Morgunblaðið - 17.08.1999, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Einar Falur Morgunblaðið/Kristján
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, útskýrir virkjunarframkvæmdir fyrir gestum í Hrauneyja- Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnarformaður Landsvirkjunar, var í
fossstöð á upphleyptu landakorti af svæðinu. móttökunefndinni í Kröfluvirkjun.
Opið hús Landsvirkjunar um helgina
Nánast ör-
tröð um tíma
MIKILL fjöldi manna þáði boð Landsvirkj-
unar um helgina og heimsótti „opin hús“ við
Hrauneyjafoss, Blöndu, Laxá í Aðaldal og
Kröflu sem voru til sýnis. Að sögn Þorsteins
Hilmarssonar, upplýsingafulltrúa LV, var
mestur fjöldinn í Hrauneyjafossvirkjun eða
um 3.000 en alls er talið að um 5.000 manns
hafí lagt land undir fót og nýtt sér tækifærið
um helgina.
Tíu forsvarsmenn Landsvirkjunar voru til
staðar á stöðvunum fjórum og gafst gestum
kostur á að ræða við þá. Flestir heimsóttu
Hrauneyjafoss, þar sem Friðrik Sophusson
forstjóri svaraði fyrirspurnum, og var þar
nánast örtröð um tíma, að sögn Þorsteins.
„Það komu þangað um 3.000 manns. f
Blöndu komu um þúsund, fímm hundruð í
Laxá og fimm hundruð manns í Kröflu.
Maður hafði fregnir af fólki sem heimsótti
fleiri en eina stöð; voru í Hrauneyjafossi
fyrri daginn, fóru Sprengisand og litu inn í
Blöndu daginn eftir. Fólk var spennt að
skoða og kunni vel að meta tækifærið sem
gafst til að spjalla við forsvarsmenn fyrir-
tækisins um hitt og þetta sem varðar starf-
semi fyrirtækisins," segir Þorsteinn.
Rafbfll við Blöndu
Við Blöndu var verið að prófa rafbíl af
Peugeot-gerð í eigu fyrirtækisins, að sögn
SÉÐ yfir vélasal Hrauneyjafossvirkjunar,
yfir stærstu vélasamstæðu í landinu.
Þorsteins. „Við höfum notað hann í kynning-
arskyni og til þess að minna á að rafmagnið
er umhverfisvænt og hagkvæmur orku-
gjafi.“
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, stjórnar-
formaður Landsvirkjunar, var í móttöku-
nefndinni í Kröfluvirkjun ásamt íleiri
starfsmönnum fyrirtækisins og hann var
mjög ánægður með hvernig til tókst. „Til-
gangurinn er að vekja athygli á starfsemi
Landsvirkjunar og mikilvægi hennar fyrir
land og þjóð.“
Yfirskrift dagskrárinnar var „Lands-
virkjun í réttu ljósi“ til að minna á „þá stað-
reynd sem kann að hafa gleymst í um-
ræðunni um virkjanir og umhverfismál að
undanförnu", eins og segir orðrétt í frétta-
tilkynningu LV, „að rafmagn er mun um-
hverfisvænni aðferð en flestar aðrar þjóðir
geta notfært sér.“
I fréttatilkynningu Landsvirkjunar kemur
fram að fyrirtækið stendur nú fyrir átaki til
að efla samstarf við „nágranna sína um um-
hverfismál og ferðamennsku" í þeim tilgangi
að gera svæðin við virkjanir þess enn
vinsælli en þau eru nú þegar.
Fram kemur að gestir eru velkomnir í
stöðvar Landsvirkjunar flesta daga þar sem
því verður við komið og er það auglýst við
aðkomuna að þeim. Opið verður alla eftir-
miðdaga fram á haust á ofannefndum fjórum
stöðum.
Bunan úr berginu er forvitnileg fyrir unga buslara.
Morgunblaðið/Arnaldur
Dælan látin ganga fyrir fólk á öllum aldri.
Vatnshlaup og bunandi
bjargvið Gvendarbrunna
TALIÐ er að á þriðja þúsund
manns hafi þegið boð Vatns-
veitu Reylyavíkur á „Degi
vatnsins“, sl. laugardag, og
skoðað sig um við Gvendar-
brunna. Margir tóku einnig þátt
í hlaupi sem þreytt var í tilefni
dagsins og jafnframt 90 ára af-
mælis Vatnsveitunnar.
Fjölmargir nýttu sér faekifær-
ið til að skoða stöð Vatnsveitunn-
ar við Gvendarbrunna þar sem
getur að líta safn og upplýsingar
um vatnskerfi borgarinnar, að
sögn Hólmsteins Sigurðssonar
vatnsveitustjóra. „Þama er hægt
að sjá teikningar af lögnum og
aðrar fróðlegar upplýsingar um
hvernig staðið er að verki og
hvernig tæki em notuð.“
Gestir nutu tilsagnar starfs-
manna Vatnsveitunnar í stöðv-
arhúsinu en þar ber margt for-
vitnilegt fyrir augu, ekki síst
fyrir unga viðskiptamenn veit-
unnar; til dæmis rennandi vatns-
krana sem hangir í lausu lofti
og vatnsbunu sem stendur út úr
bjargi.
Góð þátttaka í
H20-hlaupinu
Alls 563 tóku þátt í víðavangs-
hlaupi Vatnsveitunnar sem hald-
ið var í tilefni af 90 ára afmæli
VR. Alfreð Þorsteinsson, for-
maður veitustofnana, ræsti
hlauparana laust eftir hádegi en
hlaupið var eftir skógarstígum í
Heiðmörk í prýðisveðri. Vegna
góðrar þátttöku í þessu fyrsta
viðavangshlaupi sem stofnunin
stendur fyrir er líklegt að haldið
verði annað H20-hlaup að ári.
Allir þátttakendur fengu
verðlaunapening, bol og vatns-
brúsa að gjöf en sigurvegarar í
hverjum flokki bikar að auki.
141 tók þátt f 10 km hlaupi þar
sem keppt var í níu flokkum en
422 Iétu sér nægja 3,5 km
skemmtiskokk. Urslit hlaupsins
em birt á heimasiðu Vatnsveit-
unnar (www.vatn.is).
Dagur vatnsins hefur áður
verið haldinn 4 til 5 sinnum
siðasta áratuginn, að sögn
vatnsveitustjóra. „Þetta hefur
verið mjög jákvæð kynning og
henni verður áreiðanlega haldið
áfram,“ segir Hólmsteinn.