Morgunblaðið - 20.08.1999, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 23
Nýbirt skjal úr Þýzkalandi nazismans
Ford meðal fyr-
irtækja er nýttu
þrælavinnuafl
Frankfurt. AP.
í NÝBIRTU skjali ættuðu úr
Þýzkalandi nazismans, sem pólskir
sagnfræðingar fundu í skjalasafni í
Rússlandi, kemur fram að Evrópu-
deild Ford-verksmiðjanna var á
meðal fyrirtækja sem nýttu sér
þrælavinnuafl fanga úr Auschwitz-
dauðabúðunum á árum síðari
heimsstyrj aldar.
í frétt netútgáfu BBC kemur
fram, að Evrópudeild Ford, sem er
með höfuðstöðvar sínar í Köln, er í
hópi yfir 400 fyrirtækja sem getið
er á lista yfir fyrirtæki sem á einn
eða annan hátt stunduðu viðskipti
sem snertu Auschwitz, en listinn
mun vera sá fyrsti sinnar tegund-
ar, sem byggður er á upplýsingum
fengnum beint upp úr gögnum
nazista.
Talsmenn Ford tóku fram í gær,
að bandaríska móðurfyrirtækið
hefði ekki haft neitt vald yfír því
hvernig Evrópudeildin stýrði sín-
um rekstri á þeim árum sem
nazistar réðu lögum og lofum í her-
numinni álfunni.
IG Farben borgar
í fyrradag ákváðu hluthafar í IG
Farben - einu fyrirtækjanna á list-
anum sem eitt sinn var stærsta
efnaiðnaðarfyrirtæki Evrópu - að
setja á fót sjóð fyrir fólk sem vann
nauðungarvinnu fyrir fyrirtækið í
síðari heimsstyrjöld. Var sam-
þykkt að fyrrverandi nauðungar-
verkafólk, sem nú væri yfir átt-
rætt, ætti rétt á greiðslum úr
sjóðnum.
I Frankfurt, þar sem hluthafa-
fundurinn fór fram, stóðu meðlim-
ir í ýmsum hagsmunasamtökum
fórnarlamba helfararinnar og
ungir þýzkir meðlimir félagsskap-
arins „Landsbandalagið gegn IG
Farben“ fyrir háværum mótmæl-
um og kröfðust þess að fyrirtækið
léti meira fé af hendi rakna í
skaðabótasjóðinn en þær þrjár
milljónir marka, 120 milljónir
króna, sem hluthafarnir sam-
þykktu.
Álíta tilvist IG
Farben móðgun
Fyrrverandi nauðungarverka-
menn krefjast þess að IG Farben
verði leyst endanlega upp; þeir
álíta tilvist fyrirtækisins eina og
sér vera móðgun.
Eitt dótturfyrirtækja IG Farben
framleiddi á stríðsárunum gasið
Zyklon B, sem notað var til
fjöldamorða í Auschwitz. Talið er
að eignir IG Farben, sem árið 1953
var skipt upp fyrir tilstuðlan sigur-
velda stríðsins og er nú aðeins
eignarhaldsfyrirtæki, nemi um
1110 milljónum króna.
ERLENT
Reuters
Hóta að smita tölvur
Strigaskór
í Kosovo
HABIB, átta ára albanskur
drengur, brosti breitt þar sem
hann hélt á nýjum strigaskóm á
ruslahaugunum utan við Prist-
ina, höfuðborg Kosovohéraðs, í
gær. Friðargæsluliðar Atlants-
hafsbandalagsins hafa gefið föt
börnum sem leita sér og fjöl-
skyldum sínum Iífsviðurværis á
haugunum.
TÖLVUÞRJÓTAR hafa uppi áætl-
anir um skemmdarverk í banka-
kerfi Indónesíu virði indónesísk
stjórnvöld það að vettugi ef íbúar
Austur-Tímors samþykkja í at-
kvæðagreiðslu að lýsa yfir sjálf-
stæði héraðsins. Breska ríkisút-
varpið, BBC, hafði þetta eftir Nó-
belsverðlaunahafanum José
Ramos Horta, einum helsta leið-
toga sjálfstæðissinna.
Horta sagði að um tugur tölvu-
vírusa hefði verið búinn til í því
augnamiði að smita tölvukerfi ef
brögð verði í tafli í atkvæða-
greiðslunni, sem fram fer 30.
ágúst.
Tölvukerfi í bönkum, fjármála-
fyrirtækjum, hernum og flug-
stjórnarkerfum yrðu skotmörk um
eitt hundrað tölvuþrjóta í Evrópu
og Norður-Ameríku. Gæti þetta
valdið efnahagsöngþveiti í
Indónesíu.
Samira Super
60x115 sm.....i
77x150 sm...1.1
115x165 sm.1.1
160x225 sm.3.!
'Æ
%
05
Smáratorgí 1
200 Kópavogi
510 7000
Holtagörajm v/Holtaveg
104 Reykjavik
588 7499
Skeifunm 13
108 Reykjavík
568 7499
Norðjrtanga 3
600 Akureyri
462 6662
Reykjavíkurvegi 72 1
220 Hafnarfjördir ’
565 5560
Toscana
60x110 sm.......990,-
80x150 sm........1.890,-
120x170 sm....2.990,-
170x230 sm.......5.990,
120 sm hringur ...1.990,