Morgunblaðið - 20.08.1999, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Klæðning
á Grafar-
vogskirkju
Morgunblaðið/Sverrir
Grafarvogur
NÚ ERU tíu mánuðir þar
til Grafarvogskirkja verð-
ur vígð 18. júní nk. við at-
höfn í tengslum við kristni-
tökuhátið. Búið er að
klæða kirkjuna að innan en
á dögunum var hafist
handa við að klæða kirkj-
una að utan með granít-
steini frá Spáni.
Vigfús Þór Árnason
sóknarprestur, Finnur
Björgvinsson arkitekt,
Hilmar Þ. Björnsson arki-
tekt, Sigurður Kristinsson
formaður byggingarnefnd-
ar og Bjarni Grímsson for-
maður sóknarnefndar
fylgdust með þegar Benja-
mín Gunnarsson smiður og
Sigurður Orn Arnarson
verkstjóri festu fyrsta
steininn í klæðningunni á
kirkjuna.
Framkvæmdasvæðið í Mjódd.
Morgunblaðið/Jim Smart
Stórverslun með gróð-
urvörur í Mjóddinni
Mjódd
FYRIR jól verður opnuð
3.500 fermetra stórverslun
með gróðurvörur í norðan-
verðri Mjóddinni. Gróðurvör-
ur ehf., verslun Sölufélags
garðyrkjumanna, stendur
fyrir framkvæmdunum, og
ætlar að flytja af Smiðjuveg-
inum í nýja húsið fyrir jóla-
vertíðina og jólatréssöluna.
„Þetta er hugsað sem staður
þar sem öll fjölskyldan getur
komið og fundið eitthvað við
sitt hæfi, sumar sem vetur,“
segir Gísli Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Gróðurvara.
„Þarna verða blóm og
gjafavörur og allt sem þarf til
garðyrkju. Svo verður líka
útisvæði fyrir plöntur. Þá
verður þama ýmislegt sem
snýr að heimiiinu, t.d. ýmsir
innanstokksmunir og innbús-
hlutir," segir Gísli. „Við höf-
um tæki og tól þar sem karl-
arnir hafa gaman af að vera,
umhverfisvænar snyrtivörur
fyrir konur og svo er mein-
ingin að þarna verði góð að-
staða til að setjast niður og fá
sér kaffi og léttar veitingar,"
sagði Gísli. Hann segir að
einnig verði þama gæludýra-
vörur og fleira en breskt ráð-
gjafarfyrirtæki vinnur nú að
endanlegri útfærslu á inn-
réttingum verslunarinnar og
samsetningu vömflokka.
5.000 fermetra
framkvæmd
Gísli segir að að grunnfleti
verði miðstöðin um 4.500 fer-
metrar, að meðtöldum gróð-
urhúsum. Grunnflötur sjálfs
verslunarhússins er 3.040
fermetrar, samkvæmt upp-
lýsingum frá Borgarskipu-
lagi, en Gísli segir að um 300
fermetra millihæð að auki
verði sett upp fyrir veitinga-
hús inni í húsinu. Þá verður
reist 896 fermetra vöru-
geymsla á lóðinni. „Þetta
verður framkvæmd upp á um
5.000 fermetra," segir Gísli.
Þá verða við versl-
unina 230-250 bílastæði.
Nú er unnið af krafti við
framkvæmdirnar. Límtrés-
grind fyrir vörugeymsluna
hefur verið sett upp og verið
er að vinna í grunni verslun-
arhússins. Víðir Bragason er
húsasmíðameistari og Gísli
Rafnsson er byggingastjóri
við framkvæmdimar.
KR-ingar fá
æfingavöll
við Starhaga
Vesturbær
REYKJAVÍKURBORG hef-
ur ráðstafað tveimur ónotuð-
um landspildum til KR fyrir
æfmgavelli. Annars vegar er
horn úr lóð Sundlaugar vest-
urbæjar, sem félagið hefur
notað fyrir æfingar í sumar og
hins vegar eru að hefjast
framkvæmdir á um 6.000 fer-
metra svæði við Starhaga og
Lambhaga, þar sem nú er
unnið að lagfæringum til að
KR-ingar geti farið að æfa sig
á nýjum sparkvelli.
Áð sögn Jóhannesar Óla
Garðarssonar hjá þjónustu-
miðstöð borgarinnar vantaði
KR-inga aðstöðu í sumar því
framkvæmdir á félagssvæð-
inu við Frostaskjól skertu at-
hafnarými féiagsins. Borgin
fann þessa lausn til bráða-
birgða en svæðið við sund-
laugina er hluti af lóð, sem fer
undir væntanlega stækkun
laugarinnar. Við Starhagann
fæst hins vegar ágætur æf-
ingavöllur um 60x100 metrar
að stærð og þar er um þessar
mundir verið að vinna með
jarðýtu að því að brjóta svæð-
ið undir KR-inga. Þetta eru
einhverjar síðustu ónotuðu
landspildurnar í vesturbæn-
um.
Landfyllingar í Skerjafirði
fyrirKR?
Nokkuð er farið að
þrengja að KR-ingum í vest-
urbænum en forráðamenn
félagsins hafa viðrað hug-
myndir um varanlega lausn á
þrengslunum á landfylling-
um í Skerjafirði, suður af
Skjólunum. Að sögn Björns
Axelssonar hjá Borgarskipu-
Morgunblaðið/Golli
Rúna S. Geirsdóttir er að undirbúa stofnun íbúasamtaka gamla Austurbæjarins í Kópavogi.
Lítið hlustað á einn en
meira á okkur saman
Kópavogur
UNNIÐ er að undirbúningi
stofnunar íbúasamtaka
gamla Austurbæjarins í
Kópavogi. Rúna S. Geirs-
dóttir er formaður undir-
búningsnefndarinnar. Hún
segir að tilurð samtakanna
megi rekja til baráttu fyrir
bættu umferðaröryggi við
Digranesveg.
„Við Digranesveginn
stendur barnaskóli. Umferð-
in þar hefur verið allt of
hröð og allt of mikil,“ segir
Rúna. „íbúar hafa verið
mjög áhyggjufullir yfir
þessu og fengu mjög lítil við-
brögð hjá embættismönnum
bæjarins við kvörtunum sín-
um. Þannig að hér var efnt
til opins fundar 29. apríl síð-
astliðinn og á hann mættu
Gunnar Birgisson, forseti
bæjarstjómar, og Friðrik
Björgvinsson, yfirlögreglu-
þjónn í Kópavogi og emb-
ættismenn bæjarins. Þar
viðruðu menn þessi áhyggju-
efni sín og vildu úrbætur
strax. Það var tekið ágæt-
lega í erindi íbúanna á þess-
um fundi og jafnframt var
ákveðið að stofna undirbún-
ingsnefnd til að stofna íbúa-
samtök til að gæta hags-
muna okkar íbúanna. Við sá-
um fram á að það væri lítið
hlustað á okkur eitt í einu en
kannski meira á okkur sam-
an.“
Með Rúnu í undirbúnings-
nefndinni eru Ragnheiður
Þorsteinsdóttir, Gunnar
Matthíasson og Sveinn
Ólafsson. „Við höfum verið
að skoða ýmislegt sem
aflaga hefur farið í hverfinu
okkar að okkar mati og er-
um búin að fá það í gegn að
hér við Digranesveginn er
kominn 30 km/klst hámarks-
hraði við Kópavogsskólann.
Við erum að fá í gegn fjórar
hraðahindranir við veginn
sem ætti að minnsta kosti að
takmarka umferðarhraðann
hérna,“ segir Rúna. Hún
segir að umferðarmálin hafi
verið unnin í mjög góðu
samstarfi við skólastjórn-
endur og foreldrafélag
Kópavogsskóla.
Hverfið, sem íbúasamtök-
in eiga að þjóna, afmarkast
af Gjánni, Nýbýlavegi,
Bröttubrekku og Fífu-
hvammi. Hvaða verkefni
bíða íbúasamtakanna burt-
séð frá umferðarmálum við
skólann? „Það er fullt af
verkefnum, sem bíður hér,“
segir Rúna. „Það sem að
okkur snýr fyrst og fremst
er að það hefur ekki farið
framhjá neinum að uppbygg-
ingin í Kópavogi hefur verið
hröð en hún virðist aðallega
hafa beinst í nýju hverfin.
Eldri hverfin, eins og hverfið
okkar sem okkur þykir vænt
um, hafa setið á hakanum,“
segir Rúna. „Við erum að líta
til hagsmuna hverfisins okk-
ar í þessu samhengi. Við vilj-
um að hér verði gerðar
gönguleiðir og útivistarsvæði
og hér sé umferðaröryggi í
jafnmiklum metum haft og í
nýju hverfunum. Sameinuð
stöndum við en það er ekki
hlustað á okkur hvert í sínu
lagi.“
Rúna segir stefnt að
formlegum stofnfundi sam-
takanna í september. „Við
ætlum að auglýsa stofnfund-
inn rækilega og viljum að
íbúarnir verði virkir í starf-
inu. Okkar sjónarmið er að
það sé full ástæða til að
gæta hagsmuna þessa
hverfis. Þetta er mjög gott
hverfi, við erum vel staðsett
hérna og hér er gott að
vera. Við erum með góðan
skóla og fleira. Við viljum
standa vörð um þetta,“ sagði
Rúna.
Bletturinn vestan við
Vesturbæjarlaugina nýt-
ist KR-ingum við knatt-
spyrnuæfingar.
lagi eru hugmyndir um land
fyrir KR-inga meðal annarra
hugmynda um landfyllingar
á svæðinu, sem eru til skoð-
unar hjá skipulaginu en því
hefur verið falið að skoða
hugsanlegar fyllingar í fjörð-
inn í tengslum við mál
Reykjavíkurflugvallar og
fleira.
Morgunblaðið/Sverrir
Jarðýta er þessa dagana að vinna á svæðinu sunnan
við göngustíginn við Starhaga að því að útbúa nýjan
æfingavöll fyrir KR-inga.