Morgunblaðið - 15.08.1999, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÉLAGARNIR Jón Arnar Guðbrandsson og Rúnar Gislason, matreiðslumenn, sem stofnað hafa Sjávarfang sælkerans.
SÆLKERAMATUR
ÚR SJÁVARFANGI
eftir Gunnlaug Árnason
SJÁVARFANG sælkerans
ehf. var stofnað 7. nóvem-
ber 1998 og rekur starf-
semi sína að Fiskislóð
117b. Markmið fyrirtækisins er að
koma til móts við neytendur og
bjóða upp á fiskrétti úr fyrsta
flokks hráefni, tilbúna til mat-
reiðslu. „Það var vöntun á mark-
aðnum af tilbúnum fiskréttum sem
neytandinn gæti sett beint í ofninn
eða á grillið," segir Jón. „Það er þó
nokkuð síðan kjötframleiðendur
buðu upp á kryddlegið kjöt og
hjálpuðu neytandanum þar með við
eldamennskuna. Við sáum að
þarna var tækifæri til þess að gera
það sama með íslenska fískinn, sem
auðvitað er fyrsta flokks hráefni,
og ákváðum því að láta slag standa
og hleypa af stokkunum Sjávar-
fangi sælkerans ehf. Okkar mark-
mið er að bjóða upp á veitingahúsa-
mat, sem neytandinn getur tekið
með sér heim og snætt í eldhúsinu
við kertaljós, ásamt þvi að fram-
leiða algenga mánudagsrétti eins
og plokkfisk og ýsu með raspi.
Einnig sáum við okkur leik á borði
þegar sumir af stórmörkuðunum
fóru að loka fiskborðum sínum til
þess að geta lækkað verð til neyt-
andans, þannig að einhver varð
auðvitað að sjá um að pakka fersk-
um fiski til þess að anna þeirri eft-
irspurn," segir Jón. En hvar fengu
Jón og Rúnar hugmyndina að fyr-
irtækinu? „Á meðan við störfuðum
erlendis tókum við eftir því að stór-
markaðir voru oft ekki með fisk-
borð og buðu í staðinn upp á pakk-
aðan fisk, sem var tilbúinn til mat-
reiðslu," segir Rúnar. „Þegar þessi
þróun fór svo að gera vart við sig
hérlendis, sáum við að hér var
tækifæri til þess að íylla það tóm
sem lokun fiskborða myndi skilja
eftir sig.“
„Stofnkostnaðurinn var
þyngsti bagginn að bera“
Að sögn þeirra félaga var það
VIÐSKIPTIAIVINNULÍF
Á SUNNUDEGI
Jón Arnar Guðbrandsson og Rúnar Gíslason, matreiðslumenn,
eru ungir að árum en hafa komið víða við. Jón fæddist 16. júlí
1970, á Akureyri, og lauk námi frá Hótel- og veitingaskóla ís-
lands árið 1993. Hann lærði list sína á Fiðlaranum á Akureyri
en hefur starfað sem yfirmatreiðslumaður á A. Hansen og að-
stoðaryfirmatreiðslumaður á Grand Hótel. Því næst lá leiðin til
útlanda og kokkaði Jón á fímm stjörnu skemmtiferðaskipi, sem
sigldi um Miðjarðarhafið, en skipið hafði aðalskrifstofur í
Bandaríkjunum. Síðar starfaði Jón á Columbia George hótel-
inu í Oregon-fylki í Bandaríkjunum. Rúnar fæddist í Hafnar-
firði 25. nóvember 1971 og kláraði skólann sama ár og Jón.
Hann lærði á Holtinu og starfaði þar eftir útskrift. Seinna
gerðist hann kokkur á skemmtiferðaskipi, sem sigldi til
Eystrasaltslandanna og um Miðjarðarhafið, en gerðist iand-
krabbi á ný og starfaði sem kokkur á Restaurant Luise í Ósló,
sem er einn stærsti veitingastaður í Evrópu. Stuttu eftir að
Rúnar kom heim frá Noregi tók hann við rekstri mötuneytis
Stöðvar 2.1 nóvember 1998 stofnuðu þeir félagar svo fyrirtæk-
ið Sjávarfang sælkerans ehf., sem sérhæfir sig í úrvalsfiskrétt-
um úr fyrsta flokks hráefni.
mikil vinna sem fór í að koma fyrir-
tækinu úr startholunum og var
stofnkostnaðurinn þyngsti bagginn
að bera. „Það var einna erfiðast að
fá inn fjármagn til þess að kaupa
vélamar," segir Jón. „Við keyptum
meira af notuðum tækjum til þess
að byrja með en pökknunarvélar
og vigtar keyptum við nýjar. Við
erum búnir að borga niður svo til
allan tækjakostnaðinn í dag með
mikilli vinnu en við höfum reynt að
hafa það þannig að við kaupum
ekki inn ný tæki nema við eigum
fyrir þeim og vinnum frekar aðeins
meira í höndunum í stað þess að
safna skuldum. Einnig höfum við
verið heppnir með samstarfsaðila
en við höfum átt góð viðskipti við
íspakk ehf., Plastos miða og tæki
efh. og svo hefur Fiskbúð Hafliða
séð okkur fyrir hráefninu," segir
Jón og bætir Rúnar því við að oft á
tíðum sé erfitt að fá gott hráefni
fyrir íslandsmarkað. „Það vill oft
verða svo að besta hráefnið er selt
út, enda mörg íslensk íyrirtæki,
sem eru í útflutningi, búin að
skuldbinda sig erlendis og lofa ein-
hverju ákveðnu magni,“ segir
hann. „Á ákveðnum tímum er sleg-
ist um hvem sporð enda margir
um hituna. Þegar lítið framboð er á
sjávarfangi höfum við bara lagt
áhersluna á lax og silung en við
buðum upp á lax, fylltan með
spínati og rjómaosti fyrir nokkru,
tilbúinn í ofninn. Hins vegar eram
við alltaf með eitthvað af sjávar-
fangi en við viljum gott hráefni,
sem stundum er einungis til í tak-
mörkuðu magni. Við eram tilbúnir
til þess að borga aðeins meira fyrir
það sem skilar sér reyndar í aðeins
hærra vöraverði en með þessu er-
um við þó að tryggja það að neyt-
andinn fái alltaf bestu vöruna."
Saumaklúbbakonumar eru
okkar helsti auglýsingamiðill
Pakkaður fiskur og sjávarfang í
kryddlegi eða með sósum er nýj-
„Á meðan við
störfuðum erlend
is tókum við eftir
því að stórmark-
aðir voru oft ekki
með fiskborð og
buðu í staðinn
upp á pakkaðan
fisk, sem var til-
búinn til mat-
reiðslu. Þegar
þessi þróun fór
svo að gera vart
við sig hérlendis,
sáum við að hér
var tækifæri til
þess að fylla það
tóm sem lokun
fiskborða myndi
skilja eftir sig.“
ung á íslandsmarkaði og þurftu
þeir félagar að kynna vöra sína
rækilega fyrir neytendum. „Við
tókum þann pól í hæðina að það
þýddi ekkert að keyra á einhverju
auglýsingaprógrammi til þess að
kynna vandmeðfarna matvöra eins
og fisk,“ segir Jón. „Islenskir
kaupendur era vanir ferskum fiski
og era, að við höldum, örlítið
hræddir við að kaupa pakkaðan
fisk. íslendingar vilja helst velja
sín eigin flök og því er eina leiðin
til þess að kynna þessa vöru al-
mennilega að leyfa fólki að smakka
hana. Við höfum verið með fjöld-
ann allan af kynningum í stór-
mörkuðunum, og þar kemur kraft-
ur kynninga í ljós, en þá þrefaldast
salan og helst þannig í þó nokkurn
tíma á eftir. Að okkar mati era
munnleg meðmæli besta auglýs-
ingin og með þvi að halda vöru-
kynningar í stórmörkuðunum fær
varan að tala sínu máli. Það er það
eina sem gildir, og við höfum heyrt
það útundan okkur að það sé verið
að tala um fiskinn okkar í sauma-
klúbbum og segja má að konurnar í
saumaklúbbunum séu okkar helsti
auglýsingamiðill. Hins vegar er
það ljóst að við þurfum að minna á
okkur og okkar vöru þegar fólk
hefur prófað hana og henta þá
hefðbundnar auglýsingar vel.“
En hver er helsti markhópur
fyrirtækisins? „Það var alltaf ætl-
unin að vera eingöngu með „gour-
met“-fiskrétti, sem jöfnuðust á við
fínasta mat á veitingahúsum. En
við búum í litlu landi þar sem
markaðurinn er smár og við sáum
að það er hreinlega ekki markaður
fyrir svo sérhæfða fiskvöra," segir
Rúnar. „Við fórum út í að fram-
leiða, í bland, svona hefðbundnari
rétti, líkt og ýsu með raspi, en það
hefur gengið vonum framar.
Kannski er það rigningunni að
þakka í sumar en þegar sól er úti
minnkar fisksalan af því að það
fara allir út að grilla kjöt,“ segir
Rúnar brosandi.
Fyrst að ná góðum tökum
á innanlandsmarkaðnum
Sjávarfang sælkerans ehf. er
ungt fyrirtæki í stöðugum vexti og
er áætluð ársvelta fyrirtækisins á
næsta ári um 80 milljónir. Það
stendur til að fyrirtækið fari að
markaðssetja og selja vöra sína á
erlendum markaði en rætt hefur
verið við þá félaga í því sambandi.
„Við eram að athuga útflutning til
Frakklands þessa stundina," segir
Rúnar, „en við gerum okkur fulla
grein fyrir því að við eigum eftir að
vinna mikla rannsóknarvinnu og
búumst við að það taki nokkur ár
að koma útflutningsbatteríi í gang.
Við verðum fyrst að ná góðum tök-
um á innanlandsmarkaðnum áður
en við getum farið að einbeita okk-
ur að útflutningi. Það verður því að
bíða í bili og við verðum að gefa