Morgunblaðið - 20.08.1999, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 31,
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
HUGMYNDIR
BÚNAÐARBANKANS
MARGIR hafa orðið til þess að draga í efa að hægt sé að
setja reglur um hámark eignaraðildar að bönkum.
Þær raddir hafa ekki sízt komið úr fjármálafyrirtækjum á
undanförnum dögum. Þess vegna er athyglisvert að sjá að
nefnd á vegum bankaráðs Búnaðarbankans skilaði tillögum
til viðskiptaráðherra fyrir fjórum árum, löngu áður en þær
umræður sem nú standa yfír hófust um dreifða eignaraðild
að bankakerfinu, þar sem lögð var áherzla á að slíkar regl-
ur jrðu settar við einkavæðingu bankanna.
I samtali við Pálma Jónsson, formann bankaráðs Búnað-
arbankans, í Morgunblaðinu í gær kom fram að nefnd
bankans lagði áherzlu á að koma þyrfti í veg fyrir sam-
þjöppun fjármálavalds og setja þyrfti reglur um að einstak-
ir aðilar eða fjárhagslega tengdir aðilar mættu ekki kaupa
nema ákveðið hámark hlutafjár í banka. Sérstaklega hefði
verið tekið fram að þessar reglur yrðu að ná til endursölu
og taldi bankinn að miða ætti við 5% hámark.
Augljóst er að sérfræðingar Búnaðarbankans telja raun-
hæft að setja slíkar reglur ella hefðu þeir ekki sett þessar
hugmyndir fram við viðskiptaráðherra á sínum tíma. Þess
vegna fer því fjarri að sérfræðingar í fjármálageiranum séu
á einu máli um að slíkt sé óframkvæmanlegt. Hugmyndir
forráðamanna Búnaðarbankans eru enn ein hvatning fyrir
stjórnvöld til þess að kanna ofan í kjölinn hvernig hægt er
að standa að slíku fyrirkomulagi. I öðrum löndum hafa ver-
ið settar strangar reglur um eignaraðild að fyrirtækjum í
öðrum greinum viðskiptalífsins en bankastarfsemi. Ur því
að það er hægt þar á það ekki síður að vera hægt hér að því
er bankana varðar.
HÖRMUNGARNAR
í TYRKLANDI
JARÐSKJÁLFTARNIR í Tyrklandi á þriðjudag hafa
leitt miklar hörmungar yfir tyrknesku þjóðina. Sam-
kvæmt fréttum í gær er um tíu þúsund manna saknað og
búizt er við að tala látinna sé komin í um 7.000 manns. Fólk
stendur uppi eigna- og ástvinalaust. I gær fannst enn lif-
andi fólk í húsarústum í Izmit í norðvesturhluta landsins,
þótt vonin um að fleiri fínnist dvíni með hverjum degi sem
líður.
Fjöldi hjálpar- og björgunarmanna hvaðanæva úr veröld-
inni flykkist nú til Tyrklands. Grikkir, fornir fjendur
Tyrkja, hafa sent hjálpargögn til landsins og láta erjur lið-
inna tíma lönd og leið. Rauði kross íslands hefur þegar
sent fjármuni til landsins til þess að kosta þar hjálpar- og
bj örgunaraðger ðir.
Við íslendingar þekkjum vel afleiðingar náttúruhamfara.
Við eigum að rétta Tyrkjum hjálparhönd í eins ríkum mæli
og við getum.
TIL EFTIRBREYTNI
REYKJAVÍK er ekki gömul borg en hefur engu að síður
mikla sögu að geyma. Þessa sögu má meðal annars
lesa úr húsum og öðrum mannvirkjum sem reist hafa verið
á þessum rúmu tveimur öldum. Varðveisla þeirra er því
hluti af varðveislu á sögu borgarinnar.
Á afmælisdegi Reykjavíkurborgar var húseigendum í
Miðstræti 10 afhent viðurkenning fyrir endurbyggingu
hússins sem þar stendur. Reykjavík er ekki rík af gömlum
og upprunalegum mannvirkjum og því mikilvægt að skiln-
ingur sé á því að varðveita þau, einkenni þeirra og sögu,
sem best. Á undanförnum aldarfjórðungi eða svo hefur orð-
ið mikil vakning um varðveizlu gamalla húsa. Fjölmargir
einstaklingar hafa lagt þar hönd á plóginn og byggt upp
gömul hús af mikilli vandvirkni. Þetta framtak hins al-
menna borgara setur nú þegar skemmtilegan svip á höfuð-
borg landsins.
Hið sama hefur gerzt víða annars staðar, í Hafnarfirði og
á ísafirði, á Akureyri og Seyðisfirði, svo að nokkur dæmi
séu nefnd. Það er mikil ástæða til að hlúa að þessu frum-
kvæði einstaklinga og fjölskyldna og sýna því sóma.
Yfirlit
lón og virkjanir
VatnajÖkuls Á
Brúarlón
Amardals-
virkjun
./Bfúarvirkjun
Újötsdalsvírkjun
iárahnúkavirkjun
Kára-
hnúkar
Hálslón
Eyjabakkalón
Virkjanaáform breyst
með auknum rannsóknum
Miklar rannsóknir hafa
farið fram á virkjana-
svæðum norðan Vatna-
jökuls, meðal annars á
umhverfisþáttum. Helgi
Bjarnason gerir grein
fyrir því helsta sem
fram kom í kynnisferð
Orkustofnunar.
ORKUSTOFNUN stóð
íyrir skoðunarferð
stjórnenda stofnunar-
innar og nokkurra yfír-
manna í iðnaðarráðu-
neytinu um virkjanasvæðin norðan
Vatnajökuls. Þorkell Helgason orku-
málastjóri var ánægður með ferðina,
sagði að hún hefði heppnast vel mið-
að við veður og þann tíma sem til
hennar var ætlaður. „Orkustofnun
er almenn ráðgjafarstofnun stjórn-
valda um orkumál. Meðal sérfræð-
inga hennar er mikil þekking á
virkjunarmálum og ekki síst á þeim
kostum sem eru hér norðan Vatna-
jökuls. Stofnunin vill koma á fram-
færi vönduðum og hlutlausum upp-
lýsingum um þessi mál, bæði til
ráðamanna og ekki síður til almenn-
ings í gegnum fjölmiðla. Þessi ferð
var farin í samræmi við þessa
stefnu. Jafnframt hafa orðið á Orku-
stofnun og í iðnaðarráðuneytinu
nokkrar breytingar á forystuliði og
því nauðsynlegt að gefa nýjum
mönnum kost á að sjá með eigin
augum aðstæður við þessa miklu
virkjunarkosti. Okkur þótti því fara
vel saman að hafa með saman í för
sérfræðinga, ráðamenn og blaða-
menn,“ segir Þorkell.
Auk embættismanna var Finnur
Ingólfsson iðnaðarráðherra allan
tímann, Valgerður Sverrisdóttir
þingmaður af Norðurlandi eystra
var með fyrri dag kynnisferðarinnar
og Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra síðari daginn.
Áætlanir hafa breyst
Fyrstu áætlanir um stórvirkjanir
norðan Vatnajökuls eru frá því um
1960. Þær byggðu á fáum rennslis-
mælingum og lítilli þekkingu á nátt-
úrufari. Fyrst og fremst var hugað
að falli og rennsli og með einföldum
líkanreikningum fundið út líklegt
orkuverð. Betri upplýsingar fengust
með gerð nákvæmra staðfræðikorta,
frekari uppbyggingu vatnshæða-
mælakerfís og jarðfræðirannsóknum
og síðar umhverfisrannsóknum sem
hófust á árunum 1975 til 1977, iyrst
á Eyjabökkum og Fljótsdalsheiði, þá
við Jökulsá á Dal og síðan í Brúar-
dölum og við Jökulsá á Fjöllum. Á
þessum tíma og síðan hafa virkjana-
áætlanir og hugmyndir að tilhögun
þróast í takt við auknar upplýsingar
um alla þessa þætti.
Sem dæmi um breytingar á virkj-
anahugmyndum nefnir Hákon Aðal-
steinsson, fagstjóri umhverfismála
hjá Orkustofnun, að þegar íyrst var
hugað að nýtingu Jökulsár á Dal hafi
verið gert ráð fyrir stíflu neðarlega í
Hafrahvammagljúfrum og að nýta
Hafrahvamma- og Dimmugljúfur
undir miðlunarlón. Þetta hafí komið
vel út við skrifstofuvinnuna. Hins
vegar hafi stíflan verið færð upp fyr-
ir megingljúfrin strax og fyrstu at-
huganir voru gerðar á staðnum, en
það var um 1980. Frá þeim tíma hafa
allar áætlanir gert ráð fyrir Hálslóni
ofan við gljúfrin, þótt erfitt hafi
reynst að kveða niður gamla draug-
inn um að sökkva eigi Dimmugljúfr-
um undir vatn.
Annað dæmi er Fagridalur. Um
Morgunblaðið/Golli
Eyjdlfur Árni Rafnsson, formaður stjórnar Orkustofnunar, og Valgerður Sverrisddttir alþingismaður bera saman bækur sínar við rætur Snæfells.
tíma var hugmyndin að nota Fa-
gradal, Álftadal og Þríhyrningsdal
til miðlunar á Jökulsá á Fjöllum og
Kreppu vegna hugsanlegrar virkj-
unar. Síðar varð Amardalur íyrir
valinu sem lónstæði. Tilgangurinn
var að koma lóninu sem lengst frá
jökli og að það hefði sem minnst
áhrif á Krepputungu.
Krefjast stdrra miðlunarlöna
Virkjun jökulánna þriggja sem
koma undan norðanverðum Vatna-
jökli, Jökulsár í Fljótsdal, Jökulsár á
Dal (Jökla) og Jökulsár á Fjöllum,
krefst mikilla miðlunarlóna vegna
þess hversu rennsli ánna er misjafnt
eftir árstíma. Lón Jökulsár í Fljóts-
dal verður á Eyjabökkum, lón Jök-
ulsár á Dal ofan við Kárahnúka og
lón hugsanlegrar virkjunar Jökulsár
á Fjöllum yrði í Arnardal. Þær áætl-
anir sem unnið er eftir í dag gera
ráð fyrir að vatnið úr Eyjabakkalóni
verði veitt um jarðgöng niður að
stöðvarhúsi í Fljótsdal. Gert er ráð
fyrir því að vatni úr Hálslóni í Jök-
ulsá á Dal verði veitt um jarðgöng
niður í Fljótsdal og hún sameinist
þar Jökulsá í Fljótsdal. Loks er gert
ráð fyrir að sjálfstæð virkjun verði í
Arnardal en vatni hennar að mestu
leyti beint í Jökulsá á Dal um Brúar-
lón og meginorkuframleiðslan verði í
Fljótsdal. Þar verði því þrjár virkj-
anir.
Rétt er að taka fram að Lands-
virkjun hefur fengið leyfi til virkjun-
ar Jökulsár í Fljótsdal en frekari
framkvæmdir eru háðar samningum
um byggingu álvers í Reyðarfirði.
Engar ákvarðanir hafa verið teknar
um hinar virkjanirnar og ljóst að
ekki verður í þær ráðist nema að
undangengu formlegu mati á um-
hverfisáhrifum.
Enn er unnið að ákveðnum grunn-
rannsóknum á Jökulsá á Fjöllum
þótt stjómmálamenn hafi viljað ýta
þeim virkjanakosti út af borðinu
vegna áhrifa þess á Dettifoss ef
vatninu yrði veitt austur í Fljótsdal.
Hákon Aðalsteinsson telur það
ábyrgðarlaust að útiloka svo hag-
kvæman virkjanakost og segir að
ýmsar hugmyndir séu. uppi um
breytingar sem verði athugaðar við
gerð rammaáætlunar um nýtingu
vatnsafls og jarðvarma. „Það útilok-
ar ekki nýtingu lónstæðis í Arnardal
þótt krafa sé um að virkjun Jökulsár
á Fjöllum hafi sem allra minnst áhrif
á Dettifoss. Það mætti hugsa sér að
veita vestustu kvíslum Jökulsár á
Dal þangað og nýta lónið án þess að
það hefði áhrif á fossinn,“ segir Há-
kon.
Lítil áhrif á Lagarfljót
Á veturna getur rennsli Jökulsár í
Fljótsdal neðan Eyjabakka orðið
minna en 2 rúmmetrar á sekúndu en
sumarrennsli stundum yfir 100-200
rúmmetrar á sekúndu. Virkjunin er
hönnuð miðað við 500 gígalítra miðl-
un sem fæst með yfirfallshæð um
665 m í Eyjabakkalóni. Jökulsá á
Dal hefur svipaða rennsliseiginleika,
vetrarrennsli getur verið mjög lítið
og sumarrennsli mikið. Meðalrennsli
Jöklu er um fimmfalt meira en í Jök-
ulsá í Fljótsdal og miðlunarþörf því
meiri. Hálslón þyrfi að geta geymt
1500 gígalítra af vatni. Hins vegar
byggist um helmingur af meðal-
rennsli Jökulsár á Fjöllum við Arn-
ardal á grunnvatni og miðlunarþörf
því hlutfallslega minni en í hinum
virkjunum. Arnardalslón þyrfti að
geyma 1340 Gl.
Aurburður er fremur lítill í Jök-
ulsá í Fljótsdal og er talið að það
gæti tekið ána um tvö þúsund ár að
fylla lónið af sandi. Rannsóknir á
+
aurburði í hinum ánum eru
skemmra á veg komnar. Um 80% af
aur Jökulsár fellur út í Lagarfljóti,
aðallega þar sem áin rennur út í
fljótið. Um fimmtungur helst í svif-
lausn og gruggar fljótið. Langmest-
ur hluti vatnsins tekur engan þátt í
frumframleiðni og þar er mjög lítið
svif. Sama gildir um strandsvæðin.
Orkustofnun telur því að virkjun
Jökulsár í Fljótsdal muni sáralitlu
breyta að þessu leyti. Ef virkjuðu
vatni úr Jökulsá á Dal yrði veitt í
Lagarfljót er gert ráð fyrir að grugg
muni tífaldast í vatninu. Það mun
eitthvað draga úr framleiðni en bent
er á að líkur séu á að ekki sé úr há-
um söðli að detta. Þess ber að geta
að þessar tvær ár renna nú þegar
um sama ós út í Héraðsflóa.
Rannsóknir Orkustofnunar sýna
að virkjanirnar munu sáralítil áhrif
hafa á hitastig vatnsins í Leginum,
þar ræður vatnsforði og veðurfar
nær öllu. Virkjun Jökulsár í Fljóts-
dal mun ein og sér lítið draga úr
vatnsborðssveiflum í Lagarfljóti, að
öðru leyti en því að söfnun vatns til
að tryggja Lagarfossvirkjun vetrar-
vatn verður óþörf eftir miðlun Jök-
ulsár. Líkanreikningar á rennsli og
vatnshæð í Lagarfljóti eftir virkjun
og veitu Jökulsár á Dal benda ekki
til að gera þurfi mikið til að koma í
veg fyrir að vatnsborð hækki um-
fram það sem það verður hæst yfir
sumarið. Rýmka þarf farveg ofan
Lagarfossvirkjunar. Það er ekki fyrr
en með hugsanlegri veitu frá Jök-
ulsá á Fjöllum að einnig verður þörf
á að rýmka farveg norðan Lagar-
fljótsbrúar.
Finna geldgæsirnar frið?
Miklar umhverfisrannsóknir hafa
farið fram við Jökulsá í Fljótsdal
vegna undirbúnings virkjunar. Að
því er fram kemur í yfirliti Orku-
stofnunar sem dreift var í kynnis-
ferðinni vekur hin mikla gróska á
Eyjabakkasvæðinu sérstaka athygli
grasafræðinga. Hana má meðal
annars rekja til nálægðar Snæfells
en meiri úrkoma er austan fjallsins
Iðnaðarráðherra segir efnahagsuppsveifluna
grundvallast á orkufrekum iðnaði
Morgunblaðið/Golli
Frá áætluðum virkjunarstað Jöklu, við Fremri-Kárahnúk. Þar er fyrir-
hugað að byggja hæstu stíflu Norðurlanda, hátt í 200 metra á hæð.
Lífskjör framtíð-
arinnar byggjast
á fjölbreyttu
atvinnulífí
en vestan. Eyjabakkar eru flóð-
slétta og því flatir og hallalitlir.
Upp frá bökkum hækkar land
smám saman og mismikið. þar til
upp í hlíðar Snæfells kemur. Þetta
veldur því að rakastig jarðvegs
verður fjölbreytilegt sem veldur
fjölbreytni í flóru og að viðbættri
fjallaflóru Snæfells verður svæði í
heild meðal þeirra svæða á hálend-
inu sem eru fjölbreyttust að gróð-
urfari. Ýmislegt fleira hefur verið
nefnt sem ljær gróðurfari svæðisins
sérstöðu, svo sem að Snæfellssvæð-
ið er á enda samfellds gróðurlendis
allt frá Héraðsflóa að Vatnajökli. Af
jarðfræðilegum fyrirbærum er
helst að nefna jökulminjar sem
tengjast mesta framskriði Vatna-
jökuls, um 1890.
Síðustu árin hafa 8-9 þúsund
heiðagæsir fellt fjaðrir á Eyjabökk-
um en það eru um 50-70% af geldum
heiðagæsum á Islandi en einungis
10-15% af geldum heiðagæsum í ís-
lensk-grænlenska stofninum, að því
er fram kemur í yfiriiti um rann-
sóknir Orkustofnunar. Um helming-
ur af íslensk-grænlenska heiðagæsa-
stofninum fyllir flokk geldra gæsa,
eða um 100 þúsund fuglar, og þar af
eru aðeins um 15 þúsund fuglar á ís-
landi. „Það er m.a. í þessu samhengi
og þekkingu á stofnhegðun sem
verður að meta hvort hugsanleg
áhrif Eyjabakkamiðlunar á heiða-
gæsastofninn séu umtalsverð."
Orkustofnunarmenn telja allt benda
til þess að geldgæsirnar myndu
fínna sér önnur svæði til að fella
fjaðrirnar, stærri hluti þeirra færi til
Grænlands eða þær fyndu frið ann-
ars staðar á íslandi eða jafnvel við
Eyjabakkalón. Þeir velta líka fyrir
sér áhrifum gífurlegrar fjölgunar
heiðagæsa á gróðurfar landsins, sér-
staklega á Austurlandi. „Það hlýtur
að vera álitamál hvort okkur beri að
rýma til fyrir hvaða þróun sem til-
teknum fugla- eða dýrastofni þókn-
ast að taka, til dæmis ef það getur
rýrt önnur landgæði svo sem gróð-
urfar landsins. Á dýravernd að snú-
ast um verndun einstakra dýra eða
dýrastofna? Ef hið fyrra á við eins
og oft vill gæta í umræðum um felli-
gæsahópinn á Eyjabökkum, hvað þá
með kjúklingana í kjörbúðunum?
segir í yfirliti Hákons Aðalsteinsson-
ar um umhverfisrannsóknir á virkj-
anasvæðinu.
Farleið hreindýra
Eyjabakkar eru farleið hreindýra
milli beitarsvæða. Þótt miðlunarlón
yrði gert þai’ komast dýrin áfram út
Fljótsdalsheiði. Meiri áhyggjur voru
um afdrif hreindýra á þessari leið
þegar gert var ráð fyrir að leiða
vatnið úr Eyjabakkalóni með mikl-
um skurði, rösklega 30 kílómetra
löngum, og niður að stöðvarhúsi í
Fljótsdal þar sem auk þess var talin
þörf á inntakslóni. Horfið var frá
þessari tilhögun, meðal annars
vegna þróunar í jarðgangagerð, og
nú er gert ráð fyrir að vatnið verði
leitt í jarðgöngum og ekki verði þörf
á inntakslóni. Jafnframt var virkjun-
in minnkuð nokkuð frá því sem upp-
haflega var áformað. Breytingarnar
gerðu það að verkum að landþörf
virkjunarinnar minnkaði um 35 fer-
kílómetra og þar af voru að minnsta
kosti 20 ferkílómetrar gróðurlendi
auk vatna.
Við fyrirhugað Hálslón í Jöklu
eru mikilvæg burðar- og beitar-
svæði hreindýra, einkum vor og
fyrri hluta sumars. Eftir rannsóknir
á hreindýrastofninum 1979 til 1981
var það álit sérfræðings að Hálsinn
og svæðið niður af Jöklu væri mikil-
vægt til að tryggja burð í snjó-
þyngstu árum, vegna þess að þá
væri minni snjór í árdalnum en á
heiðunum. Hákon Aðalsteinsson
segir að vegna þessa hafi komið til
skoðunar að lækka Hálslón og veita
vatninu yfir í Laugarvalladal.
Komið hafi í ljós að sá kostur væri
enn verri en Hálslón út frá um-
hverfissjónarmiðum og því hafi
Hálslón orðið ofan á aftur. Fram
kemur í yfirliti Orkustofnunar að
síðari athuganir á fjölda dýra í Hálsi
og á Vesturöræfum á burðartíma
hafi leitt í ljós að á snjóþungum vor-
um fara dýrin sáralítið inn á þetta
svæði og bera líklega í hlíðum dal-
anna á leiðinni inn úr.
LÍFSKJÖR framtíðarinnar
byggjast á fjölbreyttu atvinnu-
lífi,“ sagði Finnur Ingólfsson
iðnaðarráðherra á fundi á Hallorms-
stað með þátttakendum í skoðunar-
ferð Orkustofnunar um virkjanasvæð-
in norðan Vatnajökuls. Fjallaði hann
um áframhaldandi uppbyggingu
orkufreks iðnaðar, meðal annars ál-
vers Noral í Reyðarfirði, sem gæti
tekið til starfa árið 2003 ef samningar
nást fyrir mitt næsta ár.
„Efnahagsuppsveiflan byggist á
fjárfestingu í orkufrekum iðnaði,“
sagði Finnm- Ingólfsson þegar hann
greindi frá ávinningi af orkufrekum
iðnaði árin 1995 til 2000. Erindið
nefndi hann: „Nýting orkuauðlind-
anna til atvinnuuppbyggingar og
byggðaþróunar". í þessu sambandi
nefndi hann að fjárfest væri í iðjuver-
um fyrir 25 milljarða og raforkuver-
um fyrir 27 milljarða. Bein erlend
fjárfesting hefði verið 24 milljai’ðar á
árinu 1997 en einungis 8 milljarðar
tveimur árum áður. Finnur fullyrti að
fjárfestingin hefði ekki leitt til verð-
bólgu og þenslu í efnahagslífinu en
yki landsframleiðslu varanlega um 2%
og yki útflutning um 16 milljarða eða
8%.
Virkjanaheimildir umfram þörf
Iðnaðarráðherra sagði nauðsynlegt
að leggja grunn að varanlegri er-
lendri fjárfestingu og fór yfir næstu
verkefni í orkufrekum iðnaði. Nefndi
að stækkun Norðuráls úr 60 í 90 þús-
und tonna ársframleiðslu kallaði á um
það bil 55 megawatta virkjun, stækk-
un Norðuráls í 180 þúsund tonn
krefðist 160 MW til viðbótar og fyrir
fyrsta áfanga álverksmiðju Noral á
Reyðarfirði, sem áætlaður er 120 þús-
und tonn, þyrfti 230 MW virkjun til
raforkuframleiðslu. Heildai’orkuþörf
þessara verkefna væri 3650 GWst eða
sem svaraði til 445 MW afls í nýjum
virkjunum.
Alþingi hefur veitt heimildir til sjö
virkjana sem ekki hafa verið nýttar,
alls tæplega 800 megawött að stærð,
og sagði Finnur að það væri talsvert
umfram þörf. Stærst er Fljótsdals-
virkjun, sem Alþingi heimilaði að yrði
330 MW að stærð en ráðherra hefur
heimilað Landsvirkjun að byggja þar
210 MW virkjun. Þá kemur Sultar-
tangavirkjun með 130 MW, Búðar-
hálsvirkjun með 120 MW og Vatns-
fellsvirkjun sem er 110 MW að stærð.
Lokaákvörðun fyrir mitt næsta ár
Hugmyndir um Noral-verkefnið
sagði iðnaðarráðherra að byggðust á
álveri við Reyðarfjörð með 120 þús-
und tonna árlega afkastagetu í fyrsta
áfanga en mögulega stækkun í 480
þúsund tonn. Hugmyndin hvílir
einnig á áætlunum um Fljótsdals-
virkjun en fyrirhugað er að Lands-
virkjun eigi hana og reki. Loks er
gert ráð fyrir að íslenskir fjárfestar
eigi meirihluta álversins á móti Hydro
Aluminium AS. Áætluð heildarfjár-
festing við fyrsta áfanga er 60 millj-
arðar kr. sem skiptist jafnt á milli
virkjunai’ og álvers. Ai’ðsemi er talin
verða 12-14% af heildarfjármögnun.
Kvaðst Finnur vonast til að lokaá-
kvörðun yrði tekin fyrir mitt næsta ár
og framkvæmdir gætu þá hafist
þannig að fyrsti áfangi tæki til starfa
árið 2003.
Annar áfangi Noral-verkefnisins er
ótímasettur en hann er talinn kosta
110 milljarða króna fjárfestingu og
þriðji áfangi, sem einnig er óákveð-
inn, kallar á 60 milljarða kr. til viðbót-
ar. Heildarfjárfesting verðm’ því 230
milljarðar kr., ef af öllum þessum
áformum verður. Seinni áfangar
Noral krefjast nýrra virkjana. Þannig
er gert ráð fyrir 500 MW virkjun í
Jökulsá í Dal við Kárahnúka fyrir
annan áfanga en ýmsum smærri
virkjunum í samtengdu orkukerfi fyr-
ir þriðja áfangann. Spurður að því
hvort þetta þýddi ekki að með samn-
ingum um Noral-verkefnið væri verið^,
að ákveða Kárahnúkavirkjun sagði
Þórður Friðjónsson, fráfarandi ráðu-
neytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu, að
mikilvægt væri fyrir álver að eiga
stækkunarmöguleika til að vera sam-
keppnishæft í framtíðinni. í þessum
iðnaði væri stöðug krafa um aukna
hagkvæmni, enda gert ráð fyrir 1%
lækkun álverðs á ári. Það þýddi að
120 þúsund tonna álver yrði óhag-
kvæmt eftir 10-15 ár. Því væri ljóst
að í samningum yrðu gerðar ríkar
kröfur um afhendingu frekari orku,
eins bindandi yfirlýsingar og kostur
væri á. Kárahnúkavirkjun hentaði vel
til þessa áfanga. Hins vegai’ yrði
ávallt að hafa þann fyrirvara að Jökla
yrði ekki virkjuð nema að undan-
gengnu mati á umhverfisáhrifum
virkjunar.
Fjölbreyttara atvinnulíf
Finnur Ingólfsson greindi frá áætl-
uðum þjóðhagslegum áhrifum af
stækkun Norðuráls og álveri á Aust-
urlandi á árunum 2000 til 2006.
Landsframleiðsla mun aukast varan-
lega um 4,5% og einkaneysla um 3%.
Fjárfesting nemur 180 milljörðum kr.
Útflutningur eykst um 10-15% en við-
skiptahalli mun aukast á byggingar-
tíma um 3,5% af vergri landsfram-
leiðslu.
Framtíðai’sýn ráðherrans er að at-
vinnulífið verði mun fjölbreyttara árið
2010, ekki síst vegna aukinnar stór-
iðju og vaxtar í þekkingariðnaði og
ferðaþjónustu. Hlutfall sjávarafurða
myndi að sama skapi minnka frá því
sem nú er. „Lífskjör framtíðarinnar
byggjast á fjölbreyttu atvinnulífi,"
sagði Finnur.