Morgunblaðið - 22.08.1999, Page 14
14 SUNNUDAGUR 22. ÁGÚST 1999
MORGUNBLAÐIÐ
þeirra var drengur sem hafði flúið.
Þeir fundu hann á heimili hans og
skipuðu honum að stíga út fyrir. Því
næst létu þeir hann leggjast á jörðina
og stungu hann með byssusting.
Þannig murkuðu þeir úr honum lífið.
Oft fannst mér sem ég væri dáin,
fyndi hvergi til. Á öðrum stundum
fannst mér sem þetta kæmi fyrir mig
og þá kvaldist ég.“
„Lágu á jörðinni líkt og
í fastasvefni11
Þorpsbúar sem urðu á vegi upp-
reisnarmannanna urðu oft illa úti.
„Við gengum oft í gegnum þorp sem
voru að mestu mannlaus þvi flestir
íbúanna höfðu flúið. . . . þar höfð-
umst við við í mannlausum húsunum.
Stundum bar svo við að einhverjir
þorpsbúar höfðu orðið eftir . . .
uppreisnarmennimir sökuðu þá oft
um að styðja ríkisstjómina. Dag einn
sáu þeir mann á hjóli. Þeir hjuggu af
honum fótinn með exi. Er kona hans
kom hlaupandi út úr húsinu skipuðu
þeir henni að borða fótinn. Ég gat
ekki horft á þetta til enda og vék mér
undan,“ sagði Catherine, sautján ára
gömul.
Bömin sögðu mikla þurrka vera í
suðurhluta Súdan og á göngu um
skógana er vatn oft af skomum
skammti eða ekki til. Einnig er þar
lítið um mat og er hann fæst ekki
stolinn úr þorpunum neyðast börnin
oft til að borða lauf af trjánum sem
oft á tíðum er eitrað. Mörg barnanna
deyja úr hungri, þorsta eða af völdum
blóðkreppusóttar áður en þau koma
að búðunum í Súdan.
„Eftir nokkum táma fengum við
boð um að fara til Súdan til að hitta
hóp Josephs Kony. Við gengum af
stað og brátt var orðið mjög þurrt í
lofti. Við fundum hvorki mat né drykk
og átum því laufin af trjánum. Margir
urðu veikir og dóu og alls staðar vora
börn, liggjandi á jörðinni líkt og þau
væru í fastasvefni. En þau vora dáin,“
sagði Charles, fimmtán ára.
í herbúðum í Súdan
„Eftir að við komum til Súdan fór-
um við til Kit þar sem þeir þjálfuðu
okkur. Kony sagði okkur að við
myndum fara aftur til Úganda og
steypa ríkisstjóminni af stóli. Okkur
var kennt að ráðast á ýmis ökutæki
og að fara með vopn. Kony sagði að
við myndum steypa stjórninni af stóli
og að fólk ætti að gleðjast og bíða eft-
ir að sá dagur rynni upp. Hann varaði
okkur við því að ef drengur og stúlka
ættu vingott hvort við annað yrðu þau
bæði drepin og að sömu örlög biðu
okkar ef við reyndum að flýja.
Eftir að þjálfun minni lauk var mér
gefin AK47-sjálfvirkur riffill. Ég varð
að bera hann á öxlunum öllum stund-
um. Hann var gífurlega þungur. Á
tíma var hægri handleggurinn lamað-
ur undan þyngslunum og húðin á öxl-
inni brann undan byrðinni. Ég var
með verki fyrir brjóstinu og að auki
þurfti ég að bera hluti eins og vatnsí-
lát,“ sagði Timothy, fjórtán ára.
„Kony rændi bömum í hemaðar-
legum tilgangi. Bömin eru þjálfuð
upp í að vera hermenn og stúlkum er
rænt til að verða eiginkonur upp-
reisnarmannanna. Oðrum börnum er
rænt til að verða burðardýr. Þá vora
það enn aðrir sem höfðu það hlutverk
að berja kjark í nýliðana; - er nýlið-
amir vora látnir drepa þá.
í Súdan voram við stundum látin
mynda hring utan um drengi sem við
voram látnir berja til bana. Um tíu
vora látnir drepa en aðrir urðu að
halda áfram að berja fórnarlambið
sem þegar var látið. Nýliðarnir era
látnir gera þetta til að byggja upp
hugrekki hjá þeim,“ sagði Samuel,
þrettán ára.
í Súdan ríkir töluverður matar-
skortur en þeim mat sem þar býðst
hefur ýmist verið stolið úr þorpum
eða er sendur frá yfirvöldum í Súdan.
„Það var mikill matarskortur í Súd-
an og oft þurftu tíu manns að borða
úr einni lítilli skál. Ég var alltaf
svangur. Ég var látinn berja tvo
drengi sem höfðu verið of lengi að ná
í vatn. Þetta vora bara litlir strákar,"
sagði Philip, fjórtán ára.
Stúlkur í kynlífsþrælkun
„Lífíð er sérstaklega erfitt fyrir
stúlkur í Súdan,“ sagð Stephen,
sautján ára. ,Auk þess að vera þjálf-
aðar upp sem hermenn, látnar vinna
landbúnaðarstörf og elda, era flestar
stúlkur sem náð hafa líkamlegum
þroska látnar sinna öðram skyldum;
þær era gefnar sem „eiginkonur" til
uppreisnarmannanna. [...] Stúlkur
era gefnar yfírmönnum sem eigin-
konur og neyddar til að eiga mök við
þá. Þær sem neita era barðar til
hlýðni,“ sagði Stephen.
„Ég var gefin þremur karlmönn-
um. Þrír uppreisnarmenn slógust um
mig og einn af þeim vildi mig feiga.
Hann eignaði sér mig en ég vildi ekki
vera eiginkona hans. Hann sagðist
drepa mig ef ég neitaði eða reyndi að
flýja. Hann var sendur til að berjast
annars staðar og því var ég gefin öðr-
um karlmanni. Hann var einnig send-
ur í burtu og loks var ég gefin þriðja
manninum. Hann var háttsettur í
hernum og er hann var sendur á ann-
an stað til að beijast vildi hann að ég
færi með honurn," sagði Theresa,
átján ára.
Trú og hugmyndafræði
Bömin sem rætt var við höfðu litla
hugmynd um það hvers vegna upp-
reisnarmennimir vora að berjast.
„Þeir vilja steypa ríkisstjómmni af
stóli,“ er útskýring sem flest þeirra
gefa. Fæst þeirra vita hvað vakir fyr-
ir uppreisnarmönnunum og hvers
konar hugmyndafræði þeir aðhyllast.
„Joseph Kony ávarpaði okkur
nokkram sinnum. Hann sagði að for-
seti Úganda [Museveni] væri hliðholl-
ur vestur- og suðurhluta landsins og
ynni að uppbyggingu þar, en ekki í
norðurhlutanum. Kony sagðist þróa
norðurhlutann. [...] Hann sagði okkur
að vera þolinmóð því einn daginn
myndum við steypa stjóminni af
stóli,“ sagði Thomas fjórtán ára.
Kony ólst upp við kaþólska trú og
heldur því fram að hann sé að fara að
vilja Heilags anda með starfi sínu.
Hins vegar stunda uppreisnarmenn-
imir blöndu af trúarathöfnum sem
eiga rætur að rekja til kristinnar trú-
ar, frambyggjatrúar Acholi-ættbálks-
ins auk þess sem þeir sækja í auknum
mæli til íslam.
Kony heldur því fram að Heilagur
andi tali í gegnum hann og skipi hon-
um fyrir hveiju sinni, hvem eigi að
ráðast á, hvar og svo framvegis. Við
bömin segir hann m.a. að þeir sem
borði muni látast ef til bardaga komi
sama dag.
Flest bömin lenda í því að þurfa að
beijast í átökum við stjómarherinn.
Einnig lenda sum þeirra í því að
þurfa að ráðast inn í eigið þorp þar
sem greipar era látnar sópa um eigur
vina þeirra, ættingja eða fjölskyldu.
Bömin virðast að mörgu leyti vera
valin af handahófi í bardaga, en þó
era drengir á unglingsaldri í meiri-
hluta. Fyrir kemur að öll bömin þurfi
að berjast og þau sem hörfa í bardaga
era ýmist lamin eða drepin.
„Leitir þú skjóls mun
óvinurinn hæfa þig"
Bömin era notuð sem vamarskildir
fyrir uppreisnarmennina og era látin
fara í. fremstu víglínu meðan upp-
reisnarmennimir leita sér skjóls
skammt frá. Stundum er bömunum
bannað að leita skjóls en á öðram tím-
um er þeim refsað grimmdarlega fyr-
ir að gera það ekki. Svo virðist sem
fyrirmælin, sem Kony fær frá Heilög-
um anda, ráði því.
Bömunum er sagt að þau sem hlýði
Heilögum anda muni ekki látast í
átökum, en öfugt sé farið með þá sem
hlýða ekki. Stundum ber svo við að
sum bamanna era óvopnuð í átökum
en það virðist engu skipta er þeim er
skipað að hlaupa til móts við kúlna-
hríð stjómarhersins.
„Maður verður að klappa saman
lóíum og syngja er haldið er í bar-
daga. [...] Kony segir af ef þú klappar
ekki saman lófunum muni byssukúla
hæfa höndina. Ef þú syngur ekki mun
hún hæfa munninn og ef þú gengur
ekki ætíð beint af augum mun byssu-
kúla hæfa fæturna. Okkur var skipað
að leita aldrei skjóls. Ef þú gerðir það
skytu óvinirnir þig. Ef þú héldir
áfram baráttunni myndir þú hljóta
vemd [Heilags anda] og ekki þurfa að
hörfa,“ sagði Thomas, fjórtán ára.
Til móts við óvinina hlaupa bömin
og skjóta af handahófi án þess oft að
vita hvort þau haf hæft nokkum. Þau
böm sem komast af í slíkum skotbar-
dögum verða vitni að því er félagar
þeirra era stráfelldir við hlið þeirra.
„Við spurðum sjálf okkur hvers
vegna Kony væri að láta okkur drepa
bræður okkar, systur, feður og mæð-
ur, brenna hús þeirra og borða mat>
inn þeirra. Við spurðum hvert annað
hvers vegna við værum látin gera
þetta, en fundum engin svör, hvorki
þá né nú,“ sagði Stephen, sautján ára.
Falla fyrir hendi
þorpsbúaí leit að hjálp
Ekki er vitað hversu mörg bam-
anna láta lífið í haldi uppreisnar-
mannanna en sumum þeirra tekst að
flýja, ýmist eftir örfáar vikur í haldi
eða nokkurra ára vera hjá LRA. Yfir-
leitt era bömin tekin af lífi ef þau
reyna að flýja og nást aftur, en verði
þau viðskila við hópinn í bardaga er
vægar tekið á þeim, þar sem erfitt er
að sanna að um flóttatilraun hafi ver-
ið að ræða.
Af þessum sökum hefur það reynst
farsælast fyrir börnin að flýja meðan
á bardaga stendur. Þá hlaupa þau
ýmist áleiðis til heimkynna sinna, í
önnur þorp eða bæi eða gefa sig fram
við stjómarherinn (UPDF) eða Frels-
isher alþýðunnar í Súdan (SPLA),
sem yfirvöld í Úganda styðja. SPLA
sendir bömin svo á vígstöðvar UPDF
en þar er bömunum yfirleitt tekið vel
og þeim ýmist komið fyrir á ráðgjafa-
heimilum, þar sem þau fá áfallahjálp
og sálfræðilega aðstoð, eða send heim
til fjölskyldna sinna að loknum yfir-
heyrslum.
Mörg bamanna sem flýja leita
ásjár þorpsbúa sem á vegi þeirra
verða. I flestum tilfellum fara íbúam-
ir með bömin til vígstöðva UPDF, en
þó gerist það stundum að þeir drepa
börnin þar sem fólk óttast að þau séu
úr röðum uppreisnarmanna.
Á brothættum grunni að byggja
Er bömin koma á ráðgjafaheimilin
era þau illa til til reika. Þau era tötr-
um klædd, lúsug, með skotsár og
bera glögg merki um barsmíðar. Að
sögn Robby Muhumuza hjá mann-
réttindasamtökunum Heimssýn, era
börnin „vannærð, lasin og hafa litla
matarlyst er þau leita til ráðgjafa-
heimilanna.
Þau þjást af sektarkennd, era
þunglynd og hafa lítið sjálfstraust.
Þau eru bólgin á fótunum, húð þeirra
hrjúf og þau era gjaman fáskiptin og
hafa lítið sjálfstraust og bera lítið
traust til annarra. Oft era þau fjar-
huga og sveiflukennd í skapi.“
Mörg barnanna - ekki síst stúlk-
urnar sem gefnar hafa verið upp-
reisnarmönnunum - hafa smitast af
kynsjúkdómum í herbúðum LRA. Að
sögn hjálparstarfsmanna era algeng-
ustu sýkingamar lekandi og sárasótt
auk þess sem þau hafa útbrot og
kvarta yfir verkjum í kviðarholi og
baki. Milli 70 og 80 prósent bamanna
hafa smitast af a.m.k. einum kynsjúk-
dómi að því er mannréttindasamtökin
Heimssýn í Gulu segja.
Sumar stúlknanna era þungaðar en
hjá flestum þeirra sem ekki ganga
með bam hafa tíðir einnig haett af
völdum vannæringar og álags. Á ráð-
gjafaheimilunum gangast bömin ekki
undir eyðnipróf þar sem þau era ekki
talin vera undir það búin sálarlega
eftir reynslu þeirra hjá LRA. Hins
vegar vora 20—25 prósent íbúa Gulu
og Kitgum sýkt af eyðni árið 1997 og
því era veralegar líkur á að einhver
bamanna séu eyðnismituð, - þá ekki
síst stúlkurnar.
Sum barnanna gista til lengri tíma
Reuters
Hópur barnungra hermanna geng
ur um götur Goma í Lýðveldinu
Kongó. í Afríku er talið að um
120.000 börn þjóni nauðug upp-
reisnarmönnum í stríði sem þau
ekki skilja.
á ráðgjafaheimilum sem rekin era af
Heimssýn og Bamahjálp í Gulu
(GUSCO). Aðstæður á heimilunum
era bágbomar - tjöld og kofar eru yf-
irfullir af bömum, þar era faglegir
ráðgjafar fámennir og bömin hafa
ekki nægilega mikið fyrir stafni.
Árið 1997 var börnunum kennt ým-
islegt nytsamlegt á einu heimilanna,
eins og trésmíðar, saumur og hjóla-
viðgerðir. Á flestum ráðgjafáheimil-
unum era bömin hins vegar flestum
stundum aðgerðalaus, spila e.t.v. á
spil eða stara út í loftið.
„Notaður varningur“
Bömunum er misjafnlega tekið af
óbreyttum borgurum er þau koma
aftur út í samfélagið vegna reynslu
þeirra. Stúlkumar eiga oft á tíðum
erfiðara með að fóta sig þar sem þeim
hefur verið nauðgað í herbúðunum,
en kynmök fyrir giftingu era almennt
álitin spjöll.
Stúlkumar óttast skömmina, niður-
læginguna sem því fylgir að hafa ver-
ið „eiginkona“ uppreisnarmanna og
óttast að verða hafnað af fjölskyldum
sínum og hugsanlegum biðlum. Þá
verða stúlkumar fyrir aðkasti frá
körlum og yngri drengjum sem segja
þær „notaðan vaming“ og því ekki
hæfar til að ganga í hjónaband.
Neikvæðar móttökur og martraðir
gera bömunum oft lífið óbærilegt en
það er ekki það eina. „Foreldrar
margra þessara bama voru drepnir
er bömin vora numin á brott af heim-
ilum sínum,“ segir Charles Wotman
hjá Heimssýn. ,A-ðrir eiga enn fjöl-
skyldu, en margar þeirra hafa lagt á
flótta og bömin vita ekki hvar þær
era.“ Munaðarlaus böm bera kvíð-
boga fyrir því hvemig þau eigi að sjá
sér farborða og jafnvel þau sem eiga
góða að óttast að uppreisnarmennim-
ir finni þá á ný og nemi þá á brott.
„Ég man eftir því ef einhver reyndi
að flýja [...] Þá var viðkomandi stung-
inn til bana með byssusting og sveðju.
Þetta kemur oft upp í huga minn.
Hvað mig sjálfan varðar er ég ham-
ingjusamur eins og er. Ég vildi helst
fara heim og halda áfram eðlilegu lífi
- skólagöngu - en ég á engan að. Það
er enginn sem getur séð um mig. Ég
bið til Guðs að hjálpa mér,“ sagði
Teddy, þrettán ára.
Bágar framtíðarhorfur
Þrátt fyrir að LRA segjist berjast
fyrir réttindum Acholi-fólksins í
norðri og óháð því hversu mikið fylgi
Kony og menn hans hafi haft í byijun
níunda áratugarins, liggur ljóst fyrir
að almenningur hefur óbeit á LRA í
dag. í stað þess að bæta stöðu þeirra
og kjör í landinu hafa uppreisnar-
mennimir ráðist á eigið fólk og skilið
eftir sár í samfélagi Acholi-fólksins
sem seint fá gróið.
í niðurstöðum rannsóknar Human
Rights Watch kemur fram að vart
gætir bjartsýni um framtíðina. Bara
það að móðir sýnir uppreisnarmönn-
um andstöðu getur valdið því að bam
hennar eða nágranna hennar lætur
lífið.
Angelina Atyoum missti dóttur
sína í hendur uppreisnarmannanna
fyrir tveimur árum. Orð hennar og
Norberts Mao endurspegla viðhorf
flestra Acholimanna:
„Við viljum ekki að uppreisnar-
mennimir haldi áfram ódæðisverkum
sínum, myrði og nemi böm mæðra
sinna á brott og neyði þau til að drepa
til að halda sér á lífi. En núna, er
manns eigið barn er í hópi uppreisn-
armanna óttast maður ekki einungis
um öryggi sjálfs sín er þeir koma í
þorpin og krefjast upplýsinga og mat-
ar, heldur hugsar maður um barnið
sitt og vonar að það líði ekki matar-
skort.
Af þessum sökum hjálpar maður
stundum uppreisnarmönnunum. Ég
vil að uppreisnarmennirnir bíði ósig-
ur. En hvernig er hægt að berjast á
móti þeim ef það veldur dauða bama
þinna? Það era börnin sem send era í
fremstu víglínu. Hvemig get ég sem
foreldri verið hlynnt því?“ sagði Atyo-
um.
,Að sumu leyti skiptir það engu
máli hvers vegna stríðinu ljúki. Hvort
það verði vegna þess að stjómarher-
inn hati Acholi, eða vegna þess að
herinn sé spilltur og óhæfur, eða
hvort fjármagni sé beint annað en til
norðurhlutans. Hver svo sem ástæð-
an er er það staðreynd að yfir tíu ár
hafa liðið og hlutimir hafa versnað.
Börn okkar era tekin á brott og ríkis-
stjómin gerir ekkert til að gæta ör-
yggis þeirra,“ sagði Mao.
300.000 böm undir vopnum
í ársskýrlu Amnesty International
kemur fram að átök halda enn áfram
milli LRA og stjómarhersins í norðri.
Hundrað bama vora tekin til fanga á
sl. ári til að þjóna uppreisnarmönnun-
um og í dag er talið að um 400.000
manns séu á flótta í Gulu og Kitgum í
Norður-Úganda.
I apríl 1998 samþykkti Mannrétt-
indanefnd Sameinuðu þjóðanna álykt-
un þar sem brottnám LRA á börnum
var fordæmt og aðildarríki SÞ, al-
þjóðlegar stofnanir, mannréttinda-
samtök og aðrir hópar hvattir til að
setja þrýsting á uppreisnarmennina
til að þeir láti börnin laus úr haldi.
í dag eru yfir 300.000 börn undir
átján ára aldri og allt niður í sjö ára
gömul að berjast, - í flestum tilfellum
nauðug, í blóðugum átökum víðsvegar
um heim.
Til þessa hafa 183 ríki samþykkt
bamasáttmála SÞ frá árinu 1989, en í
honum er m.a. kveðið á um að böm
undir 18 ára aldri megi ekki gegna
herskyldu. Meðal þeirra fáu ríkja sem
ekki hafa samþykkt ákvæði í sáttmál-
anum sem kveður á um lágmarksald-
ur hermanna, era Bandaríkin, en þau
vilja ekki hækka hann úr fimmtán ára
aldri í átján ára.
í skýrslu sem Samtök gegn notkun
bama í hernaði gáfu út um ástand
mála í Afríku í apríl sl., kemur fram
að yfir 120.000 böm gegna herþjón-
ustu í Afríku einni í dag. Flest þeirra
era notuð í átökum í Alsír, Angóla,
Búrúndí, Kongó, Lýðveldinu Kongó,
Líberíu, Rúanda, Sierra Leone, Súd-
an og Úganda.
Bömin í Úganda era aðeins lítið
brot af öllum þeim ungu saklausu
fómarlömbum stríðsátaka sem, að því
er virðist, nýtast uppreisnarmönnum
nær eingöngu sem hlífðarskildir og
kynlífsþrælar. Það virðist þó næg
ástæða í augum stríðsherra til að
murka lífið úr hundraðum, jafnvel
þúsundum barna, særa stolt þeirra og
sjálfsmynd og skerða stöðu þeirra í
samfélaginu á þess að þau fái við
nokkuð ráðið.
• Heimildir: Human Rights Watch, Am-
nesty Intemational, Herald Tribune.
0 „Við spyrjum sjálf okkur hvers vegna
við séum látin drepa bræður okkar og
systur - en finnum engin svör“