Morgunblaðið - 20.08.1999, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999 41
«L
eins og amma og afi bama okkar, sem
alltaf áttu athvarf hjá þeim, ef með
þurfti. Á hinn bóginn kynntumst við
einnig betur þeirra bömum, þ.ám.
tveim elstu sonunum, sem Halla gætti
á Vöglum. Vora öll börn þeirra heima-
gangar hjá okkur og gættu stundum
okkar bama, ef með þurfti. Hlutverk-
in breytast og þróast með árunum.
Vinskapur við þau og þeima fjölskyld-
m- hefiir haldist gegnum árin. Sísí
þurfti að annast stóran barnahóp og
tókst það vel með sinni óbilandi ró og
yfírvegun. Alltaf gátum við leitað til
hennar með ýmis vandamál, hún hafði
aldrei svo mikið að gera að hún gæti
ekki rétt okkur eða bömum okkar
hjálparhönd. Góða kímnigáfu hafði
Sísí. Kunni hún að meta góðar gaman-
sögur og hló þá dátt á sinn hátt, ekki
með hávaða og látum, heldur með
góðu brosi og dillandi, hljóðlátum
hlátri. Hún var músíkölsk vel og spil-
aði t.d. undir allan söng á Vöglum,
sem ekki svo sjaldan hljómaði þar.
Lítið gerði hún af því seinni árin, lík-
lega helst vegna anna, því stórt heim-
ili þurfti að annast.
Sísi átti íljótlega við vanheilsu að
stríða, sem kom þó ekki í ljós fyrr en
eftir fæðingu næstyngsta barns henn-
ar, Vilhjálms. Var það sykursýki, sem
eflaust heftu- hrjáð hana þó nokkum
tíma áður en í ljós kom. Skýrir það
sumt í hennar fari þau ár.
Árið 1968 lentu þau hjónin í hræði-
legu bílslysi, þar sem Sísí og vinkona
hennar slösuðust illa, en Einar og vin-
ur hans töpuðu lífinu. Þetta mikla slys
olli straumhvörfum í lífi Sísíar, þama
missti hún hjartfólginn eiginmann og
hlaut þau meiðsl sjálf, sem ásamt
fyrrnefndum sjúkdómi gerðu það sem
eftir var af lífi hennar að kvalafullri
pílagrímsgöngu. Síðustu 10 ár a.m.k.
naut hún góðrar aðhlynningar í
Sunnuhlíð í Kópavogi, en í Kópavogi
vildi hún helst vera. Hún og Einar
vora jú ein af frambyggjum Kópa-
vogs. Þessi síðustu ár Sísíar í Sunnu-
hlið urðu æ erfiðari því alltaf komu ný
og ný áfóll til að veikja líkamsþrekið,
en andlega slappaðist Sísí aldrei.
Fram til síðustu stundai- hélt hún and-
legri heilsu að fullu, og eins og konan
mín sagði, „hún hafði allt á hreinu til
síðustu stundar".
Að lokum vil ég minnast áttræðis-
afmælis hennar, sem haldið var upp á
í sal Sunnuhlíðar. Ég gerðist þá svo
djarfur að segja nokkur þakklætisorð
til hennar og minntist þá áranna
liðnu á Nýbýlavegi 3. Þá yljaði mér
um hjartaræturnar að sjá gamal-
kunna brosið færast yfir andlit henn-
ar og heyra frá henni niðurbældan,
kitlandi hláturinn. Já, Sísí gat alltaf
séð björtu hliðamar á lífinu og var
bjartsýnin uppmáluð. Þannig minnist
ég hennar, sitjandi í hjólastólum sín-
um, brosandi.
Við Halla sendum öllum bömum
hennar, barnabörnum og öðram að-
standendum okkar dýpstu samúðar-
kveðjur.
Drottinn blessi minningu hennar.
Baldur Bjarnasen.
Elskulega amma og langamma.
Fréttin um andlát þitt barst okkur
um langan veg og því langaði okkur
að minnast þín í nokkrum fátækleg-
um orðum.
Englarnir komu og náðu í þig,
báru þig upp til himna og læknuðu
þig á leiðinni.
Við vissum að þú þráðir orðið að
komast í þetta ferðalag til fundar við
vinina alla sem farnir voru á undan.
„Lítill vænglami flýgur nú í nýjum
geislahami,“ segir í ljóðinu hans Þor-
steins Valdimarssonar um væng-
brotna máríuerlu sem dó og losnaði
þá við sínar þrautir og þjáningu og
gat flogið á ný.
Þakka þér fyrir allar góðu og fal-
legu minningarnar sem við eigum og
við hugsum hlýlega til þin. Hvíldu í
friði.
Sólrún og Patrekur Einar.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem.)
Elsku besta amma, við þökkum
þér fyrir allar góðu stundirnar.
Signý og Þorvaldur.
ANNA
ÓLAFSDÓTTIR
+ Anna Ólafsdóttir
fæddist í Geira-
kotí í Fróðárhreppi
á Snæfellsnesi 14.
niaí 1917. Hún lést á
Landspítalanum 11.
ágúst síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Ólafur Gísla-
son, bóndi í Geira-
kotí, og kona hans
ólöf Einarsdóttir.
Systkini Önnu voru
Ingólfur, Helga, Sig-
urður, Katrín, Gísli,
Kristfinnur, Guð-
björg, Jóhanna, Einar og Ólína,
öll látín, en eftirlifandi eru Ása,
Sigurborg og Bjami.
Hinn 10. desember 1938 giftíst
Anna Karli Eiríkssyni, f. 21. nóv-
ember 1910, d. 14. júlí 1992, frá
Gröf í Breiðuvík. Foreldrar hans
vom Eiríkur Sigurðsson og
Steinvör Ármannsdóttír. Anna
og Karl hófu búskap á Gröf en
fluttust að Öxl í sömu sveit 1941
og bjuggu þar til ársins 1981 er
þau fluttust að Giljaseli 5 í
Reykjavík. Þeim varð 15 barna
auðið. 1) Reimar, f. 1940, maki
Galína Karlsson, þau eiga einn
son. 2) Jóhannes, f. 1941, maki
Sigrún Jónsdóttír, þau eiga tvö
börn og þijú barnaböm. 3)
Ingólfur, f. 1942, maki Sigrún
Jóhannsdóttir, þau
eiga fjögur börn og
fimm barnabörn. 4)
Steinar, f. 1943,
maki Ester Hall-
dórsdóttir, þau eiga
tvö börn. 5) Krist-
jana, f. 1944, maki
Guðmundur Einars-
son, þau eiga fjögur
börn. 6) Ólöf, f.
1946, maki Vigfús
Þór Jónsson, þau
eiga tvö böm og eitt
barnabam. 7) Ólaf-
ur, f. 1947, maki
Þórhildur Richter, þau eiga tvo
börn. 8) Kristlaug, f. 1948, hún á
þrjú börn og eitt barnabarn. 9)
Elín, f. 1949. 10) Eiríkur, f. 1951,
maki Anna Margrét Vésteins-
dóttir, þau eiga þrjú börn. 11)
Anna, f. 1952, maki Einar Þór
Þórsson, þau eiga þijú börn. 12)
Emilía, f. 1954, maki Ólafur
Hjálmarsson, þau eiga tvö börn.
13) Guðrún, f. 1955, maki Þor-
valdur Bjarnason, þau eiga þrjú
börn. 14) Sigurður Karl, f. 1958,
maki Ása Magnúsdóttir, þau
eiga tvö börn. 15) Guðbjörg
Baldvina, f. 1959, maki Egill Þór
Magnússon, þau eiga eitt bam.
Utför Önnu fer fram frá Víði-
staðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
í dag kveðjum við elskulega
tengdamóður okkar, Önnu Ólafsdótt-
ur frá Öxl.
Tengdamamma var sannkölluð
hvunndagshetja. Hún eignaðist 15
börn á nítján árum, heilbrigð og vel
af Guði gerð. Má nærri geta hvílík
vinna liggur að baki því að koma til
manns svo stóram barnahópi, en þau
vora samhent hjónin í Öxl, tengda-
foreldrar okkar, Kalli og Anna. Vakti
það athygli okkar og aðdáun að sjá
hvernig störfin vora unnin á heimil-
inu. Ekki var hávaðanum fyrir að
fara, allt gekk þetta fyrir sig eins og
í vel smurðri vél. Kannski er það
ekki síst að þakka æðraleysi hennar
og rósemi á hverju sem gekk. Það
var oft glatt á hjalla, sungið og spilað
á gítar og tekin „nokkur“ spil.
Anna var ákaflega falleg kona.
Hún var létt og frá á fæti þrátt fyrir
að hafa orðið fyrir því óláni veturinn
1962 að detta og lærbrotna og átti
hún í því alla tíð síðan. Oft hafði hún
orð á því, að ef hún væri ung í dag,
myndi hún hafa hug á að stunda
íþróttir.
Á kveðjustund streyma minning-
arnar fram en efst er okkur í huga
þakklæti fyrir það hversu vel hún
tók okkur er við bættumst við stóra
fjölskylduna hennar ein af annarri.
Barnabörnunum var hún yndisleg
amma og Rafni Inga tók hún ekki
síður en sínum eigin.
Við minnumst hennar með virð-
ingu og þökk og biðjum henni Guðs
blessunar á nýjum slóðum þar sem
við vitum að Kalli tengdapabbi bíður
hennar.
Tengdadætur.
Elsku amma mín. Þakka þér fyrir
hvað þú varst alltaf góð við mig.
Stundum spyr ég mömmu mína
hvort við eigum að fara að heimsækja
þig á Grand, en mamma segir að það
sé ekki hægt. Ég skil ekki alveg af
hverju þú ert ekki þar ennþá. Það
var alltaf svo gott að koma til þín.
Þegar við fóram í göngutúra í kring-
um húsið þóttist þú stundum ætla að
ná mér. Það fannst mér svo gaman.
Guð geymi þig, amma mín.
María.
Elsku amma. Okkur langar til að
kveðja þig með fáeinum orðum, þú
sem varst okkur svo kær. Þó lífsveg-
ur þinn hafi verið erfiður gafst þú
okkur svo mikið. Það var alltaf svo
gott að koma til þín og fá að njóta
nærveru þinnar. Takk fyrir allt sem
þú hefur kennt okkur, elsku amma.
Ég mun sakna raddar þinnar og
hlýju og veit að þú munt vaka yfir
okkur. En þreyttur líkami þinn sem
afrekaði svo mikið fékk loks hvíldina
og þú ert komin til afa.
Guð geymi þig. #*
Eyþór, Eydís og Eyrún Anna.
Löng þá sjúkdómsleiðin verður,
lífið hvergi vægir þér,
þrautir magnast, þrjóta kraftar,
þungt og sárt hvert sporið er,
honum treystu, hjálpin kemur,
hann af raunum sigur ber.
Drottinn læknar, - Drottinn vakir
daga’ og nætur yfir þér.
(Sigurður Kr. Pétursson.)
Anna og Einar Þór.
Elsku amma. Nú ert þú dáin og
komin til afa, sem dó fyrir sjö áram.
Það er gott að vita að þið erað aftur
saman. Þið tókuð okkur opnum örm-
um og vorað alltaf svo hlý og yndis-
leg. Það var svo gott að hafa ykkur
hjá okkur um jól og á sumrin. Þá
kynntumst við svo vel og við eigum
góðar minningar um ykkur, þó að ár-
in séu ekki ýkja mörg. Við þökkum
þér, amma mín, fyrir samverastund-
irnar og biðjum að heilsa afa.
Katrín og Amanda.
BRANDUR
BRYNJÓLFSSON
+ Brandur Brynj-
ólfsson var
fæddur á
Hellisandi 21. des-
ember 1916. Hann
lést á Landspítal-
anum 27. júlí síð-
astliðinn. Foreldr-
ar hans voru
Brynjólfur Kjart-
ansson skipstjóri í
Reykjavík og k.h.
Ingveldur Brands-
dóttir húsfreyja.
Brandur var þrí-
kvæntur. Hann
eignaðist fjögur
börn. Þau eru: Orri, maki
Harpa Guttormsdóttir, Þór-
unn, inaki Björn Erlendsson,
Sigríður Inga, maki Bergur
Oliversson, og Jóhann, maki
Guðrún Eyjólfsdóttir.
Brandur varð
stúdent frá MA árið
1937 og cand; juris.
frá Háskóla íslands
árið 1943. Hann rak
eigin lögmanns-
stofu í Reykjavfk
frá 1946. Brandur
tók virkan þátt í
íþróttum á yngri ár-
um. Hann keppti í
frjálsum íþróttum
og knattspyrnu og
var m.a. fyrsti fyrir-
liði íslenska lands-
liðsins í knatt-
spyrnu, sem keppti
gegn Dönum á Melavelli 1946.
Hann sat í stjórn Víkings og var
formaður félagsins um hríð og
sat einnig í stjórn ÍSÍ.
títför Brands fór fram í kyrr-
þey að ósk hins látna.
t
Hjartkær frænka mín,
INGIBJÖRG ODDSDÓTTIR,
Bráðræði, Eyrarbakka,
lést að morgni fimmtudagsins 19. ágúst á
hjúkrunarheimilinu Eir.
Útförin verður auglýst síðar.
Kristín Bragadóttir.
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi
HARALDUR ÁGÚSTSSON,
Laugavegi 24,
Reykjavík,
andaðist miðvikudaginn 18. ágúst.
Rannveig Haraldsdóttir, Gústaf Gústafsson,
Sigrún Haraldsdóttir, Jón Gunnar Þorkelsson,
delga Haraldsdóttir, Markús Úlfsson,
Dagmar Haraldsdóttir, Pétur Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kveðjuorð frá Knattspyrnu-
félaginu Vfldngi
Nýlega er iátinn í Reykjavík
Brandur Brynjólfsson, hæstaréttar-
lögmaður, eftir erfið veikindi. Með
fáum orðum viljum við „Víkingar“
minnast Brands og þakka honum
góðar stundir á liðnum árum.
Ungur að árum kom Brandur til
liðs við Víking og var þar vel fagnað
enda fljótt liðtækur og snjall leik-
maður.
Brandur var eins og sagt er vel af
Guði gerður, sterkbyggður, hár,
grannur og spengilegur, léttur á fæti
og hinn liðlegasti, lipur og snöggur í
hreyfingum. Hann var greindur vel
og vinsæll.
Brandur naut þess að leika knatt-
spyrnu, lék bæði með meistaraflokki
Víkings og í landsliði íslands og skil-
aði ætíð sínum hlut með sóma. Með
Víkingsliðinu lék hann lengstum sem
miðframvörður og var fyrirliði þess
liðs. Hann þótti traustur leikmaður
og leiðsögn hans örugg. Hann hafði
með sér góða samherja, sem margir
muna enn í dag, er sýndu góða og
fallega knattspyrnu. í þá daga höfðu
Reykjavíkurfélögin fjögur yfirburði í
þessari íþrótt og var keppnin því
mikil á milli þessara liða. Síðan hafa
komið sigursæl keppnislið frá lands-
Legsteinar
í Lundi
v/Nýbýlaveg
90LSTE1NAK 564 3555
TSÍém&LáMn
v/ i-’ossvogskirUjMgarS
Sími: 554 0500
byggðinni og á það má minna nú að
Víkingur er eina Reykjavíkurliðið
sem unnið hefir íslandsmeistaratitil-
inn í knattspyrnu (1991) á þessum
áratug. Heilbrigt og gott félagslíf og
góður félagsandi skapar einnig betri
keppni og meiri lífsgleði. Minna má á
að á þeim tíma var knattspyrnan
íþrótt áhugamanna en ekki launuð
vinna eins og nú tíðkast til skaða
þessari ágætu íþrótt og íslenskum
knattspyrnufélögum. Hefir KSÍ þar
sannarlega sofið á verðinum eða tek-
ið ranga stefnu.
Brandur hafði einnig áhuga á og
tók þátt í frjálsum íþróttum og skíð-
um. í frjálsum tók hann þátt í hlaup-
um og stökkum með góðum árangri
en fór á jökla til skíðaferða.
I mörg ár var Brandur í stjórn
Víkings og eitt ár formaður félagsins ^
og er því margs að minnast er góður
félagi fellur frá. Brandur var léttur í
lund, ræðinn og glaður á góðri stund,
en kappsamur íþróttamaður. Víking-
ar kveðja Brand Brynjólfsson og
þakka honum samfylgdina.
Agnar Ludvigson.
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Útfararstofa íslands
Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
Þegar andlót ber að höndum
Útfararstofan annast meginhluta allra útfara
ó höfuðborgarsvæðinu. Þar starfa nú 15 manns
við útfararþjónustu og kistuframleiðslu.
AlúSleg þjónusta sem bjrggir á langri reynslu
Útfararstofa Kirkjugarðanna ehf.
Vesturhlíð 2- Fossvogi -Sími 551 1266
*