Morgunblaðið - 15.08.1999, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 15.08.1999, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1999 57 FÓLK í FRÉTTUM ERLENDA R Sverrir Guðjónsson kontratenór fjallar um plötuna Solyma sem kom nýlega út. Þægilegur og meinlaus geisladiskur s ANNAÐ sinn á tiltölulega stuttum tíma er ég beðinn um að gefa mitt álit á nýút- komnum geisladiski sem flokkast undir miðaldapopp. Þetta gefur óneitanlega til kynna að skammt sé stórra högga á milli í þessum geira tónlistar. Pyrri diskurinn Era sem ég fjallaði um hefur notið þónokkmTa vinsælda, og er greinilegt að Solyma siglir í kjölfarið og ætlar sér hluta af vinsældaköku markaðarins. Það er óhjákvæmilegt að bera þessa tvo diska saman, þótt um ólíka höfunda sé að ræða því báðir róa á sömu mið. Upphaf þessara tveggja geisla- diska er nánast spegilmynd, teygð- ur tölvuhljómur sem myndar ölduf- ald fyi-ir miðaldalegar karlaraddir sem syngja á latínu. Takturinn er nánast sá sami, þó örlítið örari á Solyma. Báðir diskarnir gera út á markað sem tengist nýaldatónlist með miðaldaívafi, einhvers konar miðaldapopp. ÖU vinna er fagmann- lega úr garði gerð, þar sem þægi- legheit og endurvinnsla hugmynda ræður ríkjum. Solyma merkir, eftir því sem ég kemst næst „hin helga borg“ eða Jerúsalem og það sem greinir þenn- an disk frá Era eru arabísku áhrifin sem skjóta upp kollinum með reglu- legu millibili. Allur texti er fluttur á latínu eða arabísku til skiptis og gefa eftirfarandi titlar einhverja hugmynd um innihald laganna: Jerúsalem; I morgunsárið; Komdu til mín; Þrír Armenar; Svefn; Nótt; Spámaðurinn, Þú, trúfasta jörð. Arabísku kaflamir gera Solyma nokkuð áhugaverða, auk þess að ýta undir fjölbreytni. Það sem dregur úr þessum áhrifum er tölvuskotið slagverkið sem gerilsneyðir taktinn og mergsýgur þann tón sem lifandi slagverk gæti gefið þessari tónlist. Stundum er blóðtakan svo mikil að Eurovision-takturinn alræmdi læðir sér inn bakdyramegin og þrýstir innri spennu og krafti fram af ystu nöf. Líkt og um Era, má segja að Solyma sé þægilegur og meinlaus geisladiskur, en einhvern veginn er tónlistin hvorki fugl né fiskur. Þeir sem vilja leita víðar fanga á þessum miðum gætu snúið sér að hljómsveitinni Enigma, sem stígur fastar til jarðar, eða taka skrefið til fulls og fjárfesta í Carmina Burana eftir Carl Orff og fá frumkraftinn beint í æð. Sfgrlíur Befntelnsdóttír flflaria Björk Sverrfsdóttfr með Aflariu og Síggu Beínteíns Fyrír 5-12 ag 15-17 ára. Ra3a3 i hópa eftír aldrf, mest 5 i hóp. Sungið er í hljóðnema með undirspili úr Grease, Bucy Malone, Flikk flakk, Barnabros og Barnaborg, Yfir 100 önnur lög fyrir eldri hópana. Síðasti tíminn er upptaka í hljóðveri. AUir fó sinn söng með heim. m . mm ■ ........... ■ wmmm Nómskeiðið er 1, kfst., einu sinni i viku i 8 vikur og fer fram i Félagsmiðstoðinni Tönabae. Nómskeiðið byrjar síðustu vikuna í ógúst. Skróning i síma S65 4464 og 89? 7922. Allír farq ó skró hjó okkur og munum við vejjci nemendur í vœntonleg verkefni. Janet heiðrar Hitchcock LEIKKONAN Janet Leigh sem lék í einu þekktasta atriði kvik- myndasögunnar, sturtuatriðinu í Psycho, sést hér veita viðtöl í til- efni þess að leiksljórinn Alfred Hitchcock hefði orðið 100 ára síðastliðinn föstudag. Mikil dag- skrá var flutt þann dag til að heiðra minningu Hitchcocks og var henni sjónvarpað beint. ÚTSALAN byrjar í dag sunnudag. Opið í dag kl. 13-17. íprótta- og sportvörur á alla fjölskylduna á frábæru verði. Á sunnudögum er að sjálfsögðu frítt í alla stöðumæla STOPP kíktu í bæinn Verslið ódýrt fyrir skólann. Úlpur, allar stæröir, gþróttagallar, innanhússskór, barnaskór, regngallar, hlaupaskór, eróbikkskór, töskur, stakar buxur, flíspeysur o.fl. o.fl. v Við rúllum boltanum til þín SPORTVÖRUVERSLUNIN SPARTA Laugavegi 49 -101 Reykjavik • sfml 551 2024 Laugavegi 49, sfmi 551 2024 mmmmmmmmmmmmm
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.