Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ VIÐTAL MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 43 ' Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Jón Steinar Árnason og Ásgeir Sigurvinsson, eigendur Sjólistar. Sýningar skipta máli hafi menn eitthvað að sýna r. EIMAR OG EIMSVALAR SMIÐJUVEGI 38 S:587-4530 kv@kaelivelar.com SIEMENS IEHF IHAFLI0A Sjólist hf. er nýtt fyrirtæki sem sér- hæfir sig í sölu á fjarskiptabúnaði og búnaði til þess að taka við gervi- hnattasendingum í skip. Fyrirtækið er á öðru aldursári og mun taka þátt í íslensku sjávarútvegssýning- unni í fyrsta sinn. Jón Steinar Áma- son, sem á fyrirtækið með Asgeiri Sigurvinssyni, segir sýningar af þessu tagi geti skipt miklu fyrir íyr- irtæki sem eru að ryðja sér til rúms. „Það sem skiptir auðvitað sköpum er að menn séu með góðar vörur og þjónustu - ef þessir þættir eru ekki fyrir hendi breytir sjávarútvegssýn- ing ekki neinu. Svona sýningar geta þó skilað fyrirtækjum samböndum sem leiða stundum til viðskipta. Það er líka mikilvægt fyrir menn að minna á sig í þessari grein og þau fyrirtæki sem við erum í samstarfi við gera þá kröfu að við tökum þátt í sýningunni." Jón Steinar segir að ekki sé hægt að spá fyrirfram um hvort þátttaka í sýningu skili einhverju, en bætir jafnframt við að ástandið í greininni gefi yfirleitt tóninn. „Sýningar eru mjög háðar ástandinu í greininni. Eg starfaði fyrir annað fyrirtæki, sem sýndi á fyrstu sýningunni 1993. Þá var útvegurinn enn að jafna sig eftir erfiðleikatímabil í greininni, enda var lítið selt á þeirri sýningu. Aftur á móti var síðasta sýning með fjörlegra móti og margir sölusamn- ingar gerðir. Við búum við gott ástand núna og þess vegna má ætla að sýningin nú verði vel heppnuð." Einangrun sjómanna mun heyra sögunni til Sjólist mun sýna búnað á sýning- unni sem gerir sjófarendum kleift að fá aðgang að gervihnattsjón- varpi, Netinu og fleiri hlutum sem tengjast samskiptabyltingu vorra tíma. Búnaðurinn er frá enska stór- fyrirtækinu Applied Satellite Technology. Sjólist selur búnaðinn í samstarfi við Tæknival. „Sjómenn hafa rétt á því að vera í sambandi við umheiminn þótt þeir séu að sækja björg í bú. Ég sé fyrir mér að innan skamms verði gervihnatta- búnaður af þessu tagi kominn í öll stærri skip. Það eru sjálfsögð mannréttindi að sjómenn geti sent bréf heim til sín gegnum tölvupóst eða talað í síma við nánustu að- standendur burtséð frá því hvar þeir eru staddir á hafinu. Þessi tækni er vel á veg komin í þróun og aðeins tímaspursmál hvenær menn ranka við sér og fara að setja þetta í skipin.“ Reyndar eru einhverjir famir að kveikja á perunni. Utgerð Vigra RE hefur fest kaup á búnað- inum og verður hann settur i skipið eftir sýninguna. Þrátt fyrir að mörg fyrirtæki hafi til sölu búnað til margmiðlunar í Sjólist hf. er fyrirtæki sem hefur verið að ryðja sér inn á fjarskiptamarkaðinn síðastliðin tvö ár. Fyrirtækið tekur þátt í --------7-------------- ________Islensku_______ sjávarútvegssýningunni í fyrsta sinn og af því tilefni hitti Orn Arnarson Jón Steinar Arnason, annan eiganda fyrirtækisins, og tók hann tali. skipum hefur Jón Steinar ekki áhyggjur af samkeppninni. „Við hræðumst ekki samkeppni. Sá sem hefur besta loftnetsbúnaðinn mun standa upp úr í þessari keppni og við höfum fulla trú á okkar græj- um.“ GMDSS-væðingu flotans lýkur eftir eitt ár Sjólist er með umboð fyrir Scanti-fjarskiptabúnaðinn sem hef- ur farið í mörg skip sem hafa þurft að skipta um talstöðvarbúnað vegna laga sem skylda sjófarendur til að vera með GMDSS-kerfið í skipum. „Scanti er mjög gott fyrirtæki sem teygir anga sína víða um heim. Það er gott að vera í samstarfi við fyrir- tækið, því það getur útvegað við- gerðarmenn hvar sem er á hnettin- um. Salan hefur gengið mjög vel hjá okkur, en það breytir því ekki að á endanum verða öll skip komin með þann búnað sem lög gera ráð fyrir. En þá tekur eitthvað annað við. Öryggisbúnaður fyrir sjófarendur er hlutur sem alltaf verður eftir- spum eftir.“ Sjólist hefur ekki einskorðað sig við íslandsmarkað í sölumálum. Fyrirtækið hefur selt fjarskipta- búnað til nokkurra landa víðsvegar um heim. „Það er fast í okkur Is- lendingum að sjá ekki lengra en 200 mílurnar. Það er eins og lögsagan sé girðing sem blindi okkur sýn. Við erum hins vegar fullir af sjálfs- trausti og sjáum enga ástæðu til þess að við getum ekki keppt við sambærileg erlend fyrirtæki. Þegar við höfum verið að selja erlendis höfum við fundið fyrir því að mönn- um finst ekkert verra að eiga við okkur, þótt íslendingar séum. Við vitum betur en flestir aðrir hvaða aðstæður búnaður í skipi þarf að þola og sú vitneskja veitir okkur oft á tíðum forskot á erlenda keppi- nauta.“ Skemmtilegar nýjungar Þrátt fyrir að leggja mesta áherslu á að sýna Scanti-fjarskipta- búnaðinn og loftnet til gervihnatta- móttöku verður Sjólist með fleira á boðstólum á sýningunni. „Sem gam- all skipstjóri er ég sérstaklega hrif- inn af einum hlut sem við vorum að fá til sölu. Það er þráðlaus mús sem hægt er að vera með í lófanum. Skipstjórnendur eru yfirleitt á sí- felldu flakki um brúna, öskrandi á kallana út um brúargluggann og svo framvegis, og þess vegna getur ver- ið hentugt fyrir þá að geta stjórnað til að mynda plottemum þráðlaust." Fyrirtækið mun einnig sýna nýja tölvuskjái af Mermaid-gerð, sem henta vel til sjós, sem og flestan þann öryggisbúnað sem sjófarendur þurfa að hafa um borð. Verið velkomin á bás A68 á sjávarútvegssýningunni í Kópavogi dagana 1.- 4. september ^ þekking reynsla þjónusta FÁLKINN Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími: 540 7000 Fax: 540 7001 • Netfang: falkinn@falkinn.is r i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.