Morgunblaðið - 17.08.1999, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Oskað eftir sjóprófum vegna báts sem varð
vólarvana með 20 manns um borð
„Rak stjórnlaust í
átt að klettunum“
HÖRÐUR Erlingsson, eigandi
Ferðaskrifstofu Harðar Erlings-
sonar, hefur ákveðið að óska eftir
við sýslumann í Vík í Mýrdal að
fram fari sjópróf vegna atviks sem
varð sl. föstudag fýrir utan Vík.
Þar varð bátur með 20 manns um
borð vélarvana og rak í átt að
Reynisdröngum, þegar tókst að
stöðva för hans. Ferðaskrifstofa
Harðar skipulagði ferðina. Gísli
Reynisson, rekstraraðili hjólabát-
anna í Vík, segir fólkið ekki hafa
verið í hættu. Hjólabátarnir voru
tveir í förum og tókst að koma taug
yfir í vélarvana bátinn og draga
hann í land.
„Bátinn rak stjómlaust í átt að
klettunum og var mjög tvísýnt á
tímabili. Ég lít svo á að þetta fólk
hafi verið í hættu og hef þegar gef-
ið skýrslu þar að lútandi til sýslu-
mannsins í Vík og mun óska eftir
sjóprófum í kjölfarið. Fólk var
orðið hrætt þegar á leið. Ég geri
miklar athugasemdir við öryggis-
mál á bátnum," segir Hörður.
Fólkið ekki
í hættu, segir
skipstjórinn
„Þarna var greinilega margs
konar viðvaningsháttur á ferð og
það sem ég gagnrýni mest er að
pilturinn sem stýrði bátnum hlýddi
ekki beiðni minni um að kalla strax
á hjálp þegar ég sá að stefndi í
óefni.“
Óhugur í fólki
Hann segir að flestir farþegar
hafi verið í nýlegum flotgöllum en
ekki fengið neina leiðsögn um
hvemig bregðast skyldi við ef
hætta væri á ferðum. Ékki vora þó
allir gallamir nýir af nálinni. „Ég
lenti í eldri galla ásamt nokkram
öðram um borð í bátnum sem var í
lagi, og þegar ég var kominn í land
reyndi ég að kippa í kolsýru-
sprauturnar sem eiga að blása
gallann upp. Enginn þeirra fimm
sem ég reyndi virkaði," segir
Hörður.
Gísh Reynisson, rekstraraðili
hjólabátanna, segir að farið sé eftir
ítrastu öryggiskröfum í útgerð bát-
anna. „Ég sakna þess að heyra ekk-
ert í Herði um þetta mál. En ég
veit ekki alveg hvað hann er að
fara. Það era björgunarbátar í
hjólabátunum fyrir um 90 manns
og það vora 20 manns í hvoram bát.
Við vorum reyndar nærri klettum
en það er eðli þessara ferða. Það
var nánast engin hætta á ferðum
íyrir fólkið en við hefðum getað
skemmt bátinn og í versta falli
misst hann niður. Það var brim-
laust með öllu en aðeins vindkvika.
Gallinn við þessa báta er að þeir
reka hratt undan vindi enda era
þeir flatbotna,“ segir Gísli. Hann
segir of mikið úr þessu máli gert.
Gísli kveðst hafa skilað þeim 20
farþegum í land sem vora í hans
bát, sótt hina 20 í vélarvana bátinn
og skilað þeim í land áður en hann
loks tók bátinn í tog.
I
% ■
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Nokkuð á annað hundrað manns sátu fundinn á Reyðarfirði.
Fundur um mat á áhrifum álvers
Mestur áhugi á
mengunarvörnum
MENGUNARVARNIR brunnu
einna heitast á fundarmönnum á
opnum kynningarfundi sem haldinn
var í gærkvöldi um mat á umhverf-
isáhrifum álversins sem fyrirhugað
er að rísi í Reyðarfirði. Að fundin-
um sem fram fór í Félagslundi í
Reyðarfirði stóðu STAR, starfshóp-
ur um álver í Reyðarfirði, og HVH,
hópur ráðgjafa.frá verkfræðistofun-
um Hönnun og ráðgjöf ehf., VST hf.
og Hönnun hf.
HVH-ráðgjafahópurinn vinnur
nú að gerð skýrslu um mat á um-
hverfisáhrifum vegna hins fyrir-
hugaða álvers og var fundurinn lið-
ur í þeirri vinnu. Fluttar voru
framsögur um aðferðafræði og ferli
við mat á umhverfisáhrifum, fyrir-
komulag áiversins, uppbyggingu
matsskýrslunnar og helstu niður-
stöður umfangsmikilla rannsókna
sem gerðar hafa verið vegna um-
hverfismatsins.
Að sögn Valgeirs Kjartanssonar,
ritstjóra matsskýrslunnar, er hún l!
langt komin og fyrirhugað að leggja
hana fyrir Skipulagsstofnun í sept-
ember. Fjölmargir sérfræðingar
sátu fundinn og svöruðu fyrirspurn-
um fundargesta að loknum
framsöguræðum.
Iðnaðarráðherra skoðaði Eyjabakka
Afskrifar ekki
þriðjung virkj-
unarmöguleika
Hallormsstað. Morgunblaðið.
„AFSTAÐA mín hefur ekki breyst.
Ég tel að þetta sé tækifæri til að
nýta orkuna,“ sagði Finnur Ingólfs-
son iðnaðarráðherra eftir skoðunar-
ferð um fyrirhugað virlqanasvæði
Fljótsdalsvirkjunar þar sem m.a.
var farið um Eyjabakka. Finnur
sagði að virkjun Jökulsár í Fljótsdal
væri besti virkjanakosturinn á
svæðinu út frá nátturvemdarsjón-
armiðum og segist ekki tilbúinn að
afskrifa þriðjung af nýtanlegu
vatnsafli í landinu.
Orkustofnun stendur fyrir
tveggja daga kynnisferð um virkj:
anasvæðin norðan Vatnajökuls. í
ferðinni era starfsmenn og stjóm
Orkustofnunar, embættismenn úr
iðnaðarráðuneytinu og fulltrúar
fjölmiðla. í gær var farið að Snæ-
felli að vestan og gengið niður á
Eyjabakka og þaðan út eftir austan
Snæfells og út á Snæfellsnes. í dag
verða virkjanasvæðin við Kára-
hnúka og í Amardal skoðuð.
Finnur Ingólfsson iðnað-
arráðherra lagði á það áherslu þeg-
ar hann var spurður um upplifun
sína að ekki skipti höfuðmáli hvaða
skoðun hann hefði á þessu svæði.
„Við verðum að horfa á málið út frá
einhvers konar mati á því hvemig
við getum sætt sjónarmið milli
mannsins, nýtingarinnar og
náttúrunnar. Ég segi: Þama er
tækifæri til að nýta Jökulsá í Fljóts-
dal og bera þá þann virkjunarkost
saman við aðra á svæðinu, Kára-
Jolaferð til Kanari
1
ilj
Vift erum byrjuð að bóka í hina
sívinsælu jólaferð til Kanarí.
Ekki missa af tækifæri
á sól og sælu í vetur.
í fyrra komust færri
með en vildu!
Samvinnuferðir
Landsýn
Á verði fyrir þig!
Morgunblaðið/Golli
Stiklað yfir Þjófagilsá við Snæfellsháls. Finnur Ingólfsson aðstoðar hér konu sína, Kristínu Vigfúsdóttur.
Skrifstofubygging ÍS í Laugar-
dalnum auglýst til sölu
Liður í hagræð-
ingu rekstrar IS
hnúka og Arnardal. í þessum þrem-
ur virkjunum felast 30% af nýtan-
legu vatnsafli í landinu. Ef ekki er
hægt að virkja í Fljótsdal myndi
klárlega þurfa að afskrifa öll virkj-
anaáform hér á þessu svæði eða
nærri þriðjung af öllu nýtanlegu
vatnsafli í landinu," sagði Finnur.
Stjörnustríð
slær íslensk
aðsóknarmet
YFIR 16.500 manns sáu nýju
Stjömustríðsmyndina um
helgina, en hún var framsýnd
hér á landi á föstudag. Myndin
var sýnd samtímis í sex kvik-
myndahúsum og bætti opnun-
ar- og helgarmet Independ-
ence Day frá 1996, segir í
fréttatilkynningu.
Tekjur af sýningum á
Stjömustríði námu tíu milljón-
um um helgina og mun það.
vera nýtt íslandsmet. Á
sunnudag vora sýningargestir
6.200 og er hann þar með
orðinn aðsóknarmesti dagur í
kvikmyndahúsum á íslandi.
ÍSLENSKAR sjávarafurðir setja
400 milljónir króna á skrifstofubygg-
ingu fyrii’tækisins við Sigtún í Laug-
ardalnum, sem Fasteignamarkaður-
inn auglýsti til sölu í sunnudagsblaði
Morgunblaðsins. Finnbogi Jónsson,
forstjóri ÍS, segir að þegar hafi
borist fyrirspurnir varðandi eignina
en salan er liður í því að minnka fjár-
bindingu í eignum og auka hag-
ræðingu í rekstri.
Skömmu eftir að Finnbogi tók við
stjórninni í vor tilkynnti hann breyt-
ingar á rekstri og skipulagi fyrirtæk-
isins en rekstrartap IS 1997 og 1998
nam tæpum milljarði og eigið fé
minnkaði um tæplega 1,2 milljarða
króna. I sumar var síðan húsnæði
Vörahúss ÍS við Holtabakka og
húsnæði Þróunarseturs ÍS á Kirkju-
sandi selt auk þess sem umbúðala-
ger var seldur en alls var söluverð
eignanna á fjórða hundrað milljónir,
að sögn Finnboga.
Umrætt húsnæði við Sigtún er
samtals um 2.500 fermetrar og segir
Finnbogi að það sé meira en helm-
ingi of stórt fyrir fyrirtækið. „Salan
er liður í því að minnka fjárbindingu
okkar í öðra en því sem tengist beinu
markaðsstarfi."
Að sögn Finnboga er ekki gert ráð
fyrir breytingum á starfsmannahaldi
vegna fyrirhugaðarar sölu skrif-
stofubyggingarinnar. Niðurskurður
hefði orðið vegna breytinga fyrr •
sumar og fyrir lægi að starfsfólki
fækkaði þegar rekstur Vöruhússins
færi úr höndum ÍS um mánaðamót-
in. „Salan er einfaldlega liður í því að
reyna að leita allra leiða til að hag-
ræða í rekstrinum.“