Morgunblaðið - 17.08.1999, Síða 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Kramnik
SKÁK
Las Vegas
HEIMSMEISTARAMÓTIÐ f SKÁK
30. júh' - 29. ágúst
LIVIU-DIETER Nisipeanu
(2.584) heldur áfram að koma á óvart
á heimsmeistaramótinu í skák. í
fímmtu umferð lagði hann Shirov
(2.734) með því að sigra í seinni
kappskákinni. Nisipeanu var óþekkt-
ur skákmaður fyrir heimsmeistara-
mótið og skákáhugamenn voru varla
búnir að læra nafnið á honum þegar
hann hafði lagt þrjá af sterkustu
skákmönnum heims: Ivanchuk,
Shirov og Azmaiparashvili.
Önnur úrslit sem komu á óvart í
fimmtu umferð var sigur Michael
og Shirov
Adams á Vladimir Kramnik, en hann
ásamt Shirov var sigurstranglegast-
ur á mótinu samkvæmt veðbönkum.
Jafnt var í einvígi þeirra Adams og
Kramniks eftir fjórar skákir, en Ad-
ams tókst að vinna báðar 15 mínútna
skákirnar. Það hefur margsinnis
komið í ljós að stutt einvígi og mikill
hraði heimsmeistarakeppninnar tek-
ur verulega á taugar skákmanna.
Michael Adams virðist einfaldlega
standast betur þetta álag heldur en
margir aðrir og það hefur ráðið úr-
slitum.
Onnur úrslit í fímmtu umferð urðu
þau, að Akopian vann Movsesian og
Khalifman vann Judit Polgar.
Sjötta umferð, fjögurra manna úr-
slit, hófst á sunnudagskvöld. Einvíg-
in lengjast nú úr tveimur kappskák-
um í fjórar. Úrslit fyrstu skákar
urðu þessi:
fallnir út
Adams - Akopian 0-1
Khalifman - Nisipeanu V2-V2
Nisipeanu heldur sínu striki, en
Adams er strax kominn í erfíða
stöðu. Það skyldi þó ekki vera að við
fengjum að sjá heimsmeistaraeinvíg-
ið Nisipeanu gegn Akopian?
VISA-Iokamótið
Áttunda umferð í lokamóti VISA-
stórbikarkeppninnar var tefld á
laugardaginn. Helgi Ólafsson gerði
jafntefli við Heikki Westerinen,
Helgi Áss vann Færeyinginn Heini
Olsen, en Jón Viktor tapaði fyrir al-
þjóðlega meistaranum Nikolaj Bor-
ge. I níundu umferð, sem tefld var á
sunnudag, gerði Helgi Áss jafntefli
við Ralf Akesson, Helgi Ólafsson og
Einar Gausel skildu einnig jafnir, en
Jón Viktor sigraði Torbjorn Ringdal
Hansen.
Staðan á mótinu er þessi að níu
umferðum loknum:
1. Tiger Hillarp Persson 7 v.
2.-3. Simen Agdestein 6‘Av.
2.-3. Sune Berg Hansen m v.
4.-5. Helgi Áss Grétarsson 5‘A v.
4.-5. Einar Gausel 614 v.
6.-7. Helgi Ólafsson 5v.
6.-7. Jonny Hector 5 v.
8.-9. Jón V. Gunnarsson 414 v.
8.-9. Ralf Akesson 414 v.
10.-11. Lars Schandorff 4 v.
10.—11. Heikki Westerinen 4 v.
12. Nikolaj Borge 214 v.
13. Torbjorn R. Hansen 114 v.
14. Heini Olsen 1 V.
Björn Þorfinnsson sigrar
á helgarskákmóti
Björn Þorfínnsson sigraði á helg-
arskákmóti Taflfélags Reykjavíkur
sem haldið var um helgina. Tefldar
voru sjö umferðir á mótinu, fyrst
þrjár atskákir og síðan fjórar kapp-
skákir.
Eftir atskákirnar voru þeir Björn
og Sævar Bjarnason efstir á mótinu
og höfðu unnið allar sínar skákir.
Þeir mættust því í fjórðu umferð, en
skákinni lauk með jafntefli og þeir
voru því enn jafnir og efstir eftir
fjórar umferðir. Kapphlaupið milli
þeirra hélt enn áfram í fimmtu um-
ferð, en þá sigruðu þeir báðir and-
stæðinga sína. Úrslitin réðust hins
vegar í sjöttu umferð, en þá tapaði
Sævar fyrir Matthíasi Kjeld, en
Björn sigraði Davíð Kjartansson.
Björn gerði síðan jafntefli í síðustu
umferðinni og tryggði sér þannig
sigur á mótinu. Sævar náði öðru sæt-
inu, en Matthías Kjeld varð þriðji.
Úrslit urðu annars sem hér segir:
1. Björn Þorfinnsson 6 v.
2. Sævar Bjamason 5‘/2 v.
3. Matthías Kjeld 5 v.
4. -5. Davíð Kjartansson 4*/2 v.
4.-5. Guðjón H. Valgarðsson 4/2 v.
6. Dagur Amgrímsson 4 v.
7. Guðmudur Kjartansson 3V4 v.
o.s.frv.
Mótið var haldið í félagsheimili
TR, Faxafeni 12. Skákstjóri var Rík-
harður Sveinsson.
Daði Örn Jónsson
ATVINNU AUGLYSINGA
Einkaritari
Þjónustufyrirtæki óskar eftir að ráða
einkaritara framkvæmdastjóra.
Starfið felur í sér almenn ritarastörf,
hafa umsjón með skjalasafni, annast
móttöku viðskiptavina auk nokkurra sér-
greindra verkefna.
Hæfniskröfur:
• Góð kunnátta í ritvinnsluforritinu
Word.
• Gott vald á íslensku.
• Sjálfstæði og nákvæmni í vinnu-
brögðum.
• Röskleiki, iðjusemi og þjónustulipurð.
• Hafi getu til að vinna hratt undir
álagi.
í boði eru:
• Góð launakjör.
• Góð vinnuaðstaða.
• Áhugaverð verkefni.
• Samstilltur samstarfshópur.
• Tæknivætt umhverfi.
• Reyklaus vinnustaður.
Ýtarlegar umsóknir þar sem m.a. komi
fram menntun og fyrri störf ásamt
ábendingum um meðmælendur sendist
afgr. Mbl. merkt: „Samviskusemi —
8508" fyrir 20. ágúst.
Bakari í Suðurveri
Óskum eftir að ráða sjálfstæðan alhliða bakara
til starfa með góðum hópi bakara. Stundvísi
og snyrtimennska áskilin. Verður að geta byrjað
fljótlega. Reyklaus vinnustaður.
Upplýsingar gefur Óttar Sveinsson í síma
533 3000.
Bakaranemi
óskast á sama stað. Eldri umsóknir óskast end-
urnýjaðar. Allar nánari upplýsingar gefúr Óttar
Sveinsson í síma 533 3000.
Bakarameistarin n
Vilt þú góða vinnu!
Afleysingar. Þegar starfsfólk í daglegum
ræstingum forfallast koma afleysingastarfs-
menn til skjalanna. Þetta er því fjölbreytt starf
þar sem farið er á mismunandi staði.
Nauðsynlegt er að hafa bíl til umráða.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá
starfsmannastjóra, Síðumúla 23, kl. 10—12
og 14—16. Netfang: erna@securitas.is
SECURITAS
Besta ehf. í Kópavogi
óskar eftir starfsmönnum:
• Bókari 50—60% starf e.h.
Almenn bókhaldsvinna og yfirumsjón með
bókhaldsgögnum. Einnig launaútreikningur
o.fl. Viðkomandi þarf að hafa reynslu í bók-
haldsvinnu og helst þekkingu á Navision Fin-
ancials bókhaldskerfi.
• Lagerstarf
Móttaka vara, tiltekt pantana, ásamt afgreiðslu-
störfum.
Þarf að vera þjónustulundaður, skipulagður
og nákvæmur.
Opnunartími 8.00—17.00. Um framtíðarstörf
er að ræða. Reyklaus vinnustaður.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf
sem fyrst.
Umsækjendur sendi umsóknirtil okkar:
Besta ehf., starfsmannastjóri, Nýbýlavegi 18,
Box 136, 202 Kópavogurfyrir 20. ágúst nk.
eða sendi inn umsókn á heimasíðu okkar:
www.besta.is.
III
MENNTASKÓUNN f KÓPAVOGI
Ræsting
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða
starfsmenn til dagræstingar í heilsárs störf.
Um er að ræða 5 hálf störf ræsta,
4 stundir á dag.
Laun eru skv. samningi Framsóknar og fjár-
málaráðuneytis.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skól-
ans í síma 544 5510 og þangað ber að skila
umsóknum í síðasta lagi 20. ágúst.
Skólameistari.
Knattspyrnuþjálfari
íþróttafélagið Leiknir í Breiðholti óskar eftir
að ráða þjálfara fyrir yngri flokka félagsins.
Æskilegt er að hann geti byrjað 1. september.
Hæfniskröfur:
íþróttamenntun eða maður með reynslu.
Upplýsingar í síma 861 1408 eða 861 1164, á
kvöldin 567 7384 eða 587 0179.
Fólk með reynslu
Hjón á miðjum aldri, leikskólakennari og húsa-
smíðameistari, eru reiðubúin að takast á við
ný verkefni.
Áhugasamir hafi samband á netinu
jonnir@simnet.is eða í síma 863 9371.
Sérhæft
skrifstofustarf
Opinber stofnun óskar eftir að ráða
starfskraft í sérhæft skrifstofustarf. Um
er að ræða krefjandi framtíðarstarf þar
sem mikillar nákvæmni er þörf og mikið
reynir á mannleg samskipti.
Leitað er að einstaklingi sem hefur eftir-
farandi hæfileika:
• Fullkomna kunnáttu í Word og Excel
• Góða íslenskukunnáttu
• Geti sjálfstætt ritað bréf og greinar-
gerðir
• Geti greint aðalatriði frá aukaatriðum
• Sé skipulagður, geðprúður og sam-
starfsfús
• Sé talnaglöggur, afkastamikill og röskur
• Hafi góða háskólamenntun eða sam-
bærilegt nám.
í boði eru góð launakjör og góð yinnu-
aðstaða miðsvæðis í Reykjavík. Áhuga-
verð verkefni í reyklausu umhverfi.
Öllum umsóknum verður svarað og full-
um trúnaði er heitið.
ítarlegar umsóknir er m.a. tilgreini aldur,
menntun og fyrri störf sendist afgreiðslu
Mbl. fyrir 20. ágúst merktar:
„Sérhæft — 8509".
Menntaskólinn í Reykjavík
Matráður óskast
Starfsmaður óskast til að sjá um kaffi og aðrar
veitingar í mötuneyti starfsmanna Menntaskól-
ans í Reykjavík. Ráðið er í starfið frá 24. ágúst.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi opinberra
starfsmanna og fjármálaráðuneytisins. Starfið
var auglýst 22. júlí og er umsóknarfrestur nú
framlengdurtil 22. ágúst. Umsóknir berist
skrifstofu rektors.
Nánari upplýsingar veita rektorog konrektor
í síma 551 4177.
Rektor.
Verkamenn
Óskum eftir verkamönnum til starfa sem fyrst.
Framtíðarvinna.
Upplýsingar í síma 511 1522 milli kl. 8 og 16.
Eykt ehf
Byggingaverktakar