Morgunblaðið - 20.08.1999, Qupperneq 52
J52 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Er hann fjöldamorðinginn í hverfinu? Sawa og Jessica
Alba í Lötum höndum.
f ^[ctturgaíinn ^
Smiðjuvegi 14, ‘Kópavofii, sími 587 6080
Dans- og skemmtistaður
í kvöld og
laugardagskvöld
leika Hilmar Sverrisson og
Anna Vilhjálms
Opió frá kl. 22—3
Næturgalinn — alltaf lifandi tónlist
HAPPDRÆTTI -
dae vinning-arSirfáðt
Vinningaskrá
15. útdráttur 19. ágúst 1999
íbúðarvinningur
Kr. 2.000.000_Kr. 4,000.000 (tvðfaidur)
65963
Ferðavinningur
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
1 2976
1 5597
70076
76647
F erðavinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
3616 21925 25598 44067 47790 65483
4540 25088 43281 45077 57847 75033
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
1219 1 1774 29467 39149 49586 5681 1 65214 71145
1721 13982 31277 40713 51277 5744 1 65671 71473
3904 15002 31430 40989 51824 59164 66090 72248
5803 1 7402 31652 42113 51899 598 10 67404 72439
69 1 2 1 7994 32839 42209 52070 59928 68423 72803
7 133 18786 34146 43030 53510 60205 68699 74600
72 10 19519 3481 1 4401 7 544 1 6 6 1 038 69058 75613
7867 20679 35255 4431 1 54437 62658 69156 78993
9589 23136 35578 44952 55096 6376 1 69443 79336
9985 24222 36271 46326 55598 64285 69457
1 0300 25001 36727 46354 55689 64430 69643
1 1692 2 5 2 12 36820 47352 56442 6451 2 70546
I I 735 27963 36952 48308 56664 64750 70602
Húsbúnaðarvinningur
Kr. 5.000 Kr. 10.000 (tvöfaldur)
688 13463 27108 35344 45731 55239 63934 71862
1322 13524 27332 35595 46129 56283 64083 72378
1335 13681 27399 36634 46380 56338 64347 72684
1714 13734 27973 36903 46440 56428 64908 7271 1
2338 13762 28625 36992 46561 56560 65111 72753
2682 13862 28681 37161 47160 57221 65385 73257
3017 14099 28915 37702 47491 57266 65474 73317
3337 14711 29048 37871 47894 57373 6 5 8 6 8 73828
3693 14967 29075 38097 48 108 57612 67026 73834
4943 16480 29509 38180 48418 57966 67136 74678
5022 16605 29652 38213 48459 58032 67194 74922
5341 1 6787 29709 38644 48830 58113 67233 75193
5355 17145 30025 39143 49297 58534 67458 75477
5755 17167 30520 39585 49533 58596 67650 758 1 1
5938 1 7459 31208 39690 49777 59044 67780 75834
6308 17955 31440 39757 49853 59922 68233 76556
8006 18249 32072 40312 50297 59925 68303 7661 1
8148 18897 32271 41346 50505 60088 68869 76912
8312 19061 32451 42006 50510 60654 68878 76991
8417 19750 32754 42108 50533 60799 693 1 9 77726
8442 20230 32999 42192 51490 61207 69582 77989
8512 21786 33026 42490 51956 61346 69807 79102
8874 22217 33408 42795 51981 61634 69878 79105
9160 23239 33530 43184 52524 62077 69987 79283
9666 23293 33555 43536 52862 62466 70075 79746
9918 24056 33563 44001 53082 62599 70485 798 15
10207 24335 33575 44114 54055 62632 70582
10305 24608 33867 44 127 54339 62759 70604
11566 24875 34660 44522 54493 62945 70750
11978 24989 34816 44696 54680 63394 70984
12559 25398 35052 45070 54967 63705 7 1282
13256 25649 35150 45624 55151 63836 71447
Næstu útdrættir fara fram 26. ágúst 1999.
Heimasíða á Interneti: www.das.is
KVIKMYNDIR/Stjörnubíó hefur tekið til sýningar gamanhrollvekjuna
Latar hendur með Devon Sawa, Seth Green og Elden Henson í
aðalhlutverkum en leikstjóri er Rodman Flender.
Latar
hendur
Óstjórnleg hönd; Devon Sawa í Lötum höndum.
Frumsýning
HINN sautján ára gamli Ant-
on (Devon Sawa) er letingi af
guðs náð. Kannski er það
vegna þess að foreldrar hans eru
ekki skömminni skárri, eyða degin-
um í snakkát og sjónvarpsgláp allan
daginn. Að morgni hinnar banda-
rísku hrekkjavöku vaknar Anton úr-
illur sem fyrr og tekur eftir því að
fjölskylda hans er horfm. Hann gef-
ur því ekki frekari gaum en heldur
til vina sinna tveggja, Mick (Seth
Green) og Pnub (Elden Henson),
sem varla er hægt að segja að séu
tveir gáfuðustu drengirnir í ná-
grenninu. í sjónvarpinu er sagt frá
því að geðsjúkur morðingi gangi laus
og á sama tíma tekur Anton eftir því
að önnur hönd hans fer að haga sér
allundarlega.
Unglingahrollvekjur hafa notið
vaxandi vinsælda hin síðari ár og eru
„Scream“-myndirnar gott dæmi um
það. Latar hendur er grínhrollvekja
sem skopast með unglingahrollvekj-
una en leikstjóri hennar fékk sína
kvikmyndaleiðsögn hjá hrollvekju-
framleiðandanum sögufræga, Roger
Corman. I skóla Cormans hafa geng-
ið ekki ómerkari menn en Jack
Nicholson, Jonathan Demme og
Francis Coppola svo aðeins þrír séu
nefndir en Corman hefur um árabil
verið fremsti hrollvekju- og B-
myndaleikstjóri Bandaríkjanna.
Corman vinnur hratt. Á þeim tveim-
ur árum sem Flender starfaði við
kvikmyndafyrirtæki var hann einn
skrifaður framleiðandi 23 bíómynda.
Lifandi dauður? Seth Green í
hlutverki sínu.
Flender tók að skrifa handrit og
vinna við kvikmyndaklippingu og
leikstýrði á endanum hrollvekjunni
„The Unborn" en hann hefur einnig
starfað fyrir sjónvarp, m.a. við þætt-
ina „Tales From the Crypt“.
Allt eru það ungir leikarar sem
fara með aðalhlutverkin í Lötum
höndum. Þeirra kunnastur er án efa
Seth Green en hann hefur tvisvar
sinnum farið með hlutverk sonar Dr.
Illa í myndum Mike Meyers um hinn
ekki svo laungraða meistaranjósnara
hennar hátignar, Austin Powers.
Aðrir leikarar eru Elden Henson,
sem fór með hlutverk á móti Sharon
Stone í myndinni „The Mighty“,
Jessica Alba, sem leikur á móti
Drew Barrymore í myndinni „Never
Been Kissed" og Devon Sawa, sem
fer með hlutverk Antons en hann var
m.a. í draugagamninu Casper.
Hrollvekjur þar sem hendur taka
til sinna ráða eru ekki óþekkt fyrir-
brigði og má nefna sem dæmi „The
Beast With Five Fingers" og „The
Hand“ með Michael Caine en Oliver
Stone gerði handrit þeirrar myndar.
„Við reynum að sýna hinum handar-
myndunum nokkurn virðingarvott
með þessari," er haft eftir leikstjór-
anum Flender.
KVIKMYNDIR/Háskólabíó hefur haflð sýningar á rómantísku
gamanmyndinni Braskaranum með Andy Garcia og Andie MacDowell
í leikstjórn Richards Wenks
Miðasalinn og matgæðingurinn
Frumsýning
ÞEIR sem tekst ekki að verða
sér úti um miða eftir venju-
legum leiðum á tiltekna at-
burði, íþróttaleiki eða rokktónleika
og þess háttar, skipta oft við menn
sem selja þá á svörtum markaði fyr-
ir fáránlega háar upphæðir. Gary
(Andy Garcia) hefur atvinnu af því
að selja slíka miða fyrir fulgur fjár.
Hann er braskari. Kærastan hans,
Linda (Andie McDowell), er farin
frá honum og fundið sér annan og
traustari lífsförunaut og stefnir á að
gerast eðalkokkur á fínu veitinga-
húsi.
Gary reynir að ná henni til sín aft-
ur en við honum blasa fjölmörg
vandamál. Hann segist ætla að
hætta svartamarkaðsbraskinu en
ekki fyrr en eftir síðasta stóra sölu-
svindlið sem tengist komu páfans til
borgarinnar og mikilli samkomu
sem hann heldur á íþróttavelli
Yankee-liðsins. Gaiy fær harða sam-
keppni frá utanaðkomandi bröskur-
um og það stefnir öllum hans áform-
um í voða.
„Just the Ticket" eða Braskarinn
er fyrsta bíómyndin sem leikarinn
geðþekki, Andy Garcia, framleiðir
en framleiðslufyrirtæki hans,
CineSon, stendur að baki myndar-
innar. Garcia hefur verið einna
mest áberandi spænskumælandi
leikara í Hollywood um árabil og
leikið í myndum á borð við Svart
regn og Guðfaðirinn 3. Hann fædd-
ist árið 1956 í Havana á Kúbu, eða
nokkrum árum fyrir byltinguna, en
flutti ungur til Flórída. Hann lék í
leikhúsum þar framan af ferli sín-
um en vakti fyrst verulega
á sér athygli í bíómyndun-
um þegar hann fór með
hlutverk illmennisins í Átta
milljón leiðum til þess að
deyja, árið 1986, og árinu
seinna í Hinum vammlausu
þar sem hann lék einn af
lögreglumönnunum í liði
Elliotts Ness.
Mótleikari hans í Brask-
aranum, Andie MacDowell,
fæddist árið 1958 í Suður-
Karólínu. Hún vann áður
fyrir sér sem fyrirsæta,
m.a. í auglýsingum frá Cal-
vin Klein, en fyrsta kvik-
myndahlutverkið hennar
var í Tarzan-myndinni með
langa nafninu, „Greystoke:
The Legend of Tarzan,
Lord of the Apes“. Hún lék
einnig í mynd Stevens
Soderberghs, Kynlíf, lygar
og myndbönd árið 1989.
Síðan þá er þekktasta
mynd hennar að líkindum
breska gamanmyndin Fjög-
ur brúðkaup og jarðarför
þar sem hún lék á móti
Hugh Grant. Þá er hún
einnig minnisstæð fyrir
hlutverk sitt á móti Gérard
Depardieu í mynd Peter
Weirs, Græna kortinu. Hún
er ásamt Andy Garcia einn
af framleiðendum Braskar-
ans.
Leikstjóri og handrits-
höfundur „Just the Ticket"
heitir Richard Wenk og er
hann tiltölulega nýr í faginu
en kannski þekktasta mynd
hans sé „Vamp“.
MacDowell ætlar að hætta með miðasal-
anum Garcia í Braskaranum.
Andy Garcia lcikur braskarann Gary á
móti Andy MacDowell í rómantísku gam-
anmyndinni Braskaranum.
MacDowell og Garcia fara með aðalhlut-
verkin í Braskaranum.