Morgunblaðið - 17.08.1999, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 33
LISTIR
Ný og gömul menning
Fleira en
steingerv-
ingar í boði
Borgarminjaverðir og forstöðumenn minja-
safna á Norðurlöndum ræddu gamla og nýja
--------T-------------------
menningu í Arbæjarsafni. Jóhann Hjálmars-
son þóttist greina ofurlitla togstreitu milli
hins gamla og nýja á málþinginu.
MÁLÞINGIÐ í Árbæjarsafni á
föstudaginn var hluti heimsóknar
norrænna borgarminjavarða og for-
stöðumanna minjasafna hingað og
má segja að tilgangurinn hafí verið
að læra af reynslu menningarhöfuð-
borganna fyrrverandi, Kaupmanna-
hafnar og Stokkhólms. Reykjavík og
Helsingfors verða meðal menning-
arborga árið 2000 og sama ár heldur
Oslóborg upp á þúsund ára afmælið.
Nanna Hermannson frá Stokk-
hólmi lýsti sjónarmiðum sínum,
Leena Arikio-Laine var fulltrúi
Helsingforsborgar, Trond Gjerdi
kom frá Osló og Jörgen Selmer frá
Kaupmannahöfn. Þórunn Sigurðar-
dóttir, stjómandi menningarborgar-
árs Reykjavíkur, gerði grein fyrir
helstu hugmyndum og framkvæmd-
um og Margrét Hallgrímsdóttir
borgarminjavörður var fundarstjóri
og sagði m. a. frá sýningu Árbæjar-
safns, Sögu Reykjavíkur frá býli til
borgar, sem opnuð verður 1. apríl
árið 2000.
Björk og Baldur
Þórunn Sigurðardóttir nefndi
meðal helstu atburða menningar-
ársins í Reykjavík Raddir Evrópu á
gamlárskvöldi 1999 þegar Björk
syngur með evrópskum kórum
menningarhöfuðborganna allra, tíu
ungra söngvara frá hverju landi, í
Perlunni og síðan aftur 26. ágúst
2000 í Laugardalshöll. Eistlending-
ui-inn Arvo Párt mun semja tónlist-
ina en stjómandi verður Þorgerður
Ingólfsdóttir.
Annan stórviðburð nefndi Þór-
unn, heimsfrumflutning Baldurs
eftir Jón Leifs í Laugardalshöll 18.
ágúst þar sem innlendir og erlendir
stjórnendur láta að sér kveða með
Finnann Leif Segerstam í farar-
broddi og landa hans Jorma
Uotinen og að auki Hörð Áskelsson.
Baldur verður einnig fluttur í
Björgvin og Helsingfors, en verk-
efnið fékk hæsta framlag menning-
arársins.
Morgunblaðið/Arnaldur Halldórsson
Borgarminjaverðir leggja á ráðin í Árbæjarsafni. Trond Gjerdi,
Nanna Hermannson, Jörgen Selmer og Leena Arikio-Laine.
Þórunn Sigurðarddttir
Sitt af hverju
Ymislegt af því sem kom fram í
erindum borgarminjavarðanna var
afar fróðlegt en gildi þess er líklega
einkum bundið við kollega þeiiTa og
vitanlega stjómendur menningar-
borga. Nanna Hermannson gat um
umræðu um fjárframlög og þá helst
að frjálsir hópar hafí talið að stofn-
Margrét Hallgrímsdóttir
anirnar gætu séð um sig sjálfar.
Einnig þau sjónarmið að stofnan-
imar þyrftu að gæta þess að erindi
þeirra til samtímans væru ekki of
aldurhnigin. Hún taldi að margar
uppákomur menningarhátíðarinnar
í Stokkhólmi, ekki síst þær sem
vora í djarfara lagi, hefðu náð til al-
mennings, en söfnin hefðbundnu
hefðu líka verið vel sótt. Heyrst hafi
raddir um að of mikil áhersla hefði
verið lögð á menninguna sem slíka,
tækni og iðnaður ættu líka rétt á
sér.
Leena Arikio-Laine sagði að
Helsingfors væri 450 ára og inn-
fæddir Helsingforsbúar væru 40%.
Hún nefndi sem vel heppnaða hug-
mynd að láta fólk í gömlum búning-
um, fulltrúa liðinna tíma, ávarpa
vegfarendur og túlka gengnar kyn-
slóðir með því að fara í hlutverk
þeirra. Af þessari hugmynd um lif-
andi persónur hreifst Margrét Hall-
grímsdóttir svo að kannski eigum
við von á einhverju slíku hér heima.
„Ósló hefur aldrei verið stofnuð,
hún vex bara,“ sagði Trond Gjerdi
og bætti við að sagnfræðingar hafi
ekki mótmælt þeirri ákvörðun að
telja borgina 1000 ára. Ekki verður
lögð áhersla á söguna í Ósló heldur
samtímann, m. a. ílutning fólks utan
af landi til höfuðborgarinnar og
einnig innflytjendur. Samsetning
Óslóarbúa yrði í forgrunni.
Menningarár örva
I Kaupmannahöfn 1996 var öll
áhersla lögð á samtímann, það sem
var að gerast, að sögn Jörgens Sel-
mer. Hið alþjóðlega var Hafnarbú-
um mikilvægt. Deilt var hart um
peninga og framlög. Vandamálið
var kannski of viðamikil dagskrá, en
hún bætti þrátt fyrir allt ímynd
borgarinnar og nú era menn já-
kvæðari en áður að halda áfram en í
öðram anda. Selmer sagði að fjöl-
miðlarnir hefðu í fyrstu verið mjög
gagnrýnir, en þegar erlendir blaða-
menn fóra að hrósa ýmsum atriðum
hefðu neikvæðir danskir skriffínnar
snúið við blaðinu.
Ferðamannastraumur til Kaup-
mannahafnar jókst í kjölfar menn-
ingarársins. Nú er lagt kapp á að
halda veglega upp á samstarf Kaup-
mannahafnar og Málmeyjar á
næsta ári.
Borgarminjaverðir þurfa vitan-
lega að gæta þess að sýningar séu í
takt við tímann. Eftir umræðum í
Árbæ að dæma er ástæðulaust að
óttast að sýningarnar verði einungis
í formi steingervinga. Margt athygl-
isvert er framundan.
Dimmur drungi,
döpur dramatík
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Det Lille Operakor heiðrar minningu Stefáns Islandi með söng í Sauð-
árkrókskirkjugarði.
Det Lille Operakor
Heiðruðu minningu
Stefáns Islandi
TONLIST
Kirkjiihvoll
KAMMERTÓNLEIKAR Á
KLAUSTRI
Jón Ásgeirsson: 4 lög úr Svartálfa-
dansi; Saint-Saens: Klarínettsónata
Op. 167; Duparc: 4 sönglög; Chaus-
son: Chanson Perpetuelle Op. 37;
Fauré: Píanókvartett í c Op. 15. Sól-
rún Bragadóttir, sópran; Gerrit
Schuil, píanó; Guðni Franzson, klar-
ínett; Edda Erlendsdóttir, pianó; Sig-
rún Eðvaldsdóttir og Sigurlaug Eð-
valdsdóttir, fíðlur; Helga Þórarins-
dóttir, víóla; Luc Tooten, selló. Laug-
ardaginn 14. ágúst kl. 17.
AÐRIR tónleikar Kammertón-
leika á Kirkjubæjarklaustri 1999
hófust um fímmleytið á laugardag-
inn var við ekki minni aðsókn en
daginn áður. Fyrst á dagskrá voru
4 lög úr bálki Jóns Ásgeirssonar
við Svartálfadans Stefáns Harðar
Grímssonar. Líkt og fyrri daginn
lét tónleikaskráin duga að láta tón-
listina tala sínu máli, en stílg-
leggstu áheyrendur hafa væntan-
lega fundið á sér að lögin hlytu að
vera fremur ný af nálinni.
Sólrún Bragadóttir og Gerrit
Schuil fluttu fyrst Þegar undir
skörðum mána, þar sem hlustand-
inn veitti aðallega tveim þáttum í
píanóleiknum eftirtekt, „skörðótt-
um“ hljómum hægri handar og
„undirlátum" fallandi ferundum í
vinstri, sem reyndust gegnum-
gangandi í öllu laginu. Eins og í
eftirfai-andi lögum Jóns virtist hér
kveða við nokkuð nýstárlegan og
að sumu leyti framsæknari tón en
áður, og er skondið til þess að vita,
að meðan hörðustu framúrherjar
gerast nú öðrum þræði háróman-
tískir, verða arftakar þjóðlegrar
geymdar afstraktari á sama tíma.
Hin dimma og allt að því drunga-
lega dramatík í Stefánslögum Jóns
virtist henta vel svartfránni
sópranrödd Sólrúnar, og gerðu þau
Gerrit öllum frábær skil, með há-
marki í syrpulok í martraðar-
þrungnum Svartálfadansinum.
Smávegis bar á sléttri raddbeit-
ingu í Köldvísunum næst á undan,
og mætti að skaðlausu heyrast
meira af slíku í annars fremur ein-
litri ljóðatúlkun Sólrúnar.
Ekki birti til, þegar Guðni
Franzson kynnti næsta atriði með
stuttri hugleiðingu um hvað mörg
tónskáld hefðu skrifað fyrir klar-
ínett aftast á ævikvöldi - Mozart,
Brahms, Poulenc o.s.frv. Sama gilti
um Saint-Saéns, er samdi Sónötu
sína Op. 167 á dánarárinu 1921;
fremur þunglyndislegt verk, er
varla náði að bregða á sólarglætu
að ráði í stuttu scherzói. Kröftug
beiting neðsta chalumeau-klar-
ínettsviðsins við nærri nakið píanó-
undirspil í Lentóinu undirstrikaði
enn einmanaleika verksins, og fjar-
aði loks dapurlega út á fallegu pí-
anissímói í angurkyrrum lokaþætt-
inum. Þeir Guðni léku margt mjög
vel, en ekki var samt alveg laust
við að heyra mætti hér og þar, líkt
og í Mozart-kvintettinum kvöldið
áður, vísbendingu um að ekki sé
seinna vænna að fremsti framúr-
stefnuklarínettleikari landsins fari
að rifja upp gömlu meistarana eftir
langvarandi útlegð í tónlist kom-
andi alda.
Áfram hélt svartnættið í fjórum
ástríðufullum lögum Duparcs um
andhverfu ástarinnar í túlkun Sól-.
rúnar og Gerrits. Fátt var hér fyrir
neðan forte, og lentu höfundur og
túlkendur því fljótt í sjálfheldu, þar
sem forsenda sannrar dramatíkur
- veikleikinn og stigmögnun hans -
nýttist ekki sem skyldi. Þótt ekki
skorti glæsileg tilþrif, urðu lögin
óhjákvæmilega tilbreytingarlaus
og langdregin.
Enn var slegið á dapra strengi
eftir hlé með stuttu verki en fal-
legu eftir Chausson, Chanson
Perpetuelle Op. 37 fyrir sópran, pí-
anó og strengjakvartett í skínandi
góðum flutningi efsttaldra sex-
menninga með Eddu Erlendsdótt-
ur við píanóið. Loks fluttu þau
Edda, Sigiún, Helga og Tooten lík-
lega vinsælasta kammerverk Ga-
bríels Fauré, Píanókvartettinn í c-
moll Op. 15. Það er kannski ekki
sízt innþáttunum að þakka, glettn-
islegu scherzói með snörpum
í-ytmískum tilþrifum, og ægifalleg-
um Adagio-þætti, sem ber í sér
Mozart-kennda depurð undir niðri
við pottþétta Brahmslega útfærslu
efnisþátta, og kom allt mjög fallega
fram í vel samstilltum hópleik.
Útþættirnir tókust aftur á móti
ekki eins vel. Aðallega fyrir þá sök
að sterkustu staðir urðu of sterkir
- a.m.k. fyrir hljómburð salarins,
sem kann að hafa grófgert útkom-
una meir en flytjendur náðu sjálfir
að heyra. Píanóið fór þar í einn
graut og hreif annað með sér líkt
og malandi hringiða. Það var synd,
því ekki virtist skorta innlifun og
spilagleði, en hljómvistaraðstæður
þar sem spilendur sitja í þröngum
hnapp á litlu sviði, virðast því eftir
þessu að dæma kalla á ákveðna
varúð.
Ríkarður Ö. Pálsson
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
Det Lille Operakor frá Konunglega
leikhúsinu í Kaupmannahöfn héldu
tónleika í Sauðárkrókskirkju í tón-
leikaferð sinni hingað til lands.
Kórinn þurfti að syngja fjölmörg
aukalög og í lokin risu gestir úr
sætum og þökkuðu listamönnunum
með langvinnu lófataki. Fyrr um
daginn mátti segja að skini við við
sólu Skagafjörður þegar Óperukór-
inn fór í Sauðárkrókskirkjugarð að
legstað Stefáns íslandi Guðmunds-
sonar og heiðraði með söng minn-
ingu þessa ástsæla listamanns sem
um árabil var fastráðinn söngvari
við Konunglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn. Var fjörðurinn baðað-
ur sól og mátti segja að allt leggð-
ist á eitt með að gera þessa stund
bæði fagra og eftirminnilega.
Félagarnir í Óperukórnum komu
til Islands á vegum danska sendi-
ráðsins í Reykjavík en það var
Ræðuklúbbur Sauðárkróks í sam-
vinnu við Kirkjukór staðarins sem
annaðist móttöku gestanna sem
dvöldu í Skagafírði í fjóra daga,
brugðu sér meðal annars á hest-
bak, fóru í Drangeyjarsiglingu og
skoðuðu héraðið undir leiðsögn
heimamanna.
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433