Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 41
Jóhannes
til ÍS hf.
• Jóhannes M. Jóhannesson hóf
störf nú í sumar sem nýr fram-
kvæmdastjóri Sölu- og markaðssviðs
hjá íslenskum sjávarafurðum hf.
Jóhannes útskrifaðist frá Samvinnu-
skólanum á Bifröst 1982 og var í
starfsnámi hjá Sambandi íslenskra
samvinnufélaga 1982-1984. Hann
starfaði á skrifstofu Sambandsins í
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
London 1984 til
1986 og var mark-
aðsfulltrúi hjá Iðn-
aðardeild Sam-
bandsins á Akur-
eyri og síðar Ála-
fossi 1986-1989. Á
árunum 1989 til
1992 starfaði Jó-
hannes hjá ís-
lenskum sjávarafurðum hf. í Reykja-
vík, fyrst sem markaðsfulltrúi og
síðar sem deildarstjóri. Frá 1992 til
1998 var Jóhannes umsjónarmaður
sölu- og markaðsmála hjá Samherja
hf. á Akureyri. Hann hefur frá þeim
tíma verið umsjónarmaður sölu- og
markaðsmála hjá Fiskafurðum-Út-
gerð hf. á Seltjamarnesi.
Jóhannes M.
Jóhannesson
Vio kynnum nýjungar í vinnslu
og pökkun sjávarafurða á íslandi
SOÐNINGIN
Gljáður humar í
chili- og dijonsósu
HUMAR er hátíðamatur en einnig má gera sér góð-
an dagamun milli hátíða með góðum humri. íslenzki
humarinn, Nephrops norvegicus, er fráburgðinn
flestum öðrum tegundum enda inun minni. Fyrir
vikið er holdið ekki eins gróft og mun sætara á
bragðið en í stóra humrinum. Það er því óhætt að
mæla með íslenzkum huniri við hvern sem er. Það
er Auðunn Sólberg Valsson, matreiðslumeistari á
Einari Ben, sem kennir lesendum Versins að matreiða humarinn en
þetta er aðalréttur fyrir fjóra eða forréttur fyrir sex til átta. Auðunn
er félagi í Freistingu, félagi matreiðslumanna og bakara. Félagið
hefur komið sér upp heimasíðu á Netinu á slóðinni: http//www.trek-
net.is/freisting.
UPPSKRIFTIN
800 g skelflettur huniar 3 hvítlauksgeirar
1 saxaður, rauður chilipipar 2 eggjarauður
80 g saxaður skalottlaukur 300 g srajördeig
4 dl rjómi Salt og pipar
1 msk. dijonsinnep
AÐFERÐIN
1. Bakið „kodda“ úr smjördeiginu, ca. 5x5 sm í þvermál og 1 sm háa.
2. Þeytið helminginn af rjómanum og geymið þar til síðar.
3. Léttsteikið laukinn og chilipiparinn í smjöri, bætið hvítlauknum
og huniarnum saman við. Saltið og piprið. Færið humarinn upp úr
og haldið heitum.
4. Hellið hinum helmingnum af rjómanum saman við og sjóðið
örlítið niður.
5. Hrærið sinnepinu saman við og þykkið með maisenamjöli ef þörf
krefur.
6. Hrærið eggjarauðunum og þeytta rjómanum saman við. Látið
sósuna ekki
sjóða eftir það.
7. Setjið sinjördeigskodda á disk og humarinn f sósunni ofan á.
8. Gljáið undir vel heitu grilli þar til það verður fallega gyllt og
berið fram.
Síðumúla 13' 108 Reykjavik • Sími:588 2122 • Fax:S88 9839
19 cp food s/ Stóraukin afköst í laxasneiðingu
L!Julma v Loftskipt pökkun sem eykur líftíma vörunnar
^9rowcTsuMrrm^ V Færibönd sniðin að þörfum framleiðanda
v ushiqa v Samvalsvog með ótrúleg afköst og nákvæmni
>/ Færibandavog með sjálfvirkri miðaásetningu
VÆSB V Brýningarvél sem eykur endingu hnífsins um allt að 60%
viueujet- V Allt fyrir dagsetningar, strikamerki og lotunúmer
Komið og sjáið allt þetta og miklu fleira á básnum
okkar (B30) á sjávarútvegssýningunni 1-4 september
Krókhátsi 1 - 110 Reykjavík - 'B 567-8888 - fax 567-8889 - www.pmt.is
ALLT FYRIR
til sjðs
og lands
í öllum störfum leynast slysagildrur sem ber að varast, bæði með réttum
vinnubrögðum, árvekni og ekki síst réttum öryggisbúnaði. Dynjandi er
leiðandi í sölu öryggisklæðnaðar og búnaðar fyrir starfsfólk í sjávarútvegi.
nr. 130 í skála B
Komdu í sýningarstúku okkar
á Sjávarútvegssýningunni, - til öryggis!
allt fyrir oryggid
SKEIFAN 3 REYKJAVIK SIMI 588 5080 FAX 568 0470