Morgunblaðið - 15.08.1999, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
I DAG
SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST Í999 51
(\/\ÁRA afmæli. Á
í/V/morgun, mánudaginn
16. ágúst, verður níræður
Sigurður Ingi Sigurðsson,
fyrrverandi oddviti Sel-
fosshrepps. Eiginkona hans
er Arnfríður Jónsdóttir.
Þau verða að heiman á af-
mælisdaginn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
l'áli Arnarson
SPIL dagsins kom upp í
viðureign Kanada og Hong
Kong á HM ungmenna, sem
nú stendur yfir. Kanada-
mennirnir í opna salnum
lentu í mikium ógöngum,
tóku „fórn“ sem kostaði þá
1100, fyrir geim sem ekki
stóð.
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
A ÁDG1064
V D10
♦ D10
* ÁDG
Vestur
♦ 9532
VÁKG2
♦ ÁK82
*9
Austur
* K7
V 87543
* 9
* K10642
Suður
♦ 8
V 96
♦ G76543
* 8753
Vestur Norður Austur Suður
- - Pass Pass
llvjarta lspaði 4hjörtu Pass
Pass Dobl Pass 5 tifgar
Dobl Allirpass
Fimm tíglar er hræðileg-
ur samningur og endaði
fjóra niður. Fjögur hjörtu í
AV tapast með spaða út:
Norður tekur á ásinn og
spilar fjarkanum. Suður
trompar með sexu, kemur
makker inn á laufás og get-
ur svo yfirtrompað spaða
með níunni! Dálítíð kvikind-
islegt. En hugum að sögn-
um Kanadamannanna?
Hvor á sökina? Norður, fyr-
ir að enduropna með dobli,
eða suður fyrir að taka út
úr doblinu?
Ekki er hægt að segja að
dobl norðurs sé klæðskera-
saumað, því eins og stíllinn
er nú tíl dags eru slík dobl
meira tíl úttektar. Enda
bjóst suður við stuttu hjarta
hjá makker og meiri lengd í
láglitunum. Hitt er annað
mál að suður á svo veik spil
að það er vafasamt í meira
lagi að fimm tíglar vinnist.
Hins vegar gefur einspilið í
spaða góða von um að
hnekkja fjórum hjörtum.
Að mati dálkahöfundar er
sökin nokkuð jöfn: Norður
áttí ekki að leiða asnann í
herbúðirnar með vafasömu
dobli, en suður hefði átt að
sjá að ágóðavonin lá í vörn-
inni en ekki sókninni.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og íleira lesend-
um sínum að kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að berast
með tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns þarf
að fylgja afmælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðarmanns og
s/manúmcr.Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík.
Arnað heilla
Q/\ÁRA afmæli. í dag,
O V/sunnudaginn 15.
ágúst, verður áttræður
Gunnar Gíslason, fv. gjald-
keri Reykjavíkurhafnar,
Grundargerði 12, Iteykja-
vík. Eiginkona hans er
Kristfn Sveinsdóttir. Þau
hjónin taka á mótí ættíngj-
um og vinum á heimili sínu
eftir kl. 18 á afmælisdaginn.
^ Ljósrn: Mynd, Hafnarfirði.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 17. júlí sl. í Bústaða-
kirkju af sr. Pálma Matthí-
assyni Sigurborg Ólafsdótt-
ir og Börkur Brynjarsson.
Heimili þeirra er í Dan-
mörku.
O/AÁRA afmæli. í dag,
O Wsunnudaginn 15.
ágúst, verður áttræður
Benedikt Bjömsson, vél-
sljóri, fv. starfsmaður
ÍSAL, Gnoðarvogi 72,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Sigrún Hólmgeirsdóttir.
Þau eru að heiman á afmæl-
isdaginn.
SKAK
Umsjón Margeir
Pétnrsson
STAÐAN kom upp á heims-
meistaramótinu í Las Vegas
sem nú stendur yfir. Frakk-
inn Joel Lautier (2.638) var
með hvítt, en Boris Gelfand
(2.713), Hvíta-Rússlandi,
hafði svart og áttí leik.
20. - Rxh3+ 21. gxh3 - Dxh3
22. Hel - Bh2+ 23. Khl -
Bxd5+ 24. f3 - Bf4+ 25. Kgl
- Bxf3 og Lautier gafst upp
og féll út úr mótínu.
SVARTUR leikur og vinnur
LJOÐABROT
KONUNGSTIGN JESÚ
Víst ertu, Jesú, kóngur klár,
kóngur dýrðar um eilíf ár,
kóngur englanna, kóngur vor,
kóngur almættis tignarstór.
Kóng minn, Jesú, ég kalla þig,
kalla þú þræl þinn aftm- mig.
Herratign enga að heimsins sið
held ég þar mega jafnast við.
Jesú, þín kristni kýs þig nú,
kóngur hennar einn heitir þú.
Stjórn þín henni svo haldi við,
að himneskum nái dýrðar frið.
Ijóðið Kon-
ungs-
tign Jesú
Hallgrímur
Pótursson
(1614/1674)
STJÖRJVUSPÁ
eftir Frances Drake
LJÓN
Afmælisbarn dagsins: Þú
átt auðvelt með að greina
kjarnann frá hisminu og
getur stundum verið of
hreinskilinn.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Þú færð hverja hugmyndina
annarri betri en getur engan
veginn gert upp á milli
þeirra. Leggðu þær í dóm
trausts vinar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er í mörg hom að líta í
vinnunni og þér finnst þú
ekki hafa tíma til annars. Það
er samt rangt því þú þarft að
dreifa huganum svo allt
gangi upp.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) AA
Ef þú leggur öll spilin á borð-
ið þarftu ekki að óttast and-
stöðu heldur munu sam-
starfsmenn þínir sjá kosti
ráðagerða þinna.
Krabbi
(21. júnf - 22. júlí)
Það eru nokkur mái sem þú
þarft að gefa þér tíma til
þess að íhuga vandlega og
þegar niðurstaða er fengin
verður þú að láta til skarar
skríða tafarlaust.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er kominn tími til þess
að þú setjir hugsanir þínar
niður á blað og veitir öðrum
hlutdeild í þeim sannindum
sem þú telur þig hafa fundið.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú ert með ýmsar vangavelt-
ur í sambandi við ákveðna
samstarfsmenn þína. Gefðu
þeim tækifæri og þá mun
koma í ljós hvoru megin þeir
standa.
yrv
(23. sept. - 22. október)
Þér finnst einhvemveginn
allt rekast á annars hom.
Gefðu þér tíma til að greiða
úr flækjunni og þá leysast
allir hlutír auðveldlega.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) ^IE
Þú hefur ráð undir rifi hverju
og getur komið ýmsu í verk
ef þú leggur þig fram um að
leita samstarfsaðila.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
kð
Það er alltaf notalegt að eiga
stund með nánum vini og
gott að geta deilt áhyggjun-
um með einhverjum sem
maður treystir.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Stundum er eina ráðið að
halda að sér höndum og bíða
færis. Láttu ekki óþolinmæði
hafa yfirhöndina heldur
bíddu rólegur.
Vatnsberi .
(20. janúar -18. febrúar)
Þér finnst að þér sótt úr öll-
um áttum. Leitaðu ráða til
þess að verja sjálfan þig og
sinntu aðeins þeim sem hug-
ur þinn stendur til.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) M***
Þú ert eins og milli steins og
sleggju í ákveðnu máli.
Reyndu að ná heildarsýn til
þess að þú getír vegið og
metíð aðstæður.
Stjörnuspána á að lesa sem
ðægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindaiegra staðreynda.
Ég er kominn aftur heim eftir árs dvöl
í útlöndum. Hef hafið störf aftur á
HÁRGREIÐSL USTOFUNNI
GREIFANUM og býð gamla og nýja
viðskiptavini velkomna.
*í^ítf*tun eepi Ste£í*t4Ao*t.
Spánn - Golf - Strendur
VZLLAMARTIN — 50 km suður af Alicante
Tíl SÖtU r"
sem nýtt endaraðhús í Villamartin
Húsinu fylgir allt innbú ásamt hlut í stórri sundlaug. Örstutt er á þrjá
bestu golfvellina. Einnig er stutt á margar góðar strendur. íslenskir
starfsmenn allt árið í næsta nágrenni. Beint flug frá apríl til október.
Nánari upplýsingar veittar:
- á íslandi í síma 697 9230
á Spáni eftir 7. sept. í sima/fax 0034 96 597 6993
1
16. - 20. september
Kvennaferð til heimsborgarinnar
London meö dagsferð til hinnar
einu sönnu Parísar. Margrét
Blöndal og Inger Anna Aikman
stjórna fyrsta flokks ferð og
frábærri dagskrá.
Samvinnuferðir
Landsýn
Á verOi fyrir pigi
\
HVAÐ ERU KRAFTAVERK?
Einstakt klgamámskeið með Rául Patel,
einum freista orkuheilara Bandaríkjanna.
LYKILLIM AÐ HEIMGÐIÁ MRl OLD
*
21. - 22. ágúst, Iþróttamiðstöðinni Bessastöðum.
Upplýsingar og skráning í síma 5518151.
Miðasala í Heilsuhúsinu, Kringlunni
og Betra Lífi, Kringlunni.
/
„Eg þakka þér Rahul af öllu hjarta fyrir heilunina
og læknandi snertingu þína sem bjargaði lífi mínu."
-Laura Evans, fyrrvemdi krabbamcinssjúklingur.
Éh
Eilsuhúsið