Morgunblaðið - 15.08.1999, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Grettir
ÞÚ VERÖUR AB FARA 06 LEITA AÐ HONUM! VI _ HVARHEFUR ÞÚVERIb? ÉGERNVSLOPPINN 1 ÚR FUGLABÚRI! )
V
~\ 1 /
' L vi
Smáfólk
50 WITH THE5E GLA55E5
I THINK l'LL BE A
BETTER OUTFIELDER..
PON'T YOU AGREE7
THE 5UN WON'T
BEA PR08LEM
ANYMORE.YOU'LL
APPRECIATE THAT
ZK
co>
i'll CATCH
EVERYTHIN6
THAT C0ME5
m WAY.
NICE TALKINGTO
YOO, MANA6ER..
6-Zé
Ég held að ég verði betri
útvallarmaður með þessum
gleraugum..ertu ekki sammála?
Sölin verður ekkert
vandamál lengur..
þú kynnir að meta það
Ég mun gripa allt
sem kemur til
mín..
Gaman að tala við þig,
framkvæmdastjóri..
Ég þoli þetta ekk
ég bara þoli þett
ekki..
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Upphaf sagnaritunar
- leiðrétting
Frá Árna Bjömssyni:
í MBL. 12. ágúst 1999, bls. 30, hefur
Jóhann Hjálmarsson misskilið upp-
haf erindis míns á landafundaráð-
stefnunni „Vestur um haf‘ og snúið
mekingu þess algerlega á haus þegar
hann segir:
,Ám» Björnsson var líka í þjóðfræði-
hugleiðingum í spjalli sínu um sér-
staka skáldaætt sem hugsanlega
kom til íslands. Skáldskapinn skýrði
hann með einangrun þjóðarinn-
ar....
Þessi kafli hljóðaði svo í styttri ís-
lenskri þýðingu:
„Ein hinna gömlu skýringa í upphafi
íslenskra bókmennta var á þá lund
að landnámsmenn íslands hefðu ver-
ið af sérstöku skáldakyni. En þetta
ér ekki spurning um skáldagáfu.
Menn hafa ævinlega getað fundið
skáld og sagnamenn meðal ólæsra
þjóða. Spurningin er, af hverju þess-
ar bókmenntir voru skrifaðar.
Imynduð einangrun Islands var
önnur og þrálátari skýring. Sam-
Svar til Berg-
þóru M. Berg-
þórsdóttur og
fjölskyldu
Frá Kolbrúnu og Vilhjálmi Roe:
„LÍTIL saga af verslunarmanna-
helginni" var heiti á grein sem
Bergþóra M. Bergþórsdóttir og
fjölskylda rituðu í Morgunblaðið 10.
ágúst síðastliðinn.
Orðrétt úr greininni: „Þau
hringdu til nokkurra umboðsmanna
olíufélaganna í Hveragerði en upp-
skáru ekki annað en á þau var
skellt."
Þetta er alls ekki rétt. Þessa um-
ræddu nótt vaknaði ég upp við sím-
hringingu kl. u.þ.b. 1:30 og var karl-
maður á línunni og spurði eftir eig-
inmanni mínum með fullu nafni
(eiginmannsins) og sagði ég hann
farinn að sofa. Þessi karlmaður
kynnti sig hvorki með nafni né
hvaðan hann hringdi, hvað þá vand-
ræði Bergþóru og fjölskyldu henn-
ar. Ekki man ég eftir því hvort hann
þakkaði fyrir og skellti á eða bara
einfaldlega skellti á. I Hveragerði
eru tvær bensínstöðvar og er önnur
þeirra, Shell-skálinn, til húsa við
Austurmörk 22 (gegnt Eden) og
höfum við hjónin rekið og starfað
við þá stöð frá áramótunum
1987-1988 og höfum við alla tíð leit-
ast við að aðstoða viðskiptavini okk-
ar hvort sem er að degi til eða í
neyð að nóttu til. Til vitnis getum
við bent á lögregluna á Selfossi,
sem oft hefur vísað nauðastöddum
til okkar, starfsfólki Hótel Arkar,
Hveragerði, og svo öllu því fólki
sem við höfum aðstoðað í gegnum
árin. En mannleg mistök geta alltaf
orðið, hvar sem þau urðu í þetta
skiptið. Við Bergþóra höfum talast
við í síma og ég hef leiðrétt þetta við
hana. Eg vildi bara að það rétta
kæmi fram í fjölmiðlum.
KOLBRÚN OG VILHJÁLMUR
ROE,
Hveragerði.
kvæmt henni áttu íslendingar að
hafa tekið upp á því að skrifa sögur
af því þeir voru að drepast úr leið-
indum á hinum löngu og myrku vetr-
arkvöldum.
Nú vitum við að Islendingar voru
langt frá því að vera einangraðir á
miðöldum. Fræðirit þeirra sjálfra
sýna að þeir voru vel kunnugir
menningarheimi Suður-Evrópu, og
þau tengsl verkuðu augsýnilega
beint og óbeint hvetjandi á sagnarit-
unina. Menn í norðurhluta Skandin-
avíu voru langtum einangraðri og
vetrarkvöldin enn lengri og kaldari
en á Islandi, svo þeir hefðu haft
nægan tíma til að skrifa bókmenntir.
En kannski voru þeir alltof ham-
ingjusamir til að hafa þörf fyrir rit-
aðar bókrnenntir."
Niðurlagsorð erindisins voru
þessi:
„Orsakir hinnar einstæðu sagna-
ritunar voru hvorki sérstakt gáfna-
far né einangrun þjóðarinnar, heldur
sú heppilega tilviljun að ritlistin
barst hingað með kirkjunni meðan
talsverður hluti bænda var enn til-
tölulega sjálfstæður og það vel efn-
um búinn að þeir höfðu ráð á að láta
skrifa sögur fyrir sig og heimilisfólk
sitt á því tungumáli sem þeir sjálfir
skildu.“
Að öðru leyti fór Jóhann rétt með
í endursögn sinni.
ÁRNI BJÖRNSSON,
Þjóðminjasafni Islands.
NÝKOMIN
RÚSSNESK
ÍKONÁ - EGG
SKÍRNÁRGJÁFIR -
TÆKIFÆRISGJAFIR
ÁRITUN MEÐ
GYLLTUM STÖFUM AÐ
EIGIN ÖSK
FÁST EINGÖNGU
Á EFTIRTÖLDUM STÖÐUM:
ANTIKMUNIR, H0RNI KLAPPARSTÍGS
0G GRETTISGÖTU -
HEIMSLJÓS, SUÐURLANDSBRAUT 54 -
0KKAR Á MILLI, MJÓDD 0G
GRAFARV0GI - BLÓMASMIÐJAN,
GRÍMSBÆ V/BÚSTAÐAVEG -
TEKKHÚSIÐ, KRINGLUNNI -
KIRKJUHÚSIÐ, LAUGAVEGI 31 -
NÝBLÓM, NÝBÝLAVEG114 -
GARÐABLÓM, GARÐAT0RGI -
BURKNI, HAFNARFIRÐI -
MOSFELLSBÆ, SAUMAGALLERÍ SF,-
AKUREYRI, HEILSULINDIN, SKIPAGÖTU.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.