Morgunblaðið - 17.08.1999, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999 49
UMRÆÐAN
Skellir í hurðum
AÐALSTEINN Ingólfsson hefur
gerst krossfari. Ekki er vitað hvort
hann hefur fundið ki'ossferðina
einu og sönnu, en í bili virðist hann
láta sér nægja að losa hinn mennt-
aða heim við Einar Hákonarson.
Hefur hann þar væntanlega eitt-
hvað að sýsla. Ekki er vitað til þess
að hann hafi til þess fullmakt, en
hann er tekinn til við að rétta hlut
listfræðinga gegn fólsku lista-
manna. Ákafur og baráttufús flaðr-
ar hann jafnvel upp um Selmu sál-
ugu og Björn Th. Ekki er enn vitað
hvað listfræðungum finnst um
þessa liðveislu. Einar Hák er skap-
stór maður og satt segir Aðal-
steinn, hann hefur skellt hurðum.
En hversu oft hefur hurðum verið
skellt á Aðalstein og hverjir hafa
gert það? Listamenn hefðu eflaust
margir viljað það en ekki haft að-
stöðu eða tækifæri til þess. Og þá
vfloir söguni að kollegum Aðal-
steins. í þeim selskap mun honum
lengi hafa verið núið um nasir að
menntun hans væri ekki upp á
marga fiska, að listsögu hafi hann
einungis tekið sem aukafag. Dokt-
orar eru ekld líklegir til að mis-
kunna sig yfir gaggó-mann í faginu.
Ljótt er ef satt er og hart í öðru
eins kjaftafagi að hafa ekki einu
sinni fullgild próf. Hver skellti
hurðum þegai’ hann fór frá Kjar-
valsstöðum? Hver stuggaði honum
út fyrir dyr í Listasafni Islands?
Hann ætti kannski að endurskoða
krossferð sína og snúa sér að list-
fræðingum. Fyrr á öldinni auglýstu
menn í blöðum, að þeir tækju að sér
að skrifa minningargreinar. Núna
væri kannski ekki svo fráleitt að fá
fagmenn í þann bransa. Aðalsteinn
gæti auglýst: Penni til leigu, tek að
mér að skrifa hvað sem er um
hvem sem er, sérgrein upphafnir
formálar. Og nú er hann aftur á
byrjunarreit, dottinn niður á síður
Dagblaðsins. Hvers vegna er þetta
fyrirsagna-, bfla- og fótboltablað að
eyða púðri sínu á menningu? Það
mætti annars sem hjálp í viðlögum
gauka að þeim heilræði. Þeir gætu
komið sér upp sjálfsölum og merkt
þá myndlist, bókmenntir o.s.frv.
Þegar vantar myndlistargagnrýni
skal ýta á myndlistartakka og þá
kemur út valkyrja í naumhyggju-
herklæðum með tíu boðorð að
vopni. Hún syngur svo í belkantó
konseptlagið tíu sinnum: Ég er á
móti málverki, ég er á móti mál-
verki, fram á efsta dag og þá lætur
málverkið vonandi undan.
Hvar skyldi Aðalsteinn annars
ætla að bera niður næst? Það skyldi
þó aldrei vera listasafnið á Selfossi.
Vonandi eru hurðir þar. í Miðbæn-
um hefur verið sett upp víggirðing,
gaddavír sem strengdur hefur verið
frá Nýlistasafni niður í Ingólfsstræti
með viðkomu í lítilli trúboðsstöð í
Víðsjárþætti útvarpsins. Kastala-
herrar og -frúr eru flest orðin all-
Stórhöfða 1", við Gullinbrú, s. 5(>7 48-i-í.
www.flisí'' flis.is • nctfang: flisC'itn.is
Vöggus*UY
Vöggusett
hæruskotin, en halda að þau séu
ennþá „det sidste Skrig". Þau eru
mjög fús til að hleypa inn um hliðin
hvers konar nýliðum og tráskipting-
um, og allir eru drifnir beint í sýn-
ingamaskínuna. Hinir vígðu hafa
ekki hugmynd um að utan gadda-
vírsins sé fjölskrúðugur heimur. Á
íslandi er löngu búið að leggja niður
pólitík. I hennar stað eru komnir
misstórir hópar sem kenna sig við
hitt og þetta, jafnvel hugsjónir. En í
raun eru allir í sama potinu, hags-
munapoti. Þegar Dagsbrúnarkarlar
fóru í verkfall hér áður fyrr voru
þeir ekki í hagsmunapoti. Þeir voru
að berjast fyrir lífi sínu. Þá var póli-
Listir
Listamenn hefðu
eflaust margir viliað
skella hurðum, segir
Rjartan Guðjónsson,
en ekki haft aðstöðu
eða tækifæri til þess.
tík á íslandi. Flestallir voru á móti
þeim og kölluðu kommúnistaskrfl.
Þeir höfðu ekki fyrr haft sigur með
blóði og tárum en allt
var reytt af þeim aftur.
Þeir sem hrópuðu að
þeim fengu svo pró-
sentvís hækkun.
Stundum berast fregn-
ir af klofningi í bæjar-
stjórnum og hrepps-
nefndum, en þar eru
menn oftast markaðir
hver sínum flokki eins
og hrútar. Það er óð-
ara rokið með klofn-
inginn í fjölmiðla, en
það fæst aldrei botn í
um hvað er deilt. Trún-
aðarbrestur hefur um
skeið verið tískuorðið.
Hin raunverulega
ástæða, hagsmunapot,
nefnd frekar en snara
mans húsi. Skyldi annars
Kjartíin
Guðjónsson
er ekki
í hengds
vera raun-
hæft að ætlast til að
menning geti þrifist í
skugga eða slqóli
hreppsnefnda? Mig
grunar að Einar hafi
verið haldinn granda-’'
leysi hins ókunnuga og
orðið fyrir stórslysi. En
það verður trúlega ekki
mikið mál að fá þennan
sýningarskála til að
bera sig. Fnykur af
frönskum og gos í kóki
eru orðin að þjóðlegri
skítalykt sem umlykur
landið. Með því að bæta
við þetta spilakössum
getur skálinn malað
gull og hættum svo
bara þessu menningarkjaftæði.
Höfundur er Iistmálari.
Utsala
á öllum bama- og unglingafatnaði
Gerðu góð kaup íyrir skólann!
Tilboð á bakpokum!
HREYSTI
ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL
— Skeilunni 19 - S. 5681717-
Opið mánud.- föstud. kl. 9 - 18, laugard. kl. 10 - 16