Morgunblaðið - 20.08.1999, Qupperneq 54
jt 54 FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Barnaskóútsala
Ik !í A JL/r 1_J Sérverslun m/barnaskó
OmMOrVwn í bláu húsi við Fákafen, s. 568 3919.
Dreifng; Niko s: 568-0945
NATEN*
-ernógl
Fœðubótin sem
cdlir uda um
FÓLK í FRÉTTUM
No Smoking Band
ásamt Sigur Rós
Á VEGUM Kvikmyndahátíðar í
Reykjavík sem hefst næstkomandi
föstudag kemur serbneski leikstjór-
inn Emir Kusturica til landsins. Ein
þekktasta mynd Kusturica er Und-
erground sem hlaut Gullpálmann á
kvikmyndahátíðinni í Cannes árið
1995. I þeirri mynd sem mörgum
öðrum myndum leikstjórans spilar
tónlist stórt hlutverk og eru blásturs-
hljóðfæri áberandi, en leikstjórinn
hefur um langa hríð verið í hljóm-
sveitinni No Smoking Band sem
kemur hingað til lands með honum
og heldur tónleika í Laugardalshöll-
inni laugardaginn 28. ágúst ásamt ís-
lensku hljómsveitinni Sigur Rós.
Kristinn Sæmundsson í Hljóma-
lind sér um alla framkvæmd tónleik-
anna sem haldnir verða í Laugar-
dalshöll laugardaginn 28. ágúst
næstkomandi. „Þetta verða stórtón-
leikar af bestu gerð, enda ein vin-
sælasta íslenska sveitin í dag að
spila, en færri komust að en vildu
þegar Sigur Rós hélt útgáfutónleika
í Operunni fyrr í sumar. Svo er No
Smoking Band náttúrlega algjör
stórviðburður í tónlistarlífí hérlend-
is, en hljómsveitin hefur notið alveg
gífurlegra vinsælda um margra ára
skeið og verið uppselt nánast alls
staðar þar sem hún hefur komið.“
Fótbolti, tónleikar
og sundferð
Kristinn segir að Laugardalshöllin
verði í sparifötunum fyrir tónleikana
og skreytingar muni prýða húsa-
kynnin hvert sem litið verður. „Svið-
ið verður upphækkað og líkist
brúðuleikhúsi og þetta verður flott
stemmning,“ segir hann. Tónleikam-
ir hefjast með leik No Smoking
Band þar sem þeir verða á rólegu
nótunum. Síðan tekur Sigur Rós við
og spilar í klukkutíma. Þá spila No
Smoking Band aftur og keyra þá upp
fjörið. Miði á tónleikana gildir einnig
á knattspyrnuleik sem No Smoking
Band leikur fyrr um daginn gegn
völdu liði íslenskra kvikmyndagerð-
armanna og er víst að þar
mun verða hiti 1 kolunum,
enda nokkrir liðsmenn No
Smoking Band sem hafa
verið atvinnumenn í fótbolta
og því efiaust afar leiknir
með boltann. Þar að auki
gildir miðinn einnig sem að-
göngumiði í sundlaugar
borgarinnar fyrir tvo.
Einstök spilagleði
No Smoking Band var
stofnuð snemma á níunda
áratugnum og hafa notið
gífurlegra vinsælda í fyrr-
verandi ríkjum Júgóslavíu.
Þeir hafa gefið út sex plöt-
ur og er síðasta plata
þeirra tónlistin úr síðustu
mynd Kusturiea, Black Cat
White Cat, sem sýnd verð-
ur hér á Kvikmyndahátíð-
inni. Hljómsveitin hefur
getið sér gott orð sem tón-
leikasveit og í tónleikaferð
sveitarinnar til Italíu fyrr í
sumar var þeim tekið af-
spyrnu vel og komust færri en vildu
á tónleikana, en hljómsveitin spilaði
í 20 borgum Ítalíu.
Tónlist No Smoking Band þykir
mjög fjörug og eru blásturshljóð-
færi áberandi, en tónlistin er þó
bræðingur úr ýmsum áttum. Miða-
sala á tónleikana hefst í dag og eru
seldir miðar í verslunum Skífunn-
ar, í Hljómalind og í verslunum
M&M.
Hægt er að safna fjórum glösum