Morgunblaðið - 20.08.1999, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 17
|gg
W
Iteikhúsvagnínn'll
Leikrit í strætisvagni
LEIKRITIÐ „Nóttin skömmu fyr-
ir skógana" verður sýnt í strætis-
vagni frá SVA í kvöld, föstudags-
kvöldið 20. ágúst, kl. 21 og á
sama tíma laugardagskvöldið 21.
ágúst. Leikritið er eftir franska
rithöfundinn Bernard Marie
Koltés í þýðingu Friðriks Rafns-
sonar. Leikari er Ólafur Darri
Ólafsson og leiksljóri er hinn
írski Stephen Hutton.
Leikhúsgestum verður boðið
inn í Leikhúsvagninn sem leiðir
þá inn í leikhúsheiminn eða Nótt-
ina skömmu fyrir skógana. Þessi
nýja leið sem farin er við upp-
setningu verksins leyfir aðeins
39 áhorfendur hverju sinni en
nálægðin við leikarann gerir þá
að virkum þátttakendum í sýn-
ingunni.
Miðapantanir og forsala er hjá
Gilfélaginu Listasumri í síma
461-2609 en ekið verður í strætis-
vagni frá Deiglunni, Kaupvangs-
stræti, með áhorfendur við upp-
haf sýningarinnar kl. 21 bæði
kvöldin.
Islandsmót í
sjóstangaveiði
SJÓSTANGAVEIÐIFÉLAG Akur-
eyrar stendur fyrir sjóstangaveiði-
móti í dag, föstudag og á morgun,
laugardag. Mótið, sem er 36. mótið
sem félagið heldur, er einnig stiga-
mót í Islandsmeistaramóti stanga-
veiðifélaga og á lokahófí á laugar-
dagskvöldinu verða sigurvegarar í
mótinu sem og íslandsmeistarar
sumarsins verðlaunaðir. Morgun-
blaðið ræddi við Árna Pétur Björg-
vinsson hjá Sjóstangaveiðifélagi
Akureyrar og fræddist um komandi
mót.
„Keppnin hefst á morgun (í dag)
kl. 6 um morguninn og aftur á sama
tíma á laugardeginum, en farið er út
frá Dalvík. Menn hætta síðan að
veiða kl. 14 báða dagana. Það er 71
keppandi skráður til leiks og kemur
um helmingur þeirra víðsvegar að
af landinu, aðrir eru héðan af svæð-
inu,“ sagði Árni Pétur. Hann sagði
að farið yrði út á tuttugu bátum og
veiðisvæðið væri víðsvegar í mynni
Eyjafjarðar. „Þeir fara svona vest-
ast að Héðinsfirði og kannski alla
leið austur á Gjögi-ana, annars eru
menn mikið í kringum Múlann, en
það er jú fiskurinn sem ræður því,“
sagði Árni Pétur.
Á laugardagskvöldinu verður síð-
an lokahóf á Fosshótel KEA og þar
verða sigurvegar í mótinu og ís-
landsmeistarar verðlaunaðir. „Það
eru ýmiss konar verðlaun veitt s.s
fyrir mesta heildaraflann, stærsta
fiskinn, flesta fiska, verðlaun í
sveitakeppni og mesta heildarafla
báts,“ sagði Árni Pétur. Hann sagði
einnig að tryggt yrði að makar
keppendanna þyrftu ekki að láta sér
leiðast í landi því skipulögð dagskrá
yrði fyrir þá sem endaði síðan á
bryggjunni á laugardeginum þegar
aflanum væri landað.
Árni Pétur sagði að í ár fagnaði
Sjóstangaveiðifélag Akureyrar 35
ára afmæli sínu og eins og áður
sagði er þetta 36. mótið sem félagið
stendur fyrir. „Ég held að ég geti
fullyrt það að félagið hafi haldið mót
á hverju ári síðan það var stofnað.
Hér var t.d. Evrópumót 1974 og
þegar félagið fagnaði 30 ára afmæl-
inu héldum við veglegt afmælismót
með 105 keppendum," sagði Árni
Pétur.
Minjasafnið fær styrk
MINJASAFNIÐ á Akureyri var
opnað að nýju eftir gagngerar end-
urbætur fyrr í sumar. I fréttatil-
kynningu segir að endurbætumar
og uppsetningar nýrra sýninga hafi
kostað talsvert fé, en sveitarfélögin
við Eyjafjörð bera kostnað af
rekstri safnsins. Hins vegar hafi
stjórn Sparisjóðs Norðlendinga
ákveðið að styrkja safnið um 500
þúsund krónur. í fréttatilkynningu
kemur fram að Sparisjóður Norður-
lands telji nauðsynlegt fyrir Akur-
eyringa að eiga öflugt byggðasafn.
Það kemur einnig fram að ætlunin
er að setja upp nýja sýningu í
Minjasafninu næsta sumar sem
bera mun heitið „Akureyri um alda-
mót“ og þar mun saga byggðar á
Akureyri verða rakin.