Morgunblaðið - 01.09.1999, Blaðsíða 8
8 D MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Ná sjónvarpinu
hvar sem er á sjó
Ismar kynnir nýjan
búnað frá SeaTel
MEÐAL nýjunga sem ísmar hf.
sýnir á íslensku sjávarútvegs-
sýningunni verður viðtökubún-
aður til að taka á móti sjónvarps-
sendingum frá gervihnöttum frá
fyrirtækinu SeaTel. Þessi búnaður gefur sjómönnum kost á að fylgjast með
heimsfréttum, íþróttaviðburðum og öðru áhugaverðu efni nánast hvar sem
þeir eru staddir á hnettinum. Búnaðurinn býður einnig upp á tengingu við
Netið.
ísmar mun kynna nýja gervi-
hnattasíma frá Globalstar. Þessir
símar eru litlir handsímar sem gefa
möguleika á sambandi víðs vegar
um heiminn gegnum hið nýja
Globalstar-kerfi. Einnig verða
sýndir símar af sömu gerð sem
henta vel sem fastir símar í skip.
Scanmar-búnaður fyrir skip
með tvö troll
Scanmar-fyrirtækið hefur þróað
veiðarfærastýringu sína þannig að
nú er hægt að nota höfuðlínubúnað-
inn, eða svokölluð trollaugu, á tveim
trollum í einu. Ismar hefur nú þeg-
ar selt þennan búnað í nokkur
rækjuskip sem toga með tvö troll og
hefur hann gefið ágætis árangur.
Ismar mun kynna þennan búnað á
sýningunni ásamt öðrum nýjungum
frá Scanmar. Má þar nefna
skekkjunema, sem gefur skipstjórn-
anda merki ef hann togar trollið
skakkt.
Af öðru sem ísmar mun kynna
má nefna GPS-tæki frá Trimble Na-
vigation. Trimble Navigation stend-
ur framarlega á þessu sviði og má
þess geta að allt DGPS-kerfi Sigl-
ingastofnunar er frá fyrirtækinu.
Þá framleiðir fyrirtækið einnig mik-
ið af nákvæmnismælitækjum sem
hafa verið notuð hér á landi við
ýmsar framkvæmdir, til að mynda
hafnar- og vegagerð.
Þá mun ísmar sýna ýmsan bún-
að frá þeim framleiðendum sem
fyrirtækið hefur umboð fyrir. Má
þar nefna ratsjár og dýptarmæla
frá STN Atlas Elektronik,
gýrókompása og sjálfstýringar frá
C-Plath svo einhver dæmi séu tek-
in.
Skjámynd af Nautilus-þrívíddarfiskileitarbúnaðinum frá Radíómiðun hf.
ísmar kynnir viðtökubúnað fyrir skip til að taka á móti sjónvarpssend-
ingum frá gervihnöttum. Þeir Jón Tryggvi Helgason og Birgir
Benediktsson kynna búnaðinn á fslensku sjávarútvegssýningunni.
RADÍÓMIÐUN ehf.
hefur um árabil verið
eitt framsæknasta
fyrirtækið á Islandi á
sviði fjarskipta-, sigl-
inga-, og fiskileitartækja og má m.a. í því sambandi nefna notkun tölva um
borð í fiskiskipum með tilkomu MaxSea skipstjórnartölvunnar. Fyrútækið
kynnir á íslensku sjávarútvegssýningunni nýja möguleika með nýjum
tölvu- og fjarskiptabúnaði.
Radíómiðun kynnir
byltingarkenndan búnað
Radíómiðun ehf. hefur á undan-
fömum árum tekið þátt í þróun á
þrívíddarfiskileitartækjum í sam-
vinnu við kanadískt fyrirtæki og
bandaríska sjóherinn. Búnaðurinn
nefnist Nautilus og að sögn Jóhanns
H. Bjamasonar framkvæmdastjóra
er með stórstígum framfömm á
tölvubúnaði nú fyrst mögulegt að
vinna allt það gífurlega magn upp-
lýsinga sem þarf til að birta botnlag
í þrívídd með þeim gæðum og þeim
hraða sem til þarf. „Hvaða skip-
stjórnanda fiskiskips hefur ekki
dreymt um að geta séð botnlag í
þrívídd eða að geta séð trollið og
staðsetningu þess frá öllum sjónar-
Sjávarútvegssýningin 1999 Bás D132
gP TSURUMI
ihm SLÓGDÆLUR
Öflugur valkostur fyrir
útgerð og vinnslu
Vöndub
kapalþétting
Yfirhitavörn
NíSsterkur
rafmótor
3x380 volt
3x220 volt
Tvöföld
þétting
meö
sílikoni ó
snertiflötum
Öflugt og vel opið dæluhjól
tlugt oa
eð karbí
íthnífum
YAMAHA
Utanborðs-
mótorar
Ljósavélar
Bensín eða dísel.
Allar stærðir.
x YANMAR
Báta- og skipaválar
9-t
SLEIPNER MOTOR A.S
• Bógskrúfur
• Skrúfur
• Stefnisrör
Ráðgjöf- sala-þjónusta
Skútuvogi 12a Slml S6S 1044
hornum þegar verið er að toga?
Búnaðurinn gerir skipstjórnendum
línu- og netabáta, og reyndar öllum
öðrum skipstjórnendum fiskiskipa,
kleift að ferðast um undirdjúpin við
strendur landsins og skoða kanta og
aðra vænlega veiðistaði. Þannig
geta þeir séð flestalla hóla, tinda,
flök og festur, sem ekki eru til á nú-
verandi kortum, í þrívídd," segir Jó-
hann.
Iridium
gervihnattasímkerfi
Radíómiðun varð í júní sl. fyrsti
þjónustuaðili fyrir Iridium á Islandi
og í Noregi. Iridium er gervihnatta-
símakerfí og það fyrsta sinnar teg-
undar sem nær að þekja alla jörð-
ina. Iridium samanstendur af 66
gervihnöttum sem ferðast á sex
sporbaugum umhverfis jörðina.
Stjórnun samskipta fer fram í
gervihnöttunum sem eru í aðeins
780 kílómetra vegalengd frá jörðu,
sem veitir meiri talgæði og áreiðan-
leika en áður hefur þekkst að sögn
Jóhanns.
„Sé hringt úr einum Iridium síma
í annan fer hringingin beint upp í
næsta gervihnött og þaðan stystu
leið á milli gervihnatta í þann síma
sem verið er að hringja í. Iridium er
því óháð fjarskiptakerfinu á jörðu
niðri og þar af leiðandi mikið örygg-
istæki, jafnframt því að notkunin
verður helmingi ódýrari en ef talað
er frá hefðbundnum landsíma í Iri-
diumsíma eða öfugt. Af þessum sök-
um hafa nokkur úgerðarfyrirtæki
þegar tekið Iridium í notkun með
þeim hætti að hafa Iridium síma í
skipunum og á skrifstofunni og haft
þannig milliliðalaus samskipti sín á
milli.
Radíómiðun starfrækir sérstakt
þjónustunúmer fyrir notendur Iri-
dium en með því að hringja í það
Búnaður til að skoða
botnlagið í þrívídd
númer getur viðkomandi fengið úr-
lausn sinna mála fyrir þær vörur og
þjónustu sem Radíómiðun veitir,
fyrir aðeins brot af kostnaði af hefð-
bundnu Iridium samtali. Notendur
Iridium-síma geta einnig fengið
símboða og fengið sent stutt skila-
boð til dæmis með tölvupósti og er
sú þjónusta ókeypis," segir hann.
Ótal upplýsingar
í Þjónustubanka
Radíómiðun hefur komið upp sér-
stökum þjónustubanka þar sem
samþjöppuðum upplýsingum er
komið eftir NMT símakerfinu eða
Inmarsat C gervihnattafjarskipta-
kerfinu fyrir þau skip sem eru á
fjarlægum miðum. Grunnur þjón-
ustubankans er MaxSea-skipstjórn-
artölvan en notkun bankans er afar
einföld þar sem viðkomandi fær upp
á skjáinn sérstakan „pöntunarseðil"
þar sem hann merkir við þau atriði
sem hann vill fá send.
Veðrið á margan máta
Þjónustubankinn býður upp á
mismunandi flokka. Meðal þeirra
eru veðurspákerfi þar sem hægt er
að fá allt að 5 daga veðurspá og
skoða veðurþróunina í þrepum eða
sem kvikmynd. Meðal annars er
unnt að fá yfirlit yfir þau veðurkerfi
sem gætu haft áhrif á veður á Is-
landsmiðum næstu daga o.fl.
Frá siglingastofnun verður hægt
að fá öldudufia-, hafnar- og veðurat-
hugunarstöðvaupplýsingar, frá
Fiskistofu er hægt af fá sendar upp-
lýsingar um skyndi- og reglugerð-
arlokanir, veiðigagnagrunnur held-
ur utan um allar upplýsingar um
veiðiferðina s.s. dagsetningar, tíma,
staðsetningu, dýpi o.s.frv.
Ennfremur er hægt að senda
aflaskýrslu beint til Fiskstofu með
tölvupósti. Þá er hægt að nálgast
gi'einar úr Fiskifréttum og upplýs-
ingar um gengi gjaldmiðla, auk þess
sem hægt er að leggja inn og sækja
veiðiupplýsingar í sérstakan gagna-
banka. Aðrir flokkar sem verið er
að vinna að eru m.a. ferðaáætlnair
flugfélaga og langferðabifreiða,
ýmsar afþreyingar, s.s. getraunir,
upplýsingar um verð á fiskmörkuð-
um o.fl.