Morgunblaðið - 15.08.1999, Síða 18
18 SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Rakel Ögmundsdóttir, leikmaður íslenska landsliðsins og Breiðabliks
Lék með
Bandaríkj
Rakel Ögmundsdóttir, landsliðskona í
knattspyrnu, sem hefur alið allan sinn ald-
ur í Bandaríkjunum, lék með sigursælasta
háskólaliði landsins um nokkurra ára skeið
og var þrisvar sinnum valin í forval band-
aríska ungmennalandsliðsins. Hún sagðist
í samtali við Gísla Þorsteinsson hafa verið
á leið til bandarísks félagsliðs í vor en
söðlað óvænt um og gengið til liðs við bik-
armeistara Breiðabliks.
Rakel, sem er 22 ára, átti í
viðræðum við tvö bandarísk
áhugamannalið, Atlanta Classie’s og
New Jersey Stallions, í vor en ekki
varð af því að hún hæfí knattspyrnu-
iðkun í áhugamannadeildinni ytra.
„Félögin buðu ágæta samninga, íbúð
og einhverja fjárhæð á mánuði, en
ég vildi fremur fara til New Jersey
til þess að geta dvalið nærri band-
arískum kærasta mínum en upp úr
slitnaði á milli okkar um tíma og því
ákvað ég að söðla um og koma til Is-
lands. Eg kom 17. júní og hef leikið
fímm leiki og skorað fímm mörk.
Það kom ekkert annað til greina en
að leika með Breiðabliki fyrst ég á
annað borð ætlaði að koma hingað.
Eg lék með þeim nokkra leiki árið
1997 en ég hafði æft með Stjörnunni
árið 1995. Það sumar lék ég meira að
segja einn leik með liðinu, en fór til
Bandaríkjanna skömmu síðar. Árið
1996 hafði ég skamma viðdvöl hér á
landi og í fyrra var ég í skóla í
Frakklandi. Eg er rosalega ánægð
hjá Breiðabliki enda er hópurinn
sem þar æfir skemmtilegur og hefur
mikinn metnað.“
Ætlum að vinna
bikarkeppnina
Rakel segir að íslenskur
kvennafótbolti hafí komið sér tals-
vert á óvart. Hún hafí ekki gert sér
miklar hugmyndir um getu leik-
manna áður en hún fór að spila hér á
landi en segir að leikmenn séu sterk-
ir og mikil samkeppni á milli bestu
liðanna.
„Ég tel að nokkrar stúlkur héðan
geti spjarað sig vel hjá bestu háskól-
unum úti. Munurinn á boltanum hér
heima og úti er engu að síður tölu-
verður. Uti er meiri breidd og leik-
menn búa yfir meiri tækni en ís-
lensku stelpurnar eru harðari af sér
heldur en amerísku háskólastelp-
umar. Annars virðist KR bera höfuð
og herðar yfir önnur lið í kvenna-
deildinni. Ég er ekki ánægð með
hvemig okkur hefur vegnað í sumar,
einkum í leikjunum á móti KR, en
við höfum tapað báðum leikjunum.
Það er jákvætt að leikmenn
Breiðabliks eru tilbúnir að leggja
meira á sig til þess að ná betri
árangri og vonandi skilar það sér áð-
ur en sumarið er á enda. Við emm
komnar í úrslit bikarkeppninnar og
mætum þar KR. Við erum allar
staðráðnar í að leggja hart að okkur
í þeim leik enda skilst mér að bik-
arúrslitaleikurinn sé sá stærsti í ís-
lenskum fótbolta. Breiðablik hefur
unnið úrslitaleikina þrjú ár í röð og
við viljum ógjarnan breyta þeirri
hefð.“
Þrisvar í forvali
bandaríska landsliðsins
Foreldrar Rakelar, Ögmundur
Karvelsson og Sigurlína Björgvins-
dóttir, fluttust til Bandaríkjanna
fyrir 25 ámm og era hún og bræður
hennar, Ómar og Róbert, fædd ytra.
Fjölskyldan bjó í Kalifomíu í 10 ár
en flutti þá til Georgíu. Rakel segir
að mikill íþróttaáhugi hafí blundað í
móður sinni og hún stuðlað að því að
öll systkinin hafi farið að æfa fót-
bolta á unga aldri.
„Mamma æfði handbolta með FH
og komst meðal annars í landsliðið á
yngri ámm. En þar sem lítill áhugi
er fyrir handbolta í Bandaríkjunum
sneri hún sér að þvi að æfa fótbolta
og virkjaði okkur krakkana með. Áð-
ur en varði var öll fjölskyldan komin
á kaf í að stunda og fylgjast með fót-
bolta, því pabbi hefur alltaf verið
áhugasamur og fylgst grannt með
okkur. Við urðum aldrei fyrir nein-
um þrýstingi frá foreldrum okkar
um að vera númer eitt heldur lögðu
þau áherslu á að við hefðum gaman
af því að æfa og spila fótbolta. Fyrir
það er ég þakklát. Yngri bróður
minn, Róbert, er enn að spila úti en
sá eldri, Ómar, er hættur."
Er fjölskylda Rakelar fiuttist til
Georgíu hóf hún að æfa með
félagsliði er heitir Lighting
soccerclub. Hún segir að árangur
liðsins á meðan hún æfði með því
hafí reynst góður - hafi liðið
nokkmm sinnum komist í úrslita-
keppni gegn liðum úr öðrum Iands-
hlutum og eitt sinn náð 3. sæti á
landsvísu. I kjölfar úrslitakeppn-
anna var henni í þrígang boðið að
taka þátt í úrtökumótum fyrir yngri
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
RAKEL Ögmundsdóttir er eini nýliðinn sem fer með landsliðinu til Úkraínu til að leika þar Evrópu-
leik 23. ágúst.
landslið Bandaríkjanna, síðast árið
1996.
„Mér tókst reyndar aldrei að kom-
ast í yngri landsliðin en ég hefði ekki
skorist undan ef ég hefði verið valin.
Vissulega velti ég fyrir mér hvort ég
ætti að leika fyrir hönd Bandaríkj-
anna ef ég yrði valin, því mamma var
dugleg að minna mig á ætterni mitt.
I fyrstu var ég staðráðin í að spila
hönd íslands en skoðun mín breytt-
ist þegar ég eltist, enda búin að búa
alla ævi í Bandaríkjunum. Þá skipti
máli að ég þekkti til nokkurra leik-
manna bandaríska landsliðsins, svo
sem Miu Hamm og Anson Dorrance,
sem höfðu æft með háskólaliðinu
mínu [University of North Carolina].
Ég sá að með mikilli æfíngu væri
hægt að ná lengra og komast í lands-
Iið Bandaríkjanna, sem er það besta
í heimi. Ef ég hefði verið valin á sín-
um tíma ætti ég ekki kost á að leika
með íslenska landsliðinu nú. Af því
varð ekki og ég lék minn fyrsta leik
fyrir íslenska liðið er það vann ung-
mennalið Ástrala 5:0,“ sagði Rakel
sem kom inn á í síðari hálfleik og
skoraði eitt mark í leiknum. Hún
hefur verið valin í landsliðshóp Is-
lands er leikur gegn Úkraínu í und-
ankeppni Evrópumótsins.
Mikið fjármagn í
bandaríska kvennaboltanum
Kvennaknattspyrnan í Bandaríkj-
unum stendur styrkum fótum, ekki
síst eftir að landsliðið vann nýaf-
staðið heimsmeistaramót. Rakel seg-
ir að árangur bandaríska kvenna-
landsliðsins komi til með að efla veg
íþróttarinnar meðal kvenna enn
frekar. Hún segir að stefnt sé að því
að stofna atvinnumannadeild og að
ekki sé skortur á fjármagni.
„Sem stendur er um að ræða
áhugamannadeildir en það kemur til
með að breytast og ég geri ráð fyrir
að atvinnumannadeild verði stofnuð á
næstunni. Mikill efniviður er fyrir
hendi í bandarískum kvennafótbolta
og ég tel að það megi þakka því starfí
sem unnið heíúr verið í University of
North Carolina [UNC]. Skólinn var
meðal þeirra íyrstu sem stofnaði
kvennalið í Bandaríkjunum og lið frá
UNC hafa í mörg ár borið höfuð og
herðar yfír önnur skólalið, en það hef-
ur unnið keppni háskólaliða 14 sinn-
um undanfarin 20 ár - þar af 10 sinn-
um í röð. Er ég lék með liðinu komst
það ætíð í úrslitakeppni háskóladeild-
arinnar á landsvísu og hefur tvisvar
unnið keppnina. Fjöldi leikmanna
þaðan hefiir gert garðinn frægan í
bandaríska landsliðinu og er lands-
liðið varð heimsmeistari árið 1991
komu nær allir leikmenn liðsins frá
UNC. Þrátt fyrir að sumir skólar hafí
tekið við sér em enn margir leikmenn
frá UNC í landsliðinu, svo sem þrjár
góðar vinkonur mínar, Meredith
Florance, Raven McDonald og Siri
Mulliniy. Þær hafa leikið með lands-
liðinu og tóku þátt í nýafstöðnu
heimsmeistaramóti.“
Rakel segir óráðið hvað hún taki
sér fyrir hendur er keppnistímabil-
inu lýkur hér á landi. Hún hefur
lokið BA-prófí í samskiptafræðum
og kveðst hafa áhuga á að ljúka
framhaldsnámi, en einnig togi í hana
að dvelja áfram hér á landi.
„Mér hefur ætíð liðið vel hér á Is-
Iandi og tel mig tengjast því ákveðn-
um böndum, enda hef ég dvalið hér
flest sumur frá því að ég var lítil. Ég
veit ekki hvað ég kem til með að
gera. Það togar í mig að vinna hér í
vetur, en það háir mér að ég kann
ekki íslenskuna til hlítar.
Mamma var að vísu dugleg að láta
okkur lesa íslenskar bækur er við
vomm yngri en engu að síður náði
enskan yfirtökunum hjá okkur
systkinunum og við tölum oftast á
engilsaxnesku okkar á milli. Stund-
um bregðum við fyrir okkur íslensk-
unni en það er yfirleitt ekki nema
þegar foreldrar okkar em nálægir.
Af þeim sökum er ég ekki góð í ís-
lensku og það háir mér er ég kem í
heimsóknir hingað til lands. Ég hefði
þurft að fara í skóla hér á landi til
þess að ná betri tökum á íslenskunni,
sem mér fínnst ferlega erfíð. Mögu-
leikar mínir hvað atvinnu varðar em
meiri úti í Bandaríkjunum.
Mig langar að fara aftur út til þess
að ljúka framhaldsnámi í samskipta-
fræðum og langar að vinna við það
sem ég er búin læra. En það þýðir að
ég yrði að setjast að í Bandaríkjun-
um til frambúðai-."