Morgunblaðið - 17.08.1999, Síða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI569 1100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 17. AGUST 1999
VERÐ I LAUSASOLU 150 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Kristján
Gömlu
skipa-
númerin
tekin upp
ÁKVEÐIÐ hefiir verið að setja
gömlu skipanúmer Útgerðarfé-
lags Akureyringa hf. aftur á
togara fyrirtækisins. í gær var
verið að mála yfir einkennisstafi
Kaldbaks EA 301 og setja EA 1 í
staðinn. ÚA á skipanúmerin EA
1 til 7 en skip félagsins voru
með þau skrásetningarnúmer í
upphafi, fyrir rúmum 50 árum.
Sæmundur Friðriksson, út-
gerðarstjóri ÚA, sagði að nýi
Svalbakur væri með skipanúm-
erið EA 2, Harðbakur fengi EA
3, Sléttbakur EA 4 og Árbakur
EA 5 eða 6. ÚA átti sjö skip þeg-
ar mest var og gerði þá út tog-
arana Sólbak og Hrímbak til
viðbótar.
Viljum halda
skráningunni
„Með þessu viljum við halda
skráningunni eins og hún var í
upphafi og halda í þau númer
sem félagið hcfur alltaf átt. Það
er ekki hægt að geyma númerin
endalaust og við sjáum ekki í
hendi okkar hvenær við endur-
nýjum skipin.“
Sæmundur sagði að skipa-
númerunum hefði verið breytt
eftir að nýju skip félagsins komu
en þá hafi ekki verið búið að af-
skrá eða úrelda þau eldri. Á
myndinni eru málaramir Hann-
es Skaftason og Stefán Hrólfs-
son að mála nýtt númer á Kald-
bak.
Yfir 10 þús-
und undir-
skriftir
ALLS hafa yfír 10 þúsund manns
* -*■ skrifað undir mótmæli við áform
borgaryfirvalda í Reykjavík um
byggingar í austurhluta Laugardals.
Stjóm samtakanna Verndum Laug-
ardalinn fagnar ummælum borgar-
stjóra um að borgaryfirvöld muni
taka tillit til álits borgarbúa á fyrir-
huguðum framkvæmdum.
I frétt frá samtökunum segir að
árið 1986 hafi safnast rúmlega tíu
þúsund undirskriftir þeirra sem and-
mæltu byggingu ráðhúss við Reykja-
víkurtjörn. Það sé sá fjöldi sem Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
hafi sagt vera almenna andstöðu og
borgaryfirvöld muni ekki hunsa.
---------------------------
Tók bíl í
misgripum
ÖKUMAÐUR bfls kom á lögreglu-
stöð á Selfossi til að tilkynna að hann
hefði tekið ranga bifreið af bflastæði
í Reykjavík. Maðurinn sagði að tveir
eins bflar hefðu verið hlið við hlið.
Ökumaðurinn hafði lagt bifreið
sinni og skilið kveikjuláslykla eftir
meðan hann sinnti stuttu erindi. Að
því loknu hefði hann sest undir stýri
rangrar bifreiðar sem var sömu
gerðar og virðist einnig hafa verið
skilin eftir með kveikjuláslykla. Það
var síðan ekki fyrr en ökumaðurinn
var kominn vel út fyrir borgarmörk-
'in að hann uppgötvaði mistök sín.
Óvenjumikil eftirspurn eftir fólki í margs konar störf
Erfitt að manna
láglaunastörfin
MJÖG mikil eftirspurn virðist vera
eftir fólki í ýmiss konar störf um
þessar mundir og mátti m.a. sjá
merki þess í atvinnuauglýsingum
Morgunblaðsins á sunnudaginn
síðasta. Varlega áætlað voru þar
um 350 til 400 störf auglýst laus til
umsóknar. Áberandi voru auglýs-
ingar matvöruverslana sem og
smærri sérvöruverslana á höfuð-
borgarsvæðinu eftir fólki í t.d. af-
greiðslu- og lagerstörf en einnig
gat að líta auglýsingar eftir leik-
skólakennurum, hjúkrunarfræð-
ingum, fólki til ræstinga, sérfræð-
ingum ýmiss konar, verkstjórum
Hattar seldust upp
á tveimur tímum
ALLIR hattamir sem til voru í
Hattabúð Höddu, 36 talsins,
seldust upp á tveimur tímum síð-
astliðinn fóstudag. Sagt var frá
því sama dag í grein í Daglegu
lífi í Morgunblaðinu að loka ætti
búðinni og allir hattar væru á
hálfvirði.
Að sögn Önnu Guðjónsdóttur
sem aðstoðaði eiganda búðarinn-
ar, Fríði Guðmundsdóttur, við
reksturinn ýtti grein Morgun-
blaðsins greinilega við áhuga-
sömum hattakaupendum.
„Klukkan ellefu var nær allt selt
og klukkutíma síðar uppselt fyrir
utan nokkur slör sem við áttum.
Við lokuðum því búðinni nokkr-
um dögum fyrr en ætlunin var,“
segir Anna og bætir við að sleg-
ist hafi verið um hatt sem tekinn
hafi verið í sölu á laugardeginum.
„Þetta voru fínir hattar og filt-
hattar sem við seldum og allir á
mjög góðu verði,“ segir Anna.
Hún segir viðskiptavini hafa haft
á orði að þeir myndu sakna búð-
arinnar og að þeir fengju hvergi
eins fína hatta og í Hattabúð
Höddu.
og fjármálastjórum svo dæmi séu
nefnd.
Að sögn þeirra sem til þekkja er
haustið jafnan sá tími ársins sem
mest er auglýst eftir starfskröft-
um, þar sem sumarafleysingamenn
séu að hætta og skólarnir að byrja,
en talsmenn ráðningarstofa í
Reykjavík segja þó eftirspurnina
óvenjumikla nú og að svo hafi verið
síðasta eina og hálfa árið. Þá segj-
ast þeir verða varir við töluverða
„hreyfingu á markaðnum" sem lýsi
sér m.a. í því að fólk sé í auknum
mæli farið að leita að öðrum störf-
um, jafnvel á öðrum starfsvett-
vangi, og að það sé tilbúið að ráða
sig á nýjan stað „fái það eitthvað
betra“.
Mikið spurt um
kerfísfræðinga
Aðspurðir segja þeir mikla spurn
eftir tölvunarfræðingum, kerfis-
fræðingum og sérfræðingum í fjár-
málastjórnun en að auki er mikið
spurt um starfsmenn í afgreiðslu-
og lagerstörf ýmiss konar. Mikill
skortur er, segja þeir, á fólki í störf
sem gjarnan eru lægst launuð, og
gengur erfiðlega að þeirra sögn að
manna slíkar stöður.
Agla Sigríður Björnsdóttir,
ráðningarfulltrúi hjá ráðningar-
þjónustu Gallup, segir mikla eftir-
spurn eftir fólld í það sem hún kall-
ar framlínustörf, þ.e. fólki til að af-
greiða í bakaríum, stórmörkuðum
eða fataverslunum svo dæmi séu
nefnd og tekur jafnframt fram að
erfiðlega gangi að fá fólk í umrædd
störf. Mikil þensla sé í þjóðfélaginu
og af þeim sökum leiti fólk sem
annars hefði sóst eftir þessum
svokölluðu framlínustörfum fremur
að öðrum og oft betur launuðum
störfum, til dæmis almennum skrif-
stofustörfum. „Það er til að mynda
harður slagur um þessi venjulegu
skrifstofustörf," segir hún.
Erfitt að fá „gott fólk“
Þórir Þorvarðarson, ráðningar-
stjóri hjá PricewaterhouseCoop-
ers, tekur fram að mjög mikil
spum hafi verið eftir starfsfólki allt
síðasta ár en segist ekki frá því að
eftirspurnin sé meiri nú í þessum
mánuði en oft áður. „Fyrirtæki
hreinlega biðja okkur að hafa sam-
band við fólk sem er í vinnu til að
athuga hvort það er hreyfanlegt,"
segir hann, en tekur fram að jafn-
an sé mikil eftirspurn eftir starfs-
fólki á haustin eða á þeim tíma
þegar sumarafleysingafólk hættir
og skólamir byrja. Aðspurður seg-
ir hann að eftirspurnin sé mest eft-
ir starfsmönnum sem hafi tölvu-
kunnáttu, svo sem tölvunarfræð-
ingum og kerfisfræðingum, en
einnig segir hann að mikið sé spurt
um starfsmenn í fjármálafyrirtæki,
til dæmis við fjármálaráðgjöf eða
verðbréfamiðlun. Hann segir á
hinn bóginn erfitt að fá „gott fólk í
þessar stöður“, þar sem eftirspurn-
in sé meiri en framboðið.
Verð-
launin of
verðmæt
KYLFINGUR hefur verið
sviptur áhugamannaréttindum
sínum af áhugamennskunefnd
Golfsambands íslands fyrir að
hafa tekið við of verðmætum
verðlaunum í opnu golfmóti
fyrr í sumar. Hann má því ekki
taka þátt í mótum áhuga-
manna þar til hann fær rétt-
indi sín aftur, en nefndin úr-
skurðaði að hann þurfi að bíða
þeirra í sex mánuði.
Áhugamönnum á Islandi er
ekki leyfilegt að taka við verð-
launum í golfmóti ef verðmæti
þeirra er meira en fjörutíu
þúsund krónur.
■ Sviptur/B12