Morgunblaðið - 15.08.1999, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.08.1999, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1999 MORGUNBLAÐIÐ Ríkisjarðir að óðulum til að forðast brask Keyptu ábúendur ríkisjarða jarðimar urðu þeir þegar að gera þær að óðalsjörðum. Þegar í íyrsta frumvarpinu frá 1936 er veitt heimild til sölu þjóð- og kirkju- jarða ef þær yrðu jafnframt gerðar að óðalseign. Tilgangurinn með þessum ákvæðum var líklegast sá að tryggja ábúðina og gera kaup- anda jarðarinnar erfiðara um vik að selja hana aftur því jarðimar vom yfirleitt seldar á afar hag- stæðum kjörum þegar ábúendur keyptu. Þannig var komið í veg fyrir að menn gætu keypt jarðirn- ar við lágu verði, selt þær síðan á frjálsum markaði og stórlega grætt á viðskiptunum. Akvæðin sem kváðu á um að seldar ríkis- jarðir yrðu að teljast til óðalsjarða vora endanlega og formlega af- numin 1995, en höfðu víst ekki ver- ið í framkvæmd nokkur ár þar á undan. Árið 1968 komu heimildir í lögin fyrir lausn undan óðalskvöðinni. Þær heimildir era þó bundnar ákveðnum skilyrðum. I 61. grein jarðalaganna frá 1976 segir: „Oð- alsbóndi getur með leyfi landbún- aðarráðherra fengið óðalið leyst frá óðalsákvæðum, enda mæli jarðanefnd með því og þeir ætt- ingjar, sem rétt hafa til óðalsins, hafa lýst því yfir skriflega að þeir óski ekki eftir að taka við því til ábúðar. Samþykki landbúnaðar- ráðherra lausn óðals frá óðalsá- kvæðum er óðalsrétthafa heimilt að selja það við því verði og þeim kaupanda er hann kýs, enda hafi þeir sem forkaupsrétt eiga að lög- um hafnað honum.“ Ættaróðal getur einnig fallið úr eigu ættar- innar með því að það er selt eða að því gerð aðfór til lúkningar áhvflandi veðskuldum eða opinber- um sköttum sbr. 59. og 60. grein laganna. Getur flækt erfðamálin Þess era dæmi að leiðindi hafi skapast í fjölskyldum þegar reynt hefur verið að tryggja einum erf- ingjanna áframhaldandi setu á bú- jörð. Tilkoma ættaróðalsákvæð- anna átti m.a. að leysa þetta vandamál, að sögn Sveinbjamar Dagfinnssonar, fyrram ráðuneyt- isstjóra. Dæmin sýna þó að þessi lausn skapaði önnur vandamál sem komið gátu upp vegna erfðamála. Hefur afkomendum öðram en óð- alsbóndanum þá þótt þeir bera skarðan hlut frá borði er kom að skiptingu arfs. Hafi jörð einhvem tíma veríð lýst óðalsjörð getur það flækt erfðamál veralega, sérstaklega ef óðalsbóndi hefur ekki gengið frá því fyrir andlát sitt hver skuli taka við óðalinu og áhöld era um hver uppfylli skilyrði sem sett era fram í 3. málsgrein 64. gr. laganna. Þar segir að það eða þau börn skuli sitja fyrir, sem hafi að staðaldri unnið með foreldram sínum á jörð- inni og eru líklegust til að stunda þar áframhaldandi búskap. Inn í þetta getur svo blandast ágrein- ingur um hvort búskapur á jörð- inni sé eða hafi verið í samræmi við 1. gr. laganna sem kveður á um að hann skuli geta framfleytt með- alfjölskyldu. Einnig þarf að huga að staðsetningu jarðarinnar með tilliti til þéttbýliskjarna, þegar meta skal hvort líklegt er að óðals- búskapur verði stundaður þar áfram. Öll þessi atriði komu til álita í dómsmáli sem hæstiréttur felldi úrskurð í 1998. Segir í dóm- inum að fallist sé á að um langt árabil hafi búskapur ekki verið stundaður á viðkomandi jörð með þeim hætti sem um ræðir í ákvæð- um VII. kafla jarðalaga. Jafnframt verði fallist á, að engar líkur séu á, að þess háttar búskapur verði tek- inn þar upp að nýju. Segir einnig að í gildandi aðalskipulagi sé mið- að við að talsverður hluti af land- inu verði lagður undir þéttbýlis- svæði. Úrskurðar því dómurinn að „eignin [...] falli ekki undir reglur laga um óðalsjarðir". Það getur því verið að mörgu að huga þegar 102 bújarðir á Islandi eru óðalsjarðir samkvæmt nýjustu upplýsingum frá sýslumönnum. Eitt skilyrði þess að jörð geti orðið óðalsjörð er að hún framfleyti í það minnsta meðalfjölskyldu. Gríðarleg þéttbýlisaukning og samfarandi aukning atvinnumöguleika eftir stríð hafa líklega haft sitt að segja um það að óðalsjarðir eru svo fáar sem raun ber vitni. Ungu fólki stóð svo miklu fleira til boða í lífinu en það eitt að yrkja „óðal feðranna“ og væntanlega hafa fáir viljað gangast undir þær skyldur sem ættaróðali fylgdu. kemur að skiptingu óðalsjarðar í samræmi við þær kvaðir og höft sem hvfla á jörðunum. Það er þó ekki svo, að aðrir af- komendur en óðalserfingi séu sviptir öllum rétti til arfs að lög- um. í 51. grein laganna er kveðið á um kröfu skylduerfingja, annarra en óðalserfingjans: „Nú hefur bóndi gert jörð sína að ættaróðali, og eiga þá skylduerfingjar hans kröfu til þess, að viðtakandi (óðals- erfíngi) greiði fráfaranda eða búi hans fjárhæð sem svarar hálfu fasteignamati jarðarinnar. Frá þessari greiðslu ber að draga áhvflandi veðskuldir, er viðtakandi tekur að sér.“ Sá hængur er á þessu ákvæði að fasteignamat er yfirleitt langt undir raunvirði eign- arinnar, jafnvel allt að þrefalt til fjórfalt minna, að sögn viðmæl- enda Morgunblaðsins sem kunn- ugur er viðskiptum með bújarðir. Aðrir erfingjar fá því aðeins lítinn hluta þess, sem þeir hefðu fengið, hefði óðalið komið jafnt til skipt- anna. í 52. grein segir: „Eignir óðals- bónda og konu hans, aðrar en ætt- aróðalið og fylgifé þess, erfast samkvæmt ákvæðum erfðalaga." í ílestum tilfellum er þó væntanlega fátt sem ekki tilheyrir óðalinu, sbr. 55. gr. sem kveður á um að jarð- eigandi geti ánafnað ættaróðalinu fylgifé, svo sem kvikfénað, verk- færi, húsmuni eða annað, en því fylgir þá jafnframt sú kvöð að skylt er að halda því við og endur- nýja. Þar að auki er jarðeiganda skylt skv. 48. gr. að láta fylgja jörðinni skjöl er varða jörðina frá fyrri tíð og era í hans vörslu, sem og myndir og muni, er hafa minn- ingargildi fyrir þá bændur eða bændaætt sem situr eða hefur set- ið á jörðinni. Það er því oft varla mikið af eignum sem ekki tilheyra ættaróðalinu. Breytt samfélagsgerð Tilgangurinn með lögunum um óðalsjarðir er af hálfu stjómvalda augljóslega hinn sami 1936, 1943 og 1976, þ.e. að „styrkja aðstöðu [...] bændaefna [...] til jarðakaupa," svo vitnað sé í greinargerð með lagafrumvarpinu 1976. Þó gefa greinargerðimar með framvörp- unum 1943 og 1976 talsvert ólíka mynd af framkvæmd laganna ef vel er að gáð. I greinargerðinni frá 1943 segir að „nokkrir" bændur hafi notfært sér lögin og með því „spomað við því, að jarðir þeirra lentu í braski, komið í veg fyrir óeðlilega hátt jarðarverð, sem tor- veldar heilbrigðan búrekstur á jörðunum, bundið fjármagn í sveit- inni, er ella mundi að líkindum flytjast þaðan, og síðast, en ekki sízt, treyst svo rammlega sem verða má þau bönd, er binda bændurna og niðja þeirra við ætt- aróðulin um ókomna framtíð.“ Hér er gildi laganna talið ótvírætt og þegar farið að sanna sig í fram- kvæmd. Tónninn er aftur á móti neikvæðari í greinargerðinni 1976. Þar segir að „mjög fáir bændur" hafi gert jarðir sínar að ættaróðul- um; þvert á móti séu „allmörg dæmi þess að bændur hafi fengið jarðir sínar leystar undan ákvæð- um óðalslaga..." I byrjun 8. áratugarins virðist raunveraleikinn því vera sá að sú þróun, sem virðist hafa byrjað í góðri trú á jákvæðar afleiðingar rúmlega þrem áratugum fyrr, sé á undanhaldi og nú sé stefnan bein- línis sett á hið gagnstæða. Hér gefast engar forsendur til að full- yrða um ástæður þess að þeir möguleikar, sem lögin um óðals- jarðir veittu bændum, og bundnar vora miklar vonir við í byrjun, hafi síðan aldrei haft sérlega mikið að- dráttarafl fyrir þá. Ætli þróun bú- setu og atvinnuhátta hafi þar þó ekki mikið um að segja ásamt því að hugmyndin um óðalserfingja samrýmist ekki hugsunarhætti Is- lendinga. Árið 1901 bjuggu flestir Islend- ingar i strjálbýli, eða um 77,7%. 1930 hafði fjöldinn minnkað vera- lega, bjuggu þá aðeins 41,5% landsmanna í dreifbýli. Á sama tíma og fólki til sveita fækkaði, batnaði þó afkoma þess til mikilla muna. I Islandssögu Björns Þor- steinssonar og Bergsteins Jóns- sonar segir að meðalbú hafi farið stækkandi og skapað forsendur fyrir betri afkomu bænda og búaliðs. Býlum fór fækkandi en af- rakstur þeirra sem enn störfuðu við búskap jókst. Kemur þetta heim og saman við það sem segir í greinargerðinni með lagafram- varpinu 1943, að „á síðari áram, eftir að bændur fóra að stórbæta jarðir sínar og reisa á þeim varan- legar og dýrar byggingar," hafi „mörgum ungum bændum reynzt lítt kleift að kaupa þær af foreldr- um sínum eða meðerfingjum“. Hin bætta afkoma var því einn orsaka- valdur þess að lögin um erfðaábúð og óðalsrétt voru sett. Annar or- sakavaldur hefur augljóslega verið óttinn við að byggðir legðust í eyði, samanber það sem segir í Islands- sögu Björns og Bergsteins: „Marga tók sárt til bæja og jafnvel heilla sveita, sem yfir vofði að færu í eyði.“ Það markmið lagasetning- arinnar, að styrkja byggð í sveit- um, á sér væntanlega rætur í þess- um ótta. Heyra óðalsjarðir fortíðinni til? Gríðarleg þéttbýlisaukning og samfarandi aukning atvinnumögu- leika eftir stríð hafa líklega haft sitt að segja um það að óðalsjarðir era svo fáar sem raun ber vitni. Ungu fólki stóð svo miklu fleira til boða í lífinu en það eitt að yrkja „óðal feðranna“ og væntanlega hafa fáir viljað gangast undir þær skyldur sem ættaróðali fylgdu. Flutningar úr sveitum bera vitni um þennan veraleika, en 1970 bjuggu einungis 13,8% lands- manna í sveitum miðað við 77,7% 69 áram fyrr. Á sama tímabili fór hlutfall Islendinga sem bjuggu á þéttbýlisstöðum með 200 íbúa o.fl. úr 20,8% í 85,1%. Einnig má ekki líta fram hjá því, að samkvæmt 47. gr. jarðalaganna þurfa böm bónda, 16 ára og eldri, að samþykkja að jörð sé breytt í óðalsjörð. Jafnframt mega engar veðskuldir hvfla á jörðinni umfram þær sem kveður á um í c-lið 47. greinar. Það er því ekki víst að bóndi hafi ávallt haft eindæmi um slíkan gjörning né hafi skuldastaða búsins gert hann mögulegan. Það virðast því aldrei hafa verið almennileg lífsskilyrði á Islandi fyrir lögin um erfðaábúð og óðals- jarðir, nema kannski fyrstu árin eftir setningu laganna. Jón Höskuldsson, formaður nefndar- innar sem endurskoða á m.a. ákvæðin um óðalsjarðir, var spurð- ur að því hvort róttækra breytinga á ákvæðunum væri að vænta eða þau jafnvel afnumin. „Er þetta ekki eitthvað sem heyrir fortíðinni til? Þessi kvöð á jörðum er kannski til þess fallin að standa eðlilegri búskaparþróun fyrir þi-ifum, jafn- vel framkvæmdum og uppbygg- ingu. Ég sé það nú samt ekki alveg fyrir [hvernig breyta skuli ákvæð- unum], nefndin er búin að ræða þetta fram og aftur en það er ekki til nein einföld leið til að einfalda þessi ákvæði.“ Jón sagði að ekki sé svo auðvelt að afnema ákvæðin og benti á að meginerfiðleikarnir felist í því að það séu þrátt fyrir allt staðfestar 102 óðalsjarðir á landinu og einn ábúandi á hverri jörð en hann eigi ekki jörðina. Hann hafi afnotarétt af jörðinni en langt sé frá því að hann geti ráð- stafað henni eða nýtt sem væri hún hans eigin eign. „Ég hef ekki fundið neina einfalda lausn á því hvað eigi að gera gagnvart öðram hugsanlegum óðalserfingjum sem eiga þama hlut að máli.“ Jón vildi að öðru leyti ekki tjá sig um um- fjöllun nefndarinnar varðandi óð- alsjarðir þar sem henni er ekki lokið og engar niðurstöður liggja fyrir. Sagðist hann vita, að nefnd- in, sem vann að endurskoðun laga nr. 102/1962 upp úr 1970, hefði rætt þann möguleika að nema úr lögum ákvæði um óðalsjarðir en hafi ekki viljað ganga lengra en að afnema ákvæði um ættarjarðir, sem var stór kafli í eldri lögum. Þótti það auðveldara við að eiga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.