Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 20
MORGUNBLAÐIÐ
20 D MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
Kbiónusta
HÖNNUN / SMÍÐI / VIÐGERÐIR / ÞJONUSTA
= HÉÐINN =
Stórás 6 »210 Garðabæ
sími 569 2100 • fax 569 2101
J|l
TRAUST
KNOW HOW Ltd.
*************************
Klapparstígur 18, 101 Reykjavík • Sími 567 4670, Fax: 567 4172
E-mail: traust@isholf.is • Heimasíöa: http://www.traust.is
Veitum ráðgefandi
verkfræðiþjónustu
við hönnun og
skipulagningu.
Yfir 20 ára
reynsla
Við bjóðum eftirfarandi búnað:
• Saltdreifara
• Sprautusöltunarvélar
• Þurrkklefa
• Skelvinnsluvélar
• Rækjuvinnsluvélar
• Reykofna
• Lausfrysta
• Skreiðarpressur
• Umsöltunarbúnað
• Loðnuhrognabúnað
• Vacuumlöndunardælur
• Síldar- og loðnuflokkara
• Uppþýðingarvélar
• Kassaþvottavélar
• Sigtisbönd fyrir loðnu
• Færibandareymar
*************************
www.mbl.is
FRÉTTIR
SYSTÉÍVÍ
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Hilmar Sigurgíslason, Hans Óli Rafnsson, Jónas Ágústsson og Guðmundur Kristinsson hjá Eltak standa fyrir
aftan búnaðinn frá Soco-systems.
Eltak með heildarlausn
í pökkunarferlinu
^^^^^^^^■■■■■■■■i* Eltak ehf. er níu ára gamalt fyrir-
KxmTiíi AÍTIYIÍO* YVifÍíl tæki sem sérhæfir sig í sölu og
rvyillla BUlIllg þjónustu á rafeindavogum og öðr-
flokkara frá Póls um búnaði til vigtunar, flokkunar,
skömmtunar, pökkunar og vöru-
frágangs. Fyrirtækið tekur þátt í sjávarútvegssýningunni og mun kynna
vörur frá samstarfsaðilum sínum sem koma víða að.
Jónas Ágústsson segir að fyrir-
tækið leggi mikinn metnað í að
framlag þess til sýningarinnar verði
sem best. „Við verðum með stóran
bás og munum leggja áherslu á
sjálfvirka heildarlausn á pökkunar-
ferli afurða ásamt öðrum gagnleg-
um vörum sem við höfum upp á að
bjóða.“
„Þessi heildarlausn, frá Soco Sy-
stem, sem við erum með á pökkun-
arferlinu er mjög öflug. Fyrst fer
afurðin í kassabrotsvél, en hún er
sjálfvirk og límir og setur saman
pappakassa utan um afurðina. Hún
er mjög afkastamikil og getur sett
saman 12-15 kassa á mínútu. Þegar
búið er setja afurðina í kassa fer
hún á færibandi í vélmenni sem er
með innbyggða brettavafningsvél.
Vélmennið sér um að raða kössun-
um á bretti og ganga frá því. Hægt
er að stilla það á ýmsa vegu þannig
að það ræður við mismunandi
stærðir og gerðir af kössum. Þegar
þessu ferli er lokið kemur til skjal-
anna brettafæriband, sem er raf-
drifið flutningskerfi fyrir vöru-
bretti. Þetta er ákaflega hagkvæm
samstæða sem sparar fjölmörg
handverk," segir Jónas. Hægt er að
fá þennan búnað stakan eða í einni
heild.
Nýir íslenskir
flokkarar
Eltak er samstarfsaðili Póls á
Isafirði sem framleiðir rafrænar
vogir og flokkara. „Við höfum í sam-
vinnu við þá þróað nýja gerð flokk-
ara fyrir fiskvinnslur. Við höfum
endurhannað allan rafeindabúnað í
flokkaranum og reynt að endur-
bæta eftir fremsta megni. Þessir
flokkarar hafa fengið frábærar við-
tökur, sérstaklega hjá saltfiskverk-
endum. Við höfum nú þegar selt þá í
yfir 20 vinnslur um allt land.“
Jónas segir ennfremur að mikill
uppgangur sé í saltfiskvinnslu og
ljóst að verkendur eru farnir að
leggja meiri metnað í gæðamálin og
fylgjast því vel með öllum nýjung-
um.
Evrópumarkaður krefst
málmleitartækja
Eltak mun kynna á sýningunni
nýja tegund af málmleitartækjum
fyrir matvælaiðnað. Þessi málm-
leitartæki eru ekki seld vegna ótta
við óþarfa vopnaburð starfsmanna
frystihúsa heldur er um að ræða sí-
auknar kröfur frá kaupendum full-
unninna sjávarafurða á að allar af-
urðir fari gegnum svona tæki til að
koma í veg fyrir að skrúfur eða
eitthvað álíka fylgi með. „Allir
stórir kaupendur á Evrópumark-
aði, til að mynda Marks og
Spencer, kaupa ekki fullunnar vör-
ur nema þær fari í gegnum svona
tæki,“ segir Jónas. „Við ætlum að
kynna LOMA IQ málmleitartæki á
sýningunni. Þetta tæki nær 30%
meiri næmi í skynjun á málmagnir
í matvælum en eldri gerðirnar á
markaðnum og það þýðir að títu-
prjónshaus myndi ekki sleppa í
gegn.“
Af öðrum búnaði sem Eltak
verður með á sýningunni má nefna
gátvog sem einnig kemur frá
Loma. En hugbúnaður vogarinnar
vinnur samkvæmt stöðlum Evr-
ópusambandsins. Einnig verða
vogar og mælitæki frá japanska
fyrirtækinu AND sýndar og
bleksprautuprentarar til merkinga
á umbúðum frá Alpha Dot. Að lok-
um má nefna að pökkunarvélar
með lofttæmingarbúnaði frá hinum
virta framleiðanda MultiVac verða
kynntar.
I
Hönnun og útboð nýsmíða.
Önnumst einnig verk- og útboðslýsingar á breytingum og viðgerðum.
Gerum samanburð á tilboðum og sjáum um samningagerð, hönnun
og útboð á fiskvinnslulínum, hailaprófanir og stöðugleikaútreikninga.
Vinnum einnig matsgerðir.
SKIPATÆKNI
Member of the Vik-Sandvik Group
Borgartúni 30
105 Reykjavik
S(mi: 5 400 500
Fax: 5 400 501
Netfsng: skipataekni@skipataekni.is
S H II’ D E S l G N C O N S U l. T A N T S
Með nýjan litaradar
og „kortaplotter“
Rafhús ehf. er umboðsaðili Japan
Radio Company (JRC) á íslandi og
mun framlag fyrirtækisins á íslensku
sjávarútvegssýningunni að mestu leyti
verða helgað vörum frá þeim. JRC er
eitt fárra fyrirtækja í heiminum sem bjóða heildstæða framleiðslulínu í
fjarskipta-, fiskileitar- og siglingatækjum í skip.
Rafhús með
tæki frá Japan
Rafhús mun sýna meginhluta rad-
arlínu JRC en þar ber helst að nefna
nýjan litaradar með ARPA og
kortaplotter. Plotterinn notar C-map
kortakubba sem eru mikið notaðir af
sjófarendum hér á landi. Rafhús
mun einnig sýna radara, með bæði
lampa- og kristalskjá, sem henta vel
í minni báta.
Sónarar frá JRC komnir aftur
Sónarar frá JRC hafa ekki verið á
boðstólum hér á landi í meira en ára-
tug en nú hefur Rafhús gert bragar-
bót á því og mun kynna nýjustu gerð-
ir af sónurum frá fyrirtækinu á sýn-
ingunni. Þeirra á meðal verður nýr
millitíðni 55khz hringsónar sem hef-
ur fengið góðar viðtökur hjá skip-
stjórum á nótaskipum í nágranna-
löndunum.
Rafhús mun kynna þrjár gerðir
dýptarmæla frá JRC en þeir hafa
notið vaxandi vinsælda hér á landi
undanfarin ár. Einnig mun fyrirtæk-
ið kynna talstöðvar, veðurkortaritara
og annan búnað sem tengist
GMDSS-væðingu flotans sem og aðr-
ar vörur frá þekktum framleiðendum
eins og WESMAR og SCANTROL.