Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 6
6 D MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ VIÐTAL fslenska sjávardtvegssýningm haldin í sjötta sinn Hátækni og fjölbreytni einkennir sýning’una I dag klukkan 10 árdegis opnar Ami M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra 7 ------------------------------------------- formlega Islensku sjávarútvegssýninguna í Smáranum í Kópavogi. Sýningin slær öll fyrri met hvað varðar rými og fjölda þátttakenda og jafnframt er gert ráð fyrir metaðsókn. Af þessu tilefni settist Steinþór Guðbjartsson niður með Ellen Ingvadóttur, fjölmiðlafulltrúa sýningarinnar. Morgunblaðið/Ámi Sæberg" Eilen Ingvadóttir, fjölmiðlafulltrúi Islensku sjávarútvegssýningarinnar. SJÁVARÚTVEGSSÝNINGIN hefur verið haldin á þriggja ára fresti frá 1984 að frumkvæði Johns Legates sem hefur verið fram- kvæmdastjóri hennar frá upphafi en eigandi sýningarinnar er breska útgáfu- og sýningarfyrirtækið Nexus Media Limited. Til þessa hefur sýningin ávallt verið í Laug- ardalshöll en verður nú á mun stærra svæði í Smáranum í Kópa- vogi; í íþróttahúsinu Smáranum, Tennishöllinni, þremur innfluttum sýningarskálum og á útisvæði í kring. 1996 sýndu 699 fyrirtæki frá 28 löndum á sýningunni en nú eru þau hátt í 900 frá tæplega 40 þjóð- um. Kostnaður hleypur á tugum milljóna Þó skráningu sýnenda hafi átt að ljúka fyrir nokkru hafa ný íyrir- tæki bæst í hópinn nánast á hverj- um degi fram að opnun. Sýnendur kynna starfsemi sína á 13.000 fer- metra sýningarsvæði undir þaki auk útisvæðis í kring og er sýning- in 40 til 45% stærra að umfangi en 1996. Gert er ráð fyrir um 1.000 til 2.000 gestum frá útlöndum og von- ir standa til að sýningargestir verði 17.000 til 20.000. „Þetta er stærsta sýning, sem haldin hefur verið á Is- landi,“ segir Ellen Ingvadóttir, fjölmiðlafulltrúi sýningarinnar. „Þetta er sannarlega fjölþjóðleg sjávarútvegssýning þó hlutur Is- lands sé að sjálfsögðu stærstur en Danmörk, Færeyjar, Noregur, Sví- þjóð og England eru með sérstaka þjóðarbása. Sýningin er á meðal stærstu sýninga í heiminum á þessu sviði en sýningarsvæði undir þaki er um 13.000 fermetrar og þar af eru um 6.000 fermetrar í þremur innfluttum skálum frá Hollandi. Við gerum okkur vonir um að fá allt upp í 20.000 gesti í heimsókn en þar af er raunhæft að ætla að á annað þúsund gestir komi frá út- löndum. Allt gistirými á höfuð- borgarsvæðinu var nánast upppantað fyrir nokkru vegna sýn- ingarinnar og þurfti að leita út lyr- ir það til að sinna öllum gestum.“ Islenska sjávarútvegssýningin hefur breyst mikið frá því hún var fyrst haldin fyrir 15 árum. „Bás- arnir hjá sýnendum verða sífellt glæsilegri og fagmannlegri," segir Ellen. „Fyrsta sýningin var mjög falleg en mikil breyting hefur orð- ið á allri uppsetningu og þátttöku fyrirtækjanna. Reynsla manna af þátttöku í sýningum heima og er- lendis kemur þeim til góða og starf Útflutningsráðs varðandi það að kenna mönnum hvemig best má nýta sér sýningu eins og þessa hefur haft mikið að segja. Islensk fyrirtæki eru í meirihluta en í mörgum tilfellum kynna þau ekki aðeins eigin framleiðslu og þjónustu heldur líka þjónustu er- lendra fyrirtækja sem þau eru fulltrúar fyrir.“ Ljóst er að kostnaður við að setja upp svona veigamikla sýn- ingu er mikill. „Hann hleypur á tugum milljóna," segir Ellen og bendir í því sambandi á óhjá- kvæmilegan kynningarkostnað, uppsetningu skála, starfsmanna- hald og fleira. Gott samstarf við Kópavogsbæ Að sögn Ellenar hefst undirbún- ingur að næstu sýningu um leið og einni lýkur en starfið fer á fullt um ári fyrir sýningu. „í fyrra var sam- ráðshópur stofnaður í þeim tilgangi að samræma aðgerðir til að sýning- in yrði sem best úr garði gerð, en í hópnum voru fulltrúar ensku og ís- lensku skipuleggjendanna, fulltrú- ar íslenskra fyrirtæka og Útflutn- ingsráðs. Fjöldinn sem kemur að verkinu eykst eftir því sem nær dregur en um 50 til 70 manns á vegum sýningarstjórnar koma að undirbúningnum. Að mörgu þarf að gæta og enginn þáttur er svo lít- ill að ekki þurfi að hyggja að hon- um.“ Sýningin er í fyrsta sinn í Kópa- vogi og lætur Ellen vel af sam- starfinu við Kópavogsbæ. „í fyrra var ákveðið að sýningin yrði haldin í Smáranum og höfum við átt náið og mjög gott samstarf við Kópavogsbæ, bæjarstjórn Kópavogs og einstaka sérræðinga frá fyrsta degi. Maður hefur geng- ið undir manns hönd til að tryggja að skipulag og framkvæmd yrðu sem best verður á kosið og hefur verið sérstaklega gaman að sjá Kópavog lyfta Grettistaki í Smár- anum í þessu sambandi.“ Tilgangur sýningarinnar er að afla sambanda og kynna íslenska framleiðslu, íslenska sérþekkingu og íslenska þjónustu á alþjóðlegum vettvangi, að sögn Ellenar. „ís- lendingar eru í framvarðarsveit í sjávarútvegsmálum, fiskvinnslu og þjónustugreinum, og svona sýning er ein besta leiðin til að kynna það sem við höfum að bjóða en ein- kenni sýningarinnar eru hátækni og fjölbreytni." Forseti Islands heiðursgestur • ÓLAFUR Ragnar Grimsson, forseti fslands, verður heiðurs- gestur við opnun íslensku sjáv- arútvegssýningarinnar, sem verður í hátíðarsal Smáraskóla í Kópavogi og hefst kl. 10 ár- degis. Forsetinn skoðar siðan sýninguna í fyigd sýningar- stjórnar. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra opnar sýninguna formlega en auk þess verður Halldór Ásgrims- son utanríkisráðherra á meðal gesta við opnunina. Sýningin opin í fjóra daga • ÍSLENSKA sjávarútvegssýn- ingin verður í Smáranum í Kópavogi 1. til 4. september og verður opið klukkan 10 til 18 alla sýningardagana. Gert er ráð fyrir á annað þúsund gest- um erlendis frá og telja skipu- leggjendur að sýningargestir verði allt að 20.000. Jóhannes með 4 veitingastaði • JÓHANNES Stefánsson, veit- ingamaður í Múlakaffi, sér um veitingaþjónustuna eins og á þremur undangengnum sýning- ura. Að þessu sinni verða fjórir veitingastaðir á fjórum stöðum; á efri hæðinni í íþróttahúsinu Smáranum, í skólanum og tveir í Tennishöllinni. „Þetta er sann- kölluð heimssýning og við frumsýnum sjávarréttahlaðborð þar sem við bjóðum upp á meira en 25 rétti í hádeginu, vcrðum með súpu- og salatbar, grill- rétti, smárétti og fleira,“ segir Jóhannes. Sjávarútvegs- verðlaun afhent • ÍSLENSKU sjávarútvegs- verðlaunin verða afhent í fyrsta sinn og verður athöfnin á hátíð- arkvöldi á Hótel íslandi á föstu- dagskvöld. Verðlaunin verða veitt fyrirtækjum og einstak- lingum sem þykja hafa náð framúrskarandi árangri á ýms- um sviðum sjávarútvegs, fisk- vinnslu, framleiðslu tæknibún- aðar og markaðsátaks. Tímaritið World Fishing, Fiskifréttir og Fjárfestinga- banki atvinnulífsins standa að verðlaununum en Hampiðjan hf., Eimskip hf. og Brunnar ehf. eru einnig sérstakir stuðnings- aðilar. Viö hjá Plastco sérhœfum okkur í sölu á hátœkni-pökkunarvélum. Nýtt útlit - Meiri sjálfvirkni - Meiri hraöi - Meiri nákvœmni Velkomin á bás E 82 á Sjávarútvegssýningunni 1999 Sími 567-0090 • Fax 557-3688 • Netfang plastco@mmedia.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.