Morgunblaðið - 20.08.1999, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 11
FRÉTTIR
REYKJA VÍKURMARAÞON
1999
Hlaupaleiðir
Maraþon (2x21 km)
Hálfmaraþon (21 km)
10 km
7 km
3 km
Reykjavíkurmaraþon hefst á sunnudaginn
Um 700 keppendur
skráðir til þátttöku
REYKJAVIKURMARAÞON
hefst á sunnudaginn, en þetta er í
16. skiptið sem hlaupið fer fram. I
gær höfðu um 700 keppendur
skráð sig til þátttöku, en skráning
er enn í fullum gangi og á morgun
verður skráð í Laugardalshöllinni
frá klukkan 11 til 17. Á meðan á
hlaupinu stendur verður tveimur
götum borgarinnar lokað, þ.e. Sæ-
brautinni frá klukkan 10 til 16 og
Lækjargötunni frá 8 til 17.
Ágúst Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Reykjavíkurmara-
þons, sagði að skráningin hefði
gengið álíka og síðustu ár. Margir
bíða með að skrá sig þar til síðustu
dagana fyrir hlaupið og sagðist
Ágúst búast við því að í heildina
yrðu þátttakendur um 3.000 tals-
ins, en mesta þátttaka í sögu
Reykjavíkurmaraþons var árið
1994 er um 3.700 manns hlupu um
götur borgarinnar.
Keppt í 10 km
línuskautahlaupi
Að sögn Ágústs er þegar ljóst að
metþátttaka verður í maraþon-
140 hlauparar
koma frá
útlöndum
hlaupinu sjálfu, því um 170 kepp-
endur hafa skráð sig í það. Hann
sagði að af þeim 170 kæmu um 140
frá útlöndum.
Keppt verður í fimm vegalengd-
um: maraþoni, hálfmaraþoni, 10
km hlaupi og 7 og 3 km
skemmtiskokki. Auk þess verður
nú í fyrsta skipti boðið upp á línu-
skautahlaup, en þess er krafist að
þátttakendur í því beri hlífar á úln-
liðum, olnbogum og hnjám, sem og
hjálm.
Rás- og endamark hlaupsins er í
Lækjargötu, en þaðan er hlaupið
út á Seltjarnarnes, en maraþon og
hálftnaraþon hlaupararnir hlaupa
einnig austur í Sunda- og Voga-
hverfi.
Ræst verður í línuskautahlaupið
klukkan 9.50, maraþon, hálfmara-
þon og 10 km hlaupið klukkan 10 og
í skemmtiskokldð klukkan 12.30.
Allir þátttakendur, sem ljúka
keppni, hljóta verðlaunapening.
Þrír fyrstu keppendurnir í mara-
þoni og hálfmaraþoni fá utanlands-
flugmiða frá Flugleiðum í verð-
laun.
Fyrsti karl eða kona í 10 km
hlaupinu hljóta sérverðlaun og
tveir heppnir þátttakendur, annars
vegar úr skemmtiskokkinu og hins
vegar úr 10 km hlaupinu munu fá
flugmiða frá Flugleiðum, en dregið
verður um hann.
Verðlaun fyrir furðulegasta
hlaupabúninginn
í maraþoni, hálfmaraþoni og 10
km hlaupi er boðið upp á þriggja
manna sveitakeppni, þar sem
vinnufélagar, félagasamtök eða
fjölskyldur geta myndað sveitir til
þátttöku. Verðlaun eru síðan veitt
fyrstu þremur sveitunum í hverri
vegalengd. Veitt verða sérstök
verðlaun fyrir furðulegasta hlaupa-
búninginn.
Verðlaunaafhending fer fram á
sunnudagskvöldið klukkan níu á
Broadway.
Bflvelta skammt frá
Kotá í Skagafírði
FÓLKSBÍLL ók útaf og valt um
200 til 300 metra frá Kotá í
Skagafirði í fyrradag. I bílnum,
sem var á norðurleið, var kona og
barn, en þau voru bæði í bflbelt-
um og að sögn lögreglunnar á
Sauðárkróki kom það eflaust í
veg fyrir stórslys.
Bamið slapp alveg ómeitt en
konan skarst eitthvað á hendi og
hálsi, en samt ekki alvarlega að
sögn lögreglu. Kotárbrúin hefur
verið nokkuð í umfjöllun fjöl-
miðla að undanfömu, þar sem
fimm slys hafa þegar orðið við
brúna á þessu ári, en að sögn lög-
reglu er hæpið að rekja þetta
slys til brúarinnar.
Súrefnísvörur
Karin Herzog
Kynning
ídagkl. 14-18
í Hagkaupi Kringlunni,
Hagkaupi Smáratorgi
og Nes Apótek,
Neskaupsstað.
Tilboðsdagar
frá 18.-21. ágúst
Mikill afsláttur
Gluggatjaldabútar í úrvali
Komið og gerið góð kaup!
epcil
Skeifunni 6,
sími 568 77 33.
Mannvernd ályktar um skipan
vísindasiðanefndar
Nefndin starfí á fag
legum forsendum
„VIÐ treystum því að þeir einstak-
lingar sem skipaðir hafa verið í vís-
indasiðanefnd vinni á faglegum for-
sendum og láti ekki pólitísk viðhorf
hafa áhrif á störf sín,“ segir Sig-
mundur Guðbjarnason, formaður
stjórnar Mannverndar, samtaka
sem hafa þann tilgang að vernda
friðhelgi einkalífs og rannsókna-
frelsi. Sigmundur bendir hins vegar
á að með nýlegum breytingum á
reglum um vísindasiðanefnd megi
ætla að reynt verði að beita nefnd-
ina pólitísloim þrýstingi.
Er Sigmundur þarna að vísa til
þeirra breytinga sem orðið hafa á
skipan vísindasiðanefndar með
nýrri reglugerð heilbrigðisráð-
herra um vísindarannsóknir á heil-
brigðissviði. Með nýiTÍ reglugerð
er vísindasiðanefnd skipuð fimm
einstaklingum. Fjórir eru skipaðir
af ráðherrum en sá fimmti af land-
lækni. Áður voru nefndarmennirn-
ir hins vegar sjö í vísindasiðanefnd.
Sex tilnefndir af læknadefld, laga-
deild, siðfræðistofnun og líffræði-
stofnun Háskóla íslands svo og Fé-
lagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
og Læknafélagi íslands, en for-
maður var skipaður af heilbrigðis-
ráðherra án tilnefningar. í síðustu
viku var gengið frá skipan aðal-
manna í nýja vísindasiðanefnd eins
og greint var frá í Morgunblaðinu
um helgina.
Stjóm Mannverndar ályktaði á
þriðjudag um hina breyttu tilhögun
við skipan vísindasiðanefndar og
segir hana hafa vakið bæði undrun
og athygli. „í Helsinkisáttmálanum
um vísindarannsóknir frá 1964 er
tekið fram að vísindasiðanefnd
skuli vera óháð og þá einnig óháð
stjómvöldum. Nýja vísindasiða-
nefndin er skipuð fimm einstakling-
um og em fjórir skipaðir af ráð-
herrum en sá fimmti af landlækni.
Vísindasiðanefnd gegnir mikilvægu
eftirlitshlutverki en þessi nýskip-
aða nefnd getur vart talist óháð
nefnd. Hlutverk hennar er m.a. að
fylgjast með framkvæmdum um-
deildra gagnagrunnslaga," segir í
ályktuninni.
Þegar Sigmundur er beðinn að
útskýra það nánar hvers vegna
stjórnin álíti að nefndin geti vart
talist óháð nefnd bendir hann á að
áður hafi einstaklingar í nefndinni
verið tilnefndir af fag- og sérfræði-
hópum og á þann hátt hafi átt að
vera tryggt að fagleg sjónarmið
réðu ferðinni í störfum nefndarinn-
ar. „Við gemm auðvitað ráð fyrir að
svo verði áfram,“ segir hann, „en
með þessari nýju skipan kann vel
að vera og ekki ósennilegt að póli-
tískur þrýstingur geti haft áhrif á
störf nefndarinnar ekki síður en
fagleg viðhorf. Við hins vegar leggj-
um áherslu á og treystum því að
þessir ágætu einstaklingar sem
eiga sæti í vísindasiðanefnd vinni
eingöngu á faglegum forsendum og
höfum ekki ástæðu til að ætla ann-
að þar sem um mæta menn er að
ræða.“
Jákvæð nýmæli
í reglugerð
I áðurnefndri ályktun stjórnar
Mannverndar segir aukinheldur að
reglugerðin um vísindarannsóknir
á heilbrigðissviði hafi þó einnig til
að bera jákvæð og athyglisverð ný-
mæli. „Er það einkum tvennt, ann-
ars vegar að vísindasiðanefnd skal
fylgjast með framvindu rannsókna
sem hún hefur samþykkt og hins
vegar að ráðherra setur vísinda-
siðanefnd starfsreglur. Reglurnar
skulu vera í samræmi við ráðlegg-
ingar ráðherranefndar Evrópu-
ráðsins til aðildarríkja og Helsinki-
yfirlýsingu Alþjóðafélags lækna.
Jafnframt er tekið fram í þessari
reglugerð að sjúklingur skal fyrir-
fram samþykkja með formlegum
hætti þátttöku í vísindarannsókn.
Mannvernd vekur athygli á að
þetta skilyrði um upplýst samþykki
sjúklings nær einnig til notkunar á
trúnaðarupplýsingum, þ.e. heilsu-
farsupplýsingum, til vísindarann-
sókna, þegar það á við. Umdeild
gagnagrunnslög gera hins vegar
ekki ráð fyrir upplýstu samþykki
sjúklings í þessu efni og eru því í
ósamræmi við reglugerð."
Þvottavél
■
0] Electrolux
• 1400 snúninga vinda
Tekur 5 kg.
• Þvottahæfni A
• Þvær á 0-95°
Hljóðlát
H:85 sm, B:60sm
D:58 sm
84.900 kr.
('cirolnx |>\dtim'él I A\ l-loT7 |-
HIISASMIÐIAN
Sími 525 3000 • www.husa.is