Morgunblaðið - 23.07.1999, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Tónlist til
að njóta
Sígild tónlist í sögulegu umhverfi eru ein-
kunnarorð Reykholtshátíðar sem hefst
í kvöld og stendur fram á sunnudag.
Orri Páll Ormarsson renndi í Reykholt,
kynnti sér efnisskrá fernra tónleika
og ræddi við aðstandendur.
Morgunblaðið/Sverrir
REYKHYLTINGAR helgarinnar: Guðmundur Kristmundsson, Greta Guðnadóttir, Auður Hafsteinsdóttir,
Guðrún Ingimarsdóttir, Valgerður Andrésdóttir, Johanna Sjunnesson, Steinunn Birna Ragnarsdóttir og Mar-
tynas Svégzda von Bekker. Danirnir söngelsku voru ókomnir.
ÞÆR sækja Reykholtshátíð heim í fyrsta sinn, Guðrún Ingimarsdóttir
sópransöngkona og Johanna Sjunnesson sellóleikari frá Svíþjóð.
REYKHOLTSHÁTÍÐ í ár
verður með sterkum nor-
rænum yfirtón og teng-
ingu inn í baltnesku lönd-
in, að því er fram kemur í máli
Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur,
listræns stjómanda hátíðarinnar.
„Á fyrstu hátíðinni, sem haldin var
fyrir tveimur árum, var áhersla á
Noreg og í fyrra beindum við
sjónum okkar að Danmörku. Nú
er því komið að Svíþjóð. Sérstak-
lega verður gaman að flytja verk
eftir Franz Berwald en mikil
Berwald-vakning hefur verið í Sví-
þjóð síðustu misseri, líkt og með
Jón Leifs hér heima. Síðan er
skemmtilegt að geta flutt balt-
neska tónlist og vonumst við til að
gera meira af því á næstu árum.
Baltnesku löndin eiga mörg góð
tónskáld."
íslensk tónlist verður vitaskuld
ekki skilin út undan, meðal annars
verður flutt verk Helga Pálssonar,
Tilbrigði um eigið stef, fyrir
strengjakvartett. „Þetta verk var
flutt af Síbelíusarkvartettinum í
Finnlandi fyrir fimmtíu árum en
hefur ekki heyrst síðan. Að mínu
mati er Helgi Pálsson, einn stofn-
enda Tónskáldafélags íslands, vel
geymt leyndarmál. Hann samdi
mörg góð tónverk sem alltof sjald-
an eru flutt,“ segir Steinunn
Birna.
Þetta er, sem fyrr segir, í þriðja
sinn sem Steinunn Bima gengst
fyrir tónlistarhátíð í Reykholti - er
„fyrirskipari“, líkt og frændur vor-
ir Færeyingar segja, en þar var
Steinunn Birna einmitt við leik á
dögunum. Segir hún alltaf vanda-
samt að koma hátíð sem þessari
saman en þó hafi íyrirhöfnin verið
minni nú en áður. „Bæði bý ég að
reynslu fyrri ára og svo fór ýmis-
legt úrskeiðis í fyrra. Píanóleikar-
inn komst ekki til landsins,
sópraninn hafði ýmsar sérþarfír og
þar fram eftir götunum. Það var
því mikil taugaspenna. í ár hefur
þetta aftur á móti verið friðsam-
legra, sópraninn kenjalaus og
þetta lítur bara ljómandi vel út,“
segir stjórnandinn og skellir upp
úr.
Komin heim!
Einn gesta hátíðarinnar þetta
árið er Guðrún Ingimarsdóttir
sópransöngkona sem býr og
starfar í Þýskalandi. Hún kemur
fram, ásamt Steinunni Birnu, á
opnunartónleikunum í kvöld, þar
sem hún mun syngja lög eftir Karl
0. Runólfsson, Grieg og Sjöberg og
heldur svo einsöngstónleika í há-
deginu á morgun. Þar býður Guð-
rún upp á norræn sönglög fyrir hlé
og óperuaríur eftir hlé. „Þetta eru
aríur eftir Verdi, Bellini, Mozart og
Rossini - efni sem hefur fylgt mér
síðustu árin. Síðan völdum við
Steinunn Bima, sem leikur með
mér, uppáhaldslögin okkar beggja,
eftir Þórarin Guðmundsson,
Rangström, Sjöberg, Merikanto,
Grieg og Karl 0. Runólfsson," seg-
ir Guðrún.
Kveðst hún hlakka mjög til tón-
leikanna. „Það er virkilega
ánægjulegt að vera hingað komin.
Eiginlega má segja að ég sé komin
heim en ég er fædd og uppalin á
Hvanneyri og stundaði nám í hér-
aðsskólanum héma í Reykholti.
Þetta er í fyrsta sinn sem ég tek
þátt í hátíðinni og því miður hef ég
ekki heldur haft tök á að sækja
hana heim áður enda hef ég verið
upptekin á óperuhátíðum í Þýska-
landi síðustu sumur. Þetta verður
því tvöföld ánægja í ár - að syngja
og hlusta.“
Hótelið var ekki risið þegar Guð-
rún var við nám í Reykholti en að
öðru leyti segir hún staðinn
óbreyttan - nema hvað „verið er að
grafa allt hér í sundur“. Vísar hún
þar til fornleifaugpgraftar á vegum
Þjóðminjasafns íslands og fjallað
hefur verið um í fréttum. „Annars
er alltaf sami góði andinn í Reyk-
holti og ekki spillir fyrir að tekið
hefur verið vel á móti okkur með
góðu veðri.“
Eftir einsöngspróf hér heima
nam Guðrún söng í Lundúnum og
Stuttgart, þaðan sem hún lauk
prófi í mars á síðasta ári. Síðan
hefur hún starfað alfarið við söng
og kvartar ekki undan verkefna-
skorti. „Ég fór strax út í lausa-
mennsku og hef verið heppin - hef
eiginlega fengið verkefnin upp í
hendurnar. Eg hef tekið þátt í
mörgum óperu- og óperettuupp-
færslum en einnig sungið kirkju-
tónlist og haldið ljóðatónleika.
Verkefni mín hafa með öðram orð-
um verið mjög fjölbreytt. Ég er
ánægð með það.“
Guðrún segir ákaflega gott að
vera í Þýskalandi, þar sé hefðin,
tækifærin, ekki síst fyrir söngvara.
Og ekki er verra að vera íslending-
ur. „Það er tekið eftir íslenskum
söngvurum í Þýskalandi enda era
þeir þar nánast á hverju strái. Og
yfirleitt fer gott orð af þeim - þeir
þykja færir, ósérhlífnir og þægileg-
ir í samvinnu.11 _
En hvað um ísland. Langar Guð-
rúnu ekki að starfa hér heima?
„Jú, svo sannarlega. Það er
skemmtilegast af öllu að syngja á
íslandi. Ég fyllist alltaf tilhlökkun
þegar ég er að koma heim að
syngja. Viðbrögðin eru svo sterk
hérna. Síðan skiptir alltaf máli að
þekkja fólk í salnum. Ég var til
dæmis að syngja fyrir um 1.500
manns á Gala-tónleikum í Þýska-
landi um daginn og þrátt fyrir
fjöldann fann ég ekki fyrir sömu
viðbrögðum, hlýju, og hér heima.
Því miður sé ég hins vegar ekki
fram á að geta flutt heim á næst-
unni. Óperuhefðin er svo ung
hérna og áheyrendahópurinn ekki
nægilega stór. Tækifærin eru þar
af leiðandi af skornum skammti og
við þær aðstæður er erfitt fyrir
söngvara að búa á íslandi. Ég er
aftur á móti staðráðin í að koma
heim eins oft og ég get tO að halda
tónleika."
Næsta stóra verkefni Guðrúnar
er að taka þátt í uppfærslu á Leð-
urblökunni í Ulm, sem er í ná-
grenni Stuttgart. Æfingar hefjast í
haust en framsýning er fyrirhuguð
í desember í barnaleikhúsi sem ku
vera hið stærsta sinnar tegundar í
Evrópu. Ekki er þó um barnasýn-
ingu að ræða. Þá leggur söngkonan
upp í tónleikaferð um Ítalíu eftir
áramót.
Enginn hraðbanki
Svíþjóð verður, sem fyrr segir, í
brennidepli í Reykholti um helgina
og þaðan kemur annar gestur, Jo-
hanna Sjunnesson sellóleikari. Hún
er aðeins 25 ára gömul en er eigi að
síður margverðlaunuð í heimalandi
sínu.
Johanna hefur komið fram sem
einleikari með ýmsum hljómsveit-
um í Svíþjóð en eigi að síður er
kammertónlist hennar fyrsta
ástríða, að því er hún upplýsir.
Hún er félagi i Támmel-strengja-
kvartettinum sem hefur komið
fram víðsvegar um Evrópu og hlot-
ið góða dóma. Þá hefur hann sent
frá sér eina geislaplötu og önnur er
í farvatninu.
Á dögunum gekk Johanna svo til
liðs við hina nafnkunnu útvarps-
hljómsveit í Stokkhólmi, sem sætir
tíðindum, en hljómsveitin hefur
ekki ráðið nýjan sellóleikara í tólf
ár. Tugir manna sóttu um starfið.
„Það var mikill heiður að verða fyr-
ir valinu og ég hlakka til að takast
á við ný verkefni með hljómsveit-
inni. Hún er mjög góð.“
Johanna sældr Island nú heim í
fyrsta sinn. „Ég varð strax mjög
spennt þegar umboðsmaður minn
sagði mér að krafta minna væri
óskað á Reykholtshátíð. Mig hefur
lengi langað að koma til íslands og
sló því til þótt ég væri störfum
hlaðin heima í Svíþjóð."
Johanna segir Reykholt nokkuð
frábrugðið þeim stöðum sem hún
á að venjast við tónleikahald.
„Þetta er mjög sérstakur staður.
Ég ætlaði að komast í hraðbanka í
morgun, taka út íslenska peninga,
en komst að því að hér er enginn
hraðbanki. Sennilega kemur það
þó ekki að sök, það er svo vel
hugsað um mig hér. Annars kann
ég vel að meta kyrrðina, það er
ágætt að losna úr amstri stórborg-
arinnar annað slagið. Reykholt er
líka afskaplega fallegur staður,
ljósmyndirnar sem ég hef séð frá
Islandi ljúga greinilega engu, og
ekki skemmir veðrið fyrir, það
hefur verið yndislegt í dag [mið-
vikudag],“ segir Johanna og pírir
augun mót sólu en hún fór þess
sérstaklega á leit við blaðamann
að viðtalið færi fram utan dyra.
Ætli aumingja stúlkan geri sér
grein fyrir því að þetta er aðeins
annar, kannski þriðji, sólardagur-
inn á landinu í sumar, hugsar
blaðamaður - en segir ekki neitt.
Það er ljótt að spilla gleði gesta
okkar.
Upp frá þessu leysist samtalið
upp, eða snýst eiginlega við -
sellóleikarinn fer að spyrja blaða-
mann spjörunum úr. Hún hefur
heyrt Snorra Sturlusonar getið og
vill vita meira um hann. „Hann
var einn mesti höfundur og fræði-
maður sem uppi hefur verið á ís-
landi. Kom líka mjög við valdabar-
áttu í landinu á þrettándu öld og
var veginn hér í Reykholti árið
1241,“ segir blaðamaður. „Almátt-
ugur!“ Johanna grípur andann á
lofti. „Veginn! Aumingja maður-
inn!“
Hvalreki frá Danmörku
Af öðram gestum hátíðarinnar
má nefna „Det lille Operakor", sem
er úrval óperakórsins frá Konung-
lega leikhúsinu í Kaupmannahöfn,
sextán manns. Kemur hann fram á
tónleikum annað kvöld. Að áliti
Steinunnar Bimu er kór þessi
hvalreki fyrir íslenska tónlist-
arannendur. „Þetta er frábært
söngfólk og sérstaklega verður
gaman að hlýða á það í Reykholts-
kirkju, þar sem hljómburður er
mjög góður fyrir söng, einkum kór-
söng. Síðan samanstendur efnis-
skráin af hreinum perlum, svo sem
fangakórnum úr Nabucco, Ha-
banera úr Carmen, þjóðlögum og
negrasálmum.“
Stjórnandi „Det lille Operakor"
er Adam Faber.
Aðrir gestir Reykholtshátíðar að
þessu sinni eru litháenski fiðluleik-
arinn Martynas Svégzda von
Bekker, Auður Hafsteinsdóttir og
Greta Guðnadóttir fiðluleikarar,
Guðmundur Kristmundsson víólu-
leikari og Valgerður Andrésdóttir
píapóleikari.
Á opnunartónleikum hátíðarinn-
ar verða flutt verk eftir Berwald,
Stenhammar og Helga Pálsson,
auk nokkurra sönglaga. Lokatón-
leikarnir, á sunnudag, eru síðan
hlustendavænstir, að sögn Stein-
unnar Birnu. Þar verða flutt verk
eftir Fauré, Isaye, Brahms og
Schubert. „Þetta er þakklátasta
efnisskráin, blanda af vel geymd-
um leyndarmálum og þekktum
perlum. Ég hef í-aunar alltaf að
leiðarljósi að hlustendur fái sem
mest út úr hátíðinni, svona hátíð á
að vera áheyrileg, tónlist til að
njóta.“
Dagskrá hátíðarinnar
REYKHOLTSHÁTÍÐ hefst í
kvöld og lýkur að kvöldi sunnu-
dags. Dagskráin er sem hér segir:
Föstudagur, kl. 20.30: Nor-
ræn sönglög og verk eftir Sten-
hammar, Berwald og Helga
Pálssón.
Laugardagur, kl. 14.30: Ein-
söngstónleikar Guðránar Ingi-
marsdóttur. Steinunn Bima
Ragnarsdóttir leikur með á píanó.
Laugardagur, kl. 20.30: „Det
lille Operakor" frá Danmörku
flytur efni úr óperam, þjóðlög og
negrasálma.
Sunnudagur, kl. 17: Verk eftir
Fauré, Isaye, Brahms og
Schubert.