Morgunblaðið - 23.07.1999, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999 29
Lífseigar hugmyndir um kyn-
þætti og kynbætur á mönnum
BÆKUR
Fræðirit
Mannkynbætur. Hugmyndir ura
bætta kynstofna hérlendis og erlend-
is á 19. og 20. öld eftir Unni B. Karls-
dóttur. Reykjavík, Sagnfræðistofnun.
174 bls.
HUGMYNDIR manna fyrr á
öldinni um kynþætti og kynbætur á
mönnum hafa allt í einu lifnað við á
síðustu árum. Mér virðast vera að-
allega tvær ástæður fyrir því, ann-
ars vegar hefur gengið yfir hörm-
ungarskeið á Balkanskaganum þar
sem fólk hefur verið aflífað í hrönn-
um vegna þess að það hefur ekki
verið af réttum kynþætti og sama
gerðist í Afríku ekki löngu áður í
Rúanda. Það er líka sjálfsagt að
nefna að á síðustu árum hefur kom-
ið í ljós á Norðurlöndum að þroska-
heftir hafa verið gerðir ófrjóir án
eigin samþykkis langt fram eftir
öldinni sem upphaflega byggist á
hugmyndum að það væri kynfylgia
þeirra að geta einungis eignast
böm sem væra þroskaheft. Hins
vegar hafa orðið slíkar framfarir í
lífvísindum að margar þær spum-
ingar sem áður var ekkert svar við
er nú svarað og þá vakna í kjölfarið
oft erfiðar siðferðilegar spurningar.
Það er því þarft að skoða hvað
menn hafa hugsað áður um slík
efni, bæði það sem telst vera rangt,
rétt og heimskulegt og leggja mat á
hvað er nýtilegt og hvað ekki úr því
sem áður hefur verið hugsað.
Unnur B. Karlsdóttir hefur valið
sér afar viðeigandi viðfangsefni til
að rannsaka. Þessi bók er MA-rit-
gerð hennar í sagnfræði við Há-
skóla Islands gefin út í ritröðinni
Sagnfræði - Studia historica. Bókin
er skýrlega skrifuð á vönduðu máli
og að því er ég fæ séð er öllum aðal-
atriðum sögunnar haldið til haga og
ályktanir sem dregnar eru eru hóf-
samlegar.
Bókinni er skipt í fimm kafla. Sá
fyrsti rekur tilkomu mannkynbóta-
stefnunnar sem hluta af framförum
í líffræði síðust aldar. Upphafsins
er að leita hjá þeim merka manni
Francis Galton, enskum tölfræðingi
sem taldi sig geta sýnt fram á að öll
félagsleg velgengni væri skýranleg
með erfðum. Það virðist stundum í
því sem eftir honum er haft um
þetta efni að enska stéttaskiptingin
byggðist á erfðum. Það sem er eig-
inlega dularfullt er að nokkrum
manni nokkurn tímann skuli hafa
dottið í hug að taka
þessa hugmynd alvar-
lega. En þessi hug-
mynd fékk mikið fylgi
meðal lærðra manna á
síðari hluta síðustu ald-
ar og fyrstu áratugum
þessarar. Galton dró þá
ályktun af þessari hug-
mynd að það þyrfti að
sjá til þess að þeir sem
beztar hefðu erfðimar
eignuðust flesta afkom-
endur, en hann vissi að
því var einmitt þveröf-
ugt farið, að þeir sem
lakast stóðu eignuðust
flesta afkomendur.
Hann taldi þetta ógna
erfðafræðilegri stöðu ensku þjóðar-
innar og raunar annarra þjóða.
Þessu var margur maðurinn sam-
mála og víða um veröldina stóðu
menn fyrir rannsóknum í nafni
þessara hugmynda. Það voru stofn-
uð félög lærðra manna um þessar
hugmyndir sem gáfu út tímarit,
höfðu áhrif með greinaskrifum og
fyrirlestrahaldi.
Framfarir í líffræði sem sköpuðu
bakgrunninn fyrir þessum upp-
gangi voru hugmynd Darwins um
þróun tegundanna og uppgötvun
Mendels á hvernig tilteknir eigin-
leikar erfðust meðal plantna. Hug-
mynd Darwins var útfærð fyrir
samfélög og talið að samfélög þró-
uðust þegar hinir hæfustu lifðu af
eins og í náttúrunni. Herbert
Spencer var málsvari þessarar hug-
myndar og taldi að ríkisvaldið ætti
ekki á neinn hátt að koma til að-
stoðar þeim sem verst stæðu því að
það truflaði hinn eðlilega gang sam-
félagsins þar sem hinir veikustu
yrðu undú.
Uppgangur verkalýðs, aukin
réttindi almennings og auknar
skyldur ríkisins sem voru að mynd-
ast á þessum tíma víða um Evrópu
ýttu einnig undir og styrktu arf-
bótastefnuna.
A Islandi eignaðist þessi stefna
líka sína fylgismenn og þá ekki af
verri endanum. Steingrímur
Matthíasson, læknir á Akureyri,
var fystur til að taka til umræðu
hnignun hvítra manna eins og hann
orðaði það. Guðmundur Finnboga-
son, doktor í heimspeki og síðar
Landsbókavörður, kom næstur og
skrifaði í Árbók Háskóla íslands
árið 1921 grein undir áhrifum þess-
ara hugmynda og síðar skrifaði
hann greinar og bók þar sem hann
rökstuddi svipaðar hugmyndir og
aðrir um hættu á úr-
kynjun vegna þess að
fólk með betri erfðir
eignaðist ekki eins
mörg börn og hinir. Sá
þriðji sem rökstuddi
hugmyndir arfyóta-
stefnunnar var Agúst
H. Bjamason, doktor í
heimspeki og prófessor
við Háskóla Islands.
Hann taldi að erfðimar
væru undirstaða mann-
legs lífs, í þeim fælist
hæfnin til að tileinka
sér dyggðir og lesti.
UNNUR B. Þess vegna bæri að
Karlsdóttir huga að því hvemig
stuðla mætti að kyn-
bótum. Þessi sjónarmið sem þessir
merku menn fengu úr erlendum
ritum blönduðust síðan saman við
heimatilbúinn gi-aut um kyngöfgi
íslenzku þjóðarinnar sem yrði að
varðveitast - undir öllum kringum-
stæðum og að kjarna íslenzku þjóð-
arinnar væri að finna í sveitunum,
þar væri stofn þjóðarinnar. Þessi
skrif urðu til þess að árið 1921 var
sett í lög að sjúkdómar eða þroska-
hefting kæmu í veg fyrir að fólk
gæti gifzt.
Þriðji kafli segir frá því hvemig
arfbótastefnan blandaðist kyn-
þátta- og þjóðemisstefnu. Þar er
nefndur til sögu hinn göfugi nor-
ræni kynþáttur, útbreiddur ótti á
þessum tíma við innflutning rusl-
aralýðs og hinn dæmalausa sam-
þætting þessa alls í kynþáttastefnu
þýzkra nazista. Þeir áttu sér
málsvara hér á landi eins og rakið
er í kaflanum, líka um kynþátta-
stefnuna. En þessi kynþáttasjónar-
mið voru útbreiddari en margan
granar á íslandi þessa tíma eins og
höfundur rekur. Það verður ekkert
litið fram hjá því hvemig íslending-
ar bragðust við beiðnum um búsetu
frá þýzkum gyðingum. Það verður
líka að viðurkenna fordóma Islend-
inga í garð blökkumanna sem komu
fram í því að við vildum ekki fá
blökkumenn sem hermenn á stríðs-
áranum.
Stærsti hluti þriðja kafla fjallai-
um lög nr. 16 frá 1938 um afkynjan-
ir, vananir og fóstureyðingar. Þau
lög samdi Vilmundur Jónsson, þá-
verandi landlæknir. Hann skrifaði
einnig greinargerðina með fram-
varpinu. Eins og við er að búast eru
röksemdimar vel settar fram og
hann tekur skýrt fram að þessi lög
komi ekkert við hugmyndum
þýzkra nazista. En í þeim má sjá
nokkrar hugmyndir arfbótamanna
en mér virðist að Vilmundur hafi
talið þær eðlilegar vegna þess að
þær styddust við vísindaleg rök.
f fjórða kafla er greint frá því að
eftir lok síðari heimsstyrjaldarinn-
ar hafi ekki borið á arfbótastefnu
fyrir utan bók eftir Steingrím Ara-
son sem sætti ekki sérstökum tíð-
indum. í fimmta kafla dregur höf-
undur saman niðurstöður sínar.
Hún ályktar að í lýðræðisríkjum sé
síður hætta á að sjónarmið eins og í
arfbótastefnunni nái fram að ganga
vegna þess að lýðræði fari saman
við mannréttindi í samtímanum.
Eina efnisatriðið sem hugsanlega
hefði mátt vera til viðbótar því sem
segir frá í bókinni er ófrjósemisað-
gerðir sem gerðar hafa verið á ís-
landi fram á síðustu ár á þroska-
heftum án þeirra samþykkis á
grandvelli laga. Sumar af ályktun-
um höfundarins virðast mér þurfa
frekari rökstuðning en finna má í
bókinni. A einum stað segir að arf-
bótastefnan hafi alls ekki verið
sambærileg við kynþáttastefnu
þýzkra nazista en hún hafi samt
raðað fólki í virðingarröð sem ein-
ungis hafi verið reist á „viðhorfum
samtímans, fordómum og ályktun-
um.“ Þetta er útskýrt í næstu setn-
ingu svona: „Arfbótasinnar litu á
fólk sem misgæða hráefni og mis-
verðugar lífverar, en gáfu ekkert út
á rétt einstaklingsins til lífs og
bameigna" (bls. 92). Þetta er allt
rétt um arfbótastefnuna en mér
virðist að þetta leiði af forsendum
hennar sem kunna að vera fordóm-
ar í ljósi okkar viðhorfa nú en þurfa
ekki endilega að hafa verið það á
þeim tíma sem þeim var haldið
fram. Á bls. 149 er því haldið fram
að arfbótastefnan hafi verið póli-
tískt tæki ýmist til að stuðla að fyr-
irmyndarþjóðfélagi eða til að hlúa
að hagsmunum millisréttarinnar.
Þetta kann að vera eitt sjónarmiðið
sem kemur til greina til að útskýra
uppgang stefnunnar en mér virðist
að það þurfi ítarlegri röksemdir en
hér era bornar fram til að styrkja
þessa greiningu. Það þarf ekki ann-
að en hugsa til röksemda Vilmund-
ar fyrir íslenzku lögunum til að átta
sig á að þau vora ekki til að styðja
millistéttina íslenzku.
En hér er á ferðinni bók sem er
rannsókn á mikilsverðu máli sem
ég spái að eigi eftir að þvælast fyrir
mönnum lengi enn í einhverri
mynd.
Guðmundur Heiðar Frímannsson
að Brekkubæ, Hellnum „í mestri nálægð við Jökulinn"
um verslunarmannahelgina
Frábær, fjölbreytt dagskrá alla mótsdagana. Fyrirlestur, fræðsla, námskeið, einkatímar, svitahof, spila-
lestur, talnaspeki, Mikaelfræðsla, skyggnilýsingar, grasatínsla, ævintýraferðir fyrir börn, friðarathöfn,
samsöngur fyrir börn og margt fleira.
Eintóm blekking
KVIKMYIVDIR
Stjörnubíú
THE THIRTEENTH FLOOR
★‘A
Leikstjörn: Josef Rusnak. Handrit:
Daniel F. Galouye og J. Rusnak. Að-
alhlutverk: Craig Bierko, Armin Mu-
eller-Stahl, Vincent D’Onofrio og
Gretchen Mol. Centropolis 1999.
HERRA Fuller er mjög ánægður
með að hafa, ásamt starfsliði tölvu-
fyrirtækis síns, tekist að skapa ann-
an heim þar sem allt gerist í Los
Angeles 1937. Hans hægri hönd,
Douglas Hall, bregður heldur í brún
þegar hann finnur einn morguninn
skyrtuna sína útataða í blóði, og
fréttir að hr. Fuller hefur verið
stunginn til bana.
Hugmyndin að þessari sögu geng-
ur alveg upp, og þessi mynd hefði
ekki þurft að vera eins léleg og hún
er. En því miður er handritið lélegt;
klikkar á upplýsingum og fer út í
hlægilegt melódrama á köflum.
Hvorki kvikmyndatakan né tónlistin
í nútíma atriðunum henta kvik-
myndinni, og maður hefur það helst
á tilfinningunni á maður sé óvart
kominn á „Species 111“ og að
skrímslið muni stökkva á aðalleikar-
ann innan stundar.
Afleiðingar lélegs handrits eru að
allar persónurnar eru ógeðfelldar,
að manni er nokk sama hvað á daga
þeirra drífur. Vincent nokkram
D’Onofrio tekst þó að krafsa í bakk-
ann með túlkun sinni á Whitn-
ey/Ashton og setur þannig smáblæ-
brigði á filmuna. Craig Bierko og
Gretchen Mol er ekki endilega léleg,
miklu frekar hrútleiðinleg. Armin
Mueller-Stahl er gamall sætur afi,
og eina persónan í myndinni sem er
viðkunnanleg, en hann deyr strax.
Leikmyndin í gamla tímanum er
býsna lagleg, en... tveir leikarar og
hálf sviðmynd geta ekki gert krafta-
verk.
FYRIRLESARAR:
Jón Biarni Biarnason - Mikaelfræðin
Guðlauaur Beramann - Mitt hjartans mál
Hermundur Siaurðsson - Talnaspeki
Höskuldur Frímannsson - Láttu drauminn rætast
Siaurður Páll Trvaavason - Mannræktarsamtök íslands
Guðrún Maanúsdóttir - „Gauja goði" - Skýring á táknum ásatrúar
Þóraunna Þórarinsdóttir - Smáskammtalækningar
Guðrún G. Beramann - Feng Shui og umfj. um orkuhlið 11/8 '99
Stefán Gíslason - Staðardagskrá 21 - Hlutverk einstaklinga
og heimila
Sveinbiörn Ewindsdóttir - Dagskrá 21 og Heilsa fyrir alla.
NÁMSKEIÐ:
Isabel Contreras - Hjálpaðu sjálfum þér (kennt á ensku - þýð.).
Isabel er viðurkenndur leiðbeinandi af Lousie L. Hay.
Peqqy Rada - Námskeið í notkun blómadropa
(kennt á ensku - þýð.). Peggy hefur lengi starfað með blóma-
dropa og selur yfir 600 tegundir.
Höskuldur Frímannsson - Láttu drauminn rætast.
Höskuldur hefur haldið námskeið með góðum árangri
í nokkur ár.
Jón Bjarni Jónsson - Hulukort Mikaelfræðinnar.
Jón Bjarni er áhugamaður um Mikaelfræðin og hefur haldið
nokkur námskeið tengd þeim.
Upplifunar- og lærdómsferðir:
Jóhann Þóroddsson - Grasatínsluferðir.
Guðrún G. Bergmann - Gönguferð um orkubrautir og huliðsheima.
Skyggnilýsing: Ingibjörg Þengilsdóttir miðill.
Svitahof: Jón Jóhann seiðmaður.
Heilunarvígslur: Bryndís S. Sigurðardóttir reikimeistari.
Helgistund við Maríulindina: Séra Ólafur Jens Sigurðsson sóknarprestur á Hellnum.
Einkatímar í talnaspeki, lestri í Merlin tarot og Víkingakortin, heilun, svæðanuddi, prólun fyrir blómadropa o.fl.
Friðarathöfn — Söngur — Ævintýraferðir fyrir böm — Varðeldur o.fl.
Vímuefnalaust mót — Setning kl. 22 á föstudeginum — Aðgangseyrir kr. 3.500
Frítt fyrir yngri en 14 ára — Svefnpokapláss.
Allar nánari upplýsingar í síma 435 6754.
Hildur Loftsdóttir