Morgunblaðið - 01.09.1999, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1999 D 9
FRÉTTIR
Frostmark býður heildarlausnir á svæði kælingar og frystingar
Fjölbreyttar lausnir
á sviði frystingar
FROSTMARK er rúmlega þriggja
ára fyrirtæki sem stendur á eldri
grunni því að stofnun þess komu
menn með langa reynslu úr kæliiðn-
aðinum. Fyi'irtækið býður við-
skiptavinum sínum upp á heildar-
lausnir á sviði kælingar og frysting-
ar og hefur það sinnt fjölda fyrir-
tækja úr útgerðar- og fiskvinnslu-
geiranum og hefm' bæði boðið upp á
staðlaðar lausnir sem og heildar-
lausnir
Ýmsar nýjungar kynntar
Frostmark verður með bás á
sjávarútvegssýningunni þar sem
fyrirtækið mun kynna það helsta
sem það og samstarfsaðilar þess
hafa upp á að bjóða. Þar á meðal
heildarlausn í stjórnbúnaði kæli- og
frystikerfa sem kemur frá
Honywell Elm, varmaskipta frá
Unex og kælimiðilslekaviðvörunar-
búnað frá Murco. Einnig mun fyrir-
tækið kynna nýja vél sem framleiðir
ískrapa. Verða fulltrúar framleið-
enda, sem eru Unex frá Þýskalandi
og HRS Spiraltube frá Spáni, á
staðnum. Munu þeir bjóða væntan-
legum kaupendum tO Spánar til að
sjá vélina vinna.
Nýtt kælikerfi sparar orku
Frostmark mun einnig kynna
nýjungar í framleiðslu sinni. Ber
þar hæst kælikerfi fyrir vatn eða
sjó til kælingar á flski á undan
vinnslu og meðan á henni stendur.
Nýjung þessa búnaðar felst í því
að hægt er að halda stöðugu hita-
stigi við breytilegt flæði. Þetta
sparar mikla orku því hitastig
framrásar vatns eða sjávar er ein-
ungis 0,3-0,5 gráður fyrir ofan
frostmark.
Lausfrystar fyrir fisk
og rækju
Fyrirtækið mun einnig kynna
IQF lausfrysti og rækjufrysti. IQF
lausfrystirinn hefur þann eigin-
leika að hægt er að stjórna loft-
flæðinu gegnum hann. Það gerir
það að verkum að hægt er að
frysta mismunandi afurðir í hon-
um. Rækjufrystirinn sem Frost-
mark kynnir hefur þann kost að
hann notar 50% af orku hefðbund-
ins frystis og að auki er nýting
rækjunnar meiri en menn eiga að
venjast.
Aflahrota
í laxinum
GÍFURLEGUR afli af laxi fékkst í
Bristolflóa við Kyi-rahafsströnd
Kanada í ár. Aflinn tvö síðustu ár
var mjög tregur og því kom þessi
mikla laxaganga bæði sjómönnum
og fiskverkendum í opna skjöldu.
Vertíðinni lauk í júlí og samkvæmt
bráðabirgðatölum varð aflinn alls
um 25 milljónir laxa, sem er tvöfalt
meira en í fyrra. Alls eru þetta um
62.000 tonn.
Uppnám í vinnslunni
Þessi mikla veiði olli verulegu
uppnámi, bæði á miðunum og í
vinnslunni í landi. Margir höfðu
ákveðið að draga úr sókn og
vinnslu og einhverjir verkendur
ætluðu ekki að vinna neitt. Aflinn
hlóðst upp í landi og þurfti mikla
vinnu í að flytja laxinn til frysting-
ar á öðrum og fjarlægum stöðum
til að forða honum frá eyðilegg-
ingu. Yfíi’völd stöðvuðu veiðarnar
um tíma og margar útgerðh' köll-
uðu báta sína í land meðan verið
var að ná tökum á vinnslunni.
Fer á markað í Japan
Verð á laxinum var hátt í fyrstu,
2,75 dollarar á pundið, þegar veið-
ar hófust í ánum. Aflahrotan á
Bristolflóa hefur hins vegar valdið
verulegri óvissu um verðþróun, en
endanlegt verð myndast ekki fyiT
en að lokinni vertíð. Megnið af lax-
inum fer á markað í Japan, en þar
sem hann er smærri í ár en í fyrra,
óttast seljendur að verð geti lækk-
að. Markaðurinn í Japan er þó að
styrkjast og gæti það því þýtt
þokkalegt verð í ár.
Leiðandi fyrirtæki
í fjármögnun atvinnutækja
Lýsing hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði fjármögnunar
atvinnutækja með eignaleigusamningum. Á síðustu
árum hafa umsvif Lýsingar aukist verulega enda hefur
orðsporið vaxið jafnt og þétt með sífellt fleiri ánægðum
viðskiptavinum.
Hjá Lýsingu hf. starfa sérfræðingar á sviði fjármögnunar
með mikla reynslu í ráðgjöf og þjónustu við einstaklinga
og atvinnulífið.
Kynntu þér trausta og úrræðagóða þjónustu okkar
og láttu okkur aðstoða þig við að velja þá lelð sem
hentar þér best.
símanúmer
Útlánaukning Lýsingar hf. 1994-1998
Heildarútlán
Lýsingar hafa aukist
jafnt og þótt á
síöustu árum enda
koma ánægöir
viðskiptavinir aftur
og aftur, auk nýrra
sem kjósa örugga
og sveigjanlega
fjármögnun.
Fjögur mismunandí
form fjármögnunar
kemur hreyfingu á hlutina