Morgunblaðið - 27.07.1999, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐ JUDAGUR 27. JÚLÍ 1999 5 7
FRÉTTIR
30. Ólympíuleikarnir í eðlisfræði
Rússar sigurvegarar
Morgunblaðið/Arnaldur
BESTUM árang-ri íslensku keppendanna náðu (f.v.) Páll Melsted, Jóel
Karl Friðriksson og Jens Hjörleifur Bárðarson.
*
Islenskur kepp-
andi fékk heiðurs-
viðurkenningu
Morgunblaðið - Padova.
KEPPNISSLIT 30. Olympíuleik-
anna í eðlisfræði fóru fram í
Verdióperunni í Padova á Italíu í
gær við hátíðlega athöfn undir
hljóðfæraleik borgarhljómsveitar
Padova. Þrjátíu gullverðlaun voru
veitt til keppenda frá sextán lönd-
um og þar af fóru fjögur gull til
Rússa og fimm til írana. 71 silfur-
verðlaun voru veitt og voru efstu
Norðurlandabúarnir, Finni og Svíi,
meðal þeirra sem þau hlutu. 54
bronsverðlaun voi-u veitt og vai-
efsti Norðmaðm-inn meðal verð-
launahafa. Heiðursviðurkenningu
hlutu 24 keppendur og var Jóel
Karl í fjórða efsta sæti þeirra.
Rússai- eru sigurvegarai- leikanna
með langefsta keppandann, Kon-
stantin Kravcsov, en hann náði 49,8
stigum af 50 mögulegum. I óopin-
beni keppni milli liða landanna
voru Rússar efstir með 46,26 stig að
meðaltali, en næstir voru Iranar
með 45,48 stig að meðaltali. Banda-
ríkjamenn náðu sínum besta ár-
angri hingað til og voru í þriðja sæti
með 42,88 stig. Sigurvegarar leik-
anna í fyrra, Kínverjar, lentu í
fjórða sæti með 42, 82 stig. í fimmta
sæti var Úkraína með 42,10 stig.
Besta lausn er skilgreind sem
meðaltal þriggja efstu keppenda og
var hún 48,3 stig. Til að ná gullverð-
launum þurftu keppendur að ná 43
stigum, en enginn Norðurlandabúi
náði þeim árangri. Silfurverðlaun
voru veitt þeim keppendum sem
náðu 37 stigum og bronsverðlaun
þeim sem náðu 31 stigi. Efsti ís-
lendingurinn, Jóel Karl Friðriks-
son, nemandi við MR, náði 30,4 stig-
um og skorti því aðeins 0,6 stig til
að koma heim með verðlaunapen-
ing. Hann fékk heiðursviðurkenn-
ingu fyrir að ná 24 stiga markinu.
Skammt frá því voru Páll Melsted,
nemandi við MR, með 23,7 stig og
Jens Hjörleifur Bárðarson, nem-
andi við Fjölbrautaskóla Suður-
lands á Selfossi, með 21,8 stig.
Strangir dómarar
ítölsku dómaramir gerðu sér
gi-ein fyrir því að dæmin reyndust
léttari en oft áður og dæmdu lausnir
keppenda mjög strangt. Þannig var
rangur fjöldi marktæki'a stafa í
lausn metinn til helmings frádráttar
og keppendur misstu öll stig í
spumingu ef einn algebrustuðull í
útreikningi var rangur. Leiðrétting-
arvinna fararstjóranna skilaði ís-
lensku keppendunum sjö stigum
sem ítölsku dómararnir féllust á að
þeim hefði sést yfir.
„Frammistaða íslensku piltanna,
með 20,36 stig að meðaltali, er á við
það besta hingað til í 16 ára þátt-
tökusögu okkar,“ sagði Viðar
Ágústsson, fai’arstjóri liðsins.
„Ovæntui’ afburðaái-angur Kon-
stantins Kraxcsovs hækkaði mörk
fyrir verðlaun svo að stigafjöldi Jó-
els Karls nægði ekki til bronsverð-
launa eins og hann hefði gert undan-
farin ár. Páll Melsted og Jens Hjör-
leifur vom mjög nálægt viðurkenn-
ingarmörkum og hafa Islendingar
ekki áður verið svo nærri því að
koma heim með verðlaunaskírteini."
Islensku keppendurnir halda nú
til Vínar og munu þar hitta félaga
sína frá Ólympíuleikunum í stærð-
fræði. Von er á hópnum til Islands
um næstu helgi.
Leiðrétt
Röng myndbirting
Röng mynd birtist með frétt um
hljómsveitina Funkmaster 2000 í
Fólki í fréttum s.l. sunnudag.
Myndin hefur áður birst á við-
skiptasíðu í blaðinu 16. júlí s.l. Em
viðkomandi beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
Rangt farið með nafn
Gunnars M. Magnús
I bréfi til blaðsins, sem birtist sl.
fimmtudag, var getið um bók Gunn-
ars M. Magnús „Árin sem aldrei
gleymast". Rangt var farið með
nafn Gunnars og er beðist velvirð-
ingar á því.
Villandi samanburður
í frétt um aukningu sektarálagn-
ingar lögreglunnar, sem birtist á
laugardaginn fyrir viku, var rangt
farið með sektarfjárhæð ársins
1997 hjá lögreglunni á Isafirði. Hún
var sögð nema 82.875 krónum, en
nam í raun rúmum 4 milljónum
króna. Því var ekki um það að ræða
að álagning fjörutíuogfimmfaldað-
ist milli ára, eins og sagði í grein-
inni. Þá ber að hafa í huga að sam-
anburður milli lögregluembætta
var ekki með öllu raunhæfur, þar
sem sektir voru færðar á mismun-
andi tekjuliði eftir embættum árið
1997. Við samantekt þeirra talna
sem voru birtar var miðað við lg-
tekjulið, en t.a.m. á Isafirði voru
sektir einnig færðar á se-tekjulið
árið 1997. Einnig ber að líta til þess
að síðan 1. janúar 1998 hafa sektar-
boð verið kláruð í því embætti sem
brotin eiga sér stað. Áður voru mál-
in höfðuð í heimavarnarþingi þess
brotlega. Tilgangur með því að
birta tölumar var því ekki að sýna
nákvæmlega breytingu sektará-
lagningar í hverri sýslu fyrir sig,
heldur að gefa vísbendingar um
aukningu sekta milli ára.
f \
Antik útsala
20-50%
b afsláttur
Borðstofuborð - skenkar - stólar - rúm o.fl.
Anttkbúfitn
V á horni Aðalstrætis ogTúngötu
Ath. Tilboð gildir aðeins í dag
Fiskbúðin Vör
Höfðabakka 1 v/Gullinbrú, sími 587 5070.
- Gæðanna vegna -
Bjóðum
Eirík A. Auðunsson
matreiðslumaður
velkominn til starfa.
|t