Morgunblaðið - 15.08.1999, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1999
FRETTIR
MORGUNBLADIÐ
VIKAN 8/8 -14/8
►ÚRSKURÐARNEFND
skipulags- og byggingarmála
hefur fellt úr gildi leyfi borg-
aryfirvalda til byggingar
verslunar-, þjónustu- og
íbúðarhúss við Laugaveg
53b. Úrskurðurinn byggist á
því að nýtingarhlutfall lóðar-
innar sé of hátt miðað við að-
alskipulag og að hin fyrir-
hugaða bygging sé staðsett
of nærri aðliggjandi húsum.
►ARNARVARP gekk vel í
sumar, annað árið í röð. Alls
komu 19 amarpör 26 ungum
á legg. 34 pör urpu svo vitað
sé, en varpið misfórst hjá 15
pömm, auk þess sem ekki er
vitað hvort sjö önnur pör
urpu eða ekki, aðeins að þau
komu ekki ungum upp.
Mbl/Krist!n Ágústsdóttir
►MARGIR fylgdust með
deildarmyrkva á sólu á mið-
vikudag. Víða mátti sjá fólk
rýna upp í himinhvolfin með
dökka filmubúta fyrir aug-
um. Á Austurlandi var hins
vegar þoka niður í miðjar
hlíðar, eins og sjá má á
myndinni, og ekkert varð úr
fyrirhugaðri sendingu á Net-
inu til annarra landa.
Eignarhaldsfélagið
Orca SA
FUNDUR stjórnar Scandinavian Hold-
ing, félags í eigu sparisjóðanna, Kaup-
þings og Sparisjóðabankans, samþykkti
á fimmtudag sölu á 22,5% hlut þess í
Fjárfestingarbanka atvinnulífsins til
eignarhaldsfélagsins Orca SA í Lúxem-
borg. Fjórir einstaklingar veita forystu
fjórum hópum fjárfesta sem mynda
eignarhaldsfélagið Orca SA þeir Jón
Ólafsson, Þorsteinn Már Baldvinsson,
Jón Ásgeir Jóhannesson og Eyjólfur
Sveinsson. Félagið á nú 28% hlut í
FBA sem skiptist jafnt milli hópanna
fjögurra.
Sökk við bryggju
AÐEINS efsti hluti fyrstitogarans Ým-
is HF-343 stóð upp úr eftir að skipið
lagðist á hliðina og sökk að mestu við
Suðurbakkann í Hafnarfjarðarhöfn á
þriðjudagsmorgun. Á miðvikudag tókst
að létta skipið og lyfta því þannig að
það komst á flot. Tjónið er talið geta
numið um eða yfir eitt hundrað milljón-
um króna.
Nýtt fyrirtæki
á Þingeyri
NÝTT fiskvinnslufyrirtæki sem stofnað
var á Þingeyri í gær ætlar að fjárfesta
fyrir hálfan milljarð í kvóta. Eignar-
haldsfélagið Burðarós er meðal stærstu
eigenda og aðrir stórir eigendur verða
útgerðarfyrirtækið Vísir hf. í Grindavík,
Tryggingamiðstöðin og Byggðastofnun.
Stofnhlutafé verður um 400 milljónir og
kvótinn um 2.000 þorskígildistonn.
Sprungur við Kötlu
SPRUNGUR hafa myndast í Mýr-
dalsjökli við Kötlu og ganga þær þvert
á hringlaga sprungur við sigkatlana
sem þar eru. Ástæðuna fyrir því að
þessar nýju sprungur hafa opnast má
að öllum líkindum rekja til jarðhita.
Jeltsín rekur ríkis-
stjórn Stepashíns
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti rak
ríkisstjórn Sergejs Stepashíns á mánu-
dag, tilnefndi Vladímír Pútín, yfirmann
rússnesku öryggis-
lögreglunnar, forsæt-
isráðherra og kvaðst
ætla að styðja hann í
forsetakosningunum
á næsta ári. Stepas-
hín er fjórði forsætis-
ráðherrann sem
Jeltsín hefur rekið á
einu og hálfu ári.
Líklegt er að til-
nefningin verði sam-
þykkt í dúmunni,
neðri deild þingsins, og fyrsta atkvæða-
greiðslan um hana verður á morgun,
mánudag. Hafni dúman tilnefningunni
þrisvar sinnum hefur forsetinn rétt til
að leysa hana upp.
Stjómmálaskýrendur töldu hins veg-
ar ólíklegt að Pútín yrði kjörinn næsti
forseti Rússlands. Ákvörðun Jeltsíns
var sögð bera keim af örvæntingu og
nokkur rússnesk dagblöð sögðu að
meginmarkmið forsetans væri að
vemda hagsmuni sína og nánustu ráð-
gjafa sinna. Hann er sagður vilja
tryggja að næsti forseti veiti þeim frið-
helgi frá ákæru.
Ottast nýtt kosninga-
bandalag
Taiið er að Jeltsín hafi ákveðið
stjórnarskiptin vegna óánægju með að
Sergej Stepashín skyldi ekki hafa tekist
að koma í veg fyrir kosningabandalag
Júrís Lúzhkovs, borgarstjóra Moskvu,
og hreyfingar helstu héraðsleiðtoga
landsins. Sjö miðflokkar gengu í banda-
lagið á fimmtudag og annar formanna
þess tilkynnti að Jevgení Prímakov,
fyrrverandi forsætisráðherra, hefði
þegar fallist á að veita því forystu í
þingkosningunum 19. desember. Príma-
kov nýtur nú meira trausts en nokkur
annar stjórnmálamaður Rússlands og
talið er að verði hann leiðtogi banda-
lagsins aukist sigurlíkur þess í kosning-
unum vemlega. Bandalagið stefnir að
því að ná meirihluta í dúmunni.
►SKÆRULIÐAHREYFING
múslíma í Dagestan lýsti yfir
sjálfstæði héraðsins á þriðju-
dag eftir að hafa náð
nokkmm þorpum á sitt vald
um síðustu helgi. Shamil Ba-
sajev, einn af helstu skæm-
liðaleiðtogum Tsjetsjníu,
stjórnar uppreisninni og
kveðst stefna að því að
hrekja alla rússneska her-
menn frá Norður-Kákasus-
héruðunum. Stjómin í
Moskvu sagði á föstudag að
herinn hefði hafið „stór-
sókn“ til að fiæma uppreisn-
armennina frá héraðinu.
Hún vonast til þess að hægt
verði að kveða uppreisnina
niður innan hálfs mánaðar.
► STJÓRNVÖLD í Pakistan
sökuðu Indverja á þriðjudag
um fyrirvaralausa árás á
landið og áskildu sér rétt til
„viðeigandi ráðstafana" eftir
að indverskar herþotur
höfðu skotið niður pakist-
anska eftirlitsflugvél. At-
burðurinn magnaði á ný
spennuna milli landanna en
minnstu munaði að stríð
blossaði upp fyrr / sumar.
►MILUONIR manna fylgd-
ust með síðasta sólmyrkva
20. aldarinnar víðsvegar um
heim á miðvikudag. Sói-
myrkvi varð á svæði, sem
byggt er tveimur milljörðum
manna, og aldrei í sögunni
hafa jafnmargir haft tæki-
færi til að fylgjast með slík-
um atburði. Skýjað var þó á
mörgum stöðum, þannig að
ijölmargir misstu af myrkv-
anum.
► MOMIR Bulatovic, forsæt-
isráðherra Júgóslavíu,
stokkaði upp f stjórn sam-
bandsríkisins á fimmtudag,
rak sjö ráðherra og skipaði
tólf nýja úr röðum harðlínu-
manna og róttækra þjóðern-
issinna. Talið er að með upp-
stokkuninni vilji Slobodan
Milosevic Júgóslavíuforseti
treysta sig í sessi.
Borís
Jeltsin
Heilbrigðisráðherra um einkareknar stofur heimilislækna
Olíkum rekstri sé stjórn-
að af heilsugæslunni
INGIBJÖRG Pálmadóttir, heilbrigð-
is- og tryggingaráðherra, segir að
það sé stefna ráðuneytisins að
rekstrarform hjá heilsugæslulækn-
um geti verið sem allra fjölbreyttast,
en aðalatriðið sé að þjóna hagsmun-
um sjúklinga. Þess vegna þurfi mis-
munandi rekstrarform að vera undir
stjórn heilsugæslunnar, þannig að
þar sé fyrir hendi yfirsýn yfir þá
þjónustu sem veitt sé og hægt sé að
bera hana saman við það sem gert sé
annars staðar.
I grein í Morgunblaðinu á sunnu-
daginn var, þar sem fjallað er um
heilbrigðiskerfið, kemur meðal ann-
ars fram að heilbrigðisráðuneytið
hafi ekki heimilað heimilislæknum að
opna einkareknar stofur. Ingibjörg
sagði aðspurð um þetta að rekstrar-
formið sem slíkt væri ekkert aðalat-
riði heldur sú þjónusta sem veitt
væri þegar um heimilislækningar
væri að ræða. Það væri eðlilegt að
mismunandi rekstrarform, til dæmis
hér í Reykjavík, væru undir stjórn
heilsugæslunnar í Reykjavík, en yfir
henni væri ein stjóm. Húsnæðismál
heilsugæslunnar á Reykjavíkursvæð-
inu hefðu verið á eftir í samanburði
við landsbyggðina, en á rúmu ári
hefði verið opnað nýtt húsnæði fyrir
heilsugæslustöðvar í Garðabæ, Mos-
fellsbæ, Kópavogi og Hafnarfirði.
Verið væri að opna nýtt húsnæði fyr-
ir heilsugæslustöðina í Fossvogi og í
undirbúningi væri uppbygging nýs
húsnæðis í Grafarvogi. Þá væri
einnig ný heilsugæslustöð í Voga- og
Heimahverfi í undirbúningi.
Erfítt að komast
til sérfræðinga
Hún sagði að það væri ekkert því
til fyrirstöðu að bjóða út þjónustuna
í Voga- og Heimahverfi, þannig að
hún yrði einkarekin, en lykilatriði í
þeim efnum væri að boðið væri upp á
sambærilega þjónustu. Talið væri
eðlilegt að hjá hverjum og einum
lækni væra um það bil fimmtán
hundruð sjúklingar, en grundvallar-
atriði væri að tryggja að hver og
einn fengi grunnþjónustu.
Ingibjörg benti á að rætt væri um
að erfitt væri að komast til sérfræð-
inga og það væri alveg rétt. Sér-
fræðingar væru hins vegar með
einkareknar stofur. Þeir héldu því
fram að það rekstrarform væri skil-
virkt og árangursríkt, en samt væri
langur biðtími eftir viðtölum hjá
þeim. Ef biðtíminn hefði lengst
þyrfti að skoða hvað ylli því. Sama
gilti um biðtíma hjá heilsugæslu-
læknum. Ráðuneytið væri að láta
skoða hvort biðtími hefði lengst hjá
þeim og hvort úrskurður kjara-
nefndar hefði haft eitthvað að segja í
því sambandi.
Varðandi umkvartanir fólks þess
efnis að erfitt væri að ná símasam-
bandi við lækna sagði Ingibjörg að
það væri alveg rétt að fólk þyi'fti að
bíða lengi í símatímum. Það hentaði
fólki oft betur að fá erindi sín af-
greidd í gegnum síma hvað varðaði
minniháttar mál og það lægi beinast
við að athuga hvort stjórn heilsu-
gæslunnar gæti lengt símatíma
lækna.
Morgunblaðið/Jim Smart
FÉLÖGUM í Viðeyingafélaginu var boðið á uppsetninguna og hér
virða þeir fyrir sér skilti með mynd af þorpinu.
Fræðsluskilti í Viðey
FJÖGUR fræðsluskilti voru sett
upp í Viðey í síðustu viku. Að
sögn Þóris Stephensen staðar-
haldara eru þau hugsuð ferða-
löngum til fróðleiks, en um
22.000 ferðamenn heimsóttu Við-
ey í fyrra og stefnir í að tala
ferðamanna fari einnig yfír
20.000 íár.
Fyrsta skiltið er við bryggju-
endann, yfírlitsskilti um eyjuna.
Að baki Viðeyjarstofu eru tvö
skilti, annað sýnir hugmynd að
klaustrinu, mynd sem byggist að
hluta á uppgreftrinum sem hefur
farið fram. Hitt sýnir Viðeyjar-
stað um aldamótin 1800. Fjórða
skiltið er hjá Viðeyjarskóla og er
þar yfírlitsmynd af þorpinu, sem
þar var á árunum 1907-1943.
Engin slík mynd hefiir verið til,
en með hjálp mynda, sem flestar
eru úr safni Örlygs Hálfdánar-
sonar og tilsagnar hans tókst að
búa til myndina.
Guðrún Jónsdóttir, formaður
menningarmálanefndar Reykja-
víkur, ávarpaði gesti sem voru
viðstaddir uppsetninguna. Þau
Margrét Hallgrímsdóttir borg-
arminjavörður, Þorsteinn Gunn-
arsson arkitekt og Þórir Steph-
ensen sögðu frá skiltum um
klaustrið og Viðeyjarstofu en Ör-
lygur Hálfdánarson frá skiltinu
um þorpið.
Rukkaður firam
sinnura fyrir síratal
Bilun milli
Frakklands
og Lands-
símans
TALIÐ er að bilun í tengingum
milii Landssímans og samstarfs-
fyrirtækis hans í Frakklandi
hafi valdið því að Landssíminn
sendi Lars H. Andersen sím-
reikning þar sem rukkað var
fyrir fimm samtöl, sem skráð
voru samtímis. Annar íslenskur
notandi, sem einnig notaði
GSM-síma í Frakklandi, fékk
hliðstæðar villur á sinn reikning.
Ólafur Þ. Stephensen, for-
stöðumaður upplýsinga- og
kynningarmála hjá Landssím-
anum, segir að það sé deginum
ljósara að einhver villa hafi
komið fram við reikningsgerð-
ina. „Við höfum kannað málið
og það fannst annar notandi,
sem líka var staddur í Frakk-
landi og þar höfðu svipaðar vill-
ur komið fram. Við erum núna
með tæknimönnum frá franska
símafyrirtækinu að setja upp
sams konar aðstæður; hringja í
síma með íslensku korti í
Frakklandi og fá fram sams
konar símtöl og skoða hvað fór
úrskeiðis; hvort það var okkar
megin eða þeirra. Þetta voru
ekki venjuleg símtöl heldur sím-
töl úr talhólfum eða faxhólfum,
sem var beint í GSM-símann og
sum þeirra skráð á sömu sek-
úndunni vegna þess að línan er
upptekin í einhvern tíma.“
Nýr búnaður varar við
háum reikningum
Ólafur sagði að svo stöddu
ekki hægt að staðhæfa hve há
fjárhæð það var sem ofkrafið
vai' um. Hann sagði að Lands-
síminn væri innan skamms að
taka í notkun nýjan búnað í
reikningsgerðarkerfi sitt sem
við útgáfu reiknings gerir sam-
anburð á notkun á ákveðnu
símanúmeri mánuðina á undan.
„Hann á að gera kleift að sjá ef
notkunin er óeðlilega mikil og
þá er hægt að kanna hvert mál
fyrir sig og leiðrétta villur eða
benda notandanum á að kostn-
aður hans sé að fara úr böndun-
um,“ sagði Ólafur. Hann sagði
að búnaðurinn hefði verið próf-
aður og vonandi væri ekki langt
í að hann komist í gagnið.
BESTA BÓKIN um getnað,
meðgöngu og fæðingu
A£) ElGN^ {
BAB*
Of
*2&?
• Áreiðanleg, nútímaleg og
auðskilin bók um fæðingu
barns og umönnun á fyrsta
æviskeiði. • Fjallað er um efnið JÝ
bæði frá sjónarhóli móður og ||j
barns. * LjóOTyndír, teikníngsf, ||
ömsjármyndíf og lífiuríl
—- samtaís yfír SÖÖI ítmyndfr, m
• 350 bls. í stóru broti.
FORLAGIÐ
Laugavegi 18 • Slmi 515 2500 • Slðumúla 7 • Sími 510 2500