Morgunblaðið - 27.07.1999, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1999 59^
I DAG
Árnað heilla
OA ÁRA afmæli. í dag,
Oi/ þriðjudaginn 27.
júlí, verður áttræð Stein-
gerður Jóhannsdóttir frá
Brekku, Vestmannaeyjum,
nú til heimilis að Hraun-
búðum, heimili aldraðra í
Vestmannaeyjum. Hún tek-
ur á móti ættingjum og vin-
um að Hraunbúðum frá kl.
14.30 til kl. 17.
BRIDS
llnisjún Guðmundur
I’áll Arnarson
HVERSU oft hafa ekki orð
Galtarins grimma sannast:
„Góðar sagnir, herra minn,
gera brids að þurrlegu
spili.“ (Good bidding, my
dear sir, leads to duil
bridge.) Gölturinn grimmi
er auðvitað höfuðpersóna
Mollos i hinum sígildu
>,dýi-agarðsbókum“. Rök-
stuðningur Galtarins er
skýr: Allir geta tekið níu
slagi í þremur gröndum
þegar eliefu eru borðleggj-
andi (jafnvel Hérinn hryggi
sleppur oft einn niður), en
hversu margir geta unnið
slemmu Jiegar tveir ásar
eru úti? A Norðurlandamóti
ungmenna, sem fram fór í
Reykjavík í síðustu viku,
sögðu þeir Sigurbjörn Har-
aldsson og Guðmundur
Halldórsson illa á spil NS
og enduðu í sex tíglum þar
sem vömin átti tvo ása. Sig-
urbjörn (Húnninn harði?)
sat í sagnhafasætinu í suð-
ur, en í AV voru Danimir
Gregers Bjarnason og And-
ers Hagen.
Norður
A KG9
V KDG7
♦ ÁK6
♦ ÁG4
^rstur Austur
*Á2 A 1087653
v 1096 V Á86
♦ 7543 ♦ —
* 1)1052 * 9763
Suður
AD4
V 432
♦ DG10982
*K8
Um sagnir er það eitt að
segja að ásaspurningin kom
þar hvergi við sögu. Vestur
spilaði út trompi, sem Sig-
urbjörn tók heima og spilaði
strax spaða að KG9. f svona
stöðum er hik oft sama og
lap, svo vestur dúkkaði
fumlaust. Það var aldrei að
vita nema slemman snerist
um það að hitta í spaðann.
En svo var ekki. Þegar Sig-
urbjörn slapp í gegn með
slag á spaða, tók hann næst
trompin, síðan laufkóng og
svínaði gosanum. Henti síð-
an spaðadrottningunni nið-
ur í laufás. Tólf slagir og
920.
Þrátt fyrir þetta unnu
Danir ieikinn 23-7. Sem
minnir áþreifanlega á þá
staðreynd að „góðar sagnir
skila góðum árangri", eða
eins og Gölturinn grimmi
myndi aldrei hafa sagt:
„Good bidding ieads to
winning bridge.“
Ljósmyndast. Sigríðar Bachmann.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 22. maí sl. í Háteigs-
kirkju af sr. Halldóri Reyn-
issyni J. Kristín Ármanns-
dóttir og Böðvar Markan.
Heimih þeirra er að Ála-
granda 10, Reykjavík.
Ljósmyndast. Sigríðar Bachmann.
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 8. maí sl. í Árbæjar-
kirkju af sr. Guðnýju Hall-
grímsdóttur Wai Thipson
og Ólafur Magnússon.
Heimili þeirra er að Eiðis-
torgi 1, Seltjarnarnesi.
Með morgunkaffinu
ÉG TRÚI því ekki að
þessi þögn hjá konum
okkar sé varanleg.
HOGNI HREKKVISI
LJOÐABROT
MAÐURINN OG FLYÐRAN
Jón
Þorláksson
(1744/1819)
Ljóðið
Maðurinn
ogflyðran
Forgefins hafði fiskimann
færinu keipað lengi dags,
þolgæði stöðugt hafði hann,
þó heppnaðist ekki veiðin strax.
(Merk, að biðlundar mest er þörf
mönnum, sem stunda fiskirí,
skólameistara og skyttu störf
skiljast ei heldur undan því.)
Fiskari sagður öngul á
um síðir hreppti vænan drátt,
stóreflis flyðra það var þá,
þau stríddu hvort við annars mátt.
En þegar hún kom undir borð,
örvaði kæti svangan höld,
til hennar þessi talar orð:
„Tönnin skal prófa þig í kvöld“.
Hann velti lengi í huga sér,
hvernig hún yrði bezt tilreidd:
„Helftina steikja hyggst ég mér,
hálf skaltu verða í potti seydd“.
En meðan þetta mikla happ
matbjuggu og átu þankar hans,
færið bilaði, flyðran slapp,
fór hann svo búinn heim til lands.
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
LJON
Þín létta lund liðkar fyrír
mörgum hlutum en samt
þarftu að gæta þess að láta
strákskapinn ekki ráða
ferðinni.
Hrútur _ (21. mars -19. apríl) Það er ástæðulaust að láta minniháttar erfiðleika stöðva framgang þess verkefnis sem rú ert nú að glíma við. Ein- beittu þér því að því að leysa málin.
Naut (20. apríl - 20. maí) Nú gefst tækifæri til þess að koma á hreint máli sem hefur verið að angra þig. Láttu lausn þess þó ekki hræða þig þótt erfið sé.
Tvíburar t ^ (21. maí - 20. júní) AA Þú ert mörgum hjartfólginn vegna góðsemis þinnar og ör- lætis en gáðu að þér þvi alltaf eru þeir til sem notfæra sér hrekkleysi annarra.
Krabbi (21. júní-22. júlí) Þótt ekki séu allir á þínu máli þá er ástæðulaust að grípa til stóryrða. Leitaðu frekar eftir samkomulagi.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Það getur verið þreytandi að hlusta stöðugt á ráðleggingar annarra en reyndu að sýna þolinmæði gagnvart því sem vel er meint.
Meyja (23. ágúst - 22. september) (DÍL Ekkert er dýrmætara en heilsan svo þú skalt varast að ofbjóða þér til sálar eða lík- ama. Eri sérhlífni er líka slæm svo reyndu að þræða hinn gullna meðalveg.
(23. sept. - 22. október) 4) Nú er ekki langt í það að þú fáir að njota árangurs erfiðis þíns. Vertu samt ekki of bráður því allt hefur sinn tíma.
Sporðdreki ^ (23. okt. - 21. nóvember) Ættingi þinn réttir þér hjálp- arhönd í minniháttar vanda- máli. Þiggðu aðstoðina þótt þér sé Ijóst að þú getir leyst málið upp á eigin spýtur.
Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. desember) ÍtSr Lánið virðist leika við þig þessa dagana og þú skalt bara njóta þess en ekki láta það vera þótt að þú teljir að um stundarfyrirbrigði sé að ræða.
Steingeit (22. des. -19. janúar) AK Snúðu ekki baki við þeim sem þarfnast athygli þinnar jafnvel þótt þér sé ekkert um þá gefið. Þú munt fá umbun fyrir þín góðu verk.
Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) QSft Það gengur ekki að vera stöðugt kvartandi út af öllum sköpuðum hlutum. Snúðu \úð blaðinu áður en þú eyðilegg- ur líf þitt með neikvæðninni.
Fiskar imt (19. febrúar - 20. mars) Það kemst enginn hjá því að mæta örlögum sínum þegar þau berja að dyrum. Hafðu það hugfast að hver er sinnar gæfu smiður.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FRETTIR
V er slunarmannahelgin
Sfldarævintýri
á Siglufírði
FJÖLSKYLDUHÁTÍÐIN Sfldar-
ævintýri á Siglufirði verður haldin
um verslunarmannahelgina. Hátíð-
in hefst á föstudag, og stendur
fram á aðfaranótt mánudags.
Meðal þeirra sem koma fram
eru: Bubbi Morthens, KK band
ásamt Magnúsi Eiríkssyni, Laddi,
Baldur Brjánsson, hljómsveitirnar
Sóldögg, Rúsínan og Miðalda-
menn.
Auk þessa verður boðið upp á
sýningar og uppákomur í Sfld-
arminjasafninu, sjóstangveiðimót,
golfmót, en á golfmótinu munu
þeir Baldur Brjánsson og Laddi
heyja persónulegt einvígi. Siggi
Hall mun einnig heiðra samkom-
una með nærveru sinni.
Margt verður gert fyrir ungvið-
ið, m.a. söngvarakeppni undir
stjórn Skúla Gautasonar leikara,
andlitsmálun og leiktæki svo eitt-
hvað sé nefnt.
i 91
'
Málmlakk
H
Ryðvamarlausn
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
RYÐV0RN
SEM ENDIST
ARVIK
ÁRMÚLA1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
UTSALA
10-70% afsláttur
Dæmi
áður nú
Vattjakkar 9*900 1.900
Síðar kápur 32*900 5*900
Opið á laugardögum frá kl. 10-16
\<#Hbl5IÐ
Mörkinni 6
Sími 588 5518
30. júlí-2. ágúst 1999
Hljóðfæra- og sönghátíð í Árnesi, Gnúpverjahreppi
um verslunarmannahelgina 1999 pQ |jy0||fifi
NÚ eru not fyrir þig■ hljóðfærið þitt og vasasöngbókina
samspilið og alla almenna þátttöku!
Um verslunarmannahelgina verður haldin söng- og
hljóðfærahátíð í Árnesi, Gnúpverjahreppi. „Folktestival"
eins og þau gerast best austan hafs og vestan.
Fjöldi landskunnra listamanna koma fram á hátíðinni og má þar m.a.
nefna m.a.: KK, Bubba, Geirfuglana, Bjartmar Guðlaugsson,
Súkkat, Bláa fiðringinn, Björgvin Gíslason, Eyjólf Kristjánsson o.fl.
Miðaverði verður stillt mjög í hóf og kostar kr. 2.000 inn á móts-
svæðið. Á dansleik kostar kr. 300.
Áskiljum okkur rétt á fyrirvaralausri dagskrárbreytingu og viðbótum.
Allar nánari upplýsingar veitir ÞÚSUND ÞJALIR - Umboðsskrifstofa listamanna
Austurstræti 6,101 Reykjavik • Símar 552 4022 / 898 0120 • Fax 552 4065
Netföng oiit@1 OOOth.is / siggi@1000th.is • Veffang: http://www.1000th.is
Upplýsingar um tjaldstæði, gistingu o.s.frv. eru veittar i ARNESI, Gnúpverjatireppi.
i símum 486 6044 / 486 6048 / 486 6054 / 861 2645 • Fax 486 6091