Morgunblaðið - 17.08.1999, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Forsvarsmenn Orca S.A. á fundi með
íorstjóra og framkvæmdastjórn FBA
Segja hugmynd-
ir Orca og
FBA fara saman
Morgunblaðið/Bjöm Björnsson
Biskupar og prestar ganga úr kirkju að lokinni guðsþjónustu.
Skagafirði. Morgunblaðið.
FULLTRÚAR hluthafahópanna
fjögurra sem mynda Orca S.Á áttu
í gær fund með forstjóra Fjárfest-
ingarbanka atvinnulífsins og fram-
kvæmdastjóm bankans, þar sem
farið var yfir stöðu bankans og þau
verkefni sem framundan eru hjá
honum. Eyjólfur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Frjálsrar fjölmiðlun-
ar og talsmaður Orca S.A., segir að
um mjög ánægjulegan og gagnleg-
an fund hafi verið að ræða.
„Framkvæmdastjómin fór yfir
stöðu félagsins og starfsemi og ég
geri ráð fyrir að við munum eiga
fleiri svipaða fundi, enda stendur
ekki annað til en að styðja vel við
bakið á félaginu. Ég held að staða
FBA sé mjög sterk,“ segir Eyjólfur.
Hann segir forsvarsmenn Orca
S.A. ekki ráðgera að gera kröfur
um breytingar á yfirstjóm FBA.
Óska stjórnaraðildar í
samræmi við hlutafjáreign
Aðspurður hvort forsvarsmenn
Orca S.A. óttist ekki að þau tæpu
30% hlutafjár sem félagið á í FBA
nægi ekki til að Orca S.A. öðlist
nægjanleg ítök í bankanum, heldur
þurfi að láta í minni pokann fyrir
eigendum 70% í bankanum í veiga-
miklum málum, kveðst Eyjólfur
ekki óttast slíkt.
„Ég minni á að FBA er að 51% í
eigu ríkisins og við vinnum einfald-
lega með hluthöfum í félaginu að
framgangi þess. Ég sé ekki annað
en hugmyndir okkar, annarra hlut-
hafa og framkvæmdastjórnar falli
saman um framtíð þessa félags og
er mjög spenntur að vinna með
þeim, enda hafa þeir unnið mjög
gott starf. Ég held að menn þekki
það alls staðar frá, að þegar svona
stór hluthafi kemur inn í félag
kynnir hann sér einfaldlega starf-
semi þess og styður svo við starfs-
menn félagsins með störfum sínum í
stjórn. Og við munum að sjálfsögðu
óska eftir aðild að stjóm í samræmi
við hlutafjáreign," segir Eyjólfur.
Hann segir að forsvarsmenn
Orca S.A. muni á næstunni ræða við
aðra stóra hluthafa í FBA og síðan
verði haldinn hluthafafundur í
framhaldi af þessum breytingum á
eignarhaldi. Verði hluthafafundur-
inn haldinn innan tilskilins frests og
verði erindi þar að lútandi beint tO
stjómarformanns FBA.
Hann segir engin önnur umsvif
ráðgerð af hálfu Orca S.A. að svo
stöddu. „Þessir hluthafahópar koma
úr mjög ólíkum áttum, ólíkum geir-
um þjóðfélagsins og ólíkum atvinnu-
greinum og hafa komið þarna sam-
an i þeim eina tilgangi að standa
saman að þessari fjárfestingu í
FBA og vexti og viðgangi þess fyr-
irtækis."
Með Bjarna Armannssyni, for-
stjóra FBA, vora á fundinum fram-
kvæmdastjórar FBA. „Við hittumst
og ræddum fjárfestingu þeirra,
væntanlegan hluthafafund og breyt-
ingar á stjóm FBA,“ sagði Bjarni í
samtali við Morgunblaðið. „Við
munum í framhaldinu hittast aftur
og fara yfir stöðuna. Þetta var
óformlegur fundur þar sem við
spjölluðum um málið. Ég á von á þvi
að þessir hluthafar kalli eftir hlut-
hafafundi, en tímasetningar vora
ekki ræddar," segir Bjami.
Bjarni sagðist ekki vilja ræða
hvenær þessir aðilar hittust aftur.
Það hefði ekki verið rætt hverjir
yrðu í stjóm FBA fyrir hönd Orca
S.A.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra,
sem var aðalræðumaður á Hólahátíð
á sunnudag, sagði að kristnir menn
gætu kinnroðalaust horft þúsund ár
um öxl til hinnar stóru stundar á
Þingvöllum og að þeir muni fagna og
þakka af heilum hug um landið allt.
Fyrstu skrefin hafi þegar verið stig-
in í ýmsum prófastsdæmum. I síðari
hluta ræðu sinnar sagði forsætisráð-
herra meðal annars:
„Kannski getum við nútímamenn-
irnir treyst því að síðari kynslóðir
muni aðeins færa í sínar bækur það
skásta af verkum okkar, og tefja það
sér til tekna og upphefðar á ókomn-
um öldum. Það gera þeir verði þeir
SVO sem oftsinnis áður skartaði
Hjaltadalur sínu fegursta, í sól og
birtu þegar fjölmargir gestir
flykktust „heim til Hóla“, til þess
að taka þátt í árlegri Hólahátíð.
Hátíðin hófst með guðsþjónustu í
dómkirkjunni, þar sem dr. Sigur-
björn Einarsson biskup prédikaði,
en fyrir altari þjónuðu sr. Sigríður
Guðmarsdóttir og sr. Sigurður
Grétar Sigurðsson. Organisti var
Rögnvaldur Valbergsson, en Gerð-
ur Bolladóttir og Jóhann Már Jó-
hannsson voru forsöngvarar.
Að guðsþjónustunni lokinni þágu
líkir okkur. En það gefur okkur til-
efni til að keppa að því að eitthvað
veralegt megi færa í dálkinn tekna
megin þegar 21. öldin verður síðar
gerð upp. Óöld getur staðið í eina
kvöldstund í miðbænum og er öllum
gleymd upp frá því. Gullöld getur
ýmist verið það góða skeið þegar
skrifaðar vora ódauðlegar sögur eða
það augnablik þegar af munni heið-
ingjans hljómaði setningin um berg-
kastalann á Þingvöllum: „Það mun
verða satt, er vér slítum í sundur
lögin, að vér munum slíta og frið-
inn.“ Og gullöld getur sú öld sem
senn kveður einnig kallast því í
hennar tíð hafa efnaleg gæði og hag-
ur alls almennings batnað með ótrú-
legum hætti, og eru engin dæmi um
slíkar framfarir í annan tíma.
Er það ekki tilhlökkunar- og von-
arefni, að næsta öld verði talin jafn-
vel enn fremri þeirri sem nú kveð-
ur? Höfum við betra mark að setja
okkur en það að gera okkar besta
hvert og eitt, svo þannig megi fara?
Við ráðum vissulega ekki ein för eða
úrslitum um hvernig til muni takast.
En við getum þó lagt okkar af mörk-
um. Það sýna mannanna verk á ný-
liðnum hundrað áram.
Á allra síðustu árum aldarinnar
höfum við fært okkar litla þjóðfélag
í alveg nýtt horf. Rétt er að viður-
kenna að það gerðum við sumpart
því við áttum ekki annars kost. Við
höfum sett okkur þau markmið að
lifa og hrærast í samfélagi þjóðanna,
taka hiklaust þátt í þeirri hörðu
samkeppni sem veröldin býður upp
á. En við höfum jafnframt mörg
hvert strengt þess heit að stuðla að
því að þjóðin týni ekki sjálfri sér í
öllu því ölduróti og ólgusjó og þeim
hvassa vindi sem nú þarf að sigla.
En það er meira en að segja það.
Fljótt getur mál snúist svo á hinn
verri veg, að ekki verði við ráðið,
Fjölmargir
gestir á
Hólahátíð
gestir veitingar í Bændaskólanum,
en siðan hófst hátíðarsamkoma í
kirkjunni.
Sr. Bolli Gústavsson vígslubisk-
up bauð gesti velkomna, og kynnti
dagskrá, en siðan kynntu og fluttu
fari menn fram með glannaskap og
óhófi.
í heimi þar sem allt er falt og
hvorki er skeytt um skömm eða
heiður, er jafnvel hið besta og
skærasta í arfi lítillar þjóðar naum-
ast talið þess virði að færa til bókar.
Mörgum íslendingum virðist nú orð-
ið finnast þjóð, tunga og föðurland
fyrirferðarmiklir pinklar og tæpast
þess virði að borga fyrir þá yfirvigt í
reisum fólks og fjármuna um veröld-
ina. Vissulega eram við ekki hrædd
við átök á alþjóðlegum markaði. Við
höfum sýnt að við stöndumst vel all-
an samanburð við aðrar þjóðir og
heiðarleg samkeppni er okkur að
skapi. En okkur er engin nauðsyn
þess að fórna öllu sem íslenskt er né
heldur að færa síðasta orðið í okkar
málum í annarra hendur.
Fargi var létt af frjálshuga fólki
um allan heim þegar múrinn féll og
kommúnisminn flaut yfir hranið
steypuvirkið og fjaraði út. En það
mikla land Rússland með öllum sín-
um náttúrukynstrum og kostum fær
ekki notið sín, því stjórnkerfið og
efnahagslífið nær ekki að þroskast
norskir listamenn, Reidun Horvei
söngkona og Einar Mjölsnes fiðlu-
leikari tónlist frá heimalandi sínu.
Þessu næst flutti Davíð Oddsson
forsætisráðherra hátíðarræðu.
Að lokinni ræðu forsætisráð-
herra fluttu norsku listamennirnir
nokkur lög, en síðan flutti sr. Bolli
Gústavsson lokaorð, þakkaði öllum
þeim sem lagt höfðu hönd að því að
gera Hólahátíð að veruleika, sér-
staklega biskupi, forsætisráðherra
og norskum listamönnum. Bað
hann siðan gestum Guðs blessunar
og sleit hátíðinni.
og virðist um þessar mundir einkum
lúta lögmálum glæpalýðs og eitur-
lyfjarbaróna. Blóðpeningar þeirra
flæða um Evrópu og skapa þar ótta
og öryggisleysi. Menn sem engar
leikreglur virða, leitast við að þvo
illa fengið fé sitt í fjármálakerfiim
þjóðanna. Margir stjórnmálaforingj-
ar í Evrópu telja þetta mestu ógnun
sem nú sé við að eiga á Vesturlönd-
um.
Við íslendingar, sem svo nýlega
höfum opnað okkar hagkerfi, þurf-
um að gæta þess að verða ekki
leiksoppur slíkra afla. Efnahags-
kerfið verður að vera opið og einfalt
en jafnframt gagnsætt og byggt á
trausti. Lykilorðið er traust. A Þing-
völlum treystu menn sáttarorðum
Þorgeirs Ljósvetningagoða, vits-
munum hans og velvilja. I þúsund ár
hafa menn sett traust sitt á kærleik
Krists í þessu landi. í því trausti
munum við ganga á vit nýrrar aldar,
sem einstaklingar, sem fjölskyldur,
sem þjóð - íslensk þjóð í eigin landi,
með þeim ásetningi að verða Guði til
ánægju og dýrðar á afmælisári og
upp frá því.
Þjónusta númer eítt!
Til sölu VW Golf GL 1600.
Nýskráður 29. ágúst 1997.
Ekinn 30.000 km, 5 dyra,
grænn, sjálfskiptur.
Asett verð kr. 1.390.000
Nánari uppl. hjá Bílaþingi
Heklu í síma 569 5500.
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-18
laugardagar kl. 12-16
BÍLAÞING ÍEKLU
Nvmo' citf- : no'foth'M
Laugavegi 174,105 Reykjavík, sími 569-5500
vjvjvj Ij11;11111r)rj Iti • v/y/v/.bilathmq r. - v/v/v/ hilalhmfj n
Forsætisráðherra segir þjóðfélagið hafa verið fært í nýtt horf
Efnahags-
kerfíð verður
að vera opið
Morgunblaðið/Bjöm Björnsson
Davíð Oddsson forsætisráðherra flytur ræðu sína í Hóladómkirkju.