Morgunblaðið - 20.08.1999, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 25
ERLENT
Línur teknar
að skýrast hjá
republikönum
Fækkar í hópi þeirra sem berjast fyrir
útnefningn vegna forsetakosninganna
Washington. AP.
NIÐURSTÖÐUR skoðanakönnun-
ar Repúblikanaflokksins í Iowa-ríki
um síðustu helgi, um hver nyti
mests fylgis sem frambjóðandi
flokksins íyrir forsetakosningar á
næsta ári, hafa þegar þrengt nokk-
uð þann hóp manna sem hyggjast
berjast fyrir útnefningu flokksins.
Lamar Alexander, fytrverandi rík-
isstjóri í Tennessee, tUkynnti á
mánudag að hann hefði ákveðið að
draga sig í hlé og staða Dans Quay-
les, fyrrverandi varaforseta Banda-
ííkjanna, þykir næsta vonlaus.
Álexander hefur staðið í nánast
samfelldri baráttu f'yrir því að
verða forsetaframbjóðandi
repúblikana síðustu sex árin, eða
allt frá því hann lét af embætti rík-
isstjóra í Tennessee, og hann náði
mjög viðunandi árangri í forvali
flokksins fyrir forsetakosningarnar
1996.
í aðdraganda þessara kosninga
hefur honum hins vegar ekki tekist
að kveikja áhuga meðal kjósenda
og á mánudag varð hann að viður-
kenna að „það væri einfaldlega
ekki raunhæft" að halda uppi frek-
ari mótspyrnu gegn George W.
Bush, ríkisstjóra í Texas, sem sigr-
aði örugglega í könnuninni í Iowa.
Milljónamæringurinn Steve For-
bes varð þar í öðru sæti og Elisa-
beth Dole í því þriðja.
„Það blása öflugir vindar í bak
George W. Bush, og ég fann fyrir
þeim í Iowa um helgina," sagði
Alexander en hann varð í sjötta
sæti í könnuninni. Alexander lýsti
þó ekki yfír stuðningi við Bush eða
nokkurn hinna frambjóðendanna
og gaf reyndar í skyn að hann teldi
Bush of reynslulausan til að gegna
embætti forseta.
Quayle, sem varð í áttunda sæti
könnunarinnar í Iowa, varð fyrir
áfalli á mánudag þegar kosninga-
stjóri hans og hluti starfsliðs í Suð-
ur-Karólínuríki sneru við honum
baki og gengu til liðs við John
McCain, öldungadeildarþingmann
frá Arizona, sem var sá eini af
hugsanlegum forsetaframbjóðend-
um repúblikana sem ekki tók þátt í
könnuninni í Iowa.
„Það getur verið að rotturnar
séu að yfirgefa skipið, en skipið er
ekki að því komið að sökkva,“ sagði
talsmaður Quayles og ítrekaði að
varaforsetinn fyrrverandi hygðist
halda áfram baráttunni, en
orðrómur hafði verið á kreiki að
Quayle myndi senn leggja árar í
bát. Fréttaskýrendur telja hins
vegar að staða Quayles sé harla
vonlaus enda er erfitt fyrir þá, sem
ekki fengu viðunandi útkomu í
Iowa, að tryggja sér fjármagn til
að halda áfram rekstri kosninga-
baráttu.
Pat Buchanan leggst
undir feld
Hinn íhaldssami Pat Buchanan
mun einnig vera að íhuga kosti sína
en hann lenti í fimmta sæti könn-
unarinnar, sæti á eftir Gary Bauer
en talið er að þeir bítist um sömu
atkvæði í Repúblikanaflokknum.
Buchanan, sem veitti Bob Dole
harða mótspyrnu í forvali flokksins
fyrir síðustu kosningar, þarf nú að
ákveða hvort hann heldur áfram
baráttunni, bindur enda á sína
þriðju tilraun til að verða forseta-
frambjóðandi repúblikana, eða
hvort hann tekur þann kost að
berjast fyrir útnefningu hjá hinum
ört vaxandi Umbótaflokki.
Hart sótt að George W. Bush vegna meintrar eiturlyfjaneyslu
Stökk upp á nef sér
á fréttamannafundi
Texas. Reuters, AP.
GEORGE W. Bush, ríkisstjóri í
Texas og sonur fyrrverandi for-
seta Bandaríkjanna, sem nú sæk-
ist eftir útnefningu Repúblikana-
flokksins fyrir forsetakosning-
arnar á næsta ári neitar enn að
svara spurningum fjölmiðla, er
gerast æ ágengari, um meinta
kókaínneyslu á árum áður.
Missti hann stjórn á skapi sínu
á blaðamannafundi í fyrradag og
ávítaði spyril harkalega fyrir að
spyrja spurninga tengdra eitur-
lyfjaneyslu. „Þér þekkið reglurn-
ar. Óvinveittir koma orðrómi af
stað sem knýr yður til að spyija
slíkra spurninga," svaraði Bush
spurningu blaðamanns og bætti
við: „Þetta eru reglur banda-
rískra stjórnmála. Ég harðneita,
enn og aftur, að taka þátt í slík-
um leik því hann leiðir saklaust
fólk í gildru slúðursins." Bush
sagði kjósendur þurfa að sætta
sig við svör hans, að öðrum kosti
yrðu þeir að kjósa annan fram-
bjóðanda.
Dregur íland
Stuttu seinna kom Bush fram í
sjónvarpsþætti þar sem hann var
AP
George Bush á fréttamanna-
fundinum í fyrradag.
inntur eftir því hvort hann hygð-
ist, næði hann kjöri, breyta
ákvæðum laga um að háttsettir
embættismenn væru spurðir
spurninga af bandarísku alríkis-
lögreglunni, FBI, um fyrri eitur-
lyfjaneyslu. En sá háttur er hafð-
ur á við embættiseið starfsmanna
hins opinbera að þeir svari marg-
víslegum spurningum alríkislög-
reglunnar í öryggisskyni. Bush
sagði að stöðluð spurning FBI
væri hvort viðkomandi hefði not-
að eiturlyf síðastliðin sjö ár og
taldi hann sig eindregið geta
svarað þeirri spuringu neitandi.
Bush neitaði fyrir skömmu að
svara staðlaðri spurningu The
New York Daily News um hvort
hann hefði á árum áður neytt
kókains. Hann kýs að kalla æsku
sína óábyrgu árin í lífí sínu og
segist hafa verið alldrykkfelldur
piparsveinn á árum áður. Áfeng-
isneysla hans hafi verið meiri en
góðu hófi gegnir og hann hafi
þess vegna hætt að snerta áfengi
um fertugt.
Er Bush, eftir ofangreind um-
mæli, kominn í sjálfheldu hvað
málið varðar. Hann mun þurfa að
þola áframhaldandi vangaveltur
um meinta kókaínneyslu og for-
tíð sína þar til að hann leysir frá
skjóðunni. Frægt er orðið að Bill
Clinton viðurkenndi eftir mikið
þref fjölmiðla að hafa reykt
marijúana, án þess þó að hafa
dregið reykinn niður í lungu, á
námsárunum.
Rússneska mafían grun-
uð um peningaþvætti
New York. Reuters.
TALIÐ er að rússneska mafían hafi
undanfarið ár notað banka í New
York til að þvo marga milljarða
Bandaríkjadala, að því er dagblaðið
The New York Times greindi frá í
gær. Sagði í frétt blaðsins að rúm-
lega fjórir milljarðar Bandaríkja-
dala hefðu farið um tiltekinn reikn-
ing í bankanum Bank of New York,
í meira en tíu þúsund bankafærsl-
um, á tímabilinu október 1998 til
mars á þessu ári.
Hins vegar er talið hugsanlegt að
alls tíu milljarðar dollara, um sjö
hundruð milljarðar ísl. króna, hafi
farið í gegnum bankann síðan
snemma á síðasta ári en bandarísk
alríkisyfirvöld ákváðu að halda til-
teknum reikningum opnum í því
skyni að aðstoða við víðtæka rann-
sókn sína á peningaþvætti í Banda-
ríkjunum.
The New York Times hafði efth-
heimildarmönnum sínum að þegar
dæmið væri tekið saman væri um að
ræða umfangsmesta peningaþvætti
sem nokkum tíma hefði verið flett
ofan af í Bandaríkjunum.
Yfirmenn Bank of New York hafa
veitt yfirvöldum aðstoð sína við
rannsóknina, og m.a. rekið tvo
menn úr starfi, sem komið höfðu að
umræddum reikningum. Á hinn
bóginn er ekki vitað í hvaða vasa
peningarnir enduðu og rannsókn yf-
irvalda er á frumstigi. Bandarískur
embættismaður fullyrti hins vegar
að enginn vafi léki á því að hér hefði
rússneska mafían verið að verki.