Morgunblaðið - 27.07.1999, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1999 51
HESTAR
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
MAGNI og Máni frá Árgerði að loknum úrslitum, sáttir og glaðir með árangurinn.
MÁNI fer vel á töltinu hjá Magna, rúmur og hágengur.
Magni í Árgerði ennþá að
Alltaf
gaman að
keppa með
þeim yngri
„ÞAÐ er alltaf gaman að vera
með þessum ungu mönnum í
keppni svona meðan þeir vilja
hafa mig með,‘‘ segir Magni
Kjartansson í Árgerði en liann
hljóp í skarðið fyrir Stefán
Birgi Stefánsson sem kom
tveimur hestum í úrslit í B-
flokknum á mótinu á Melgerðis-
melum á sunnudag og reið öðr-
um hestinum, Mána frá Ár-
gerði, fyrir hann.
„En ætli þeir vilji ekki fara
að losna við svona gamla karla
úr þessu,“ heldur Magni áfram
og hlær. „En þetta er bráðefni-
legur foli sem ég reið þarna í
úrslitunum bara 6 vetra gamall.
Hann er undan Kötlu frá Ár-
gerði, Pennadóttur sem var al-
systir Heklu frá Árgerði sem
Matthías Eiðsson ræktar út af
og faðir hans er Þokki frá
Garði. Hann á eftir að bæta sig
því hann er örviijugur og með
prýðisgang, bæði tölt og brokk.
Egill Agústsson á þennan hest
en hann er fæddur í Árgerði,“
upplýsir Magni.
Magni, sem á eitt ár eftir í
sjötugt, segist alltaf fara tals-
vert á bak og alltaf fæst hann
eitthvað við tamningar. „Bú-
skapurinn tekur sinn tíma og
það þarf að sinna því en ég
reyni alltaf að gefa mér smá
tíma í tamningar og útreiðar.
Eg var til dæmis með eina dótt-
ur Bliku frá Árgerði og Þorra
frá Þúfu í vetur en hún er fjög-
urra vetra gömul og aðra jarpa
hryssu undan Kraflari frá Mið-
sitju og Brynju frá Árgerði.
Þær komu nokkuð vel út báðar
tvær en ég sýndi þar ekki að
þessu sinni, þær voru ekki al-
veg tilbúnar í það.“
En þegar Magni er spurður
frétta af gæðahryssunni Bliku,
sem sló svo eftirminnilega í
gegn 1987 á Melgerðismelum,
segir hann hana hafa verið
gelda í vor. „Hún hafði verið
hjá Gusti frá Hóli en það kom
ekkert út úr því. Nú er til vetr-
argömul hryssa undan henni og
Orra sem mér líst býsna vel á.
Sérstaklega er ég ánægður með
hvað hann skilar prúðleikanum
vel. Og núna er hún aftur hjá
Orra og er ætlunin að Stefán
Birgir tamningmaður fái það
afkvæmi," segir Magni að end-
ingu.
Það er skemmst frá því að
segja að Magni og Máni stóðu
sig vel í úrslitunum og höfnuðu
í fjórða sæti. Vekur athygli
hversu vel Magni heldur sér í
reiðmennskunni og óhætt að
fullyrða að hann gefur þeim
ungu lítið eftir.
0 FELICIA
Bestu
bílakaupin
í f lokki
nýrra bíla!
Enn einu sinni hefur breska tímaritið Auto Express sæmt
Skoda Felicia titlinum "Bestu bílakaupin" í flokki nýrra bíla.
í tímaritinu er Skoda Felicia lofaður í bak og fyrir:
"Hinn sterkbyggði Skoda eröllum þeim kostum búinn, sem
unnt er að krefjast af ódýrum bíl."
‘ "Skoda Felicia skarar enn og aftur fram úr fyrir fallegt útlit
og gæði miðað við verð."
"Vinsældir og árangur þessar bifreiðar er reyndar dyggilega
staðfestur með stórlega aukinni sölu um allan heim."
ódýrasti fólksbfllinn á íslandi!
*Skv. Verðlistar, apríl 1999, útg. af Samskipti.
SKODA FEIICIA 1,3 kostar aóeins
865.000
m
HEKLA
!
Laugaveg
s f m i
h e i m a s f ö a
w.hekla.is
hekla@hekla.is