnar hrannast upp; eða að
hreyfíngin samsamist formi sem
fyrir er, ef til vill aðeins til hliðar og
myndar þar nýja slóð...
Þetta er ferlið í fjórum myndum af
sex og þær bera nöfn í samræmi við
upphafspunktinn, Voð, Voð (dimm-
an), Rósaband og Stjama. En hinar
tvær sem koma kunnuglegar fyrir
sjónir eru báðar án titils og vinnu-
brögðin mun klassískari. En líkt og
ég sagði um slíkar myndir þegar
þær voru sýndar í Hallgrímskirkju
koma þar fram bestu eiginleikar Val-
gerðar sem teiknara sem er mýkt og
blæbrigðaríkdómur, sem fáir ís-
lenzkir teiknarar hafa náð tökum á í
þeim mæli og skiptir þá engu máli
hvert viðfangið er, heldur teikningin
sem slík. Og á síðustu tímum skulu
menn óhræddir við hlutlæg form
þótt enn finnist þeir sem telja óhlut-
læg form og meinlæti framar öllu
öðru núlistir dagsins.
Með þessum rissum staðfestir
Valgerður Bergsdóttir að vísu
sterka stöðu sína sem einn athyglis-
verðasti teiknari þjóðarinnar um
þessar mundir. Hyggja mín er þó sú
að hið hráa húsnæði og mikla spegl-
un dragi úr slagkrafti þeirra þannig
að þær njóti sln trauðla til fulls.
Bragi Ásgeirsson.
Hjörtur
sýnir í Bíl-
um og list
MYNDLISTARMAÐURINN
Hjörtur Hjartarson opnar sýningu
í Bílum og list á Vegamótastíg 4 í
Reykjavík laugardaginn 24. júlí
kl. 14.
Yfírskrift sýningarinnar er Ný
verk á pappír. Verkin á sýning-
unni eru unnin á þessu og siðasta
ári. 011 verkin eru til sölu.
Hjörtur útskrifaðist frá MHÍ
1996 og fór siðan til Spánar til
framhaldsnáms. Þetta er þriðja
einkasýning hans en einnig hefur
hann tekið þátt í fjölda samsýn-
inga hér og erlendis.
Magðalena v/s
Ofeigur
MYMILIST
Listhús (ífeigs
Skúlavörðustíg 5
LJÓSMYNDIR/SKART
MAGÐALENA M. HERMANNS
ÓFEIGUR BJÖRNSSON
Opið á almennum verslunartíma. Til
24. júh'. Aðgangur ókeypis.
GÓÐ og gild hugmynd sem ljós-
myndarinn Magðalena M. Her-
manns fékk, að sýna í listhúsi
Ófeigs og gera sköpunarverk skart-
hönnuðarins að beinum þátttakanda
í ferlinu. Hefur sennilega vaknað
þegar hún tók mynd af fíngurgull-
inu Gaudi fyrir læknablaðið á sl. ári,
sem er á sýningunni og væntanlega
fylgir þessu skrifi. Magðalena lauk
námi í Hollandi 1995 og hefur síðan
haldið tvær sýningar í Hominu á
Hafnarstræti, þá fyrri með eigin-
manni sínum leikmyndasmiðnum
Ivari Török. Sá staður er engan
veginn sá besti til að sýna ljósmynd-
ir, harður, opinn og einhæfur, en þó
duldist ekki að hér var hæfileikarík
listspíra á ferð sem mikils mátti
vænta af. Þetta staðfestir sýningin í
hinu vinalega listhúsi Ófeigs, þar
sem nánd og kyrrð í virku andrúmi
umlykja myndirnar, með Dm af viði
og grjóti í lofti, sem þrátt fyrir
smæð sína og takmörk býr yfir viss-
um sveigjanleika. Sýningar sem
þessar eru alls ekki óalgengar ytra
þá stefnt er þekktum andlitum á
móti listrænu skarti. Ófeig þarf vart
að kynna, einn af okkar hugmynda-
ríkustu hönnuðum á sínu sviði sem
flestum öðrum fremur hefur leitast
við að hagnýta sér minni úr ís-
lenskri fortíð, sem er hárrétt stefna,
GAUDI eftir Ófeig Björnsson,
silfur og gull, 1998. Ljósmynd
Magðalena M. Hermanns.
af nógu að taka ef vel er gáð og
innri ratsjáin virk. Leggur áherslu
á mýkt formanna, þannig að þótt
málmurinn sé harður virðast sumir
gripimir voðfelldir viðkomu, líkast
mjúku klæði sem varfæmislega um-
lykur nakinn háls og barm. Ljós-
myndirnar vel teknar og Magðalena
nösk á einkenni fyrirmyndanna og
formsterk sjónarhorn.
Sterk og menningarleg sýning og
báðum listamönnunum til sóma.
Bragi Ásgeirsson.
EITT verka Hjartar, Konan
með köttinn. Blýantur/akrýl á
pappír 55x80 cm.
Kvartett Ölafs
Jónssonar á
Jómfrúnni
SUMARTÓNLEIKARÖÐ veitinga-
hússins Jómfrúarinnar við Lækjar-
götu heldur áfram laugardaginn 24.
júlí kl. 16-18.
Á áttundu tónleikum sumarsins
kemur fram kvartett saxófónleikar-
ans Ólafs Jónssonar. Með Ólafi leika
Ástvaldur Traustason á píanó, Birgir
Bragason á kontrabassa og Matthías
Hemstock á trommur. Tónleikarnir
fara fram utandyra á Jómfrúrtorg-
inu ef veður leyfir, en annars inni á
Jómfrúnni. Aðgangur er ókeypis.
Sumardjass verður áfram á Jóm-
frúnni alla laugardaga í sumar á
sama tíma frá kl. 16-18.
Súrefhisvömr
Karin Herzog
Kynning
í dag frá kl. 14—18 í
Hagkaupi Smáratorgi og
Hafnarfjarðar Apóteki
- Kynningarafsláttur -
laugardags- og
sunnudagskvöld
Sérréttamatseðill
öll föstudagskvöld
Fagurt umhverfi,
glæsilegir salir,
Ijúffengur matur,
fullvissa um Ijúft kvöld,
Okkar
landsfrægu kaffi
alla sunnudaga
Lifandi tónlist!
. i FAÐ MI p
Skiðaskátinn
í HveradÖCum
Sími. 567 2020
Aðsendar greinar á Netinu
mbl.is
_ALLTAf= eiTTHVAÐ A/Ý7T
fþrótta.
Þtí ^aetir unníð
milljónir i röð sem
12.-51. jdlí Paerðu tt. röðina i fe^upbssfei/
t>MrVMUK.INN 6««-Tl
°K°IP *p